Morgunblaðið - 14.02.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988
Teningskastið í tannlæknadeildinni:
Ekki sæmandi
Háskólanum
- segirÖmar
Geirsson formað-
ur stúdentaráðs
FORMAÐUR stúdentaráðs Há-
skóla íslands, Ómar Geirsson,
sagði í samtali við Morgnnblaðið
að með því að nota teningskast
í tannlæknadeild til að gera upp
á milli nemenda sem fengið
hefðu sömu meðaleinkunn, eins
og gert hefði verið eftir síðustu
haustpróf í deildinni, væru þeir
ekki meðhöndlaðir eins og mann-
legar verur og það væri því ekki
sæmandi Háskólanum. Hallur
Halldórsson, formaður Félags
tannlæknanema, sagði að hald-
inn yrði fundur í félaginu um
þetta mál nk. mánudag.
Valborg Snævarr, einn fjögurra
fulltrúa stúdenta í háskólaráði,
sagði að stúdentar í ráðinu hefðu
í fyrravor tekið „málefnalega
ákvörðun" og greitt atkvæði með
fjöldatakmörkunum í tannlækna-
deild. „Við höfum því sýnt tann-
læknadeild skilning og væntum því
þess að deildin sýni stúdentum
skilning í þessu máli,“ sagði Val-
borg. „Fulltrúar stúdenta í háskóla-
ráði munu hins vegar §alla um
þetta mál í ráðinu með opnum hug
og á málefnalegan hátt og ég á
ekki von á öðru en að málið hljóti
þar farsælan endi. Ef einhvetjir
nemendanna í tannlæknadeild fá
sömu meðaleinkunn finnst mér eðli-
legra að t.d. eitthvert eitt fag vegi
þyngra en önnur heldur en að kast-
að sé upp teningi til að gera upp á
milli nemendanna. Það á að nota
teningskastið í algjörri neyð og láta
það fara fram samkvæmt fyrirfram
ákveðnum reglum hjá hlutlausum
aðila, t.d. háskólarektor. Við mun-
um leggja fram þá tillögu í háskóla-
ráði að sett verði á laggimar nefnd
til að fjalla um fjöldatakmarkanir
í tannlæknadeild," sagði Valborg.
Skúli H. Skúlason, sem einnig á
sæti í háskólaráði fyrir hönd stúd-
enta, sagðist ekki vera búinn_ að
skoða þetta mál ofan í kjölinn. „Eg
reikna með því að það verði tekið
fyrir í háskólaráði og stúdentar
munu taka þar málefnalega afstöðu
til þess,“ sagði Skúli.
Hugmyndum um
hækkun bensín-
%
gjalds frestað
Aukning bensín-
sölu gæti skilað
sama fé og hækk-
un gjaldsins
VIÐ lækkun á bensínverði fyrir
skömmu, tóku stjórnvöld þá
ákvörðun að fresta hugmyndum
um hækkun bensíngjalds þar til
siðar á árinu. í kjölfar fjölgunar
bíia hér á landi hefur bensinsalan
aukizt meira en ráð var fyrir
gert i greiðsluáætlun Vegagerð-
ar rikisins. Matthías Á. Mathie-
sen, samgönguráðherra, segir að
rétt sé að biða með breytingar á
bensíngjaldi þar til ljóst verður
hvort aukning bensinsölu skili
því fé í Vegasjóð, að ríkissjóður
þurfi ekki að taka á sig um-
framútgjöld vegna slikra fram-
kvæmda. Bensíngjald er markað-
ur tekjustofn, sem fer eingöngu
til vegagerðar.
í áætlun Vegagerðarinnar kemur
fram, að bensínsala á tekjuárinu
1987 (1. nóvember 1986 til 31.
október 1987) hafi numið 153,8
milljónum lítra og jókst hún um
12,5% milli ára. Bensínsala síðustu
tvo mánuði 1987 varð 8,1% meiri
en sömu mánuði ársins á undan.
Fékk vott af
höfnunar-
einkennum
LÍÐAN Halldórs Halldórsson-
ar, fyrsta islenska lungna- og
hjartaþegans, er nú góð. Hef-
ur hann jafnað sig eftir hita
og vott af höfnunareinkenn-
ntn sem hann fékk á fimmtu-
dag.
