Morgunblaðið - 24.12.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
63
Guðmundur Helgason lyftinga-
maður úr KR.
■ GUÐMUNDUR Helgason,
lyftingamaður úr KR, kemur gagn-
gert til íslands frá námi í Banda-
ríkjunum, til að reyna við
Olympíulágmörk í lyftingum fyrir
OL í Seoul. Guðmundur tekur þátt
í Reykjavíkurmeistaramótinu í
olympískum lyftingum, sem fer
fram í íþróttahúsi Vörðuskóla, á
sunnudaginn.
I MANASKIN Sigga Frænda
setti bæði islandsmet félagsliða í
keilUj þegar liðið keppti við Lands-
Lið Islands í áskorendakeppni í
keilu. Siggi Frændi og félagar
náðu hæsta skori í leik, 815 og
hæstu samtalsskori í seríu, 2.239.
Landsliðið vann sigur með því að
ná samtals 2.276 stigum í seríu.
■ RABAH Madjer, landsliðs-
maður í knattspymu frá Alsír, sem
Bayern MUnchen keypti á dögun-
um frá Porto í Portugal, hefur
verið lánaður út þetta keppnistíma-
bil til spánska félagsins Valencia.
■ ÁRNI Stefánsson fyrrum
landsliðsmarkvörður í knattspyrnu,
sem orðaður hafði verið sem næsti
þjálfari Isfirðinga, hefur-ákveðið
að vera áfram hjá 4. deildarliðinu
Neista frá Hofsósi næsta keppn-
istímabil.
■ ANDERS Holmertz sund-
maðurinn snjalli frá Svíþjóð er nú
talinn besti 200 m skriðsundmaður
heims. Hann sigraði í 200 m skrið-
sundi á opna bandaríska meistara-
mótinu á mánudaginn. Hann synti
á 1.49,09 mín og var meira en sek-
úndu á undan Bandaríkjamannin-
um, Matt Cetlinski. Holmertz varð
annar í 400 m skriðsundi á sunnu-
daginn er hann synti á 3.50,03 mín
og er það sænskt met.
Á sama móti setti ung og upprenn-
andi bandarísk sundstjarna, Janet
Evans, nýtt heimsmet í 400 metra
skriðsundi er hún synti á 4.05,45
mínútum.
■ MÓNAKÓ hefur nú þriggja
stiga forystu í frönsku deildar-
keppninni í knattspyrnu eftir leiki
helgarinnar. Þá vann Mónakó lið
Paris St. Germain 2:1. Jean-Marc
Ferratge og Fadrice Mege gerðu
mörk Mónakó en Michel Bibard
minnkaði muninn fyrir Parísarliðið
■ ÁTVR sigraði í fírma- og fé-
lagshópakeppni Vals í knattspymu,
sem fram fór fyrir skömmu. Bíla-
borg hafnaði í öðru sæti og Sól
hf fékk bronsverðlaunin. Leikmenn
þriggja efstu liða fengu íþróttafatn-
að frá Henson í verðlaun, en 36 lið
tóku þátt.
■ JÓLAMÓT Selfoss i ftjálsum
iþróttum innanhúss verður haldið í
íþróttahúsi Gagnfræðaskólans
sunnudaginn 27. desember klukkan
14,00. Keppt verður í langstökki,
þrístökki og hástökki án atrennu
og með atrennu, auk kúluvarps.
Öllum er heimil þátttaka í mótinu.
Skráning fer fram á staðnum.
HANDKNATTLEIKUR
„íslendingar sterkastir"
„Við eigum að geta lagt íslendinga að velli á heimavelli,11 segirAnders
Dahl-Nielsen. Danirræða um mikiðálag eftiraðeinsfimm landsleiki
BOGDAN og strákarnir hans í
landsíiðinu í handknattleik
verða á ferð og flugi á milli
jóla og nýárs. Landsliðið heldur
til Danmerkur annan í jólum
og tekur þar þátt í fjögurra liða
handknattleiksmóti. Strákarn-
ir, sem hafa leikið fjórtán
landsleiki á rúmum mánuði,
mæta þar Dönum, Svisslend-
ingum og Frökkum. Já, fjórtán
landsleikirog þrírtil viðbótar
í sjónmáli.
