Morgunblaðið - 14.02.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.02.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988 33 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 55 kr. eintakiö. Tvöfeldni á norðurslóðum Síðan Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritari sovéska komm- únistaflokksins, fiutti ræðu í Múrmansk í október og hreyfði þar hugmyndum 'um samvinnu ríkja á norðurslóðum, hafa Sov- étmenn verið að færa sig upp á skaftið í þessu efni. Nikolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, fór í síðasta mánuði til Stokkhólms og Ósló og lagði fram sérgreindari tillögur en Gorbatsjov um takmörkun víg- búnaðar á norðurhöfum. Og nú hafa tveir úr hópi áhrifamestu manna Sovétríkjanna í utanrík- ismálum, þeir Jegor Lígatsjov, er gengur- næstur Gorbatsjóv að völdum í kommúnistaflokkn- um, og Anatólíj Dóbríjnín, að- alráðgjafí um utanríkismál, kynnt tillögur í Æðsta ráðinu, þingi Sovétríkjanna, er miða að viðræðum milli utanríkismála- nefnda þjóðþinga á Norðurlönd- unum, í Bandaríkjunum og Kanada annars vegar og Sovét- ríkjanna hins vegar vegna „nei- kvæðrar þróunar" vígbúnaðar- mála á norðurslóðum, eins og það er orðað í sovéska ávarp- inu. Var það afhent Eyjólfi Konráð Jónssyni, formanni ut- anríkismálanefndar Alþingis, á föstudag. Samkvæmt frétt Tass vilja Sovétmenn efna til funda, ráðstefna og sjónvarpssamtala um gervihnetti í því skyni að þingmenn í þessum löndum geti ráðið ráðum sínum um þessi mál. í stuttu máli má segja, að þessi nýjasta hugmynd Sovét- manna um þingmannaviðræður af þessu tagi gangi á svig við venjuleg vinnubrögð í samskipt- um ríkja. Á að skilja hana sem svo, að sovéskir valdhafar van- treysti utanríkisráðherrum við- komandi rílg'a til að hafa for- ræði viðræðna um þau málefni, sem hér eru á döfinni? Telja Sovétmenn, að þeim verði meira ágengt með því að efna til póli- tískra viðræðna af þessu tagi en að setjast að samningum við embættismenn og sérfræðinga? Athyglisvert er, að það eru að sjálfsögðu sovéskir kerfiskarlar og embættismenn, sem leggja tillöguna fyrir Æðsta ráðið. í Moskvu eru þeir LÍgatsjov og Dóbríjnín líklega titlaðir sem þingmenn, þegar það þykir henta, en að öllum jafnaði koma þeir fram sem talsmenn fram- kvæmdavaldsins, enda felst það í þeirri skiptingu valdsins, sem starfað er eftir í lýðræðisríkjun- um, að framkvæmdavaldshafar gera samninga um alþjóðamál. Carrington lávarður sem hér var í vikunni lét í ljós álit sitt á hugmyndum Sovétmanna um norðurslóðir í samtali við Morg- unblaðið. Hann minnti á þá óumdeildu staðreynd, að ekkert lát hefur verið á hemaðarum- svifum Sovétmanna á norður- slóðum. Þvert á móti vinna þeir stöðugt að því að auka vígbúnað sinn. Carrington benti réttilega á að í tillögum Sovétmanna kann að felast viðleitni til að auka traust milli þjóða. Uppræt- ing tortryggni er fyrsta skilyrði fyrir útrýmingu vopna. Á hinn bóginn sagði Carrington, að í hemaðarlegum þætti tillagn- anna fælist tæplega nokkuð nýtt og ástæða væri til að efast um, að þær væm settar fram í alvöru. Frá Noregi hafa að