Morgunblaðið - 24.03.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
Aburðar-
verksmiðjan:
Tillit tekið
til óska borg-
aryfirvalda
STJÓRNARMENN I Áburðar-
verksmiðju ríkisins telja nauð-
synlegt að taka tillit til óska
borgaryfirvalda vegna geymslu
á ammoníaki og fleira. Gunnar
Guðbjartsson stjórnarformaður
sagði að endanleg ákvörðun yrði
þó ekki tekin fyrr en að loknum
viðræðum við fulltrúa almanna-
varnarnefndar borgarinnar og
borgaryfirvalda.
Gunnar sagði að erfitt væri að
stöðva ammoníaksinnflutninginn
fyrirvaralaust því búið væri að gera
samninga um innflutning á næst-
unni. Þá væru stjómvöld ekki búin
að skipa nefnd til að gera úttekt á
þjóðhagslegri hagkvæmni verk-
smiðjunnar og illt að þurfa að bíða
mjög lengi í óvissu um skipan henn-
ar og störf með að he§a fram-
kvæmdir við nýja geyminn.
VEÐUR
Snæfellsnes:
Vertíðin hefur al-
gerlega brugðist
Ekkert bólar á árlegri marsgöngu þorsksins
AFLABRÖGÐ hafa verið með eindæmum slæm í Ólafsvík það sem
af er vertíðar og sömu sögu er að segja af öðrum útgerðarstöðum
við sunnanverðan Breiðafjörð. Ekkert bólar enn á þeirri sterku
þorskgöngu, sem venjulega er komin um miðjan marsmánuð. Afli
báta fer sjaldan yfir 7-8 tonn í róðri, algengt er að þeir landi 2-3
tonnum.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Nýi skuttogarinn, Haraldur Kristjánsson HF 2, við komuna tíl lands-
Hafnarfjörður:
í fyrradag komu um 20 bátar
að landi með alls 93 tonn í Ólafsvík
og sagði Helgi Kristjánsson frétta-
Nýr skuttogari í höfn
NÝR skuttogari, Haraldur
Kristjánsson HF 2, kom til Iands-
ins í gær. Eigandi er Sjólastöðin
hf. í Hafnarfirði, en skipið er
byggt þjá Flekkefjord Slip í Nor-
egi og er það 25. skipið sem þar
er byggt fyrir íslendinga. Þetta
skip kemur i stað togarans Karls-
efni, sem er 22 ára gamall, stór
skuttogari og fiskveiðileyfi hans
flyst yfir á nýja skipið.
Skipið er byggt samkvæmt regl-
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veóuretofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 24.3. 88
YFIRUT í gær: Skammt suövestur af Vestmannaeyjum er 988 mb
lægðarmiöja sem þokast vestur og liggur frá henni lægðardrag í
átt til Skotlands.
SPÁ: Noröaustanátt sumstaðar allhvöss vestan- og norövestan-
lands en hægari kaldi eða stinningskaldi í öörum landshlutum.
Noröan- og austanlands veröur él eöa slydduél en úrkomulaust
suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Noröaustan- og norðan-
átt, líklega allhvöss um vestanvert landiö en heldur hægari austan
til. Él eða slydduól verða á Noröur- og Austuriandi en bjartviöri
sunnanlands.
TÁKN:
Heiftskírt
a Léttskýjaö
& Hálfskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / *
/ * /
Slydda
Alskýj.ð
# * *
# * # # Snjókoma
# # #
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
* x
V E'
— Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
oo Mistur
-j. Skafrenningur
[T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma hltt veður Akurayri 2 skýjað Reykjavlk 6 tkýjað
Borgen E léttakýjað
Helsinki 1 snjókoma
Jan Mayen 4« (skom
Kaupmannah. 3 lóttskýjað
Narasarssuaq E skýjað
Nuuk +7 skýjað
Osló 2 snjókoma
Stokkhóimur 1 þokumóða
Þórshöfn 6 rignlng
Aigarve 21 léttskýjað
Amsterdam 9 akýjað
Aþena vantar
Barcelona 17 léttskýjað
Berlfn 3 þokumóða
Chicago 13 skýjað
Feneyjar 14 léttskýjað
Frankfurt 9 rlgning
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 4 súld
Las Palmas 20 léttskýjað
London 10 skúr
Loa Angeles 12 þokumóða
Lúxemborg 7 skúr
Madrld 17 léttskýjað
Malaga 21 helöskfrt
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal +7 alskýjað
New York 1 skýjað
Parfa 12 skýjað
Róm 17 skýjað
Vln 11 skúr
Waahlngton 1 (éttskýjað
Winnlpeg 46 légþokubl.
Valencla 23 helöskfrt
um Siglingamálastofnunar ríkisins
og er sérstaklega styrkt fyrir sigl-
ingar í ís. Mesta lengd nýja skipsins
er 56,86 metrar og breidd er 12,62
metrar. Það er 883 brúttólestir og
fiskilestar 'eru 600 rúmmetrar.
Ganghraði skipsis í reynsluferð var
15 mílur á klukkustund.
Skipið hefur tvær frystilestar
sem eru einnig útbúnar fyrir ísfisk.
