Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
61
Athyglisverð ævisaga
Til Velvakanda
Ég var að lesa bók Péturs Guðjóns-
sonar, sem búinn er að gefa út
ævisögu sína þó hann hafí ekki lifað
nema hálfa ævina. Hvað verður næst
- Jón Baldvin, Ólafur Ragnar
Grímsson? Nei, ég held það sé nóg
að þeir blaðri stöðugt í fjölmiðlum
þó þeir séu ekki að hrella þjóðina á
Kæri Velvakandi
Ég get ekki orða bundist. Hvað
er að gerast? Er þjóðin að deyja
úr hræðslu við að eldast. Hollywood
treður upp með týndu kynslóðina
helgi eftir helgi, þar sem dustað er
rykið af gömlum hljómsveitum sem
segja má að megi muna fífil sinn
fegri. Þórskaffi býður uppá Pelikan
og Broadway uppá Searches. Út-
varpsstöðvamar keppast við að
leika músík frá árunum 1960 til
sjálfum jólunum með slíkri uppá-
komu.
Annars verð ég að segja að mér
fínnst bókin ansi merkileg á margan
hátt og næstum því ótrúlegt hvað
einn maður hefur komið víða við og
ferðast mikið á ekki lengri ævi. Ég
er ekki alveg frá að þessi bók eigi
erindi við ungt fólk sem nú er að
1970.
Það er allt í lagi að koma með
eitt og eitt skemmtiprógram eða
þátt frá þessu tímabili eri öllu má
nú ofgera. Ég mæli með að við
snúum okkur að nútlðinni, þvf það
er ekkert hræðilegt að eldast. Allur
aldur hefur sinn sjarma. Förum nú
að dansa eftir nýju lögunum og
hlusta á ný lög í útvarpi.
Móðir
loggja í langskólanám. Því Pétur er
hámenntaður en lýsir samt mikilli
vantrú á menntakerfið. Svo held ég
að þorri fólks, sem er að streða I
þessu lífsgæðakapphlaupi og
hringsnýst í kringum sjálft sig eins
og óðir hundar sem bfta í rófuna á
sér, ætti nú að gefa sér tíma eina
kvöldstund og glugga f þessa bók.
Því Pétúr virðist hafa þrófað sitt af
hverju. Það sem ég á hins vegar
bágt með að skilja er hvers vegna
hann kom aftur til Íslands. Hann
hefur búið í Suður-Amerfku, Asíu
og Bandaríkjunum og hefur hlotið
þar frægð og frama eins og fram
kemur f bókinni (og maður varður
víst að trúa þvf - í bókinni er fullt
af blaðagreinum og myndum). Nema
hann hafi komið aftur til þess að
koma einhveiju viti inn f þetta
ruglaða þjóðfélag. En ég á nú bágt
með að trúa því að einhver sé svo
góðhjartaður á þessum síðustu og
verstu tímum. En hver veit?
Iðnaðarmaður
Snúum okkur að nútíðinni
í>essir hringdu ..
Afnemið
tekjuskatt
Þ.O hringdi:
„Ég vil taka undir grein sem
Kristinn Gíslason skrifar f Velvak-
anda 22. desember er bar fyrir-
sögnina „Tekjuskatturinn er
óþarfur". Fýrir kosningar töluðu
margir stjórnmálamenn fjálglega
iim áð leggja bæri niður tekju-
skattinn. Nú keppast þeir við að
leggja á matarskatta. Eins ^og
Kristinn bendir á er tekjuskattur-
inn óréttmætur þar sem stór hluti
þjóðarinnar getur komist hjá að
greiða hann. Mönnum ber saman
um að með staðgreiðslukerfínu
muni skattbyrgðin þyngjast frek-
ar enn hitt og svo bætist matar-
skatturinn við. Er þetta ekki full
mikið af því góða?“
Ráðhúsið verður
til prýði
Halldóra hringdi:
„Mikið hefur verið rætt og
skrifað um ráðhúsið við Tjörnina
og hafa þeir neikvæðu verið sérs-
taklega iðnir við að koma sinni
skoðun á framfæri. Þetta fólk vill
engu breyta, allt á að vera eins
og áður var. Það athugar ekki að
ráðhúsið mun prýða Tjörnina
mjög og auka gildi Kvosarinnar.
Afturhaldsöflin hafa allt of miklu
ráðið um skipulag Miðbæarins.
Þar hefur engu mátt breyta og
fyrir bragðið hefur þessi bæjar-
hluti alveg orðið útundan."
Rykfrakki
Gráhvítur rykfrakki var tekinn
f misgripum f skemmtistaðnum
Lennon fostudaginn 18. desem-
ber. Sá eða sú sem tók frakkann
vinsamlegast hringi í sfma 32036
eða 36226.
skatturinn
er óþarfur
Til Velvakanda.
Skattakerfið Islenska hefur
aldrei verið vinsælt og er það ekki
enn. Fyrir nokkrum árum trúði ég
þvf að Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðuflokkur vildu afnema tekju-
skatt, sem er siðlaus vegna þess
að aðeins hálf þjöðin borgar hann.
Og of heimskulegur vegna þess
að hann dregur úr starfsgleði
manna og athöfnum. Ég trúði þvl
að þessir flokkar stluðu sér að
gera nauðsynlega skattheimtu að
mestu að neyslusköttum, sem
auka spamað og draga úr viö-
skiptahalla og gjaldeyrissóun. Þvl
^miður hefur verið horfið frá þessu
þráð og þess vegna er kurr I lið-
við velferðar-
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía
Jólaguðþjónustur Fíladelfíu
Aðfangadagur - kl. 18.00 - aftansöngur - kór
safnaðarins syngur undir stjórn Arna Arin-
bjarnarsonar. Einsöngur Sólrún Hlöðvers-
dóttir. Ræðumaður: Einar J. Gíslason.
Jóladagur - kl. 16.30 kór safnaðarins syngur
undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar. Ræðu-
maður: Hafliði Kristinsson.
Sunnudagur 27. des., kl. 20.00 - almenn sam-
koma.
Æskufólk sér um söng og vitnisburði. Ljós-
brot syngur undir stjórn Hafliða Kristinssonar.
fl
A\
©H
Meistarafélag
húsasmiða
Jólatrésskemmmtun
Meistarafélags húsasmiða og Bjarkar verð-
ur haldin mánudaginn 28. desember kl.
14.00 í Sigtúni 3.
Skemmtinefndirnar
Siglfírðingar í Reykjavík
ognágrenni
Jólatrésfagnaður verður haldinn í Holiday
Inn þriðjudaginn 29. des. kl. 15.00.
Nefndin.
Jólatréskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræðingafólags
íslands verður í Domus Medica sunnudaginn
27. desember frá kl. 15.00-18.00.
Jólasveinarnir.