undan- fömu borist næsta ískyggilegaf fréttir um vígbúnað Sovét- manna á Kólaskaga. Síðast í gær birtust hér í blaðinu lýsing- ar á risavöxnu sovésku kaf- bátalægi, sem er álíka langt frá norsku landamærunum og Keflavík frá Reykjavík. Þá hafa Norðmenn vakið athygli á því, að Sovétmenn eru að endumýja gamla eldflaugakafbáta og búa þá stýriflaugum, sem að nokkm sýnast koma í stað meðal- drægra eldflauga, er Sovét- menn hafa haft á landi en eiga nú að fjarlægja. Er ljóst, að Sovétmenn sýna ekki í verki, að þeir hafi áhyggjur af „nei- kvæðri þróun“ vígbúnaðarmála á norðurhöfum. Nema hug- myndir þeirra um takmörkun vígbúnaðar þar eigi rætur að rekja til þess, að lýðræðisríkin hafa sýnt með gagnaðgerðum sínum, að þau ætla ekki að þola sovéska yfírburði á þessum stað. Hér eins og endranær á það við, sem sannaðist í deil- unni um Evrópueldflaugamar, að Sovétmenn sýna því aðeins vilja til samninga, að þeim sé mætt af festu og styrk. Norðmenn hafa lengi deilt við Sovétmenn um yfírráð í Bar- entshafí. Bundu þeir vonir við að sú deila kynni að leysast, þegar Ryzhkov kom til Ósló. Það gerðist ekki. Sovétmenn hundsuðu óskir Norðmanna óg olli þetta miklum vonbrigðum í Noregi en staðfesti jafhframt þá skoðun margra, að í öllu tali Sovétmanna um þessi mál ríkir mikil tvöfeldni. Lausn deilu Norðmanna og Sovétmanna um yfírráð í Barentshafí ætti að verða prófsteinn á hvort Sovét- mönnum er alvara á norðurslóð- um. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 13. febrúar Fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar var afgreidd á fundi borgarstjómar fyrir rúmri viku. Umræðurnar um áætlunina einkennd- ust af sterkri fjárhags- stöðu borgarinnar eða eins og Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði í ræðu sinni á borgar- stjómarftmdinum: „Það vakti vissulega athygli mína við þær umræður sem urðu við framlagningu fíárhagsáætlunar borgarinnar nú um miðj- an janúar síðastliðinn, að talsmenn stjóm- arandstöðunnar í borgarstjóminni höfðu. mörg orð um það, hve borgin væri vel stæð, rík og sterk. Þetta hefur síðan endur- speglast í umræðum manna á meðal, bæði innan borgarmarkanna og ekki síður utan þeirra. Þær umræður urðu til þess, að það rifjaðist upp í huga mér, að þegar hér sat vinstristjóm í borginni 1978-82, þá hófust flestar umræður um fjárhagsáætlun borg- arinnar á miklum barlómi um hina bágu fjárhagslegu stöðu hennar og þeim barlómi var síðan fylgt eftir við hveija einustu fjár- hagsáætlun, sem sá meirihluti stóð fyrir, með því að tiltekin gjöld og skattar voru hækkuð. Nú er það ekki svo, að hin góða fiárhagsstaða borgarinnar stafí af því, að Reykjavíkurborg hafí hækkað skatta á borgarbúa í tíð núverandi meirihluta, hvorki á þessu kjörtímabili né kjörtímabil- . inu frá 1982 til 1986. Þvert á móti, þá hafa gjöld verið lækkuð stig af stigi. Eg' get vissulega ekki neitað því að staða borgarinnar hefur verið sterk og er mjög sterk, en ástæðuna til þess styrkleika er alls ekki að rekja til aukinnar skatt- heimtu, þvert á móti. Þá er fróðlegt að athuga, hvemig á því stendur, að borgin er svo mjög betur í stakk búin en önnur sveitarfélög, sem auðvitað búa öll við sama árferði og það er skemmst frá því að segja, að þessi góða staða er bein áfleiðing af stjómun borgarinnar undanfarin sex ár.