Morgunblaðið - 24.03.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
41
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, gerir grein
fyrir atkvæði sinu um bjórmálið á Alþingi i gær.
Bjórfrumvarpið:
21 með - 17 á móti
Eftir eru þrjár umræður og þrennar
atkvæðagreiðslur í efri deild
Bjórfrumvarpið var samþykkt eftir aðra umræðu i neðri deild,
að viðhöfðu nafnakalli, með 21 atkvæði gegn 17, en 4 þingmenn
vóru fjarverandi.
Níels Árni Lund (F/Rn), sem mun vera andvígur bjórnum, vék
úr atkvæðagreiðslu vegna fjarveru Sighvatar Björgvinssonar (A/Vf),
sem mun vera með bjórnum. Anna Ólafsdóttir Björnsson (Kvl/Rvk),
sem sögð er fylgjandi bjórnum, vék úr atkvæðagreiðslu vegna fjar-
veru Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur (B/Rvk), sem mun andvíg frum-
varpinu.
Efri deild eftir
Frumvarp allsheijamefndar
neðri deildar til breytinga á áfengis-
lögum, sem heimilar framleiðslu,
innflutning og sölu áfengs öls (í
útsölum ATVR og veitingahúsum
með vínveitingaleyfi) var samþykkt
eftir aðra umræðu í þingdeildinni í
gær. Fjölmenni fylgdist með, enda
úrslit atkvæðagreiðslunnar tvísýn
fyrirfram að flestra dómi.
Frumvarpið gengur nú til þriðju
umræðu. Fari atkvæðagreiðsla að
henni lokinni á sama hátt gengur
frumvarpið til efri deildar. Þar á
frumvarpið eftir þijár umræður og
þijár atkvæðagreiðslur áður en
lyktir málsins liggja fyrir.
Nafnakallið
(F/Af), Birgir ísl. Gunnarsson
(S/Rvk), Eggert Haukdal (S/Sl),
Friðrik Sophusson (S/Rvk), Geir
Haarde (S/Rvk), Guðmundur
Bjamason (F/Ne), Guðmundur G.
Þórarinsson (F/Rvk), Guðni
Ágústsson (F/Sl), Guðrún Helga-
dóttir (Abl/Rvk), Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl/Af), Ingi Björn Al-
bertsson (B/Rvk), Jóhanna Sigurð-
ardóttir (A/Rvk), Jón Baldvin
Hannibalsson (A/Rvk), Jón Sæ-
mundur Siguijónsson (A/Nv),
Kjartan Jóhannsson (A/Rn), Matt-
hías Bjamason (S/Vf), Ellert
Eiríksson (S/Rn), Ólafur G. Einars-
son (S/Rn), Pálmi Jónsson (S/Nv),
Ragnar Ámalds (Abl/Nv), Þor-
steinn Pálsson (S/Sl).
Nei sögðu: Albert Guðmundsson
(B/Rvk;, Alexander Stefánsson
(F/Vl), Ámi Gunnarsson (A/Ne),
Friðjón Þórðarson (S/Vl), Geir
Gunnarsson (Abl/Rn), Hreggviður
Jónsson (B/Rn), Jón Sigurðsson
(A/Rvk), Guðrún Halldórsdóttir
(Kvl/Rvk), Málmfríður Sigurðar-
dóttir (Kvl/Ne), Ólafur Þ. Þórðar-
son (F/Vf), Ragnhildur Helgadóttir
(S/Rvk), Stefán Valgeirsson
(SJF/Ne), Steingrímur J. Sigfússon
(Abl/Ne), Sverrir Hermannsson
(S/Af) og Þórhildur Þorleifsdóttir
(Kvl/Rvk).
Atkvæðagreiðsla i
fór sem hér segir:
Já sögðu: Jón
þingdeildinni
Kristjánsson
Tvö frumvörp menntamálaráðherra:
Veigamiklar breyt-
ingar á starfssviði
Kennaraháskólans
Afstaða tveggja heilbrigðisráðherra til bjórs:
Guðmundur með bjórn-
um - Ragnhildur á móti
Ýmsír þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu við atkvæða-
greiðslu um bjórfrumvarpið, eftir aðra umræðu, í neðri deild Al-
þingis í gær. Hér fara á eftir sýnishorn af þessum greinargerðum
tveggja þingmanna er studdu frumvarpið og tveggja er mæltu gegn
því.
Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra
Það er hlutverk heilbrigðisyfir-
valda að halda uppi öflugu fræðslu-
og forvamarstarfi um hvers konar
heilsusamlegt líferni sem dregið
getur úr sjúkdómum og slysum. Það
eiga yfirvöld m.a. að gera með því
að efla ábyrgð einstaklingsins á
eigin heilsu með markvjssu upplýs-
inga- og fræðslustarfi. Ég tel mark-
visst forvamarstarf ekki felast í því
að banna einstakar neyzluvörur,
sem þó kunna að vera minna skað-
legar en aðrar sem neyzla er leyfð
á. í slíkri afstöðu fínnst mér felast
tvískinnungur.
Ég mun leggja þunga áherzlu á
aukið fræðslu- og upplýsingastarf
um skaðleg áhrif áfengis og tóbaks
á heilsufar fólks og mun í því sam-
bandi styðjast við markmið Alþjóða-
heilbrigðisráðsins og íslenzkrar
heilbrigðisáætlunar. Eg tel frum-
varp það sem hér um ræðir ekki
bijóta í bága við þá stefnu og segi
já.
Ragnhildur Helgadóttir,
fyrrverandi heil-
brigðisráðherra
Ragnhildur tfundaði fímm ástæð-
ur fyrir því hún væri andvíg bjór-
frumvarpinu. í fyrsta lagi hefðu
vísindalegar rannsóknir margra
landa leitt í ljós að ný gerð áfeng-
is, til viðbótar öðrum sem fyrir
væru, auki heildameyzlu áfengis.
Aukinni heildameyzlu fylgir aukið
heilsutjón og annar vandi af völdum
ofneyzlu. í annan stað hefðu aðeins
tvær af fimmtán bókuðum umsögn-
um til allsheijamefndar mælt með
frumvarpinu. í þriðja lagi byggðist
andstaða hennar á aðvömnum frá
138 læknum, þar á meðal áfengis-
meðferðariæknum og heilsugæzlu-
Iæknum, sem bárust Alþingi í gær,
og vömðu við samþykkt fmmvarps-
ins. í fímmta lagi byggðist andstaða
hennar á markmiðum íslenzkrar
heilbrigðisáætlunar, sem m.a. legði
línur um að draga úr áfengisvanda
með því að minnka heildameyzlu
áfengis. Af þessum sökum segi ég
nei, sagði þingmaðurinn.
Guðrún Helgadóttir,
alþingismaður
Sú er óbifanleg skoðun mín að
gott og heilbrigt þjóðfélag eigi að
byggjast á því að sérhver heilbrigð-
ur einstaklingur beri ábyrgð á eigin
lífi; að hann verði að axla þá ábyrgð
að velja og hafna. Þann bikar
hvorki vil ég né tel rétt að taka frá
öðm fólki. Enn síður get ég tekið
Fmmvarp iðnaðarráðherra var
samþykkt, að lokinni annarri um-
ræðu í síðari þingdeild, með 26 at-
kvæðum gegn 12, að viðhöfðu
þátt í því að einungis forréttinda-
hópar eigi aðgang að lífsgæðum,
sem allur þorri manna á engan
aðgang að. Vinni háttvirtir alþingis-
menn að því að byggja hollt og
heilbrigt samfélag af alvöm og ein-
lægni, svo að þetta land verði góður
vemstaður, treysti ég landsmönn-
um til að fara með áfengt öl af
meira viti en þeir fara með sterkara
áfengi nú. Það væri verðugra verk-
efni alþingismönnum að vinna að
þessu samfélagi en að taka af lands-
mönnum ábyrgð á eigin lífi með
boðum og bönnum. Ég segi já.
Óli Þ. Guðbjartsson,
alþingismaður
„Þetta lagafmmvarp mun að
minni hyggju auka á óreglu og
vanda, einkum ungs fólks. Auka
kostnað við heilsugæzlu og heil-
brigðisþjónustu, og trúlega fjölga
umferðarslysum. Samþykkt þess
stuðlar því ekki að auknu frelsi eða
almannaheill heldur hin gagnstæða
— því segi ég nei.
nafnakalli, einn þingmaður sat hjá,
þrír vóm íjarverandi.
Gegn frumvarpinu greiddu at-
kvæði viðstaddir þingmenn Al-
Birgir Ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, lagði fram
tvö stj órnarfrumvörp á Alþingi
í gær: 1) Frumvarp um Kennara-
háskóla íslands. 2) Frumvarp um
rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála.
Kennaraháskólinn
Fmmvarpið um Kennaraháskól-
ann felur í sér nokkrai- veigamiklar
breytingar á starfssviði Kennarahá-
skólans og stjóm hans. Þessar em
helztar:
* 1) Skýrar er tilgreint hlutverk
skólans sem miðstöðvar kennara-
menntunar í landinu. Frumvarpið
kveður á um að setja skuli f reglu-
gerð ákvæði um samstarf Kennara-
háskólans við Háskóla íslands og
aðrar stofnanir á sviði kennara- og
uppeldismenntunar.