Danir, sem eru eins og Sviss-
lendingar og Frakkar, að
undirbúa sig fyrir B-keppnina í
Frakklandi, tóku þátt í móti í A-
Þýskalandi um sl. helgi - léku þar
fimm leiki. Þeir leika þijá leiki á
milli jóla og nýárs og fjóra um miðj-
an janúar.
„íslendingar hafa lagt
hart að sór“
„Er þetta ekki of mikið af því
góða?“ var spurt í dönsku blaði nú
í vikunni. „Nei, alls ekki. Við þurf-
um á mörgum landsleikjum að
halda þannig að strákamir fái
reynslu," sagði Anders Dahl-Niels-
en, landsliðsþjálfari Dana og vitnaði
hann síðan í íslenska landsliðið.
„Leikmenn íslands hafa lagt mjög
hart að sér til að ná árangri. Þeir
hafa lagt miklar fórnir til að ná
langt - og hafa tryggt sér farseðil-
inn til Seoul. Það er meira en við
getum sagt,“ sagði Anders Dahl-
Nielsen.
Anders Dahl sagði að íslenska
landsliðið sé starkast af þeim íjór-
um landsliðum sem leika í Dan-
mörku. „Þrátt fyrir það er
takmarkið hjá mér að vinna sigur
í mótinu. Svisslendingar og Frakkar
eru svipaðir að styrkleika og við,
en við eigum að leggja þá báða að
velli. Islendinga ættum við einnig
að leggja - á heimavelli-.
Það getur vel verið að ég setji
pressu á leikmenn mína með því
að óska eftir sigri í mótinu. En það
er það sem við þurfum - að leika
undir pressu. Það er gott farar-
nesti til Frakklands," sagði Anders
Dahl-Nielsen.
Að öllu eðlilegu á Anders Dahl-
Nielsen ekki að yerða að ósk sinni.
Islenska landsliðið á að vinna sigur
í mótinu. Strákamir okkar hafa oft
leikið vel í Danmörku - og sýiit
Dönum hvar Davíð keypti ölið.
Pólverjar
sigurvegarar
Danir gerðu jafntefli, 23:23,
við Spánveija á sex þjóða
handknattleiksmóti sem lauk í
A-Þýskalandi um sl. helgi. Dan-
ir komust yfír, 7:3, og leiddu í
leikhléi, 13:10. Spánveijar skor-
uðu sex fyrstu mörkin í seinni
hálfleik og þegar stutt var til
leiksloka, var staðan 23:21 fyrir
Spánveija. Rétt fyrir leikslok
náði Claus Munkedal að jafna,
23:23.
Pólverjar urðu sigurvegarar í mótinu -
með 8 stig. Spánveijar fengu 7, A->jóð-
verjar og Ungveijar 6, Danir 3 og
Norðmenn ekkert.
Úrslit í einstökum leikjum urðu þannig;
Danmörk - Noregur............. 26:23
A-Þýskaland - Pólland...........25:19
Spánn - Ungveijaland............31:20
Pólland - Danmörk...............23:22
Spánn - A-Þýskaland.............22:19
Ungveijaland - Noregur...........27:20
A-Þýskaland - Danmörk............26:25
Spánn - Noregiir.............. 22:17
Ungveijaland - Pólland...........24:22
Ungverjaland - Danmörk...........24:20
A-Þýskaland - Noregur...........26:21
Pólland - Spánn..................26:21
Danmörk - Spánn................ 23:23
Ungverjaland - A-Þýskaland.......26:25
Pólland - Noregur................28:19
SKÍÐI / ALPAGREINAR
Pirmln ZUrbrlggen heimsbikarhafinn frá því í fyrra fagnaði loks sigri. Hann
hafði ekki unnið mót ( vetur fyrr en samhliðasvigið á þriðjudaginn. „Þetta var
mjög góð jólagjöf," sagði Zurbriggen.