“ Ástæða er til að taka undir þessi orð Davíðs Oddssonar. Á undanfömum sex árum hefur Reylqavíkurborg dafnað með næstum ævintýralegum hætti. Hraðinn í vexti borgarinnar og umsvifum borgarbúa er orðinn svo mikill að með ólíkindum er. Daglega em þeir sem reka erindi í borg- inni minntir á þetta, þégar þeir bijótast áfram í umferðarþrönginni. Borgarstjóri vakti máls á því í ræðu sinni að „gríðarleg aukning bifreiða og aukin aksturstíðni hvers bfls“ hefði valdið erfíðleikum í hjarta borgarinnar og þyrfti að bregðast við þeim af hörku og djörfung". I ræðu sinni nefndi borgarstjóri nokkur dæmi um það, hvemig rétt væri á fjármál- um Reykjavíkur haldið. í fyrsta lagi minnti hann á sameiningu Bæjarútgerðarinnar og ísbjamarins. Á núgildandi verðlagi sparar sameiningin nálægt 150 milljónum króna á ári hveiju. „Sá spamaður einn greiðir kostnað við uppbyggingu Ráð- hússins, sem mest er nú um fjallað, á lið- lega sex ámm,“ sagði Davíð Oddsson. í öðm lagi sagði borgarstjóri, að aldrei fyrr hefði verið veitt hærri fíármunum að raun- gildi til skólamála á vegum borgarinnar en nú. í þriðja lagi hefði aldrei verið varið hærri fíármunum til heilsugæslumála inn- an borgarmarkanna en nú. í fjórða lagði væm framlög til málefna aldraðra með því allrá hæsta sem þekkst hefur í íjár- hagsáætlun borgarinnar og dagvistarmál- um væri sinnt af myndarskap og þeirri miklu uppbyggingu sem þar hefur verið væri haldið markvisst áfram. Þeir sem ráðast gegn Sjálfstæðisflokkn- um á þeim forsendum, að á síðustu ámm, ef til vili þeim sex ámm (1982-1988) sem Davíð Oddsson gerir hér að umtalsefni, hafí flokkurinn breyst í harðsnúinn og ómannúðlegan fíjálshyggjuflokk í höndum nýrra forystumanna, ættu að glöggva sig á þeim staðrejmdum, sem borgarstjóri nefiiir í ræðu sinni. Ánnars vegar hefur Qárhagsbagga verið lyft af Reykjavíkur- borg með tilurð Granda hf. en hins vegar hafa útgjöld til skólamála, heilsugæslu og dagvistunarmála aukist að raungildi. Þetta hefur Sjálfstæðisflokkurinn gert, þar sem hann hefur hreinan meirihluta. Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, bendir á það í Morgunblaðsviðtali laugardaginn 6. febrú- ar, að af sveitarfélögunum ver Reykjavík- urborg hæstu hlutfalli tekna sinna til fé- lagsmála eða „mjúku málanna" svonefndu. Er þetta til marks um „þessa nýfrjáls- hyggju sem allt ætlar að troða miskunnar- laust undir fótum sér“ í Sjálfstæðisflokkn- um? Tangen og siðanefndin Tangen-málið svonefnda snýst um það, hvort fréttastofa útvarpsins hafí staðið rétt að verki, þegar hún 9. til 14 nóvem- ber 1987 birti fréttir upprunnar í Noregi, þar sem því var haldið fram að Stefán Jóhann Stefánsson, forsætisráðherra, hefði á árunum 1947 til 1949 verið í nán- um tengslum við bandarísku leyniþjón- ustuna, CLA. í Reykjavíjcurbréfí sem birt- ist 29. nóvember sl. var fiallað um þetta mál. Þar var það kallað skólabókardæmi um það, hvemig ekki eigi að standa að fréttamennsku. Og ennfremur sagði: „Út- varpsráð hefur harðlega átalið vinnubrögð- in og beint því til útvarpsstjóra, að hann láti hlutlausan aðila kanna með hvaða hætti slíkt getur gerst. Er mikilsvert, að þessi samþykkt ráðsins verði framkvæmd með trúverðugum hætti. Heiður Ríkisút- varpsins er í veði.