Morgunblaðið - 30.03.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 30.03.1988, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 Morgunblaðið/Sverrir Frá fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vilhjálmur Þ. Vilhjábnsson í ræðustól en við hlið hans silja Magnús Guðjónsson framk væmdastj óri og Sigurgeir Sigurðsson formaður sambandsins. Krafíst hækkunar á fram- lagi til Jöfnunarsjóðs FULLTRÚARÁÐ Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum i Reykjavík nýlega ályktun þar sem þess er krafist að framlag til Jöfnunarsjóða sveit- arfélaga verði hækkað um 60-80 milljónir á þessu ári, vegna erfiðr- ar stöðu margra sveitarfélaga. Fé þetta verði notað til að greiða aukaframlag til þeirra sem hafa tekj- ur undir meðaltali sambærilegra sveitarfélaga. Fyrrgreindar fjár- hæðir geti bætt allt að 80% af vanda þeirra sveitarstjóma sem nú séu verst á vegi staddar og hafi fullnýtt tekjustofna sína. Hljóti þessi tillaga ekki náð fyrir augum stjómvalda telur fulltrúaráðið nauðsynlegt að endurskoða öll sam- skipti ríkis og sveitarfélag og vill að í því skyni verði boðað til aukafund- ar ráðsins fyrir lok næstkomandi maímánaðar. PÁSKASPIL í fótspor Phileas Fogg, umhverfis jörðina á 80 dögum. BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJDF VÖLUSKRÍN KLAPPARSTÍG 26 ULTRA GLOSS Ekkert venjulegt bílabón heldur glerhörð lakkbrynja! VEIST ÞÚ MUNINN? . ULTRA GLOSS er eini bón- gljáinn, fáanlegur á islenskum bensinsölum, sem þolir þvott með tjörueyði. Þar með rætist draumur bónara, um að glans og glæsilegt útlit geti enst mánuð- um saman. Utsölustaðlr Cssoj stöðvarnar. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÓLA BJÖRN KÁRASON HÆTTULEGUR EN NAUÐSYNLEGUR Jesse Jackson skapar mikil vandamál fyrir demókrata HANN getur verið hættulegur en er þó nauðsynlegur fyr- ir Demókrataflokkinn í forsetakosningunum á komandi hausti. Maðurinn sem hrósaði Kastró, einræðisherra Kúbu, er stuðningsmaður PLO og vilhallur undir stjórn sandin- ista í Nicaragua, hefur meiri persónuleika en aðrir frambjóðend- ur demókrata. Frammistaða hans í forkosningunum gerir það að verkum að það kann að verða erfitt að ganga fram hjá honum á landsfundi flokksins í júlí næstkomandi. leika að bera en aðrir frambjóð- endur. Þegar Jesse Jackson talar leggja áheyrendur við hlustir og hann á auðveldara með að hrífa þá með sér en flestir aðrir ræðu- menn. Jesse Jackson er litríkur stjómmálamaður — litríkari en keppinautar hans. Og hann hefur Reutcr Jesse Jackson var brosandi á sunnudaginn, þegar hann var á kosn- ingaferðalagi í Connecticut. Eftir sannfærandi sigur í Mich- igan á Jesse Jackson góða mögu- leika á því að koma til lands- fundarins með fleiri fulltrúa en aðrir frambjóðendur. í viðtali í morgunþætti ABC-sjónvarps- stöðvarinnar á mánudag sagði Jackson að færi svo gætu demó- kratar ekki gengið fram hjá sér — hann yrði forsetaefni þeirra. Jackson hlaut 55% atkvæða í Mic- higan, en Michael Dukakis, fylkis- stjóri í Massachusetts, 28% og Richard Gephardt 13%. Dukakis hefur tryggt sér 604 landsfundar- fulltrúa, Jackson 598, Albert Gore 363 og Gephardt 167, en á mánu- dag lýsti Gephardt yfir því, að hann væri hættur í kosninga- slagnum. Þrátt fyrir að Jackson hafí ekki flesta fulltrúa hefur hann hlotið fleiri atkvæði samtals í þeim kosningum sem farið hafa fram en nokkur annar frambjóð- andi. Enginn fær tilskilinn meirihluta Það er nær útilokað að nokkr- um frambjóðanda takist að ná til- skildum meirihluta fyrir lands- fundinn og spumingin er fremur hvort og þá hvetjum tekst að tryggja sér um eða yfir 40% full- trúanna. Dukakis