Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 t Eiginkona mín og móðir okkar, HALLDÓRA PÉTURSDÓTTIR, Höfðakoti, Skagaströnd, andaðist f Héraðshælinu, Blönduósi, 23. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Steingrímur Jónsson og börn. t Móöir okkar og amma, SIGURLÍN JÓNSDÓTTIR, Kirkjubraut 7, Akranesi, lóst 22. desember. Sigurlaug Sigurðardóttir, Benedikt Sigurðsson, Helgi Sigurðsson, Sigrún Rafnsdóttir. t Faðir okkar, HREGGVIÐUR JÓNSSON, lést 22. desember. Tómas Hreggviðsson, Eyvindur Hreggviðsson. t Móðir okkar, VILFRÍÐUR Þ. BJARNADÓTTIR, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þriöjudaginn 23. desember. Fyrir hönd vandamanna, Péturog Haukur Andréssynir. t GUÐMUNDSÍNA SIGURRÓS SIGURGEIRSDÓTTIR frá Hellissandi, lést mánudaginn 21. þessa mánaðar. Börnin. t Sambýliskona min, móðir okkar og tengdamóðir, HEIÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR, Kleppsveg 72, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum miðvikudaginn 16. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magnús Ólafsson, Sólveig B. Jakobsdóttir, Maren A. Jakobsdóttir, Flosi Þ. Jakobsson, Þóra Pétursdóttir, Ómar S. Jakobsson, Elísabet Magnúsdóttir, .'var B. Jakobsson, Hallbera Bjarnadóttir, K. Elvar Jakobsson. t Fóstursystir mín, GUÐNÝ LÝÐSDÓTTIR, Ásenda 13, andaöist 6. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ingibjörg Stefánsdóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi GUNNAR EINARSSON frá Herastöðum, Kjós, sem andaðist í Landakotsspítala 16. desember sl. verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju. mánudaginn 28. desember kl. 1.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Aðalheiður I. Jónsdóttir, Bergmann Gunnarsson, Jón Gunnarsson, Björg Gunnarsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Gróa Gunnarsdóttir, Ragnar P. Gunnarsson, Sveinn Gunnarsson, Sign'ður Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Hallbera Gunnarsdóttir, Sigþrúður E. Jóhannesdóttir, Stella E. Gunnarsdóttir, Bjarni Gunnarsson, Ragnar Halldórsson, Helga D. Sæmundsdóttir, Hólmfríður Friðsteinsdóttir, Þorsteinn Gíslason, Pétur Sigurðsson, Kristinn Skúlason, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Snorri Þorsteins son, Selfossi Fæddur 23. ágúst 1923 Dáinn 7. desember 1987 Traustur maður, góður eigin- maður og rómaður heimilisfaðir er fallinn frá. Það gerðist mjög snöggt. Hann vann sitt verk mánudags- morguninn 7. desember, en fór til læknis um hádegisbil og í fram- haldi af því gekkst hann undir aðgerð um kvöldið, en það tókst ekki að bjarga honum. Hann hafði að vísu ekki gengið alveg heill til skógar að undanfömu, en Snorri var ekki að vfla hlutina fyrir sér. Kannski hefur hann ætlað að bíða fram yfir áramót því þá stóð til að Póstþjónustan yfirtæki starf það sem hann hafði stundað undanfarin 14 ár. En enginn ræður sínum næturstað. Það er skarð fyrir skildi. Traustur var hann umfram allt, það mátti segja um Snorra og klukkuna að hvorugt brást. Það var næstum sama á hveiju gekk á leiðinni milli Selfoss og Reykjavíkur, það var eitthvað meiriháttar ef Snorri skil- aði sér ekki á réttum tíma. Ekki svo að skilja að leiðin sé að jafnaði torsótt en Snorri fór oftast fyrstur yfir heiðina áður en tækin komu ef þeirra þurfti með. Þannig hafði þetta gengið flesta morgna eins og áður sagði undanfarin 14 ár. Snorri Þór Þorsteinsson var fæddur þann 23. ágúst 1923 á Sel- árbakka á Arskógsströnd. Foreldr- ar hans voru hjónin Þorsteinn Jóhannsson og Helga Soffía Einars- dóttir, þau áttu þijú böm. Þegar Snorri er 4 ára flyst fjölskyldan að bænum Götu í sömu sveit og þar ólst hann upp fram að tvítugu og vann hin hefðbundu sveitastörf og stundaði einnig sjósókn. Haustið 1943 leggur Snorri land undir fót og fer á Héraðsskólann á Laugar- vatni og stundar þar nám í 2 vetur. A þessum tíma kynnist Snorri ungri stúlku úr Grindavík, Ólöfu Bene- diktsdóttur, sem stundaði vinnu á Selfossi. Þann 21. júní 1947 gengu Ólöf og Snorri í hjónaband og hófu búskap á Selfossi og bjuggu þar alla tíð síðan. Þau eignuðust 4 böm sem em: Ólafur, Helga, Snorri og Hulda. Þau búa öll á Selfossi ásamt sínum fjölskyldum og em bama- bömin orðin 12 og 1 barnabama- bam. Snorri hóf störf hjá Kaupfélagi Ámesinga sem bflstjóri á mjólk- urbílum og áætlunarbflum og tengdist reyndar áætluninni mest. Við á Selfossi munum varla eftir okkur öðmvísi en Snorri væri á rútunni, þannig var hann einn af þessum föstu punktum í tilvemnni sem við munum eftir, bílstjóri fram í fmgurgóma, rólegur, gætinn og traustur. Þeir em orðnir margir kílómetramir sem Snorri hefur ekið síðastliðin 40 ár. Hann skráði akst- ur sinn á hveiju einasta kvöldi og hversu