“ Hinn 24. nóvember fór útvarpsstjóri þess bréflega á leit við siða- nefnd Blaðamannafélags íslands, að hún veitti umsögn um fréttaflutning Rikisút- varpsins af þessu máli og rnæti „hvort og þá hve alvarlega þau vinnubrögð, sem við- höfð voru, brjóti í bága við þær siðaregl- ur, sem nefndin telur blaðamönnum skylt að virða í starfí sínu“. Siðanefndin skilaði áliti sínu á mánu- dag. í nefndinni sitja tveir háskólakennar- ar þeir sr. Bjami Sigurðsson, formaður, og Þorsteinn Gylfason, einn fulltrúi útgef- enda Ólafur Eyjólfsson, og tveir félags- menn í Blaðamannafélaginu en þeir voru í þessu tilviki Elías Snæland Jónsson, að- stoðarritstjóri á DV, og Ágúst Ingi Jóns- son, fréttastjóri á Morgunblaðinu. Til að gera langt mál stutt skal þess getið strax í upphafí, að siðanefndin úrskurðar, að Ríkisútvarpið „hafí í fréttatímum útvarps og þætti dægurmáladeildar á rás 2 brotið 3. grein siðareglna, þar sem segin „Blaða- maður vandar upplýsingaöflun sína svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum.“ Brotið er alvar- legt,“ segir í úrskurðinum. Áf umræðum sem urðu vegna frétta- flutnings Ríkisútvarpsins af „uppljóstrun- um“ Tangens í Noregi mátti ráða, að ýmsir félagsmenn í Blaðamannafélagi ís- lands teldu þá, er höfðu uppi gagnrýni á vinnubrögðin, gera það af annarlegum hvötum, ómáleftialegum og í því skyni að þagga niður umræður um viðkvæm mál. Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur með úrskurði sínum tekið af öll tvímæli um að starfshættir þeirra deilda Ríkisútvarpsins, sem hún nefnir, hafí verið alvarlega ámæl- isverðir. Vinnubrögðin voru með öðrum orðum ófagmannleg. Viðbrögð þeirra sem úrskurður siðanefndarinnar nær til benda ekki til að þeim sé annt um þær almennu reglur, sem eru forsendan fyrir starfí nefndarinnar. Á Alþingi bíða menn nú eftir skýrslu frá menntamálaráðherra um málið. Eftir að fréttastofa hljóðvarps ríkisins og dæg- urmáladeild rásar 2 höfðu haldið lífí í umræðunum um Stefán Jóhann og CLA í nokkra daga kvaddi Hjörleifur Guttorms- son, þingmaður Alþýðubandalagsins, sér hljóðs utan dagskrár til að árétta mikil- vægi „gagna“ Tangens og taldi Hjörleifur þau „bera ljós vitni að það sem sagt var af andstæðingum herstöðvanna á íslandi" um þá er tóku ákvarðanir um utanríkis- stefnu íslands 1946, 1949 og 1951 var ekki orðum aukið. Vilja menn að sjálf- sögðu ekki láta þessi orð Hjörleifs Gutt- ormssonar vera hin síðustu um Tangen- málið í þingtíðindum. Engin gögn í úrskurði siðanefndar Blaðamannafé- lagsins, sem er 17 blaðsíður, kemur fram, að Dag Tangen hafði engin þau gögn undir höndum sem kynnt voru í upphafí hins makalausa fréttaflutnings og Hjörleif- ur Guttormsson sá ástæðu til að gleðjast yfír utan dagskrár á Alþingi 