Morgunblaðið - 14.02.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988
9
HUGVEKJA
Skilurþú
þjáninguna?
eftír sr. HALLDÓR GUNNARSSON
Þessi spurning er sett fram við
þig núna þegar langafastan hefst.
Þessar sjö vikur sem eru til páska
voru hér áður ætlaðar til íhugunar
um þjáningu Jesú og hvemig hans
þjáningarganga tengist okkur. Á
hverju kveldi hljóma passíusáhnar
sr. Hallgríms Péturssonar sem
reyna að skýra fyrir okkur þján-
inguna sem ég held að enginn
geti skilið, nema með því að reyna
hana sjálfur. í sínum fyrsta sálmi
og fyrsta versi segý- sr. Hallgrím-
ur:
Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með.
Hugur og tunga hjálpi til.
Herrans pínu ég minnast vil.
Ég hygg að þeir séu að verða
æ færri, sem hlusta á passíusálm-
ana, hvað þá þeir sem læra þá
alla utan að, eins og margur gerði
við húslestra forðum.
Spumingin um þjáninguna er
jafngömul mannkyni. Hinir fornu
Hebrear, Gyðingar og hin ýmsu
trúarbrögð vilja halda því fram
að þjánjngin sé afleiðing syndar
sem áður hafi verið drýgð. Jafn-
vel er sagt að synd og afbrot for-
feðra komi niður á afkomendum.
Sá sem fyrstur tekst á við
spuminguna er spámaðurinn Job,
sem var uppi fyrir um 2800 árum.
Hann mætti allri þeirri þyngstu
þjáningu sem hægt var að hugsa
sér og reyndi að skilja tilgang
þjáningarinnar. Biblian geymir
glímu hans og vangaveltur, en í
lokin segir hann: „Eg þekkti þig
af afspum, en nú hefur auga
mitt litið þig. Fyrir því tek ég orð
mín aftur og iðrast. ..“ Boðskap-
ur hans var, að áður hafi hann
þekkt Guð af því sem aðrir sögðu,
lýstu og reyndu að útskýra, en í
þjáningunni hafi hann litið Guð,
fundið nálægð hans, skilið blessun
hans og tekið á móti honum.
Sama boðskap flytur sr. Hall-
grímur í passíusálmum sínum,
hann sem reyndi þjáninguna með
líkum hætti og Job og síðast með
því að lifa holdsveikur. Samt var
lofgjörðin efst og síðast í huga
hans:
Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst,
vizka, makt, speki og lofgjörð stærst
sé þér ó Jesú, herra hár
og heiður klár.
Amen, amen, um eilíf ár.
Þetta sama viðhorf kemur fram
svo víða í frásögnum sem við les-
um, leikritum sem við sjáum og
sem mest er um vert: í fari ein-
staklinga sem við kynnumst. Þú
■ Sunnudagur ijostuinngangi
Lk. 18; 31.-34.
ferð til vinar, sem hefur mætt
hinni mestu þjáningu og reynir
að styrkja hann og hugga. Fer
það ekki svo oft á þann veg, að
það ert þú sem ert styrktur og
huggaður, að það ert þú sem fínn-
ur þig- fátækari í skilningi þínum
gagnvart þjáningunni og ert því
ekki fær um að hugga?
í dag er okkur sögð þjáningar-
saga Jesú Krists í örfáum setning-
um: „Hann mun verða framseldur
heiðingjum: „Hann mun verða
framseldur heiðingjum, og hann
mun verða hæddur, og honum
mun verða rnisþyrmt, og það mun
verða hrækt á hann; og þeir munu
húðstrýkja hann og deyða, og á
þriðja degi mun hann upp rísa. —
og þeir skildu ekkert af þessu.“
Lærisveinar hans skildu ekkert.
Þeir skildu ekki þessa þjáningar-
leið, sem hann varð að ganga,
frekar en við enn í dag. Þeir skildú
ekki lögmál þjáningarinnar og því
síður að „Kristur, sonur hins lif-
andi Guðs" yrði í sakleysi sínu
að mæta misþyrmingu.
