Morgunblaðið - 24.12.1987, Síða 28
28
MORGl’NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
Tvenns konar sjónarmið um vísinda-
veiðiáætlun Japana:
Aætlunin að mörgu
leyti athyglisverð
- segir Jóhann Siguijónsson sjávarlíffræðingnr
TVENNS konar sjónarmið komu fram í vísindanefnd Alþjóða hval-
veiðiráðsins, sem fjallaði um breytta visindaveiðiáætlun Japana í
siðustu viku. Hluti nefndarmanna taldi að fyrirhugaðar veiðar Jap-
ana á 300 hrefnum þjónuðu litlum vísindalegnm tilgangi en aðrir,
þar á meðal islensku fulltrúarnir í nefndinni, töldu að þessi áætlun
ætti fullan rétt á sér. Nefndin varð þó sammála að þessi veiði kæmi
ekki til með að skaða hrefnustofnana.
Japanir ætluðu að hefja veiðar á
825 hrefnum og 50 búrhvölum í
vísindaskyni í október sl. en eftir
viðræður við Bandaríkjamenn end-
urskoðuðu þeir áætlun sína og
féllust á að leggja hana fyrir
vísindanefnd hvalveiðiráðsins. Jó-
hann Sigurjónsson sjávarlíffræð-
ingur, sem sat nefndarfundinn
ásamt Kjartani Magnússyni stærð-
fræðingi og Þorvaldi Gunnlaugssyni
töfræðingi, sagði það hafa verið
skoðun Islendinganna að áætlun
Japana væri að mörgu leyti vel út-
hugsuð og athyglisverð.
Jóhann sagði að farið hefði verið
yfír áætlun Japana með hliðsjón af
viðmiðunum sem nefndin og hval-
veiðiráðið hafa sett. Engin endanleg
niðurstaða varð af fundinum þar
sem mismunandi skoðanir voru uppi
í nefndinni. Það er síðan japanskra
stjórnvalda að meta hvort þau halda
sig við þessa áætlun, með hliðsjón
af þeim sjónarmiðum sem sett voru
fram í vísindanefndinni.
Að loknum fundi vísindanefndar-
innar ræddu fulltrúar þeirra þjóða,
sem ásamt íslendingum stóðu að
víðtækri hvalatalningu á Atlants-
hafi sl. sumar, um hvernig staðið
yrði að úrvinnslu gagna sem aflað
var. Jóhann- sagði það vera tíma-
frekt verk en reynt yrði að hafa
bráðabirgðaniðurstöður tilbúnar
fyrir fund vísindanefndar Alþjóða
hvalveiðiráðsins í vor.
Samlag skreiðarframleiðanda:
Rekstrinum haldið áfram
Stjórn SÍF vildi ekki taka við skreiðarsölunni
STJÓRN Samlags skreiðarframleiðenda hefur ákveðið að halda
rekstri Samlagsins áfram, að minnsta kosti næsta ár, en með lág-
marks tilkostnaði. Vegna þess að framleiðsla skreiðar fyrir Nígeríu-
markað er nú nánast engin hafði stjórn Samlagsins áður leitað eftir
því, að Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda tæki yfir skreiðar-
sölu Samlagsins, en SIF hafnaði
Stjórn Samlags skreiðarframleið-
enda hefur vegna þessa ritað
framleiðendum á sínum vegum
bréf, þar sem þessi ákvörðun og
staða mála er kynnt. Þar segir að
Taflfélag Seltjarn-
arness 10 ára
TAFLFÉLAG Seltjarnarness
varð 10 ára 5. nóvember sl. í til-
efni þess gaf félagið út afmælis-
rit og stóð fyrir skákmóti.
Keppendur voru 22 talsins og
varð Gunnar Gunnarsson sigurveg-
ari með sjö og hálfan vinning af
níu mögulegum. í öðru sæti varð
Ogmundur Kristinsson með sjö
vinninga og í þriðja Ingvar Ás-
mundsson með sex og hálfan
vinning. Á hausthraðskákmóti fé-
lagsins varð Jón Þorvaldsson
sigurvegari með 14 vinninga af 15
mögulegum, í öðru sæti varð Þráinn
Vigfússon með 12 vinninga og í
þriðja Erlingur Þorsteinsson með
11 vinninga.