marga km hann ók og auð- vitað við hinar ólíkustu aðstæður. Það gæti orðið fróðlegt heimildarrit síðar meir. Einu gamlárskvöldi sagði hann mér frá þegar hann var sendur austur í sveitir að ná í mjólk- urbílstjóra því að þar vom bílar þeirra fastir og sumir brotnir, veðr- ið með versta móti, hann sagðist hafa verið á mjög duglegum bíl og heim hafí þeir komið á nýjárdags- morgun. Hann sagði líka að það væri ekki gott að bera þáverandi aðstæður við það sem nú tíðkaðist; öll þau hjálpartæki sem til væm nú á tímum. Snorri var um tíma formaður Ökuþórs, félags bflstjóra. Árin 1959 til 1965 rak Snorri eigin vömbifreið, en að þeim tíma liðnum ræðst hann aftur til KA á rúturnar. Þegar KÁ hætti rekstri sérleyfisins kaupa Snorri og Jón Halldórsson það og reka það í 8 ár. Árið 1976 selja þeir sérleyfið, en áður hafði Snorri hætt akstri þar af heilsufarsástæðum. Þá hóf hann akstur á pósti í sveitum Árnes- sýslu. Þegar ég réðst til þessa aksturs kom það í hans hlut að kenna mér, það var eftirminnilegur Minning: Helga Jóhannesdótt■ ir Dalgeirsstöðum Fædd 26. nóvember 1898 Dáin 9. desember 1987 Mig langar til að minnast ömmu minnar nokkmm orðum, en hún lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga 9. desember sl. Þessi góða og hlý- lega kona, alltaf var gott að koma til hennar, ég man hvað við spjölluð- um saman á kvöldin yfir kaffibolla, þegar ég fór norður á sumrin. í vor um páskana skrapp ég norður að heimsækja afa og ömmu en þá var amma alveg lögst í rúmiðj en tók á móti mér brosandi eins og hún var vön. Þá sagði ég henni að ég væri að kaupa mér nýtt húsnæði og hún sagði; „Ef ég kæmist nú suður að sjá það.“ En svo rétt á eftir veiktist amma og var flutt á spítalann. Þegar ég fór norður í sumar og sá hana á sjúkrahúsinu brá mér, hvað henni hafði farið aftur, hún þekkti mig ekki fyrst og ég veit varla hvort hún þekkti mig nokkuð almennilega. En ég á góðar minningar frá því í gamla daga, þegar ég var stelpa og var að fara í sveitina eftir skól- ann, hvað ég hlakkaði til. Eg hafði mjög gott af því að vera í sveitinni og umgangast dýrin, alltaf ber ég nú einhveijar taugar heim i dalinn. Aldrei gat ég látið eitt einasta sum- ar fara fram hjá án þess að fara norður. Ég minnist þess þegar ég fór norður einu sinni um jólin fyrir mörgum árum og hjálpaði ömmu, amma var alltaf hlýleg, það var notalegt að vera í návist hennar. t Bróðir okkar, KRISTJÁN BENEDIKTSSON frá Haganesi, siðast til heimilis að Hrafnistu Reykjavik, sem andaðist 18. þ.m. veröur jarðsunginn þriðjudaginn 29. des- ember kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Kristbjörg Benediktsdóttir, Hákon Benediktsson, Maria Benediktsdóttir, Valey Benediktsdóttir, Sigurbergur Benediktsson og aðrir vandamenn. dagur í desember 1973. Veður mjög vont og ferðin sóttist seint og mér leist ekki á blikuna, en Snorra brá hvergi. Hann var hinn rólegasti og taldi í mig kjark og sagði að gott væri að kynnast svona veðri í upp- hafi, oftast væri það miklu betra. Þegar ekki sá fram fyrir vélarhlíf dró Snorri upp spil og sagði að betra væri að spila heldur en að reyna að aka. Snorri sagði mér margt frá fyrri árum á rútunum og mér varð ljóst að þessi uppákoma var barnaleikur miðað við mikið af því sem hann hafði lent í um dag- ana, einmitt fyrir þessar aðstæður, og heim skilaði hann okkur um kvöldið, að vísu í seinna lagi. Snorri Þór var farsæll maður bæði í störfum sínum og einkalífi, þau hjón voru mjög hamingjusöm og samiýmd svo af bar. Heimakær var hann mjög og var sjaldan af bæ nema við störf sín. Þessi fáu kveðjuorð verða ekki öllu fleiri enda veit ég að Snorra var ekki um orðagjálfur gefið. Hann hafði lagt svo fyrir að útför hans yrði gerð í kyrrþey. Hann er kvaddur í virðingu og þökk fyrir allt sem hann starfaði af meðfæddri trúmennsku, fyrir allt sem hann var þeim sem hann unni. Ég votta öllu fólkinu hans samúð mína og veit ég það geymir bjarta minningu um góðan og traustan mann. Gissur Geirsson, Selfossi. Ég man þegar ég fékk að baka hjá henni allar sortir, aldrei fann hún að neinu hjá manni, þvert á móti. Amma hafði aldrei mörg orð um það sem var henni á móti. skapi. Alltaf var hún með sitt jafnaðar- geð, ekki voru lætin og hávaðinn í henni. Ég minnist þess þegar ég lét skíra dóttur mína fyrir norðan heima svo þau gætu verið með. Ég þakka ömmu fyrir allar sam- verustundimar. Megi algóður Guð taka vel á móti henni. Héðan burt vér göngum glaðir Guð úr þínu húsi nú allt vér þökkum, elsku faðir enn er hér oss veittir þú lífsins orða Ijósið bjarta læknismeðal sjúku hjarta endumæring, hressing, hlíf, huggun, svölun, kraft og líf. (V. Briem.) Helga Björnsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.