Haft er eftir læknum hans
að eðlilegt sé að slík einkenni
geri vart við sig eftir aðgerð sem
þessa. Halldór fékk tæplega 39
stiga hita og þurfti á súrefni að
halda en er nú laus við það og
er kominn í þjálfun á ný að sögn
systur hans, Ingibjargar Hall-
dórsdóttur.
Sé reiknað með sömu aukningu allt
þetta tekjuár verður bensínsala 166
fnilljónir lítra og með óbreyttu
bensíngjaldi; 12,60 krónum á lítra,
verða heildartekjur af bensíngjaldi'
þetta ár 2.091 milljón króna eða
91 milljón umfram fyrri áætlanir.
Miðað við að ríkissjóður þurfi ekki
að taka á sig umframútgjöld vegna
vegamála 1988, er talið að tryggja
þurfi á árinu tekjuaukningu af
bensínsölu, sem nemi 69 milljónum
króna til viðbótar 91 milljóninni,
eða samtals 160 milljónir króna.
Til að ná því fram þyrfti bensín-
gjald að hækka um 60 aura 1.
marz og meira, hækki það síðar,
sé ekki gert ráð fyrir frekari sölu-
aukningu á bensíni.
Matthías Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að yrði um meiri
söluaukningu að ræða en ráð væri
fyrir gert, yrði þörfin fyrir hækkun
bensíngjalds að sjálfsögðu minni og
því væri skynsamlegast að láta
ákvörðun þess efnis bíða þar til
síðar á árinu, þegar hækkunartil-
efni vegna verðlagsbreytinga yrði
metið.
Matthías sagði ennfremur, að
með áætluðum útgjöldum Vega-
gerðarinnar á þessu ári næðist
hv'orki fram vilji Alþingis frá árinu
' 1981, sem gerði ráð fyrir 2,14% af
þjóðárframleiðslu til vegagerðar, né
markmið vegaáætlunar fyrir árin
1987 til 1990, sem samþykkt hefði
verið á Alþingi á síðasta ári og
gerði ráð fyrir 4.500 milljóna króna
útgjöldum til vegamála á árinu
1988 miðað við verðlagsforsendur
þess árs.
„íslendingar eiga nú hlutfallslega
fleiri bíla en nokkur önnur þjóð í
Evrópu. Fjölgun bíla hefur verið
mjög ör síðustu tvö ár og lands-
menn áttu um áramótin síðustu
133.500 bíla. Slík fjölgun í bflaflot-
anum hlýtur að krefjast aukinna
ffamkvæmda í vegagerð og hlýtur
að knýja enn meira á en áður, um
að farið verði að viljá Alþingis frá
1981 og eftir vegaáætlun frá 1987
um útgjöld til vegamála. Nú þegar
blasir ófremdarástand við í um-
ferðarmálum og vandinn vex stöð-
ugt, verði ekki gripið til viðeigandi
ráðstafana," sagði Matthías Á.
Mathiesen.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Þessi mynd var tekin á þilfari Beskytteren þegar verið var að gera klárt áður en björgunarbátnum
var sleppt.
Bj örgunaræfing þriggja
þjóða tókst mjög vel
Sameiginlegri björgunaræf-
ingu íslendinga, Dana og
Bandarikjamanna lauk á f östu-
dag. Tvær flugvélar og tvær
þyrlur tóku þátt í æfingunni,
sem fólst í þvi að leita að gúm-
bát sem sleppt hafði verið í
hafið frá Beskytteren á norð-
anverðum Faxaflóa skömmu
eftir miðnætti aðfaranótt
föstudags.
Megintilgangur æfingarinnar
var að æfa samskipti og sam-
ræmingu aðgerða milli Land-
helgisgæslunnar, vamarliðsins
og danska varðskipsins, sem
heldur sig yfirleitt á Grænlands-
sundi. Alls tóku um 100 manns
beinan og óbeinan þátt í æfing-
unni, sem er líklega sú viðamesta
sem Landhelgisgæslan hefur tek-
ið þátt í, að sögn Gunnars Berg-
steinssonar, forstjóra Landhelg-
isgæslunnar.
Axel Fiedler, skipherra á Beskytteren, afhenti forstjóra Land-
helgisgæslunnar, Gunnari Bergsteinssyni, viðurkenningu fyrir
góða yfirstjóm æfingarinnar og þakkaði fyrir gott samstarf.
Nokkrar breytingar urðu á
björgunaráætluninni vegna
strands Hrafns Sveinbjamarson-
ar III, en að sögn Gunnars Berg-
steinssonar var hægt að fara í
alla þá þætti sem til stóð að æfa
og gekk æfingin vel.
Stúdentaráð HÍ:
Vinstrimenn og um-
bótasinnar sameinast
„Hvorki kraftur né vilji til að bjóða
fram sérstaklega,“ segir formaður
Félags umbótasinna
FÉLAG vinstrimanna i Háskóla
íslands og Félag umbótasinnaðra
stúdenta hafa tekið þá ákvörðun
að bjóða fram sameiginiega í
næstu kosningum til Stúdenta-
ráðs Háskóla Islands. Formlega
var gengið frá stofnun félagsins
á föstudagskvöld. Allar líkur em
þess vegna á þvi að aðeins tveir
listar verði í framboði í stúdenta-
ráðskosningunum i mars, listi
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, og „hinir sameinuðu
vinstrimenn".
Ágúst Ómar Ágústsson, formað-
ur Félags umbótasinnaðra stúd-
enta, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að eftir samstarfið í vetur,
hefðu stefnuskrár félaganna verið
samhljóða. „Okkur fannst því
hreinna til verks gengið með því
að sameinast undir njrju merki.
Félögin sem að þessu samstarfi
standa munu verða til áfram.
Ágúst Ómar sagði að Félag um-
bótasinna hefði átt erfítt uppdráttar
undanfarið, hvorki kraftur né vilji
hefði verið fyrir því að bjóða fram
nýjan lista. Vegna þessa hefði verið
ákveðið að draga félögin tvö saman
í eitt og móta nýja stefnuskrá, sem
höfði til beggja aðila.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Benedikt Bogason, formaður Vöku,
að menn hlytu að lfta á þetta sem
innlimun Félags umbótasinna, eða
öllu heldur vinstrimannanna, sem
þar væru alls ráðandi, í Félag
vinstrimanna. „Tilfínningar mínar
vegna þessa eru blendnar, annars
vegar fagna ég því að nú séu and-
stæðumar skarpari í Stúdentaráði,
milli þeirra sem vilja gera SHÍ að
pólitískri ungliðadeild vinstri af-
lanna og hinna sem vilja gera SHÍ
að óháðu hagsmunafélagi. Hins
vegar harma ég það, að Félag
umbótasinnaðra stúdenta, sem einu
sinni var ágætur félagsskapur sem
vann í mörg ár með Vöku að hags-
munamálum stúdenta, skuli nú
brátt heyra sögunni til. Gamall
umbótasinni sagði við mig í tilefni
þessara fregna, að enginn sannur
umbótasinni myndi kjósa þetta
samsull. Hlýt ég því að bjóða alla
sanna umbótasinna velkomna til
samstarfs við Vöku.“
Um þau ummæli forystumanna
hinna sameinuðu félaga að sam-
starf hefði verið náið í meirihluta-
starfi þeirra f SHÍ og engum mál-
efnaágreiningi til að dreifa sagði
Benedikt, að það væri ekki rétt, því
að hver höndin hefði verið upp á
móti annarri í meirihlutasamstarf'
inu; óreiða og óstjóm hefði ein-
kennt samstarf þeirra. „Forráða-
menn þessara félaga gera sér fylli'
lega grein fyrir því, að þeim hefur
tekist hörmulega upp í vetur. Þeir
ætla hins vegar að slá ryki í augu
stúdenta með því að kalla núver-
andi vinstrimeirihluta „nýtt afl“-
Stúdentar munu að sjálfsögðu sjá
í gegnum þessa auglýsinga-
mennsku, því að þetta nýja afl er
ekkert annað en hið gamla mátt-
leysi vinstrimeirihlutans," sagði
Benedikt Bogason, formaður Vöku.