Morgunblaðið - 24.03.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
Matthildur Bjömsdóttir skrifar frá Ástralíu:
Lífsins lotterí
er mótmæli
við yfirvöld
Þrátt fyrir allt eiga íslendingar
og Ástralíubúar margt sameiginlegt.
Báðar þjóðir spila lottó mikið þó að
hlutfall íslendinga sé áreiðanlega
hærra enda færri og tiltölulega meiri
möguleiki á milljón á mann en hér.
En í Ástralíu er þó dregið tvisvar {
viku, á miðvikudögum og laugardög-
um, og var potturinn einn miðviku-
dag sex milljónir dollara sem var
tvöfaldur pottur. í Ástralíu eru fleiri
tegundir hppdrætta sem dregið er í
á sama hátt, en áðumefnt lottó er
þjóðarlottóið. Ekki má /gleyma
happaþrennum sem mikið eru seldar
og em til sölu í flestum „Deli“ og í
blaðatumum. En hér em einnig svo-
kallaðir „Newsagency’s" sem selja
dagblöðin, oft bækur, tímarit, póst-
kort, stundum minjagripi og allt milli
himins og jarðar nema matvöm. Það
er ansi teygjanlegt hvað þeir selja.
Þar fást lottómiðar oftast og líka
aðrir happdrættismiðar.
Að veita yfirvöldum aðhald
Þegar ég hef sagt fólki hér frá
matarskatti sem mikið er rætt um í
íslenskum dagblöðum, heyrir maður
undmnarraddir frá Áströlum sem
trúa ekki að yfírvöld á íslandi kom-
ist upp með slíkt. Segja þeir að ræddu
yfirvöld hér slíkt tækju þjóðfélags-
þegnamir til sinna ráða, sem þeir
hafa oft gert og munu halda áfram
að gera ef tillögur eða gerðir koma
upp, sem skerða hagsmuni þjóðarinn-
ar eða einstakra hópa.
Þegar leggja átti sérstakan skatt
á landbúnaðartæki og skattleggja
hlunnindi þeirra sem unnu fyrir
bændur tóku bændur sig til og los-
uðu fjörtíu tonn af hveiti á tröppur
þinghússins í Canberra. Einnig sturt-
uðu þeir þar við hliðina þúsund lítrum
af kúa- og kindaskít.
Á þessum tíma vom þunga-
vinnubílstjórár að mótmæla og neit-
uðu algerlega að aðstoða við að
hreinsa þetta upp. Það lenti því á
lögreglunni að gera það, en til þess
hafði hún aðeins skóflur og hjólbömr!
Er kosið var um eitt þingsæti hér
í Adelaide nýlega kom í ljós að flokk-
ur Bons Hawks forsætisráðherra
naut ekki þeirra vinsælda sem hann
hafði reiknað með og var það vegna
hugmyndar sem hann hafði viðrað
nýlega um að setja skrefatalningu á
símtöl. Var hann því fljótur að bregð-
ast við og viðurkenna að tapið væri
líklega vegna þeirrar hugmyndar og
hætti við hana með það sama.
Annað dæmi um viðbrögð fólks
er að maður einn, sem lengi hafði átt
í viðureign við yfirvöld hér í Adela-
ide, safnaði saman miklu magni af
pappír og fór inn í ráðhúsið með það
og fleygði yfir þingsalinn.
í fýrra mótmæltu eggjabændur í
Nýja Suður-Wales kvóta sem átti að
setja á egg og fluttu mörg þúsund
egg á tröppur ráðhússins í Sydney.
i Adelaide og Melboume mót-
mæltu mjólkurbændur hótunum um
afnám eða minnkun niðurgreiðslu á
mjólk með því að fara að ráðhúsum
þessara borga og hella niður tugum
lítra af mjólk.
Hér er mjólk greidd niður en mest
er niðurgreiðsla á mjólk sem seld er
til diykkjar. Mjólk til annarrar notk-
unar er minna niðurgreidd. Eins er
með egg. Þau egg sem fara til beinn-
ar neyslu fá mest, en þau egg sem
notuð eru til annars eins og iðnaðar
eru mun minna niðurgreidd.
Þann 25. febrúar síðastliðinn tóku
starfsmenn sementverksmiðju í
Voktoríu sig saman til að mótmæla
því að yfirvöld höfðu flutt inn ódýr-
ara sement en þeir framleiða. Reiði
sina létu þeir í ljós með því að hella
úr nokkrum sementspokum á tröppur
ráðhússins í Melboume en sementið
barst síðan inn um allt hús. Og ráða-
menn þökkuðu guði fyrir að ekki
rigndi!
Ástralir, sem lesið hafa um kjötið
sem hent var á ruslahaugana á ís-
landi, em gáttaðir á því að íslensk
yfirvöld geti leyft sér slíkt, segja að
slíkt yrði aldrei gert og yrði svo mik-
ið til af afgangskjöti yrði það alltaf
gefið til einhverrar góðgerðarstarf-
semi, til fátækra og þar fram eftir
götunum.
Fleiru er mótmælt hér í borg og
hefur opnunartími verslana verið
mikið til umræðu.