12. nóvember sl. Jón Einar Guðjónsson, fréttaritari hljóð- varps ríkisins í Ósló, segir í greinargerð til siðanefndarinnar, að mánudaginn 9. nóvember hafí norsku morgunblöðin skýrt frá því að Dag Tangen hefði undir höndum gögn er sönnuðu að Haakon Lie, aðalrit- ari Verkamannaflokksins 1945-1969, hefði haft náið samband við menn innan OSS fyrirrennara CLA. Síðan hafí verið viðtal við Tangen í hádegisfréttum norska útvarpsins og þar hafí hann sagst hafa önnur gögn undir höndum m.a. um ísland. Segist Jón hafa rætt við Finn Sjue blaða- mann sem hafí komið sér í samband við Tangen er hafí hringt í sig síðdegis þenn- an dag. Sagðist Tangen hafa komist yfír bréf er sýndi, að náið persónulegt sam- band hafí verið milli íslenska forsætisráð- herrans 1947 eða 1948 og bandarískra sendiráðsmanna, þar á meðal við sendi- herrann og yfírmann CLA á íslandi. Bauð Tangen Jóni heim til sín og hittust þeir þriðjudaginn 10. nóvember. Sá Jón þar tvö skjöl og var ekki stafkrókur í þeim um Stefán Jóhann. Spurði Jón þá Tangen um bréfíð og sagðist hann ekki fínna það en hann myndi greinilega, að í því væri greint frá trúnaðarsamtölum forsætisráðherrans við Bandaríkjamenn. Miðvikudaginn 11. nóvember ræddi fréttaritari DV við Tang- en og komst að því að hjá honum fannst ekkert skjal með nafni Stefáns Jóhanns. Fimmtudaginn 12. nóvember, sama dag og Hjörleifur stóð kampakátur í ræðustól á Alþingi, sat fréttaritari útvarpsins fyrir Tangen á ritstjómarskrifstofum Klasse- kampen, blaði marxista/Ieninista í Ósló, og sagði honum að útvarpið yrði að fá bréfíð. Taldi Tangen þá, að það gæti verið hjá Ingibjörgu Hafstað á íslandi. Að fyrir- mælum fréttastofu útvarpsins fór fréttarit- arinn nú með segulband til Tangens, sem sagðist enn á ný hafa séð bréfíð. I skýrslu sinni segir Jón Einar Guðjóns- son, að hann sjái ekki, að hann hafí haft nokkra ástæðu til að véfengja upplýsingar Tangens á mánudegi og þriðjudegi. „Báða þá daga lét hann ótvírætt í það skína að hann hefði bréfíð." En gerði hann það ekki einnig á fimmtudeginum? Jón Einar leitast við að auka á heimildagildi Tangens með því að segja, að norskir fíölmiðlar hafí látið mikið með upplýsingar frá honum og auk þess hafí hann verið titlaður „for- sker og ammanuensis". Á þessum titlum getur varla verið mikill munur, norska orðið þýðir orðrétt rannsóknamaður en hið latneska: aðstoðarmaður við rannsóknir eða vísindastörf á söfnum eða stofnunum, það er frekar lágt settur maður í rann- sóknastofnunum. Tangen er stjómmála- fræðingur en í fréttum útvarpsins var hann jafnan kallaður sagnfræðingur, ekki er rætt um þá missögn í úrskurði siða- neftidarinnar eða hvaðan hún er sprottin. Þá kemur fram hjá Jóni Einari Guðjóns- syni, að Dag Tangen hafí sl. 10 ár starfað hjá Bedriftsökonomisk Institutt er mennti viðskiptafræðinga. Ekki er skýrt hvemig rannsóknastörf þar tengist „uppljóstmn- um“ um CLA-tengsl jafnaðarmanna á fímmta tug aldarinnar. En Haakon Lie, sem þótti einstakur dugnaðarforkur og fylginn sér og varð áhrifamaður í Verka- mmannaflokknum eftir hetjulega fram- göngu í andspymunni