SUND / UNGLINGA
Fimm unglingamet sett
Fimm unglingamet í sundi voru
sett á innanfélagsmóti KR sem
. fram fór í Sundlaug Vesturbæjar
um síðustu helgi.
Gunnar Ársælsson, ÍA, setti
drengjamet í 50 og 100 metra flug-
sundi. Hann synti 50 metrana á
29,2 sekúndum og 100 metrana á
1.03,8 ^mín. Ársæll Bjamason einn-
ig úr ÍA setti drengjamet í 50 m
skriðsundi og 50 m baksundi. Hann
synti 50 m baksund á 30,5 sek og
50 m skriðsund á 26,0 sek.
Sveit ÍA setti piltamet í 4 x 50
metra bringusundi er hún synti á
2.02,8 mínútum. Borgnesingurinn
Hlynur Þór Auðunsson sveinamet í
50 og 100 metra skriðsundi. Hann
synti 50 metrana á 29,6 sek og 100
m á 1.04,10 mínútum. Loks setti
meyjasveit KR fjögur í boðsundum.
Tvöfaldur
sigur
lendinga
í samhliðasvigi
Heimsbikarhafinn, Pirmin
Ziirbriggen, og Brigitte Oertli
frá Sviss sigruðu í karla og
kvennaflokki í samhliðasvigi
heimsbikarsins sem fram för í
Bormio á Ítalíu á þriðjudaginn.
etta var fyrsti sigur þeirra
beggja í vetur. Þessi keppni
gefur ekki stig til einstaklinga í
heimsbikamum heldur aðeins í
keppni þjóðanna. Þar hafa Sviss-
lendingar nú tekið forystu með 763
stig, Austurríki er í öðm sæti með
721 stig, Vestur-Þýskaland í þriðja
með 334 stig og ítalia í fjórða sæti
með 299 stig.
í karalfokki keppti Ziirbriggen til
Bormio á Ítalíu
úrslita við landa sinn og félaga
Joel Gaspoz og var 0,65 sek á und-
an. I kvennaflokki kepptu Oertli og
Corinne Schmidhauser til úrslita.
Oertli vann með 0,57 sek mun.
ítalska „sprengjan" Alberto Tomba,
sem unnið hefur fimm heimsbikar-
mót, var sleginn út af Roland
Pfeiffer frá Austurríki sem hafnaði
í fjórða sæti.
„Sigurinn mun gefa mér sjálf-
straust fyrir átökin eftir áramót.
Eg hef aldrei skíðað eins vel í sam-
hliða svigi og nú. Þetta var mjög
góð jólagjöf," sagði Zurbriggen eft-
ir sigurinn.
Nú verður gert hlé á heimsbikar- (
mótunum fram yfír áramót. •*'.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Kvennalandsliðið
til Luxemborgar
Kvennalandsliðið í körfuknatt-
leik heldur til Luxemborgar
annan í jólum. Þar mun liðið leika
tvo vináttuleiki gegn Luxemborgar-
mönnum og einn leik gegn sterku
félagsliði.
Ferð þessi er æfingaferð og liður í
undirbúningi landsliðsins fyrir mót
ssmáþjóða sem haldið verður i Lux-
emborg 1989.
íslanska landsliðið er skipað þessum
leikmönnum:
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík,
Anna Björg Bjamadóttir, ÍS, Marta
Guðmundsdóttir, Grindavík, Svan-
hildur Káradóttir, Grindavík, Auður
Rafnsdóttir, Keflavík, Helga Frið-
riksdóttir, IS, Þórunn Magnúsdótt-
ir, Njarðvík, Þóra Gunnargdóttir,
ÍR og þær Herdís Gunnarsdóttir og
Sólveig Pálsdóttir, Haukum.
Þjálfari landsliðsins er Sigurður
Hjörleifsson. ^