* 2) Kennaraháskólinn öðlast
heimild til að annast framhalds-
menntun, einkum á sviði uppeldis-
og kennslufræði, til æðri prófgráðu
en B.Ed. eða BÁ-gráðu.
* 3) Aukin áherzla er lögð á end-
urmenntun kennara.
* 4) Almennt kennaranám er
lengt úr þremur ámm í fjögur, tek-
ið er upp námseiningakerfi og kveð-
ið er á um meginþætti kennaranáms
á gmndvelli þess.
* 5) Kennaraháskólanum er form-
lega heimilað að annast uppeldis-
og kennslufræðimenntun fyrir
framhaldsskólakennara.
* 6) Stjómkerfi stofnunarinnar
er endurskoðað með tilliti til nýrra
starfssviða. Skýrari ákvæði em um
þýðubandalags og Samtaka um
kvennalista, að viðbættum Páli Pét-
urssyni (F/Nv) og Ólafí Þ. Þórðar-
syni (F/Vf).
Með frumvarpinu greiddu at-
kvæði viðstaddir þingmenn stjóm-
arflokkanna þriggja, utan þeir tveir
framsóknarþingmenn sem fyrr em
nefndir. Viðstaddir þingmenn Borg-
araflokks greiddu því einnig at-
kvæði, utan einn, Ingi Bjöm Al-
bertsson, sem sat hjá.
framkvæmdastjóm einstakra
starfsþátta.
* 7) Hlutverk Kennaraháskólans
sem vísindalegrar rannsóknarstofn-
unar er skýrt.
Vísindaleg
rannsóknarstofnun
„Rannsóknarstofnun uppeldis-
og menntamála skal vera sjálfstæð
vísindaleg stofnun og starfsvett-
vangur.aðila er sinna rannsóknum
á því sviði." Þannig hljóðar fyrsta
grein frumvarps sem menntamála-
ráðherra lagði fram á Alþingi í gær.
Hlutverk stofnunarinnar er fy'ór-
þætt: 1) að vinna að rannsóknum
á sviði uppeldis- og menntamála,
2) að veita faglega ráðgjöf um rann-
sóknir og þróunarverkefni á sviði
uppeldis- og menntamála, 3) að
veita kennumm, kennaraefnum og
háskólastúdentum í framhaldsnámi
á sviði uppeldis- og menntamála
þjálfun og ráðgjöf í fræðilegum
vinnubrögum, 4) að kynna íslenzkar
og erlendar rannsóknir.
Fóstureyðingar:
Þrengri
ákvæði
Guðmundur Ágústsson
(B/Rvk) mælti í efri deild í
gær fyrir frumvarpi, sem
hann flytur ásamt Kolbrúnu
Jónsdóttur (B/Rn) um þreng-
ingu núgildandi heimUda til
fóstureyðingar.
Samkvæmt fmmvarpinu má
aðeins fara fram á fóstureyð-
ingu þegar eftirfarandi ástæður
em fyrir hendi: 1) Þegar lífi
konu stafar hætta af áfram-
haldandi meðgöngu. 2) Þegar
sterkar líkur standa til þess að
bam, sem kona gengur með,
eigi á hættu að fæðast vanskap-
að eða haldið alvarlegum sjúk-
dómi. 3) Þegar ætla má að þung-
un og tilkoma bams verði stúlku
allt að 16 ára aldri of erfið vegna
óviðráðanlegra félagslegra
ástæðna.
4) Ef konu hefur verið nauðgað
eða hún orðið þunguð sem af-
leiðing af öðm refsiverðu at-
hæfi.
Fmmvarpið byggir á því að
„líf, sem kviknað hefur í móð-
urlífi, er friðheilagt".
Frumvarp að breyttum iðnaðarlögum:
Mótatkvæði tveggja
framsóknarmanna
Tveir framsóknarþingmenn, Ólafur Þ. Þórðarson og Páll Péturs-
son, greiddu atkvæði gegn frumvarpi iðnaðarráðherra um breytingu
á iðnaðarlögum. Frumvarpið heimilar ráðherra, ef samþykkt verður
sem lög, að veita undanþágu frá ákvæðum gildandi iðnaðarlaga,
þess efnis, að helmingur hlutafjár í iðnfyrirtækjum hér á landi skuli
vera eign manna búsettra hér á landi. Talsmenn frumvarpsins telja
eðlilegt að opna leið til þess að erlent áhættufé leysi — í ákveðnum
tilfellum — erlendar lántökur af hólmi.