gerir sér vonir um að ná 40%-markinu og hljóta útnefningu flokksins með stuðn- ingi óháðra og 642 sjálfkjörinna landsfundarfulltrúa. Eftir að hafa beðið 2:l-ósigur fyrir Jackson í Michigan hefur róðurinn fyrir fylkisstjórann þyngst verulega. Og líkumar á því að einhver sem ekki er í framboði verði valinn frambjóðandi demókrata hafa aukist. Forustumenn Demókrata- flokksins neita því að svo kunni að fara og segja að forsetaefni flokksins verði einhver þeirra sem nú sækjast eftir útnefningu. Mario Cuomo, fylkisstjóri í New York og einn vinsælasti forustu- maður demókrata, hefur verið nefndur sem einn þeirra sem hugsanlega gæti leitt flokkinn í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi. Hann tekur hins vegar í sama streng og aðrir forr- áðamenn flokksins. Ef Jesse Jack- son mætir á landsfundinn með fleiri fulltrúa en aðrir kann við- horf forustumanna demókrata hins vegar að breytast. Margir demókratar geta ekki hugsað sér að Jackson verði varaforsetaefni flokksins, hvað þá forsetaefni. Þeir telja með réttu eða röngu að þar með væri verið að færa repú- blikönum forsetaembættið á silf- urfati. Ekki sami maður Það hefur margt breyst frá því að Jesse Jackson keppti við Walt- er Mondale og Gary Hart um útn- efningu demókrata árið 1984. Vegna róttækni höfðaði Jackson aðeins til iítils hluta kjósenda og alls ekki allra blökkumanna. Hann hefur reyndar alltaf verið um- deildur og margir frammámenn meðal blökkumanna geta ekki fyrirgefið honum framgöngu hans eftir að Martin Luther King var myrtur. Jaekson hefur alltaf hald- ið því fram að hann hafi staðið við hlið Kings og á eftir kom hann fram í skyrtu sem ötuð var blóði, — sem Jackson hélt fram að væri blóð Kings. Margir forustumenn blökkumanna segja Jackson ljúga og að hann hafi ekki staðið við hlið Kings þegar hann var myrtur. Þrátt fyrir andstöðu þessara manna hefur Jackson tekist það, sem honum reyndist um megn fyrir fjórum árum, að ná fylgi blökkumanna. Og það sem meira er, honum hefur tekist að höfða til annarra minnihlutahópa og einnig hvítra. Geraldine Ferraro, varaforsetaefni demókrata 1984, hefur sagt að skýringar á vel- gengni Jacksons séu þær sömu og leiddu til þess að hún var val- in frambjóðandi fyrir fjórum árum. Hún sé kona og Jackson blökkumaður. Ástæður þess að Jackson hefur auðnast að ná eyrum manna eru margar en kannski fyrst og fremst þær að hann hefur breytt um áherslur og hefur meiri persónu- meiri og sterkari boðskap. Annað sem skiptir máli er að á sama tíma og Dukakis, Gore, Gephart og Simon hafa verið önnum kafnir við að hnýta hver í annan hefur Jackson haft frítt spil og getað komið boðskap sínum gagnrýnis- laust til skila. Aðrir frambjóðend- ur höfðu hreinlega ekki búist við að Jackson yrði eins sigursæll og raun ber vitni og forðast að gagn- rýna hann í von um að hljóta stuðning hans á landsfundinum. Ótti demókrata Demókratar óttast neikvæð áhrif þess ef Jackson verður í framboði fyrir flokkinn í nóvemb- er, annað hvort til forseta- eða varaforsetaembættisins. Þeir telja að margir hvítir menn muni hverfa frá demókrötum og kjósa repúblikana. Kannanir benda til að stór hluti hvítra kjósi hvíta og stór hluti blökkumanna styðji blökkumenn, ef þeir eru í fram- boði. í forkosningunum í Suð- urríkjunum studdu 96% blökku- manna Jackson. Árið 1984 kusu yfír 60% hvítra Ronald Reagan en 90% blökku- manna studdu Walter Mondale. í nokkrum Suðurríkjum greiddu yfir 90% hvítra Reagan atkvæði. Samkvæmt nýlegum skoðana- könnunum nýtur Reagan yfír 50% fylgis bandarísku þjóðarinnar og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.