Morgunblaðið - 24.12.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
V estur-Þýskaland:
Margt bendir til
að Barschel hafi
verið myrtur
Vestur-Þýsk sjónvarpsstöð seg-ist
hafa áður óbirt gögn undir höndum
Bonn, Reuter.
SAMKVÆMT nýjum uppiýsingum sem vestur-þýska ríkissjónvarps-
stöðin ZDF segist hafa undir höndum féll Uwe Barschel fyrrum
forsætisráðherra Slésvíkur-Holtsetalands fyrir morðingjahendi. Lög-
regluyfirvöld i Sviss höfðu áður greint frá því að Barschel hefði
þann 11. október framið sjálfsmorð á hótelherbergi í Genf eftir að
uppvíst varð um pólitískt hneyksli sem Barschel tengdist.
I fréttatíma ZDF á þriðjudag var starfa fyrir rétti: „Við höfum fundið
frá því greint að fréttamenn stöðvar-
innar hefðu komist yfir krufningar-
skýrsluna og gætu upplýsingar í
henni hnekkt sjálfsmorðskenningu
svissneskra yfirvalda. Samkvæmt
skýrslunni lést Barschel af eitri sem
kom inn í líkama hans eftir að hann
var orðinn magnvana af völdum
svefnlyfja. Því gæti hann ekki hafa
tekið inn eitrið af sjálfsdáðum. Einn-
ig fundust á líkinu merki eftir nýlegt
högg á gagnauga.
Sjónvarpsstöðin vitnaði í ummæli
Hans Brandenbergers forseta al-
þjóðasamtaka eiturefnafræðinga sem
Reuter
mjög sterkar vísbendingar um það
að efnin pyrithyldion, perazin og dip-
henhydramin hafi komist inn í líkama
Barschel á undan cyrlobarbital ,efn-
inu sem varð honum að bana.“ í
maga Barschels fundust einungis
merki um síðasttalda efnið en svefn-
lyfm voru þegar komin út í blóð og
þvag hins íátna.
Barschel sagði af sér embætti for-
sætisráðherra í Slésvfk-Holtsetalandi
í september síðastliðnum eftir að
tímaritið Der Spiegel hafði uppljóstr-
að að hann hefði beitt í meira lagi
vafasömum aðferðum í kosningabar-
áttunni.
Lögreglumenn skoða bifreið Harshas Abeywardene, sem myrtur var í gær ásamt þremur aðstoðarmönn-
um sínum í Colmbo, höfuðborg Sri Lanka.
Sri Lanka:
Formaður stj ómarflokks-
ins veginn úr launsátri
Marxistar taldir ábyrgir fyrir ódæðinu
Colombo, Reuter.
FORMAÐUR stjórnarflokksins á
Sri Lanka og þrír aðstoðarmenn
Yfirlýsing Sjö-ríkjahópsins um efnahagsmál:
FaU dollarans verði stöðvað
Viðbrögðin í fjármálalífinu einkennast af efasemdum
London, Waahington. Reuter.
SJÖ-rikjahópurinn svokallaði hvatti í gær til, að komið yrði í veg
fyrir frekara gengisfall dollarans og ítrekaði fyrri yfirlýsingar um
nauðsyn þess að örva efnahagslifið um heim allan og koma meira
jafnvægi á milliríkjaviðskipti. Varð þessi áskorun til að styrkja nokk-
uð doliarann í Evrópu en þar og í Asíu hefur henni samt verið tekið
fremur fálega. Finnst flestum of seint i rassinn gripið og efast um,
að hún komi að neinu haldi.
„í öldurótinu í október og desemb-
er biðu allir eftir þessu, einarðri
yfirlýsingu frá Sjö-ríkjahópnum. Það
olli okkur vonbrigðum, að hún skyldi
ekki koma þá en nú er það orðið um
seinan og okkur stendur á sama,“
sagði franskur gjaldeyriskaupmaður
en í káuphöllinni í París lækkuðu
hlutabréf heldur í verði þrátt fyrir
yfirlýsinguna. Að henni stóðu stjóm*
völd í Bandaríkjunum, Bretlandi,
Japan, Vestur-Þýskalandi, Frakk-
landi, Ítalíu og Kanada. Í London
varð örlítil hækkun aftur á móti og
framan af degi var dollaragengið
dálítið hærra eh í gær.
