Morgunblaðið

Dagfesting
  • fyrri mánaðurindesember 1987næsti mánaðurin
    mifrlesu
    30123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Morgunblaðið - 11.12.1987, Síða 42

Morgunblaðið - 11.12.1987, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni, Landakoti, Marargötu 2. Tímapantanir í síma 26133 kl. 09.00-18.00. ÓSKAR ARNBJARNARSON, læknir. Sérgr.: Lyflækningar, krabbamei nslækn i ngar. Hljómplata Seítnu Kaldalóns semberheitið „Má ég ífangþérfæra“ með 24 sönglögum eftirhana, fluttafsjöþjóðkunn- um listamönnum fæst víða í hljómplötu- verslunum. Hljómplatan erfalleg gjöftilþeirra sem unnaljúfumlögum. Gull ermahnappar og bindisnœlur fyrir herrann. Gull og demantar Kjartan Ásmundsson, gullsmiður. Aðalstrœli 7. sími 11290. Lífshættir í Reykjavík eftirJón Gíslason Signrður G. Magnússon. Lífshættír ( Reykjavík 1930—1940. Bókaútgáfa Menn- ingarsjóðs 1985. Hér er á ferðinni mjög merki- legt rit er lýsir lffsháttum fólks í Reykjavík á kreppuárunum. Höf- undur lýsir lífsvenjum fímm §öl- skyldna í Reykjavík allítarlega. Hann fer ofan í saumana á fjöl- skyldulífí, atvinnu, lífsvenjum, menntun, skemmtanalífí og jafn- vel lífsskoðunum. Allt er þetta reist á nákvæmum rannsóknum og staðgóðri þekkingu. Höfundur rekur efnið eftir hinum bestu heimildum sem honum eru tiltæk- ar. Láfsviðhorf ijölskyldnanna eru misjöfn, enda reynir Sigurður að setja á svið sem breiðasta svip- mynd af borgarlífinu á umræddu tímabili. Honum tekst það vel og sumt af lýsingum hans eru mjög vel gerðar og raunsæjar. Val hans á ijölskyldunum er raunsætt og leiðir fram skýra mynd. í raun réttri er Sigurður G. Magnússon að rista þverskurð um ævistarf fólks úr fímm stéttum höfuðborgarinnar. Lýsingamar eru gerðar af raunsæi og rann- sókn, nánu sambandi við sögu- fólkið, án öfga, án fyrirfram gerðra ákveðinna skoðana, eins og oft vill verða í ævisögum. Höf- undurinn gerir grein fyrir sögu- fólkinu af fullum skilningi og könnun, sumt þekkir hann af stað- föstum kynnum, en hann lætur það ekki vera um of augljóst, sög- urakningin er leiðin til að gera könnun á viðfangsefninu. Það er Sigurður G. Magnússon aðalatriðið. Sagan er hér í fíjóum og réttum farvegi. Viðhorf og svið sögunnar er líf og starf — lífsbarátta fjölskyldn- anna fímm. Þær skipa ólíkar þjóðfélagsstöður en allar þýðing- armiklar fyrir heiidina. Sigurður reynir að lýsa samfélagsháttunum eins vel og kostur er. Hann leitar víða fanga til heimilda, jafnt í persónulegum viðtölum og margs- konar heimildum, bæði úr opin- berum skýrslum, blaðagreinum og bókum. Hann birtir teikningar af húsakynnum viðkomandi og er það mikils virði og nýlunda í slíku riti sem þessu. Lýsingar hans á húsakynnum verkstjórans, iðnað- armannsins og verkamannsins, sýna greinilega baráttu þeirra við erfíðleika kreppunnar og frumbýl- isára í nýju umhverfi höfuðborg- arinnar. Ég er alveg viss um, að sú kynslóð, sem nú er að vaxa úr grasi og jafnvel búin að sigra þessa örðugleika, skilur þessa baráttu ekki eins og vera ber. Hér er mikið bil á milli baráttu braut- jyðjendanna og þeirra er njóta afrakstursins. Staða læknisins og kaupmannsins er önnur í þessum efnum eins og kemur fram í bók- inni. En þeir urðu líka að heyja baráttu hörðum höndum, en þjóð- félagið var þeim hagstæðara. En hinna er líka sigur og á stundum fullur og traustur eins og hjá Ragnari Jónssyni. Lífshættir í Reykjavík er próf- ritgerð í sagnfræði við Háskóla íslands undir leiðsögn háskóla- kennara. Það er mjög lofsvert, að verðandi sagnfræðingar taka sér viðfangsefni úr lífí og starfí fólks- ins, sérstaklega þess fólks, sem leggur grunninn undir verðandi fí-amfarir og leggur alla krafta sína, vilja og festu í að byggja undirstöðuna að traustu þjóðfé- lagi. Að sjálfsögðu er það svo að við sjáum afrek þessa fólks í raun umhverfís okkur, en við skiljum ekki né vitum, hvað það lagði mikið af sjálfu sér í uppbygging- una, hve miklar fómir það færði á altari vonarinnar, að verða nýt- ir þegnar og öðlast hamingju á trausti komandi daga. Sigurði Magnússyni tekst vel að rekja sögu flölskyldnanna fímm. Hann sýnir með henni sann- an þverskurð samfélagsins. Það er árangur af dugnaði og þreki margra samfélagsborgara okkar. Ég hafði mikið yndi af að lesa þessa bók, og ég er viss um að það verður svo um fleiri. Það hefur orðið svo síðustu áratugina, að ungir sagnfræðing- ar hafa í æ ríkara mæli lagt sig eftir hagsögu og efnahagssögu einstaklinganna í þjóðfélaginu. Sem betur fer eru til talsverðar heimildir um þessi efni í opin- berum söfnUm og gögnum margskonar, sé vel leitað. I þess- ari bók kemur það greinilega fram. Sigurði tekst mjög vel að afla sér heimilda um efnahag sögufólks síns, allskonar skýrslur hafa þar orðið á leið hans, sumar, sem lítt hafa verið notaðar áður. A undanfömum áratugum hafa oft orðið slíkar heimildir á leið minni um dugnaðar- og atorku- menn í höfuðborginni, heimildir til að hafa fært mér heim sanninn um viðbrögð þessara sömu til uppbyggingar þess komandi, sérs- taklega í sambandi við nýjungar og verktækni. Þetta kemur vel fram í Lífshættir í Reykjavík. Von mín er öll, að ungir sagnfræðingar haldi áfram slíkri söguritun. Lífhættir í Reykjavík 1930—1940 er 7. bindið í ritröð er Bókaútgáfa Menningarsjóðs gefur út og nefnist: Sagnfræði- rannsóknir. Ritstjóri verksins er: Bergsteinn Jónsson. Ég vil vekja athygli á útgáfunni, því ég hef orðið var við að hún hefur farið fyrir ofan garð og neðan hjá fólki sem gjaman vill lesa hana og kynnast. Þessi bók er vel gefín út og til hennar vandað. Myndir prýða hana nokkrar auk fyrrgreindra uppdrátta af húsum, íbúðum og húsgögnum. Ég óska höfundi til hamingju með bókina. tfskuhús auglýsir: Eiginmenn athugið: Stórkostlegar jólagjafir fyrir konuna. Laugardaginn 12. desember verða sýning- arstúlkur í búðinni og máta eftir óskum viðskiptavina. Pósthússtræti 13, sími 23050. OTDK HUÓMAR BETUR

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
110
Fjöldi tölublaða/hefta:
55340
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.12.2023
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 282. tölublað (11.12.1987)
https://timarit.is/issue/121537

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

282. tölublað (11.12.1987)

Gongd: