Morgunblaðið - 14.02.1988, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988
Hólmavík:
Uppboð á hlutabréfum
, Hólmavik.
ÞRIÐJUDAGINN 9. febrúar
var haldid uppboð á hlutabréf-
um eins hluthafa í Hólmadr-
angi hf. Uppboðið fór fram á
sýsluskrifstofunni á Hólmavík.
Ríkarður Másson sýslumaður
Strandasýslu stjómaði uppboðinu.
Mættir voru fulltrúar helstu hlut-
hafa í fyrirtækinu Hólmadrangi
hf. og tveir fulltrúar kröfuhafa.
Að auki voru nokkrir staddir á
staðnum sakir forvitni, því þama
var ekki um neitt minniháttar mál
að ræða, fyrir heimamenn.
Hólmadrangur hf. er eigandi
fiystitogarans Hólmadrangs sem
metinn er á milli 300 til 400 millj.
króna. Hlutabréfin sem boðin vom
upp vom að nafnvirði krónur 2
millj. og 20 þús. eða 30,8% hlutaij-
ár .í fyrirtækinu. Því langaði
heimamenn að sjá hver yrði næsti
eigandi bréfanna.
Uppboðið átti að hefjast kl.
17.00 en vegna óvæntra aðstæðna
hófst það ekki fyrr en kl. 17.40.
Sýslumaður greindi frá því að
uppboðið hefði verið auglýst í dag-
blöðum og einnig að gerðarþoli
hefði óskað eftir því að bréfin yrðu
öll boðin upp í einu. Þorvaldur
Einarsson aðallögfræðingur Bún-
aðarbanka íslands bauð í bréfin
fyrir hönd bankans 3 millj. króna.
Enginn annar bauð í bréfin og
vom þau því sleginn Búnaðar-
bankanum.
Fréttaritari innti Þorvald Ein-
arsson eftir því hvers vegna Bún-
aðarbankinn væri að bjóða í bréf
þessi? Hann sagði að bankinn ætti
um 12 millj. króna kröfu á hendur
gerðarþola. Næst var hann spurð-
ur að því hvort bankinn ætlaði að
fara að reka frystitogara? „Þessi
sala bréfanna skiptir miklu máli
fyrir fyrirtækið og heimamenn.
Því ætlar Búnaðarbanki íslands
að selja bréfin og líklega verða
þau fyrst boðin heimamönnum til
sölu,“ sagði Þorvaldur Einarsson.
Fréttaritara og fleimm sem við-
staddir vom uppboðið lék forvitni
á að vita hvert væri raunvirði
hlutabréfanna. Það virtist vera
mjög óljóst. Nefndu sumir að þau
gætu farið á allt að 20 til 30
millj. En það mun koma í ljós síðar
Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson
Ríkharður Másson sýslumaður
Strandasýslu stjórnaði uppboð-
inu.
hversu hátt verð Búnaðarbankinn
fær fyrir bréfin.
—BRS
Aðeins er bo//ðuT 1
pra'‘UvmSrlí!kní‘,en
teiguflug • G^rstJor-
• Muruð að n/reiðí
——_ Pajita s
/f
7Í
•fSX'f'X XfXXX
ijgB'j&jéBjSS’j fl
W/wÆám
f/Jfl
r / . “ ("’í'"** jf £jg,*'
Símar 35408
og 83033
SELTJNES
Látraströnd
Hrólfsskálavör
SKERJAFJ.
Einarsnes
MIÐBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Tjarnargata 3-40
Tjarnargata 39-
Laugavegur1-33o.fl.
UTHVERFI
Ystibæro.fl.
Sogavegur
Sæviðarsund hærri tölur
Sæviðarsund lægri tölur
Efstasund 2-59
Kambsvegur
KOPAVOGUR
Sunnubraut
Laufbrekka
Nýbýlavegur
Kársnesbraut 77-139
VESTURBÆR
Hringbraut 37-77
Granaskjól
Ægisíða 44-78
piorgíuiuhlíiíiiö
omRon
AFGREIÐSLUKASSAR