Nigel Lawson, íjármálaráðherra
Bretlands, sagði í gær, að hann teldi
dollarann vanmetinn um þessar
mundir og bætti því við, að mikið
væri undir því komið, að Bandaríkja-
stjóm gerði allt, sem hún gæti, til
að stuðla að jafnvægi í gjaldeyrismál-
unum.
hans voru myrtir í Colombo, höf-
uðborg eyjarinnar, í gær. Talið
er að tilræðismennirnir séu félag-
ar í ólöglegum marxískum stjórn-
málasamtökum sem nefnast
„Alþýðufylkingin" og lýst hafa
sig andvig samkomulagi stjórn-
valda á Sri Lanka og Indlandi
um leiðir til að binda enda á borg-
arastyrjöldina á Sri Lanka.
Að sögn lögreglu skutu tilræðis-
mennimir, sem voru tveir, á bifreið
Harshas Abeywardene auk þess sem
þeir beittu handsprengjum. Abeyw-
ardene, lífvörður hans, ökumaður og
ERLENT
þjónn féllu í árásinni. Vígamennimir
komust undan á reiðhjóli.
„Alþýðufylkingin" samanstendur
einkum af ungum mönnum af kyn-
þætti singhalesa, sem andvígir em
sáttmála stjómvalda á Indlandi og
Sri Lanka um að binda enda á vopn-
aða baráttu tamíla, sem eru minni-
hlutahópur á Sri Lanka, fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis á eyjunni. Lögreglu-
yfirvöld telja að félagar í samtökun-
um hafi myrt 265 embættismenn og
fylgismenn stjómarflokksins, „Sam-
einaða þjóðemisflokksins, frá því að
samkomulagið var undirritað í júlí-
mánuði.
Harsha Abeywardene var endur-
kjörinn formaður flokksins á ársþingi
hans sem lauk á laugardag. Junius
Jayewardene, forseti Sri Lanka og
leiðtogi flokksins, sagði í ræðu á
þinginu að yfirvöld teldu sig hafa
fullgildar sannanir fyrir því að félag-
ar úr „Alþýðufylkingunni“ hefðu
staðið að baki sprengjutilræði í þing-
húsinu í ágústmánuði. Tveir menn
týndu lífi í tilræðinu, sex ráðherrar
særðust en forsetinn slapp naum-
lega. Hét forsetinn því að samtökin
yrðu upprætt með öllu á næstu
tveimur vikum.
Jólatré
Sparisjóður vélstjóra og sjómannafélögin í Reykjavík halda jólatrésfagnað í
Broadway laugardaginn 26. desember kl. 15-18.
Jólasveinar koma í heimsókn og margt fleira verður til skemmtunar.
Miðasala við innganginn.
SKIPSTJORA- OG STÝRIMANNAFELAGID ALDAN
SKIPSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS'
-JL.
•'J'.
M
SMRISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
t; it
n\
STÝRIMANNAFÉLAG ISLANDS
Sj ómannajéla g
Reykjtvvikur
Félog fslenskra loftskeytamanno
Svíþjóð:
Pólveiji rek-
inn úr landi
fyrir njósnir
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SÆNSKA stjórnin hefur vísað
úr landi vararæðismanni Pól-
veija i Málmhaugum og er
honum gefið að sök að hafa
stundað njósnir. Verður hann að
vera farinn úr landi innan tíu
daga. Pólska stjórnin hefur ekk-
ert um brottreksturinn sagt né
brugðist við honum með öðrum
hætti.
Pólski vararæðismaðurinn
Zbigniew Lasota er sakaður um
njósnir en sænska leyniþjónustan
og utanríkisráðuneytið vilja ekkert
meira um það segja. Lasota hefur
verið í Svíþjóð í tvö ár og er talið,
að brottvísun hans tengist þeirri
ákvörðun stjómarinnar að fallast
ekki á skipun annars Pólveija sem
ræðismanns í Málmhaugum.
Lasota átti að réttu lagi að gegna
starfi sínu fram á næsta sumar en
sendiherra Pólveija í Stokkhólmi
var skýrt frá því, að framferði hans
bryti í bága við sænsk lög og rétt-
indi hans í landinu. Var þetta
tilkynnt daginn eftir 70 áráafmæli
KGB, sovésku leyniþjónustunnar,
en hún stjómar pólsku leyniþjón-
ustunni að meira eða minna leyti.