Morgunblaðið - 24.03.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
Franski togarinn Finlande in við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Morgunbiaðið/BAE
Franskur togari í höfn
FRANSKI togarinn Finlande III,
sem liggur nú við Ægisgarð í
Reylcjavikurhöfn, er að öllum
líkindum fyrsti franski togarinn,
sem kemur til hafnar hér á landi,
frá þvf að sami togari kom hingað
5. október 1985, að sögn Geirs
G. Jónssonar umboðsmanns út-
gerðarfélags togarans í Borde-
aux. Finlande III hóf nýlega
rækjuveiðar við Grænland en kom
hingað nú vegna bilunar i tog-
vindu og fer sennilega aftur á
veiðar á morgun, föstudag, að
sögn Geirs.
„Finlande III kom hingað 5. októ-
ber 1985 vegna bilunar í tækjum,"
sagði Geir. „Undanfarin ár hafa 3
franskir togarar stundað rækjuveiðar
við Grænland á vorin og haustin því
auk Finlande III hafa tveir togarar
frá Saint Malo á Bretagne-skaga
stundað þessar veiðar en eru hins
vegar ekki byijaðir á þeim nú. Græn-
lenskir, danskir og norskir togarar
hafa einnig veitt rækju við Græn-
land. Það eru 50 til 60 manns í áhöfn
Finlande III sem hefur verið 2 til 3
mánuði á þessum veiðum í senn.
Stórum frönskum og þýskum togur-
um virðist hafa fækkað og það er
t.d. búið að selja Finlande III til
Afríku," sagði Geir.
SVS-fundur:
Norski vamarmálaráð-
herrann flytur erindi
SAMTÖK um vestræna samvinnu
(SVS) hafa boðið varnarmálaráð-
herra Noregs, Johan Jorgen
Holst, hingað til lands.
Ásamt Varðbergi efna ^SVS til
fundar með ráðherranum í Átthaga-
sal í Hótel Sögu laugardaginn 26.
mars. Salurinn verður opnaður
klukkan tólf á hádegi.
Johan Jargen Holst hefur fram-
sögu á ensku um ísland, Noreg og
vamir á norðursvæði NÁTO. Hann
tekur síðan þátt í umræðum og svar-
ar fyrirspumum.
Fundurinn er opinn félagsmönnum
í SVS og Varðbergi og öllum gestum
félagsmanna.
(Fréttatilkynning)
Snorri seldi í
SNORRI Sturluson RE seldi á
þriðjudag afla sinn í Bremer-
haven. Verð var þokkalegt.
Snorri seldi alls 276 tonn fyrir
15,9 milljónir króna. Meðalverð var
57,61 króna. Aflinn var að mestu
Johan Jorgen Holst
Bremerhaven
karfí og ufsi og fékkst svipað verð
fyrir báðar tegundir.
Daginn eftir seldi Ögri RE 281
tonn, mest karfa á sama stað.
Heildarverð var 15 milljónir króna,
meðalverð 53,50.
IMÝJA ORION VIDEOTÖKUVÉLIINI ER KOMIIM
<
'cn
_i
■s
t
TILBOÐSVERÐ Á AÐEINS
Orion videotökuvélin hefur þrefalt súm
meö sjálfvirkri litastillingu og hún stillir
sjálfkrafa fjarlægð og skerpu (auto
focus) mjög nákvæmlega. Þú færð eins
skýra og góða mynd og hugsast getur
með mjög góðum hljómgæðum og ekk-
ert smáatriði fer forgöröum.
Ljósnæmni Orion videotökuvélarinnar er
einstakt, allt niður í 12 lúx og pú getur tek-
ið mynd við kertaljós án þess að skerpan
minnki.
49.900 KR.
Tilboðsverð Nesco á hinni stórskemmtilegu
Orion videotökuvél er eitt það lægsta
sem þekkist í Evrópu. Orion videotöku-
vélin er mjög einföld í notkun en hefur alla
þá eiginleika sem þarf til að taka góðar og
skýrar myndir sem varðveita atburði og
endurminningar á lifandi hátt.
Nútíma hönnun Orion videotökuvélarinnar
gerir hana að handhægum félaga sem þú
getur haft meðferðis hvert sem er og hún
vegur ekki nema 960 grömm.
Orion videotöku-
vélinnl fylgir upp-
tökuspóla, VHS
sýningarspóla,
axlaról, endur-
hlaðanleg rafhlaða,
spennubreytir og
hleðslutæki.
íslenskar leiðbeiningar
fylgja.
nesco
LRUGRI/EGUR HF
Laugavegi 10, sími 27788
Kringlunni, sími 687720