Opnunartími verslana
Stórmarkaðseigendur hafa viljað
hafa opið alla laugardaga auk þess
hefur verið opið á fimmtudögum til
níu í úthverfúm og I miðbænum á
föstudögum. þeir em sagðir bera
mikla ábyrgð á atvinnuleysinu vegna
þess að þeir hafi staðið fyrir þessum
langa opnunartíma stórverslana sem
komast af með tiltölulega fátt starfs-
fólk þegar litlu verslanimar með
fleira starfsfólk hafa þar af leiðandi
misst viðskipti og orðið að segja upp
fólki.
i Undanfamar vikur hefur þetta
málefni mikið verið til umræðu í flöl-
miðlum og undirskriftalistar legið
frammi í búðum fyrir þá sem vilja
styðja það verslunarfólk sem vill eiga
frí á laugardögum.
Það skal tekið fram að litlar mat-
vömverslanir sem hér nefnast „De-
likatessen" og selja mjólk, brauð,
osta og nýlenduvömr ásamt sæl-
gæti, sumar lottóseðla, selja blöð,
tímarit og tækifæriskort ásamt
fleim, hafa leyfi til að hafa opið frá
átta á morgnana til tíu á kvöldin.
Sama gildir um byggingavömversl-
anir og bensínstöðvar, en þær fengu
þetta leyfi seint á síðasta ári.
Nú stendur yfir kennaraverkfall
þar sem kennarar fara fram á fjög-
urra prósenta launahækkun sem er
lítil ( okkar augum, en telst meira í
efnahagskerfi þar sem verðbólga er
ekki nemaum sjö til átta prósent.
Ástralir jafna metin
í frídögum
Svo em það frídagamir. Við höf-
um lengi haldið að engin þjóð ætti
eins marga frídaga og við, en Ástral-
ir ná langt f að jafna þau met þegar
allt er talið. Og þeir fá flögurra vikna
sumarfrí þegar Bandaríkjamenn fara
ekki nema stundum í mesta lagi (
tveggja vikna frí og þá eftir margra
ára þjónustu á sama stað.
Til dæmis fá margir Ástralir frí í
einn dag þegar hin mikla landbúnað-
arsýning stendur yfir, hið svonefnda
„Royal Show“. En hún er á mismun-
andi tímum í mismunandi borgum.
Ástralir eiga aðeins einn löglegan
frídag um jólin en það hefúr sums
staðar verið siðvenja að gefa auka-
dag sem er „Boxing day“ og einnig
ef jóladaga ber upp á helgidag fær
fólk aukafrídag út á það. A það við
um fleiri frídaga en jólin. Þeir fá
aðeins §óra frídaga um páska en við
fimm, og hafa ekki aukafrídag um
hvítasunnu né frí á uppstigningar-
dag. Hins vegar halda þeir uppá
mánaðardaginn þegar því var lýst
yfir að stríðinu væri lokið, 25. jan-
úar, og þjóðhátfðardaginn daginn
eftir þann 26. janúar 25. apríl er
„Anzac day“, minningardagur þeirra
sem féllu í heimsstyijöldunum fyrri
og sfðari, en hann er ekki bættur
lendi hann á helgidegi. í maf er keppt
um Adelaide-bikarinn í veðreiðum
og þá fá allir frí þó þeir mæti ekki
endilega á völlinn.
Haldið er upp á afmæli Elísabetar
Englandsdrottningar og fá þá allir
frí. En sá dagur er ekki hinn sami
f öllum fylkjum og er ekki í neinum
tengslum við hinn raunverulega af-
mælisdag drottningar. 10. október
er „Labour day“ eins konar 1. maí
hér í Ástralíu. Síðan er ekkert opin-
bert frí fyrr en um jólin.
Þar fyrir utan hefur hvert fylki
sfna sérstöku frídaga og sfðan koma
þeir sem samið hefur verið um í
launasamningum. Þeir fara stundum
eftir veðri og vindum. Víða hefur það
verið f samningum að fólk þurfi ekki
að vinna ef það er of heitt eða of
kalt eða of blautt.
Fjölmiöla-
námskeió
Fimmtudaginn 7. apríl hefst vandað og
fjölbreytt námskeið í fjölmiðlun.
Þátttakendur fá kennslu og leiðsögn í undir-
stöðuatriðum Ijölmiðlunar. Að loknu sameigin-
legu undirstöðunámi skiptast þátttakendur í
þrjá hópa eftir áhugasviðum þ.e. útvarp,
sjónvarp, blöð og tímarit.
Ahersla er lögð á verklega kennslu undir stjóm
hæfra fjölmiðlamanna.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að
leggja Ijölmiðlun fyrir sig. Nauðsynlegt er að
þátttakendur hafi gott vald á íslensku og vélritun.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 27.
Námskeiðið stendur frá 7. apríl til 28. maí og er
kennt þrjá daga í viku, laugardaga frá kl. 10-15
og þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 20-23.
Námskeiðið er alls 104 kennslustundir.
Innritun og frekari upplýsingar fást hjáTóm-
stundaskólanum, Skólavörðustíg 28, virka
dagakl. 10-16.
Sigrún Stefánsdóttir.
Stjórn og gerö sjón-
varpsþátta.
Sveinn Sveinsson.
Upptaka og gerð
sjónvarpsþátta.
Stefán Jökulsson.
Stjórn og gerð útvarps-
þátta.
Vilborg Harðardóttir.
Námskeiðsstjórn.
Blöð og tímarit.
TOMSTUNDA
SKOUNN
Skólavörðustig 28
Sfani <81488