Morgunblaðið - 24.03.1988, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 24.03.1988, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988 Afmæliskveðja: Sr. Þorsteinn Jóhann- esson fv. prófastur Glæsimennið og höfðinginn, séra Þorsteinn Jóhannesson, fv. prófast- ur í Vatnsfirði við ísafjarðardjúp, á í dag níræðisafmæli. Hann hélt Vatnsfjarðarstað frá 1928 til 1955 en gegndi jafnframt Nauteyrar- og Unaðsdalssóknum. Áður hafði hann gegnt prestsembætti í Staðar- prestakalli í Steingrímsfírði í 4 ár. Séra Þorsteinn var prófastur í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi frá 1939 til 1955. Á árinu 1942 gegndi hann einnig prestsstörfum í Isa- fj arðarprestakalli. Um Vatnsfjörð er mikil saga allt frá Söguöld. Þar bjuggu frægir höfðingjar, ekki allir jafnfriðsamir, en margir mikilhæfir menn og ágætir. Fyrsta prestsins er getið þar um 1118 til 1143. Síðan munu um eða yfir 30 prestar hafa setið Vatnsfjarðarstað. Skal hér aðeins getið séra Hjalta Þorsteinssonar, er bjó þar þar árin 1692 til 1742, hámenntaður og fjölhæfur lista- maður. Málaði hann myndir af mörgum samtíðarmönnum sínum, auk þess sem hann prýddi kirkju sína fagurlega. Er margt listaverka hans nú varðveitt í þjóðminjasafn- inu. Við Vatnsfjörð eru einnig kennd- ir þrír Vatnsfjarðarannálar, sem allir eru skráðir af prestum staðar- ins. En út í þá sálma verður ekki farið hér. — Þegar séra Þorsteinn Jóhann- esson kemur í Vatnsfjörð tekur hann við af séra Páli ólafssyni, sem setið hafði staðinn í tæp 30 ár með sæmd. Djúpmenn tóku séra Þorsteini og fjölskyldu hans frá upphafi mjög vel. Hann þótti ágætur kennimað- ur, allra manna fríðastur og ljúf- menni í allri framkomu. Gerðist hann ekki aðeins mikilhæfur prest- ur heldur ágætur bóndi, sem sat hið foma höfuðból af skörungsskap. Séra Þorsteinn er ættaður úr Norður-Þingeyjarsýslu af dugmikl- um og gáfuðum bændaættum. Frú Laufey Tryggvadóttir, kona hans, er hinsvegar ættuð frá Seyðisfirði eystra, mikilhæf ogglæsilega kona. Þegar þessi ungu prestshjón fluttu í Vatnsfjörð unnu þau sér þegar miklar vinsældir og virðingu héraðsbúa og allra er þeim kynnt- ust. Séra Þorsteinn tók mikmn þátt í félagsmálum Djúpmanna. í Reykj- arfjarðarhreppi gegndi hann mörg- um trúnaðarstörfum og Norður- ísfirðingar sýndu honum margvís- legan sóma. Hann var þar m.a. lengi f yfírkjörstjóm sýslunnar, ásamt þeim Jóni Fjalldal á Melgraseyri og Páli Pálssyni í Þúfum. Minnist ég ágætrar og ábyrgrar samvinnu þessara mætu manna, sem unnu störf sín af sérstakri réttlætiskennd og varfæmi, sem ekki er síst mikils- ven3 í því vandasama starfi. Öll framkoma séra Þorsteins mótaðist jafnan af einstæðri prúð- mennsku. Þessvegna treystu hon- um allir. Ágætar gáfur og réttsýni em höfuðeinkenni skapgerðar hans. Náin og ástúðleg samvinna prests- hjónanna í Vatnsfírði var öllum til fyrirmyndar. Þau hjón em mikið gæfufólk. Þau eignuðust 5 böm, þrjá syni og tvær dætur. Em þau: Tryggvi læknir í Reykjavík, Þuríður húsfreyja í Reykjavík, Jóhannes vélstjóri á ísafirði, Jónína húsfreyja í Reykjavík og Haukur tannlæknir í Reykjavík. 