gegn nasistum, hef- ur löngum verið skotspónn norskra vinstri- sinna, sem hafa aldrei getað sætt sig við þátttöku þjóðar sinnar í vestrænu sam- starfí. Þekkjum við starfshætti slíkra manna vel hér á landi og vitum, að þeir vfla ekkert fyrir sér, þegar persónur and- slæðinganna em annars vegar. Siðanefnd Blaðamannafélags íslands segist ekki sjá ástæðu til að rengja greinar- gerð Jóns Einars Guðjónssonar um skipti þeirra mánudaginn 9. nóvember. Nefndin bendir á að Tangen verður á endanum tvísaga í viðtölum, sem tekin em upp á segulband, um skjal það, sem hann kvaðst hafa séð og varð upphaflegt tilefni frétta- flutningsins. Hinn 12. nóvember talar hann um „eina bréfíð þar sem forsætisráðherr- ann var nafngreindur". í viðtali viku síðar segir hann hins vegar: „Ég hef ekki sagst hafa séð skjöl, sem sýni samband CIA við Stefán Jóhann Stefánsson ... Skjalið með nafni Stefánssonar var léttvægt fylgibréf þar sem segir að hann eigi að vera tengi- liður við fulltrúa Bandaríkjanna. Annað hefði verið mjög einkennilegt." Mat siðanefndarinnar Eftir að hafa dregið fram þær hliðar málsins, sem siðanefnd Blaðamannafé- lagsins leggur til gmndvallar úrskurði sínum, metur hún einstök atriði og úr- skurðar síðan. Birtist þessi kafli hér í heild: „Á fréttastofa að birta frétt eins og þessa án þess að hafa beinharða skjalfesta heimild fýrir henni? Siðanefnd telur að á þessu efni sé ógerlegt að hafa algilda reglu, en skynsamlegt sé að viðhafa ýtmstu varúð um viðkvæm málefni, jafn- vel gagnvart viðurkenndum sérfræðingum. Á hinn bóginn hafði fréttastofa útvarps ekki ástæðu til að ætla annað en að um- rætt skjal bærist henni daginn eftir. Þriéjudaginn 10. nóvember hefst fyrir alvöm eltingarleikurinn sem Jón Einar Guðjónsson rekur í greinargerð sinni. Siða- nefnd sér enga ástæðu til að rengja þá frásögn. En eftir því sem lengra líður verða atburðimir alvarlegri því að Tangen fínnur ekki skjalið sem máli skiptir. Hér bregðast fréttaritari og fréttastofa með því að nefna það ekki einu orði sem virðist einna veiga- mest á því stigi málsins, nefnilega að umrætt skjal fyndist ekki þrátt fyrir mikla leit. Ríkisútvarpið, hljóðvarp, bregst einnig með því að halda áfram að segja frá efni skjalsins og leggja út af því eins og það væri fyrir hendi. Hinn 12. nóvember, 3 dögum eftir upphaflegu fréttina, segir Jón Einar til að mynda þetta: „Þetta skjal er að fínna í íslendinga- möppunum í skjalasafni Tmmans í Inde- pendence í Missouri, fæðingarbæ Banda- ríkjaforseta.... í áðumefndu bréfí, þar sem forsætisráðherrann er nefndur, er meðal annars skýrt frá því að hann skuli ákveða hvaða íslendingar hafí samband við Bandaríkjamenn og hann átti einnig að ákveða hvaða íslendingar áttu að taka þátt í baráttunni gegn hugsanlegri bylt- ingu kommúnista. Þá segir Dag Tangen að í bréfínu komi fram að vegna þess að í viðræðunum á milli íslands og Banda- rílqanna var komið inná viðkvæma hluti, yrðu Bandaríkjamenn aðeins að hafa sam- band við forsætisráðherrann sjálfan." (Kvöldfréttir útvarps 12. nóvember). Við þetta bætist annar brestur. Elting- arleikurinn