Morgunblaðið - 14.02.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988
41
ekki krónu meira en Englandsbanki
er tilbúinn að borga út á nafn
mitt,“ sagði Nicholson og brosti."
Ekkert Hollywood-ver var reiðu-
búið að svara þeirri kröfu vegna
myndar eins og „Ironweed". En þá
kynnti Marcia Nasatir, sem átti
eftir að verða framleiðandi myndar-
innar, Babenco fyrir Keith Barish
sem keypti kvikmjmdaréttinn af
hinum framleiðendunum og Barish
í samvinnu við Taft Entertainment
Pictures útvegaði peningana sem
Nicholson krafðist.
„Einhverntímann á meðan á
samningaviðræðunum stóð,“ skrif-
ar Kennedy,„ var ég á labbi með
Babenco í New York þegar það
rann upp fyrir honum að myndin
yrði gerð. „Við munum gera þessa
rnynd," sagði hann og kreppti hnef-
ana og tók undir sig stökk."
Hann kom aftur til Jarðar í Alb-
any. Kvikmyndafólkið flutti sitt
hafurtask þangað, aðdáendur
frægðarfólksins þyrptist að í von
um áritanir frá Jack og Meryl. Alb-
any-blöðin skrifuðu stundum tvær
greinar á dag um framvindu mála
og urðu sífellt reiðari þögninni sem
þau mættu á tökustað. Kvikmynda-
liðið var bundið þagnarheiti og
blöðin áttu bágt með að skilja að
maður talar ekki um bíómynd fyrr
en maður er viss um að hafa bíó-
mynd til að tala um.
Um fimmtánhundruð heimamenn
Noregur:
Fiskiðnaður-
inn vill auka
tengsl við EB
Ósló. Norinform.
STÓR hluti norska fiskiðnað-
arins á erfiða tíma fyrir
höndum, ef Noregur tengist
Evrópubandalaginu ekki
nánar en nú er, segir Svein
A. Krane, oddviti landssam-
taka norskra sjávarútvegs-
fyrirtækja. Fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um inn-
göngu Noregs í EB 1972 voru
þessi samtök harður and-
stæðingur aðildar. .
Krane segir, að hætta sé á,
að norskur fískiðnaður neyðist
til að hætta fullvinnslu og snúa
sér þess í stað að hráefnissölu
vegna strangra viðskiptatak-
markana á EB-markaðnum, en
slík þróun gangi þvert á mark-
mið fyrirtækjanna.
Um 90% norskra fískafurða
eru flutt úr landi, og þess vegna
er fiskiðnaðurinn viðkvæmur
fyrir samkeppni. Tilkostnaður
er hár í Noregi, en hörð sam-
keppni á fiskmarkaðnum og
ekki í valdi Norðmanna að ráða
neinu um fískverðið.
Þegar Krane er spurður um,
hvort hann telji, að EB-aðild
sé lausnin fyrir norskan fískiðn-
að, bendir hann á, að lækkun
dollarans hafí styrkt gjaldmiðla
Evrópulandanna. Norðmenn
hafi hingað til miðað físksölu
sína við dollara, en betur borgi
sig að komast á EB-markaðinn.
Þegar til lengdar lætur, segir
Krane, geta Norðmenn ekki
staðið í útjaðri aðalmarkaðarins
fyrir fiskafurðir sínar nema
þeir óski eftir að láta einungis
af hendi óunna vöru.
SSS5&
Rithöfundurinn William Kennedy (til vinstri) ræðir við leikstjórann Hector Babenco en eiginkona
Kennedys, Dana, fylgist með.
voru ráðnir sem hópleikarar og með
tímanum mynduðu sumir þeirra
félagsskap sem þeir kölluðu „Weed-
ies“. Kennedy og kona hans, Dana,
unnu í þijá daga sem aukaleikarar.
Það er skemmst frá því að segja
að höfundurinn er yfír sig hrifinn
af frammistöðu bæði Streep og
Nicholson.
Tökur hófust 23. febrúar sl. og
stóðu til 6. júní. Allan þann tíma
vann Kennedy við síðasta hluta
nýju skáldsögunnar sem heitir
„Quinn’s Book“ og hefur verið í
fímm ár í smiðum. Þeir veðjuðu um
það hvor yrði fljótari, Kennedy með
bókina eða Babenco með mjmdina.
Ef Babenco jmni fengi hann kassa
af kúbönskum vindlum. Ef Kennedy
ynni fengi hann kassa af góðu
rauðvíni. Babenco fékk vindlana,
en það munaði ekki nema sex dög-
um.
Stytt og endursagt: — ai.
FORD
Ford Sierra 1988, Glœsilegur þýskur gœðabíll,
vel búinn og traustur.
Verð frá kr. 607.300.-
Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar lánaðar
í allt að 30 mánuði.
SVEINN EGILSSON HF.
Framtíð við Skeifuna. S. 685100/689633