011 em þau glæsilegt og vel gert fólk. Fólkið við ísafjaðardjúp á allar minningar góðar og bjartar um séra Þorstein og frú Laufeyju og böm þeirra. Þeirra var saknað þegar þau kvöddu Djúpið. Séra Þorsteinn gerðist þá um skeið fulltrúi í Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík. Nú njóta þau hjón friðsælla efri ára við ástríki frænda og vina. Ég leyfi mér að flytja þeim og skylduliði þeirra hugheilar kveðjur og heillaóskir að vestan. Vináttu þeirra minnist ég með þakklæti og virðingu. Sigurður Bjamason frá Vigur. Í dag er vinur minn og tengda- faðir, Þorsteinn Jóhannesson, fyrr- um prófastur í Vatnsfirði, níutíu ára. Langar mig af því tilefni að senda honum dálitla afmæliskveðju. Ég kom fyrst í Vatnsfjörð, sem þá var heimili tilvonandi tengdafor- eldra minna, um miðjan júní 1946. Tilefni ferðarinnar var að kvæn- ast dóttur þeirra, Þuríði, og fór vígslan fram í Vatnsfjarðarkirkju 15. júní 1946. Fýrstu orðaskipti, sem ég man glögglega eftir þama fyrir vestan voru, þegar frú Þuríður Þorsteins- dóttir, móðir séra Þorsteins, spurði mig „hvort enginn af mínu fólki myndi verða við brúðkaupið". Ég sagði, að svo yrði ekki og tilgreindi gildar ástæður. Hún svaraði að bragði og sagði: „Það kemur ekk- ert að sök. Hér verða allir vinir þínir." Og stórmannlega og glæsilega hvíthærða konan sem mér þótti ákaflega vænt um frá þessari stundu, hafði sannarlega rétt að mæla. Allir tóku mér opnum örm- um, ekki síst elskuleg tengdamóðir, Laufey Tryggvadóttir, og Þorsteinn tengdafaðir. Eg minnist einnig hvað mér varð starsýnt á þau. Mér fannst eins og skaparinn hefði vandað hvem andlitsdrátt þeirra og ekkert hugsað annað á meðan. Sömu áhrifa og ég varð þama fyrir virðist m.a. gæta í öðru erindi brúðkaupskvæðis Gústafs A. Jónas- sonar, ráðuneytisstjóra, er hann orti til þeirra hjóna, en þar segir: „Misjafnt drottinn mönnum velur, misjafnt gæðin fram hann telur, æðsta hnoss hann einum selur, ystu myrkur hinum býr. Vegum sumra í viilu ’ann snýr. Einum fær hann ástarmeyna, aðra dæmir hann piparsveina, ég skil þig ekki, ó drottinn dýr.“ Það er þó ekki glæsimennskan ein, sem mest hrífur hug þeirra, sem kynni hafa af þessum hjónum, held- ur nærfærinn hlýhugur og háttvísi, sem birtist í öllum orðum þeirra og gerðum. Af alhug vaka þau yfir velferð fjölskyldu sinnar og vina oggleyma aldrei þegnum drengskap. A heim- ili þeirra er gott og gaman að vera. Hljómlist og söngur hafa ætíð skipað þar veglegan sess, oftast undir traustri forystu afmælis- bamsins, sem ávallt er hrókur alls fagnaðar. Böm þeirra, Tryggvi, Þuríður, Jóhannes, Jónína, Haukur og fóst- urdætumar Elín Jónsdóttir og Sig- urlína Helgadóttir em líka öll tón- elsk og vel gefið fólk. Ekki má gleyma að minnast og þakka frábærar og myndríkar ræð- ur, sem afmælisbamið hefir haldið á hátíðastundum fjölskyldunnar. Ekki heldur þeim fjömgu