við skjalið hefði átt að verða tilefni til að hyggja nánar að Dag Tangen og áreiðanleik hans, þó ekki væri nema vegna þess að hann nefnir Stefán Jóhann Stefánsson stundum Jóhann Stefán Jó- hannsson og man margt annað misvel frá einu samtali til annars. Athugun hefði þá meðal annars leitt í ljós að fyrirsögn Klassekampen á upphaflegu fréttinni sem höfð var eftir Tangen 9. nóvember var „Lie samarbeidet med CIA“. Heimildin fyrir þessari yfírskrift er eitt spjald úr skrá og á spjaldinu stendur, segir í grein- inni, „Haakon Lie samarbeider med Arthur Goldberg og David Shaw“. CLA kemur þannig við sögu að á styij- aldarárunum síðari var til bandarísk stofn- un sem hét Office for Strategic Services (OSS). Þessi stofnun hafði það verkefni meðal annarra að veita andspymuhreyf- ingum í löndum sem hemumin vom af Þjóðveijum hvers kyns aðstoð, þar á með- al norsku andspymuhreyfingunni sem þáði bæði matvæli og vopn frá OSS. Arthur Goldberg, á þeim tíma lögfræðingur sem sérhæfði sig í verkalýðsmálum en varð síðar ráðherra, hæstaréttardómari og sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, gegndi herbjónustu í OSS. OSS var lagt niður 1945. Árið 1947 var CLA — Central Intelligence Agency — sett á lagg- imar, og þá bar svo við að ýmsir sem starf- að höfðu hjá OSS tóku til starfa hjá CIA. Arthur Goldberg var ekki f þeim hópi, heldur hvarf hann til borgaralegra starfa fyrir verkalýðshreyfínguna þegar her- skyldu hans lauk 1945. Morgunblaðið/RAX Tangen nefnir líka í Klassekampen 10 til 20 bréf sem farið hafí á milli Goldbergs og Lies. En hann leggur ekkert þeirra fram. í Oslóarblöðunum 10. nóvember — dag- inn eftir greinina í Klassekampen — gef- ast margvísleg tilefni til að tortryggja Dag Tangen og sagnfræði hans, þar á meðal grein eftir Jens Christian Hauge fymim landvamarráðherra Noregs. (Dagbladet, 10. nóvember 1987.) Þau skrif er ástæðu- laust að rekja frekar, en þau virðast bæði hafa farið fram hjá Jóni Einari og frétta- stofu útvarpsins. Fullyrðingar Tangens um Stefán Jóhann Stefánsson bera nokkum keim af stað- hæfíngum hans um Haakon Lie, sem reyndust fánýtar. í máli Lies hefur Tangen fyrir sér eitt spjald með einni setningu almennt orðaðri og úr verða fullyrðingar um náið samband hans við CIA. Kjami þess sem útvarpið hefur eftir Tangen er, að hann þykist hafa fyrir sér heimild um náin persónuleg tengsl Stefáns Jóhanns við ótilgreinda Bandaríkjamenn, þar á meðal fulltrúa leyniþjónustunnar. Á þessu einaátriði er síðan stagast með ýmsu orða- lagi, talað um reglulega fundi, einlæga fundi, mjög óvenjulegt samband og mikla leynd. Skipst er á upplýsingum sem ströng leynd hvíldi yfír, og það á að vera aug- Ijóst, að þama var skipst á mikilvægum upplýsingum. Þessi klausa er dæmigerð: „Það kemur fram, að í lok 5.