þvi.
nokkur óvissa hafi ríkt um það
hvernig starfsemi Samlagsins yrði
háttað í framtíðinni vegna þeirra
aðstæðna, sem skapazt hafi við að
skreiðarframleiðsla fyrir Nígeríu-
markað hafi lagzt niður og ekki sé
útlit fyrir að hún verði að neinu
marki um næstu framtíð og fyrst
um sinn nær engin. Vegna þess
hafi verið leitað til SÍF um yfirtöku
á sölu skreiðar félagsmanna, en
stjórn þess hafi ekki treyst sér til
að blanda sér í skreiðarsöluna.
{ bréfinu segir svo orðrétt: „Eftir
ítarlegar umræður urðu allir stjórn-
armenn sammála um að halda
starfseminni áfram með lágmarks
tilkostnaði. Menn töldu það þjóna
bezt hagsmunum framleiðenda, þar
sem það liggur fyrir að ekki verður
komizt hjá nokkurri starfsemi með-
an verið er að fá botn í kröfur, sem
Samlagið á útistandandi í Nígeríu
og fleiri mál. Reiknað er með að
hausar verði þurrkaðir í verulegum
mæli og óhætt mun að gera ráð
fyrir verðhækkun á þeim frá því,
sem nú er og því meiri sem sam-
staða útflytjenda er betri og traust-
ari.“
Hluti af leikurum Og söngvurum í Gullárunum. Ljósmynd: Magnús Hjörleifsson.
Söngleikur á Hótel íslandi:
Gullárin með KK í innlend-
um og erlendum hljómum
SÖNGLEIKURINN Gullárin
með KK hefur verið æfður
af miklum krafti undanfarnar
vikur, en söngleikurinn verð-
ur frumsýndur í Hótel íslandi
á nýárskvöld. Morgunblaðs-
menn litu inn á æfingu
söngleiksins og ræddu við
Sigríði Þorvaldsdóttur leik-
stjóra. Gullárin segja sögu
Kristjáns Kristjánssonar
hljómsveitarsljóra KK í stór-
um dráttum sem tónlistar-
manns frá bernsku og fram
úr og ýmsir aðrir kunnir
íslenskir tónlistarmenn koma
við sögu. Má þar nefna Ellý
Vilhjálms, Ragnar Bjarnason
og fleiri en þau Ellý og Raggi
syngja í Gullárunum.
Höfundur er Gísli Rúnar Jóns-
son og Olafur Gaukur, en Olafur
er jafnframt hljómsveitarstjóri
Gulláranna. Dansahöfundur er
Nanna Olafsdóttir, Gerla gerði
búninga og Björn Björnsson leik-
mynd. Leikmyndagerð er í
höndum Sigurðar Sigurðssonar,
Sigurður Bjóla annast hljóðstjórn,
Magnús Sigurðsson er Ijósameist-
ari og Kristinn Karlsson sýningar-
stjóri.
Söguþráður Gulláranna spann-
ar allvítt tónlistarsvið, allt frá
Ljósmynd: Magnús Hjörieifsson.
Þau koma við sögu: Ragnar Bjarnason, Ellý Vilhjálms, Ólafur
Gaukur og Kristján Kristjánsson.
gömlú spretthlaupaböllunum þar
sem konur sátu öðrumegin í saln-
um og karlar hinumegin uns
blússið kom og til rokkáranna sem
hefur teygst verulega úr. Sigríður
sagði að Gullárin væru léttur og
leikandi söngleikur með söguívafi.
Leikarar eru Bessi Bjarnason,
Júlíus Bijánsson, Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Árni Pétur Guðjóns-
son, Lísa Pálsdóttir, Þórdís
Arnljótsdóttir, Eiríkur Guðmunds-
son, Stefán Sturla Sigurjónsson,
Guðjón Sigvaldason og Jónþór
Jónsson.
Dansarar eru Sigurður Gunn-
arsson, Björgvin Sigurðsson,
Ingibjörg Jónsdóttir, Anna María
Pitt, María Dís Cilia, Rúna íris
Ólafsdóttir, Guðrún Edda Þór-
hannesdóttir, Viðar Maggason,
Axel Guðmundsson, Haukur
Clausen og Helena Jónsdóttir.
Fjórtán manna stórhljómsveit
leikur ásamt söngvurunum Ellý
Vilhjálms, Ragnari Bjarnasyni,
Helgu Möller, Jóhanxii Helgasyni,
Eddu Borg og Þór Ásgeirssyni.
Takk fyrir hjálpina
Viö höfum fundiö mikinn meöbyr og velviljo á þessu ári.
■ Þaö hefur veriö okkur ómefonlegf í boráffunni.
' arnarflug