og skemmtilegu viðræðum, sem_ hann er meistari í að halda uppi. í gleði er hann hófsamur, í starfi farsæll, enda mildur og þroskaður víðsýnis- og gáfumaður. Að lokum vil ég, elskulegi tengdafaðir, þakka þér hveija stund, sem við höfum átt saman, og óska þér hjartanlega til ham- ingju með níræðisafmælið. Þín minnist égjafnan, er ég heyri góðs manns getið. Barði Friðriksson Níræður er í dag sr. Þorsteinn Jóhannesson, þjóðkunnur maður og mikilhæfur í prestastétt. Sr. Þorsteinn Jóhannesson er fæddur 24. mars 1898 í Ytri-Tungu á Ijömesi. Foreldrar hans Jóhannes Jóhannesson bóndi og sýsluskrifari, Ytri-Tungu síðar bóndi á Ytra-Lóni á Langanesi og kona hans Þuríður Þorsteinsdóttir prests á Þórodds- stað, Jónssonar, prests Þorsteins- sonar sem Reykjahlíðarætt er kom- in frá. Þorsteinn Jóhannesson hóf nám á Akureyri og útskrifaðist úr Gagn- ULTRA GLOSS \\ Ekkert venjulegt bílabón uÖrg£|heldur glerhörð lakkbrynja! Bíft\ VEIST iBÓHl þQ MUNINN? „Glerungur", ekki vax. ULTRA GLOSS er hvorki vax, harp- is né silikon. Það flokkast undir bóngljáa, sem ,á ensku kallast „paint sealant". í bókstaflegri þýö- ingu merkir orðið „lakk þéttiT', sem við höfum íslenskað I „lakk- brynju". Yf irborð lakksins er hrein- lega innsiglað gegn utanaðkom- andi veðrunaráhrifum og óþrifum. Þó tilgangurinn sé augljós, þá er þettameiraspurning um endingu. Til eru 3 tegundir af „paint seal- ants", þ.e. grunnefniö geturverið: plast, teflon eða gler. í ULTRA GLOSSerglergrunnur, sem trygg- ir bæði styrkleika og endingu. Sterkasta handbóniö á markaðnum. Grunnefniö i ULTRA GLOSS heitir „Siloxine", en þaö eru örþunnar glerflögur (micro-chips), sem að- eins verða greindar i smásjá. Með flókinni aöferö, sem byggist á blöndunarröð og breytilegu hita- stigi, er siloxini blandað saman öðrum efnum, sem tryggja sterka bindingu gljáans við allar gerðir lakks. Eftir að bill hefur verið bón- aöur með ULTRA GLOSS, verður efnahvarf, svipað þvl þegar tveggja þátta viögeröarefnum er blandað saman. Samruninn við lakkið tekur 12-36 tíma, allt eftir umhverfishita. Þannig . myndar ULTRA GLOSS nlðsterkan „gler- ung“ I yfirbor Ji lakksins, sem ver það fýrir salti, tjöru, útblásturs sóti og öðrum óhreinindum. Ending langt umfram heföbundnar bóntegundir. Erlendis ábyrgist framleiðandi, að ULTRA GLOSS veiti 18 mánaða veðrunarvörn. Hérlendis hafa ver- iðgerðarmargartilraunirvarðandi þetta atriöi. Niðurstöður sýna, aó I rigningu perlar vel á vélarhlff og þaki, 8 mánuöum eftir að bónað var. Einnig eráberandi hve auðvelt er að þrlfa bllinn, sem einnig er sönnun þess, að varnarlagiö er enn fyrir hendi. Þetta er I rauninni afar eðlilegt þegar haft er I huga hvernig vörn ULTRA GLOSS er. Ef yfirboró lakks er skoöað I smásjá, þá er áferð þess svipuö hraunhellu. Hugsumokkurað við hellumeftir- farandi efnum — I fljótandi formi, á 3 slíkar hellur: Vaxi, plasti og gleri. Við storknun fá yfirborðin á sig sléttaog fallegaáferö. En hvaö með endingu? Við hita bráðnar