áratugarins þá ræddi bandaríski sendiherrann og full- trúi bandarísku leyniþjónustunnar á ís- landi reglulega við Stefán Jóhann Stefáns- son forsætisráðherra, og í skýrslunni kem- ur ekki fram hvað rætt var nákvæmlega, en augljóst er, að þama var skipst á mikil- vægum upplýsingum. Dag Tangen bendir á, að í skýrslunni sé sagt, að þetta séu einlægir fundir og á máli sérfróðra manna þá þýðir þetta víst, að yfír þeim upplýsing- um, sem fari á milli manna, hvíli mikil leynd. Tangen sagði, þegar ég ræddi við hann núna í dag, að þetta samband væri mjög óvenjulegt. Þetta samband á milli Bandaríkjamanna og Stefáns Jóhanns Stefánssonar.“ (Rás 2, síðdegis 10. nóv- ember.) • Annars er líka að gæta. Ekki verður séð að fullyrðingar Norðmannsins séu skoðaðar í sögulegu samhengi. Það virðist hvorki hafa hvarflað að fréttamanni né fréttastofu að „tíðir fundir" eða „regluleg- ir fundir" íslenskra ráðherra og banda- rískra sendiráðsmanna hafí verið eðlilegir og jafnvel sjálfsagðir á þeim tímum sem hér um ræðir. Um þetta má vitna til Þor- leifs Friðrikssonar í sjónvarpsviðtali sem fyrr er getið: „Varðandi tengsl Stefáns Jóhanns við sendimenn frá bandarísku lejmiþjón- ustunni á þeim árum sem hann er forsætis- ráðherra veit ég ekkert. Það er náttúru- lega ljóst að hann hafði samskipti við bandariska sendimenn og ekki síst varð- andi Marshall-aðstoðina ’48 og inngöngu íslands í NATÓ ’49. Um þetta hef ég rek- ist á heimildir í erlendum gögnum og hann greinir frá þessu í einkabréfum sínum til forsætisráðherra Dana, Hans Hedtoft, mjög ítarlega. Ég býst nú ekki við að nokkur leyniþjónustumaður hafí gengið á fund Stefáns Jóhanns og kynnt sig sem útsendara bandarísku leyniþjónustunnar. Þess vegna getur hann hafa talað við hvum sem var án þess að vita nákvæmlega hvur þetta var 'sem sé á þeim árum sem hann er forsætisráðherra." (Sjónvarp 11. nóv- ember.) Úrskurður siðanefndar er sá, að Ríkisút- varpið hafí í fréttatímum útvarps og þætti dægurmáladeildar á rás 2 brotið 3. grein siðareglna, þar sem segir: „Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína svo sem kost- ur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasöm- um málum." Brotið er alvarlegt. Siðanefnd fjallaði um málið á fundum sínum 15., 22. og 29. desember 1987 og 5., 12., 19., 26. janúar, 2. og 4. febrúar 1988. Nefndin ræddi tvívegis í síma við Jón Einar Guðjónsson fréttaritara útvarpsins í Noregi, auk þess fékk hún þaðan margt dagblaða frá því málið var nýtt af nálinni og hefur kannað margvísleg innlend gögn. Enn fremur komu á fund nefndarinnar Friðrik Páll Jónsson aðstoðarfréttastjóri, Már Jónsson fréttamaður og Amþrúður Karlsdóttir fréttaritari sjónvarpsins í Nor- egi.“ „Þeir sem ráðast gegn Sjálfstæðis- flokknum á þeim forsendum, að á síðustu árum, ef til vill þeim sex árum (1982-1988) sem Davíð Odds- son gerir hér að r umtalsefni, hafi f lokkurinn breyst í harðsnúinn og ómannúðlegan fijálshyggjuflokk í höndum nýrra forystumanna, ættu að glöggva sigáþeimstað- reyndum, sem borgarstjóri nefn- ir í ræðu sinni. Annarsvegar hefur fjárhags- bagga verið lyft af Reykjavíkur- borg með tilurð Granda hf. en hins vegar hafa útgjöld til skóla- mála, heilsugæslu og dagvistunar- mála aukist að raungildi. Þetta hefur Sjálfstæðis- flokkurinn gert, þar sem hann hef- ur hreinan meiri- hluta.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.