Morgunblaðið - 24.03.1988, Side 1

Morgunblaðið - 24.03.1988, Side 1
96 SIÐUR B 70. tbl. 76. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988_________________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins Reuter Heimsins stærsta sólúr Verkamenn í Madríd sjást hér leggja síðustu hönd I ið sem miðar við sól hátt á lofti, annað úr leiðrétt- á frágang stœrsta sólúrs í heimi. Hægt er að lesa ir tíma þegar sól er lágt á lofti. Eitt úranna niu réttan tíma á úrinu, sem er 320 fermetrar að gefur tíma við miðbaug. Fjögur pólúr veita upplýs- grunnfleti, jafn að nóttu sem degi. í klukkunni ingar um tímajöfnuð og tvö tunglúr gera mögu- eru níu mismunandi úr. Hið stærsta er sjálft sólúr- I legt að lesa réttan tima að nóttu til. Washington: Leiðtogafund- urinn í maílok Washington, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti skýrði svo frá í gær, að fjórði fundur hans og Míkhails Gorbatsjovs, leiðtoga Sovétríkj- anna, yrði í Moskvu dagana 29. maí til 2. júní. Utanríkisráðherr- ar ríkjanna ræðast nú við í Wash- ington um dagskrá fundarins. Þegar Reagan tilkynnti dagsetn- ingu leiðtogafundarins var hann spurður hvort samningur um fækk- un langdrægra kjamorkueldflauga yrði tilbúinn til undirritunar á fund- inum en hann kvaðst ekki geta svar- að því. Á Washingtonfundi leið- toganna undirrituðu þeir samning um fækkun meðaldrægra kjam- orkuvopna en samningur um lang- drægu vopnin yrði miklu víðtækari og að undanfömu hefur margt kom- ið fram, sem bendir til verulegs ágreinings. Edúard Shevardnadze, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, hefur síðustu þijá daga átt viðræður við George Shultz, bandarískan starfs- bróður sinn, um dagskrá Moskvu- fundarins, afvopnunarmál og önn- ur, sem þar verða efst á baugi. Hafa þeir meðal annars ræðst við um Áfganistan og hugsanlegan brottflutning sovéska herliðsins þaðan og sagði Shevardnadze, að nokkuð hefði miðað hvað það varð- aði. Bandarískur forseti hefur ekki komið til Sovétríkjanna í 14 ár. Árið 1974 fór Gerald Ford til Vladivostok til fundar við Leoníd Brezhnev en fyrirrennari hans, Ric- hard Nixon, varð fyrstur Banda- ríkjaforseta til að fara til Sovétríkj- anna. Kom hann til Moskvu í maí árið 1972. Moskvu, Reuter. Forsætisnefnd æðsta ráðsins sovéska skoraði í gær á frammá- menn í Azerbajdzhan og Armeníu að koma á lögum og reglu í ríkjun- um og sagði berum orðum, að ekki yrðu gerðar neinar breytingar á landamærum rikjanna. Talið er, að þessi ákvörðun geti orðið til að koma af stað nýrri mótmælaöldu í Armeníu en boðað hefur verið til fjöldafundar í Jerevan, höfuðborg ríkisins, á laugardag. Ályktunin var samþykkt á sér- stökum fundi forsætisnefndarinnar eftir að Míkhaíl Gobatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hafði ávarpað hann og sagði í henni meðal annars: „Það er óviðunandi með öllu, að sjálfskip- aðir hópar taki að sér að ákveða að nýju landamæri, sem tryggð eru í sovésku stjómarskránni, og það er jafn óviðunandi þegar reynt er að beita ríkið þvingunum í skjóli ókyrrðar og óviss ástands." Aðeins var komið til móts við kröfur Arm- ena að leyti, að ákveðið