vaxið og gufar upp, rétt eins og öll vaxbón I sólskini. Vaxiö þvæst auk þess auóveldlega af með ollu- eyði. Plastið þolir hitann mun bet- ur, en þvæst af með ollueyði auk þess að plast sem sllkt er ekki slit- sterkt efni. Glerið (ULTRA GLOSS) þolir hitann fullkomlega, auk þess sem það endurkastar útfjolublá- um sólargeislum, en þeir eru meg- in orsök þess að lakk upplitast. Tjörueyðlr vinnur ekki á glerinu, enda er ULTRA GLOSS eini bón- gljáinn, fáanlegur á íslenskum bersínsölum, sem þolir þvott með tjörueyði. Þar með rætist draumur bónara, um að glans og glæsilegt útlit geti enst mánuð- um saman. Létt í notkun. í Islenskum leióbeiningum meö bóninu kemur fram hve létt er að bóna með ULTRA GLOSS. Bónið er einfaldlega borið á, látið þorna og slöan þurrkað af með hreinum klút. Hinsvegar eru tvö atriöi, sem hafa ber I huga þegar bónað er. í fyrsta lagi að hitastig sé ekki und- ir 5 gráöum. Bónið myndi hrein: lega ekki þorna við þann hita. í öðru lagi, að ekki hellirigni á bll- inn næstu 6-12 tlma. Tlminn mið- ast við hitastig milli 15-5 stig. Mik- ill vatnsagi þennan tlma hefur áhrif á endinguna. Hinsvegar skal bent á, að hægt er að bóna með ULTRA GLOSS, t.d. með stuttu millibili þegar aðstæður eru hag- stæðar, og byggja þannig upp sterka varnarskel, sem auk þess styrkir lakkið verulega gegn stein- kasti. Nýtt lag bætist ofan á gam- alt, ef bóninu er nuddað létt á bll- inn. í þessu sambandi skal aftur vakin athygli á, að bónlagið sem fyrirerþvæstekki af þótt bllinn sé þveginn áður með tjörueyöi. Þetta er ekki mögulegt með neinu ööru handbóni, og gagnast þeim vel, sem nýta sér þjónustu þvotta- stööva reglulega. Reynsla. Eftir 3ja ára reynslu af ULTRA GLOSS hérlendis er Ijóst, að þeir sem notaö hafa bónið, kaupa það aftur og aftur. Þeir sem til þekkja, vita að helsti ókostur vaxbóns er að tjara sest auðveldlega I vaxið. Og til að ná tjörunni af þarf slðan tjörueyði, sem jaf nf ramt þvær vax- ið af. (vetrarakstri eráberandi hve litii tjara sest IULTRA GLOSS, auk þess sem mjög auðvelt er að ná henni af. Miðað við endingu er ULTRA GLOSS með ódýrustu bilabónum á markaðnum. Otsölustaðir: £sso) stöövarnar. fræðideildinni 1917. Settist síðan í Menntaskólann í Reykjavík. Er hann því 68 ára stúdent í vordög- um, en af 24 þeirra er útskrifuðust 1920 eru á lífi tveir, Sveinbjöm Sigurjónsson fyrrv. skólastjóri og Þorsteinn. — Þorsteinn hóf nú nám í guðfræði er honum féll vel í geð og lauk prófi 1924. Þá bauðst honum Staður f Steingrímsfírði í Strandasýslu og vígðist hann þangað 1924. Sr. Þor- steinn hafði nú kvænst 23. júní 1923 Laufeyju Tryggvadóttur kaupmanns á Seyðisfirði. Þess má geta að Laufey og Nína Tryggva- dóttir listmálari vom hálfsystur. Laufey er myndarkona og listræn, fríð sínum og mikil húsmóðir, góð búkona var hún, því oft þarf mikils við á stóm heimili og búi. Sr. Þorsteinn sótti heim sr. Guð- laug Guðmundsson föður Jónasar skálds, sem áður hafði þjónað Stað í Steingrímsfirði en var nú