Morgunblaðið - 24.03.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
21
Tomma-raUý
um helgína
íslandsmótíð í rallakstri árið
1988 verður haldið dagana 25.
og 26. mars nk. en þá verður
haldin fyrsta keppni ársins,
Tomma-rallý 1988, á vegum Bif-
reiðaiþróttaklúbbs Reykjavíkur
og Tommahamborgara.
Þá dusta væntanlega allir
fremstu rallökumenn landsins rykið
af keppnisbílum sínum og þeysa um
sérleiðir sem verða flestar á Reykja-
nesskaganum. Keppnin hefst á
morgun, föstudag, kl. 18 en þá
verða keppnisbílamir ræstir af stað
við Tommahamborgara á Lækjar-
torgi.
A morgun verða eknar sérleiðim-
ar um Kapelluhraun, ísólfsskála,
Stapafell og Hvassahraun og á
laugardaginn verða eknar sömu
leiðir en endað á sérleið sem liggur
meðfram Laugardalshöll í
Reykjavík, en hún verður nánar
auglýst síðar. Þessi sérleið, sem
hefur aldrei verið ekin áður í ralli,
er tilvaiin áhorfendaleið fyrir allt
bflaáhugafólk, en reiknað er með
að 1. bfll verði ræstur inn á leiðina
kl. 14.30 á laugardag.
(Fréttatilkynning)
Kemur sára-
sjaldan fyrir
að skipin haldi
ekki áætlun
- segir Þórður
Sverrisson fram-
kvæmdastjóri
flutningasviðs
Eimskips
ÁSTÆÐAN fyrir þvi að gámar
með fiski, sem selja áttí á mark-
aði í Þýskalandi i dag, fimmtu-
dag, ná ekki þangað í tæka tíð
er sú að skip Eimskips, Tinto,
tafðist vegna veðurs, að sögn
Þórðar Sverrissonar fram-
kvæmdastjóra flutningasviðs
Eimskips. Þórður sagði í samtali
við Morgunblaðið, að það hefði
sárasjaldan komið fyrir að skip
Eimskips hefðu ekki getað haldið
áætlun, en Vilhjálmur Vilhjálms-
son, starfsmaður LÍÚ, sagði i
frétt, sem birtíst í Morgunblað-
inu á þriðjudag, að oft hefði orð-
ið misbrestur á áætlunum skipa-
félaganna og hann hefði í mörg-
um tilfellum valdið verðfalli á
erlendum fiskmörkuðum þegar
fiskur úr gámum hefði verið
seldur þar sömu daga og fiskur
úr íslenskum fiskiskipum.
Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eim-
skips, sagði að stundum hefði flsk-
verðið á mörkuðunum hækkað
vegna þess að flutningaskipin hefðu
ekki haldið áætlun. „Einnig hafa
stundum aðrar ástæður valdið verð-
falli á fiskmörkuðunum en seinkun
flutningaskipanna," sagði Þórður.
„Vissulega er það samt sem áður
slæmt að það skuli koma fyrir að
skipunum seinki. Samkvæmt okkar
áætlunum á að vera hægt að af-
ferma okkar skip í Þýskalandi á
þriðjudögum þannig að hægt sé að
selja úr þeim á miðvikudögum,"
sagði Þórður.
Guðmundur Baldur Sigurgeirs-
son, hjá skipadeild Sambandsins,
sagði samtali við Morgunblaðið í
gær að Sambandsskipin hefðu stað-
ist mjög vel áætlun í vetur. „Skip
geta hins vegar tafíst á vetuma
vegna veðurs," sagði Guðmundur
Baldur. „Helgafell er affermt í
Hull á mánudögum og i Rotterdam
á þriðjudögum. Við miðum við að
hægt sé að selja flskinn úr gámun-
um á þriðjudögum í Hull og ,það
var selt þar úr Helgafelli á þriðju-
dagsmorguninn," sagði Guðmundur
Baldur.
NGIN HÆKKUN
ÞRÁTT FYRIR GENGISFELL-
INGU GETUM VIÐ BOÐIÐ
TAKMARKAÐ MAGN AF 14
OG 20 TOMMU LITSJÓN-
VÖRPUM FRÁ SAMSUNG Á
ÓBREYTTU VERÐI.
CB-347 14 TOMMU
IN-LINE MYNDLAMPI.
MONITOR ÚTLIT.
BEIN VIDEO-TÖLVU TENG-
ING.
HEYRNATÓLS ÚTGANGUR.
SJÁLFVIRK FÍNSTILLING.
VERÐ 20.600,-
STGR. 19.570,-
CB-528 20 TOMMU
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI
FJARSTÝRINGU.
MONITOR ÚTLIT.
TVÖFALT HÁTALARAKERFI.
SJÁLFVIRKUR STÖÐVAR-
LEITARI.
SJÁLFVIRK FÍNSTILLING.
HEYRNATÓLS ÚTGANGUR.
BEIN VIDEO TENGING.
VERÐ 31.500,-
STGR. 29.900,-
japis:
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN * SÍMI 27133