var að styðja íbúana í Nagomo-Karabakh, héraðinu umdeilda, í efnahags-, fé- lags- og menningarlegum efnum. Fréttaskýrendur telja, að ályktun forsætisnefndarinnar geti kynt und- ir nýjum mótmælum í Armeníu en í Jerevan hefur verið boðað til fjöldafundar á laugardag. Ízvestía, málgagn stjómarinnar, sagði fyrr í vikunni, að skipuleggjendur fundar- ins hefðu heitið því að „leggja lífið í sölumar" fyrir endurheimt Nag- omo-Karabakhs og gera laugar- daginn að „afdrifaríkum degi“. Halabja, Dubai, Reuter. ÍRANIR hafa sótt lengra en nokkru sinni fyrr inn í írak og hafa nú á valdi sínu stórt svæði í Kúrdistan-fjöllum. Hafa þeir sýnt erlendum fréttamönnum þorp, sem þeir segja íraka hafa ráðist á og deytt alla íbúana með eiturgasi. Alþjóða Rauði krossinn hefur fordæmt notkun efnavopna í Persaflóastríðinu og segir, að tafarlaust verði að koma í veg fyrir hana. íranir réðust í gær á kýpverskt skip á Persaflóa. íranir hafa lagt undir sig stórt svæði í Norðaustur-írak og sótt lengra inn í landið en nokkm sinni fyrr í styijöldinni milli ríkjanna, sem staðið hefur í hálft áttunda ár. Em þeir komnir að Darbandikhan-vatni en við útfall þess er mikið orkuver, sem sér m.a. Bagdad fyrir raf- magni. Segjast íranir hafa villt um fyrir írökum og látið þá halda, að þeir ætluðu að hefja sókn að borg- inni Basra, syðst við víglínuna. íranir fóm í gær með erlenda fréttamenn á þessar slóðir en þeir saka íraka um að hafa varpað efna- sprengjum á þorp í íran og einnig á kúrdísk þorp í írak, sem íranir höfðu náð á sitt vald. Erlendu fréttamennimir segja, að í einu þorpanna, sem þeir komu til, Halabja, hafi lík karla, kvenna og bama legið eins og hráviði um allt og er það haft eftir læknum, að augljóst sé, að fólkið hafí látist af Ekki verður orðið við kröfum Armeníumanna blásýmeitmn. Segja íranir, að 5.000 óbreyttir borgarar hafí verið drepnir með þessum hætti. Iranskir byssubátar réðust í gær á kýpverskt flutningaskip í Hormuz-sundi og kom upp mikill eldur í því. Ekki var vitað um mann- tjón en dráttar- og slökkvibátar hröðuðu sér á vettvang áhöfninni til hjálpar. Hefur þá verið ráðist á 40 skip í Persaflóa frá áramótum. Sjá „Fréttamenn...“ á bls. 34. Sovétríkin: Reuter Myndin var tekin 8. mars sl. af mótmælafundi í Jerevan, höfuðborg Armeníu, en á laugardag hefur verið boðað til mikils útifundar þar. Danadrottning svæl- ir tvo pakka á dag Kaupmannahöfn. Reuter. DANSKIR andstæðingar tóbaks- reykjarins eru heldur óhressir með Margréti drottningu og þann vana hennar að svæla stöð- ugt sígarettur á almannafæri. í frétt í Ekstrabladet segir, að Preben Ellebye, formaður samtak- anna Reyklauss umhverfís, hafi skrifað drottningu bréf þar sem hann segist vera þeirrar skoðunar, að „tóbaksiðnaðurinn geti ekki ósk- að sér betri auglýsingar fyrir eitrið en myndar af drottningunni. Unga fólkið lítur upp til hennar en samt lætur hún sig hafa það að ýta því inn í raðir krabbameinssjúkling- anna.“ í fréttinni í Ekstrabladet sagði, að Margrét Danadrottning reykti 40 sterkar, grískar sígarettur á dag. Mikil sókn ír/ina inn í Norður-Irak

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.