Morgunblaðið - 24.12.1987, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
Lögmálið og lostínn
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Isaac Bashevis Singer: ÞRÆLL-
INN. Hjörtur Pálsson þýddi.
Setberg 1987.
Gyðingaofsóknir á sautjándu öld
gera Jakob, söguhetju Singers, að
ánauðugum manni. Hann verður
þræll í pólsku þorpi, fyrirlitinn og
smáður af öllum nema stúlkunni
Wöndu sem elskar hann. En gyð-
ingdómurinn veldur því að Jakob
á í harðri baráttu við sjálfan sig.
Hann lifir í óvissu um afdrif konu
sinnar og barna og virðir lögmálið
mikils eins og sönnum .gyðingi
ber, en svo fer að hann stenst
ekki stúlkuna og lætur eftir gimd-
um sínum. Eins og svo oft áður
hjá Singer er það ástríðan sem
ræður ferðinni.
Þrællinn má segja-að sé hugleið-
ing um frelsi og réttlæti, synd og
sekt. Skáldsagan er skrifuð frá
sjónarhóli gyðinga og á sér ekki
síst það hlutverk að skýra trúarlíf
þeirra og trúarþörf, í stuttu máli
sérkenni þeirra meðal annarra
þjóða. Þetta er ekki beinlínis gert
í þeim tilgangi að réttlæta og verja
gyðinga sem löngum hafa orðið
að líða fyrir trú sína, lögmál sitt.
En ekki er ijarri því að stundum
gerist Singer of margorður um
þessi efni á kostnað söguþráðar-
ins.
Eftir lestur helgirita gyðinga
hvarfla að Jakobi eftirfarandi
þankar: „Jafnvel fyrir syndara
voru það forréttindi að vera til,
Hjörtur Pálsson
með alla heimana, vagnana, öflin
og drottnarana allt í kringum sig.
Eftir að hafa lesið Lífsmeiðinn
mundi Jakob að hið illa sem var í
rauninni hið sama og tómleikinn
einber varð einungis til af því að
Guð hafði látið sig skreppa saman
og hulið ásjónu sína. Iðrun breytti
syndum í frómleik, réttlæti í mis-
kunn. Lögmálsbrot gat meira að
segja stöku sinnum orðið til góðs.
Þannig hafði hann, Jakob, syndgað
þegar hann girntist Wöndu, en nú
var Wanda orðin Sara, dóttir Abra-
hams, og með því að ala barn var
hún að því komin að kalla sál gyð-
KVEÐJA TIL OG
FRÁ AKUREYRI
Isaac Bashevis Singer
ings til jarðar frá Hástóli Dýrðar-
innar“.
Hvernig pólska stúlkan Wanda
varð Sara óg hvernig fór fyrir Jak-
obi að lokum eftir enn einar
ofsóknimar og fleiri freistingar er
sú saga sem Singer segir. Eins og
lesendur Singers þekkja er hann
meistari litríkra frásagna þar sem
mannlegur breyskleiki ræður oft
ríkjum, en er ekki endilega af hinu
illa hvað sem lögmálum líður. Það
er alltaf gaman að eiga þess kost
að fylgja Singer eftir, jafnvel þótt
hann endurtaki sig stundum svo-
lítið.
Hjörtur Pálsson hefur þýtt sex
bækur eftir Singer og hefur sjaldan
þýtt af meiri lipurð en einmitt nú.
Békmenntir
Guðmundur H. Frímannsson
Richardt Ryel: Kveðja frá Akur-
eyri. Prentverk Odds Björnsson-
ar, 1987. 103 bls.
Það er til veiki, sem nefnist Akur-
eyrarveikin, og lýsir sér í hóflausri
aðdáun á Akureyri og öllu, sem
akureyrskt er, viðþolslítilli löngun
til að dvelja allar sínar stundir á
þeim góða stað og stórri eftirsjá
ef maður þarf að dvelja langdvölum
Qarri honum. Staðurinn stendur
ágætlega undir þessum tilfínning-
um, sem til hans eru bomar, og
launar þeim vel, sem ræktar við
hann tryggð og trúsemi. Ég er hald-
inn þessari veiki og mér sýnist, að
Richardt Ryel sé það líka, enda
hefur hann samið litla, hugljúfa
bók, þar sem hann minnist æsku
sinnar og fyrri hluta ævinnar á
Akureyri.
Ryel var fæddur á Akureyri
snemma á öldinni og stundaði þar
verzlun og viðskipti framan af ævi.
Á þeim tíma er Ákureyri lítill bær,
milli 3 og 4 þúsund manns, og því
kynntist hann flestum, sem þar
bjuggu. Hann segir frá minningum
sínum af nokkrum nafnkunnum
bæjarbúum og að hann ólst upp við
verzlun föður síns og tók til við
svipuð störf, þegar hann hafði aldur
til. Hann hneigðist ekki til mennta,
en þó hugsaði hann alvarlega um
lífsgátuna og segir frá því, þegar
honum ungum lukust upp þau sann-
indi, að engin verðmæti væru algild,
og hann fór að grúska í sálfræði
og heimspeki.
Ég hygg, að merkasti hluti þess-
ara minninga séu frá stríðsárunum
síðari. Ryel á töluverð samskipti við
brezku hermennina, sem hér voru,
seldi þeim margvíslegan vaming og
eignaðist nokkra þeirra að vinum.
Það er ekki ofmælt, að þær breyt-
ingar, sem verða á mannlífi á
íslandi á árum seinni heimsstyijald-
arinnar, séu einhver róttækasta
breyting á íslensku þjóðlífi á þess-
ari öld að minnsta kosti. Þá er eins
og hið hefðgróna samfélag leysist
endanlega upp og við tekur nýr tími.
Ryel lýsir því, hver breyting verður
með komu bandarísku hermann-
anna og hvemig þeir lögðu peninga-
legt mat á alla hluti. Sjálfsagt gerir
hann full mikið úr þeim mun, sem
var á brezkum og bandarískum
hermönnum, en það er aukaatriði.
Þegar peningar voru annars vegar
viku venjur og siðir. Þetta kom
meðal annars fram í samskiptum
hermannanna við hermennina og
þó Ryel vilji ekki segja það beinlín-
is, þá er alveg ljóst af frásögninni,
að hér verður til nokkur hópur
vændiskvenna, sem tóku fé fyrir
blíðu sína. Það, sem er svo merki-
legt, er, að þessi hópur virðist ekki
hafa skapað langvarandi félagsleg-
an vanda í landinu eftir styijöldina,
eins og hefði mátt búast við.
í þessari bók er mikið af mynd-
um, sem margar hveijar em
gagnmerkar og gefa henni mikið
gildi, og textinn er lipurlegur og
læsilegur.
ffgnars
Ragnarsbakarí
IÐAVÖLLUM 8 KEFLAVÍK
SÍMI 92-12120
Hátíðarbrauð
og kökur!
Kcflavík! \V_.
í Konditori
Ragnars
Hríngbraut 92
cr að finna ótrúlega
glæsilegt úrval
af tertum —
og nýlagað
cjj kaffi á
könnunni.
vmsæltt!
Aðventukrans úr gljáðu
krínglubrauði.
ur,
eins og fínu frúnnar
baka sjálfar!