Vindur eru allar lágþrýsti vökva-
vindur. Þá er þriggja tonna löndun-
arkrani á skipinu. íbúðir eru fyrir
28 menn í eins og tveggjamanna
klefum, hefur hver klefi eigið
snyrtiherbergi með salemi, sturtu
og vask. Einnig er saunaklefi í skip-
inu. Rúmgóður borðsalur er með
setustofu, einnig er sérstök setu-
stofa og sjónvarpsherbergi. Allar
íbúðarþiljur em úr eldtraustu efni.
Siglinga- og fiskileitartæki eru af
nýjustu gerðum.
Skipstjóri á nýja skipinu er Helgi
Krisfjánsson, 1. stýrimaður er Páll
Eyjólfsson og yfirvélstjóri Þorberg-
ur Þórhallsson.
ritari Morgunblaðsins það vera
dæmigerðan afla á þessari vertíð.
Hann sagði vera afskaplega dauft
yfir vertíðinni nú, bátamir hafí far-
ið upp f 7-8 tonn á þriðjudaginn
og þætti ekki merkilegur afli. Eng-
ar spumir em af neinu sem getur
breytt þessu dæmi, engin loðna er
í fískinum, hún virðist ekki hafa
gengið vesturfyrir og þar af leið-
andi ekki þorskur heldur. Helgi
sagði að það hafi ekki bmgðist að
í kringum miðjan mars hafí komið
aflahrota og staðið í þrjár til fjórar
vikur. Fyrstu tvær vikurnar mjög
góðar og síðan hefði smá dregið
úr. „Við sjáum engin merki þess
núna. Síðan skellur á veiðibann um
páskana, viku bann, og við óttumst
að missa þá af fiskinum. Venjulega
er mjög Iítið hér að hafa eftir 10.
apríl," sagði Helgi Kristjánsson í
Ólafsvík.
Frá Stykkishólmi er sömu sögu
að segja. Ámi Helgason fréttaritari
blaðsins sagði hafa verið ördeyðu
fram til þessa, en þó væri lítillega
að glæðast afli bátanna nú, en óvíst
væri hvort það merkti eitthvað.
Hann sagði fískinn, það litla sem
aflast, vera mjög sæmilegan, mest
þorsk. Á þriðjudag var mesti afli á
bát 5,5 tonn, flestir með 2-3 tonn
og trillur með 600-700 kg. Afla-
hæstu bátar í Stykkishólmi frá ára-
mótum era Þórsnes með 241 tonn
í 36 róðram, Andey með 237 tonn
í 42' róðram og Ársæll með 193
tonn í 39 róðram.
Gjaldskrá leigubíla:
Rúmlega 64% hækk-
un frá ársbyrjun 1986
GJALDSKRÁ leigubíla hefur
hækkað um 64,5% frá því í árs-
byrjun 1986. Á sama tima hefur
framfærsluvísitala hækkað um
Homafjörður:
Lóan er
komin
Höfn, Horaafirði.
INGÓLFUR Björnsson bóndi
i Grænahrauni í Nesjum varð
fyrstur fslendinga til að
koma auga á „Vorboðann
yúfa“, lóuna, þetta árið. Ing-
ólfur ók fram á fjórar lóur
á þriðjudagsmorgun og virt-
ust þær mjög dasaðar enda
nýbúnar að Ijúka löngu flugi
sinu yfir hafið.
„Ég hafði að gamni samband
við Utvarpið vegna þess að
Seltimingar hafa undanfarið
verið fyrstir manna að tilkynna
komu lóunnar. Mig minnir þeir
hafí séð lóur þar í febrúar fyrir
einum þremur, fjóram áram.
En gæsir hafa líka verið að
flögra um hér síðustu dagana,"
sagði Ingólfur.
Ekki vildi hann ábyrgjast að
vorið væri komið og kvað al-
gengt að hret skyllu á eftir að
lóan kæmi. En hún er komin i
HomaQörðinn, þriðjudaginn
22. mars, þá er einmánuður
byijar.
- JGG
44,8%, lánskjaravísitala um
44,3% og launavísitala um 68,1%.
Samkvæmt upplýsingum frá
Verðlagsstofnun hækkaði gjaldskrá
leigubíla um 6% i febrúar 1986, um
3,3% í október sama ár, um 7,5%
í febrúar 1987, um 10% í maí, 6%
í september og 8% í desember 1987,
en þessar hækkanir á árinu 1987
vora samfara leiðréttingum sem
gerðar vora á rekstrarviðmiðun
leigubíla. Síðasta hækkun á gjald-
skrá leigubíla var 11%, fyrr í þess-
um mánuði. í upphafi árs 1986 var
startgjald leigubíla 115 krónur,
hækkaði í 120 krónur í febrúar það
ár, en er nú 175 krónur eftir síðustu
hækkun.
Borgarráð:
Samþykkt 10%
gjaldskrár-
hækkun raf-
magnsveitu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
10% hækkun á gjaldskrá Raf-
magnsveitu Reykjavikur. Enn-
fremur var samþykkt breyting á
uppbyggingu taxtans, vegna
kerfisbreytingar á verðlagningu
Landsvirkjunar. Ekki er gert ráð
fyrir að sú breyting leiði til sérs-
takrar hækkunar á raforku til
viðbótar þeirri 10% hækkun sem
verður vegna gjaldskrárbreyt-
ingarinnar. Breytingar þessar
taka gildi 1. april næstkomandi.