blindur og rúmfastur. Guðlaugi hafði vegn- að vel á Stað. Hann fræddi nú sr. Þorstein um brauðið og prestsetrið og bað honum gæfu og velfamaðar í starfi hans. — Staður var þá með betri brauðum á Vestflörðum, jörðin góð er gaf tækifæri til stórbúskap- ar, grösugar lendur, æðarvarp og reki. Þess má geta að margt góðra presta hafa setið þetta brauð svo sem sr. Jón Ámason síðar biskup í Skálholti sem þótti mikilhæfur í starfí og sr. Magnús Hákonarson er þótti mikill atgervismaður og málsnjall. Ári síðar en þau komu í presta- kallið fluttu þau að Stað en þá var reist myndar prestsetur í steini á staðnum. En í millitíð vom þau á Hólmavík. Sr. Þorsteinn kom fljót- lega upp góðu búi, kunni vel við sig á Ströndinni, landgæðin og fólk- ið. 1928 losnaði eitt besta brauð landsins sem var í tölu þeirra er konungsveiting var á, en þau vom fimm að tölu. Það var Vatnsfjörð- ur, ríkur staður og höfðingjasetur um aldaraðir. Þar vom landgæði mikil til lands og sjávar svo gott var þar undir bú og veðursæld inni í Djúpinu. — í Vatnsfirði hefur margt sögulegt gerst á liðnum öld- um og oft setið þar höfðingjar á veraldarvísu og vildisklerkar, skáld og listamenn. — Frá síðustu öld verður manni minnisstæður sr. Þór- arinn Böðvarsson er var þar prest- ur, stórbóndi til lands og sjávar og heppinn læknir. Hann varð síðar prestur og útvegsbóndi í Görðum á Álftanesi. í Vatnsfirði lifði hann sitt blómaskeið og mælti oft er hann hugsaði vestur: „Þegar ég var kóngur í Vatnsfirði." Sr. Þorsteinn hlaut kosningu í Vatnsfirði og flutti með sér bú- smala sinn á hið auðsæla prestset- ur. Búskapurinn rann fljótt upp hjá honum í Vatnsfirði. Búnaðist hon- um ágætlega svo hann hafði eitt stærsta ijárbú á Vestfjörðum. Þá var þar fískisælt oft, og gagnsöm hin stora varpey Borgarey, gróður- sæl með miklu æðarvarpi og lunda- tekju. Sr. Þorsteinn var góður sláttumaður, kona hans mikil bú- kona og stjómsöm. Allt þetta var til góðs á veraldarvísu til auðsæld- ar. En prestskapnum gleymdi sr. Þorsteinn eigi, né hempunni. Hann var reglusamur embættismaður, mikilhæfur prestur, ræðumaður góður og söngmaður. Hann spilaði á orgel og kenndi sumu fólki. Sr. Þorsteinn er fyrirmannlegur og fríður sínum, snyrtimenni og hinn prestlegasti. Hann var prestur á stéttunum og tók þátt í hinu dag- lega lífi sinna sóknarbama. Gest- risni var mikil á heimili þeirra hjóna. Gestum og gangandi var vel tekið. Þá voru oft mikil ferðalög hjá sr. Þorsteini, sérstaklega er hann þjón- aði nærliggjandi prestaköllum og fór hann þá oft sjóveg, en hann átti jafnan góðan skipakost. Sr. Þorsteinn varð prófastur í Norður-ísafjarðarsýslu frá 1939— 1955. Prófastsdæmið var víðlent og oft erfitt yfírferðar. Sr. Þor- steinn var formaður prestafélags Vestfjarða 1939—1944 er stóð um skeið með miklum blóma. Það gaf út tímaritið Lindina. Þeim hjónum sr. Þorsteini og Laufeyju vegnaði vel í Vatnsfirði enda er þar fagurt og gróðursælt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.