Morgunblaðið - 24.03.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
Fjárhagsáætlun Húsavíkur samþykkt:
Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson
Fjárfrekustu framkvæmdirnar eru við höfnina.
Mestar framkvæmd-
ir við höfnina í ár
Húsavík.
BÆJARSTJÓRN Húsavikur sam-
þykkti á fundi sínum 15. mars
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtælqa fyrir liðandi ár.
Helstu niðurstöður áætlunarinn-
ar eru þær, sem nú skal greina.
Sameiginlegar telqur bæjarsjóðs
eru áætlaðar 171,8 millj. og hafa
hækkað um tæp 37% frá fyrra ári.
Rekstrargjöld eru áætluð 157,8
millj. og hafa hækkað um 58,5%
frá fyrra ári, og rekstrarafgangur
því tæpar 14 miilj. eða um 8% af
tekjum. í Qárhagsáætlun 1987 var
þetta hlutfall tæpt 21%.
Staðgreiðsla útsvara er talin hafa
í för með sér lægri tekjur fyrir
bæjarsjóð, en hefði orðið eftir fyrra
kerfí og með skerðingu framlags
frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er
tekjutap af þessum tveim liðum
talið 13 milljónir á þessu ári.
Rekstrargjöld hækka umfram verð-
lagsbreytingar meðal annars vegna
nýrra rekstrarliða eins og íþrótta-
hallarinnar og vegna mikillar vaxta-
hækkunar.
Þrír stærstu tekjuliðir fjárhags-
áætlunar eru: Útsvör tæpar 100
millj., aðstöðugjöld 21,3 millj. og
29. JANÚAR 1988 ÍVAR STÓR DAGUR í SÖGU SLYSAVARNA Á ÍSLANDlj
ÞANN DA(ji VARÐ SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS_60 ÁRA.
MARKMIÐ FÉLAGSINS ER VERNDÚN1WANNSLÍFA OG MEÐ SAMSTILLTU ÁTAKI
GEGN SLYSUM OG AFLEJÐINGUM ÞEIRRA MÁ NÁ VERULEGUM ÁRANGRI f ÞEIRRI
BARÁTTU EN TIL ÞESS ÞARF FÉLAGIÐ ÞINN STUÐNING:
' ; - Á „ ■ J--------VINNÍNGAR:---7--J-------------—
ÍBÚÐARVINNINGUR AÐ VERDMÆTI 2.000.000,00 KR.
TVEIR TOYOTA LANDCRUIESER 4WÐ AÐ VERÐMÆTI KR: 1.129.000,00 HVER
NÍTJÁN TOYOTA COROLLA BIFREIÐAR AÐ VERÐMÆTI KR. 456.080,00 HVER.
—ÐREGIÐ VERÐUR I>ANN 12. APRÍL 1988
fasteignagjöld 19,5 millj. og tekju-
útsvar og aðstöðugjöld Manville hf.
8.4 milljónir. En stærstu gjaldalið-
imir eru þessir: Almannatryggingar
og félagshjálp 29,1 millj. Fjár-
magnsgjöld 28,7 millj., fraeðslumál
20.4 millj., yfírstjóm kaupstaðarins
14,6 millj., hreinlætismál 12,6
millj., æskulýðs- og íþróttamál 12,2
millj. og heilbrigðismál 7,5 milljónir.
A framkvæmdaáætlun em helstu
verkefnin og Qárveitingar þessar.
Til gatnagerðar em áætlaðar 8,6
millj., til Dvalarheimilis aldraðra
6,5 millj., til áframhaldandi fram-
kvæmda við íþróttahúsið 2,2 millj.
til að gera byggingarhæft svæði
fyrir einbýlishús á Langholti 3
millj., til byggingar nýrrar heilsu-
gæslustöðvar 2,2 millj. (á móti ríkis-
framlagi sem nemur 85% af bygg-
ingakostnaði) og til hönnunar á við-
byggingu við Bamaskólann 900
þús. Einnig er áformað að kaupa
þijár leiguíbúðir og er sú fjárfesting
9 millj. og gert er ráð fyrir að hefja
byggingu 8—10 íbúða í verka-
mannabústöðum.
Mestu verklegu framkvæmdimar
em áætlaðar við höfnina, og er
stærsta verkið bygging gijótgarðs
við Norðurgarðinn og er áætlað að
sú framkvæmd kosti um 40 milljón-
ir, en önnur minni verkefni em leng-
ing á sjóvamargarði norðan Þor-
valdsstaðarár, endurbygging á svo-
nefndum Suðurgarði og að gera á
akfæra leið milli hafnarsvæðanna,
efst yfír Naustafjöm (undir Beina-
bakka). Rekstrartelqur hafnarsjóðs
em áætlaðar 14,5 millj. en gjöld
8,3 milij. Rekstrarafgangur 42,5%
af tekjum.
Rekstrartekjur Vatnsveitu em
áætlaðar 14 millj. en gjöld 2,2
millj., tekjuafgangur 11,8 millj. eða
84% af telqum og rekstrartekjur
Hitaveitu áætlaðar 30 millj. en gjöld
14,6 millj. eða 48,7% af gjöldum.
Af þessum hreinu tekjum vatns-
veitu og hitaveitu ráðstafar bæjar-
stjóm 18 milljónum til reksturs og
flárfestingar bæjarsjóðs, en til
framkvæmda veitnanna sjálfra fara
aðeins 4,6 millj. Rekstrartekjur raf-
veitu em 56,4 millj., gjöld 51,8 m.
tekjuafgangur 4,6 millj. eða 8,1%
af tekjum.
Hitunarkostnaður með vatni frá
Hitaveitu Húsavíkur er hinn lægsti
á Norðurlandi og töluvert lægri en
í Reykjavík.
Skiptar skoðanir em um það
meðal bæjarbúa, hvort rétt sé að
rekstrarhagnaði hita- og vatnsveitu
sé ráðstafað sem óafturkræfu fram-
lagi til reksturs bæjarins, þar sem
veitumar hafa aðskilin fjárhag.
Mörgum fínnst að hér eigi að vera
um lán að ræða.
Forsendur fjárhagsáætlunar em
sem áður óvissar og nú sérstaklega
vegna hins nýja staðgreiðslukerfís
skatta og óljósar horfur um þróun
efnahagsmála á næstunni.
— Fréttaritari
FACIT
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
POTT-
ÞETTAR
PERUR
AGOÐU
VERÐI
Allar RING bílaperur
bera merkið ©
sem þýðir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakröfur E.B.E.