Skilur þú þjáninguna nokkuð
frekar? Ég veit ekki þitt svar, en
ég verð að viðurkenna að ég skil
ekki þjáninguna. Ég trúi því og
er sannfærður um það, að hún
er ekki fyrirfram ákveðin eða refs-
ing fyrir eigið brot eða fyrir brot
forfeðra. Hún er fyrir hendi og
hefur fylgt okkur frá upphafi.
Innri barátta mannsins hefiir allt-
af verið hörðust háð gagnvart
henni. Þessi barátta skiptir ein-
staklinginn mestu, sem þjáningin
mætir og þar getur enginn annar
verið til svars eða útskýringar,
nema hann sjálfur.
Kristin trú sem fjallar um þján-
inguna á föstunni með því að
fylgja Jesú Kristi á leið hans til
Golgata, er ekki skoðun manna,
heldur líf Jesú Krists, fæðing
hans, boðskapur, kraftaverk,
þjáning, krossfesting og upprisa.
Ekkert er þar undanskilið, ekki
heldur þjáningin í sinni hræðileg-
ustu mynd. í kristinni trú mætum
við því sem Guð gerir í Jesú Kristi,
en ekki vangaveltum okkar
manna um orsakir og afleiðingar.
Þjáningin hefur ekkert breytzt
frá því Job var uppi og því eru
2800 ára gömul orð hans enn í
gildi og passíusálmar sr.
Hallgríms flytja enn fagnaðarboð-
skap um hina mestu þjáningu,
þegar hann var framseldur, hædd-
ur, húðstrýktur og deyddur á
krossi. Hvemig getur þessi þján-
ing flutt til okkar fagnaðarboð-
skap?
Passíusálmamir svara því. Job
gerði það einnig. Vinur þinn sem
þjáist og bíður dauðans með svo
miklum styrk og hugarró svarar
því.
VORN GEGN VERÐBOIGU
u,
s
KJARABREF - Ávöxtun : 12 - 14% umfram verðbólgu
TCKJUBRÉF - Ávöxtun: 12 - 14% umfram verðbólgu
MARKBRÉF - Ávöxtun: 13 - 16% umfram verðbólgu
BANKABRÉF - Ávöxtun: 9-10% umfram verðbólgu
SPARISKÍRTEINI - Ávöxtun: 7,2 - 8,5% umfram verðbólgu
VAXTAKJORIN IDAC Hér að ofan geturðu séð hvernig
vaxtakjörin eru í dag. Þess ber þó að gætá að tölurnar eru birtar
án tillits til sölulauna eða innlausnargjalds. Fjárfestingarfélagið
er alltaf reiðubúið til þess að veita þér upplýsingar um bestu
kosti verðbréfamarkaðsins hverju sinni.
TALAÐU VIÐ OKKUR Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins
eru alltaf til viðtals í Kringlunni og í Hafnarstræti 7. Þeir veita
þér góð ráð um ávöxtun peninganna þinna, innlausn spari-
skírteina, kaup og sölu verðbréfa, gengi verðbréfa, aðstoð við
fjárfestingar og annað sem þú þarft að vita.-í dag er nauðsynlegt
að nýta sér aðstoð þeirra sem þekkja markaðinn.
Símsvarinn okkar er í vinnu allan sólar-
hringinn. Hann veitir þér upplýsingar um
daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa,
Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa.
SÍMANÚMER SÍMSVARANS ER 28506
Tólf ár í fararbroddi!
(£>
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
HAFNARSTRÆTI 7, 101 REYKJAVÍK, S (91) 28566 KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK, S (91) 689700
GENG112. FEBRÚAR '
KJARABRÉF 2.648
TEKJUBRÉF 1.355
MARKBRÉF 1.368
FJÖLÞJÓÐABRÉF 1.268