Morgunblaðið - 30.03.1988, Síða 28

Morgunblaðið - 30.03.1988, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 Sovésk yfirvöld hafa áhyggjur af verkf öllum í Nagorno-Karabakh Moskvu, Reuter. YFIRVÖLD í sovétlýðveldinu Grúsíu hafa bannað fyrirvara- laus mótmæli og kröfugöngur. Þetta eru svipaðar ráðstafanir og gripið hefur verið til í Arm- eníu og Azerbajdzhan þar sem fjölmenn mótmæli hafa átt sér stað að undanförnu gegn vilja yfirvalda í Moskvu. í málgagni kommúnistaflokks Grúsíu dagsettu þann 27. mars, segir að þeir sem brjóti nýju regl- umar megi eiga von á allt að þriggja ára fangelsi eða sekt upp á 300 rúblur, 20.000 íslenskar krónur. Samkvæmt reglunum sem þing Grúsíu setti í síðustu viku má reka starfsmann sem er fjar- verandi lengur en þijá tíma vegna þátttöku í ólöglegum mótmælum. Að sögn háttsettra embættis- manna í lýðveldinu er nýju reglun- um ætlað að „fyrirbyggja and- félagslegt athæfí“. Þeir sem vilja safnast saman til mótmæla verða að sækja um leyfí með 7 daga fyrirvara. Rannsóknamefnd á vegum sov- éskra yfirvalda upplýsti í gær að 26 Armenar og 6 Azerbajdzhanar hefðu látið lífíð í átökum í bænum Sumgajt í Azerbajdzhan í síðasta mánuði. Nefndin segir ennfremur að manntjón hefði getað orðið meira ef margir Azerbajdzhanar hefðu ekki veitt Armenum skjól. Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéskra yfírvalda, sagði í gær að verkföll stæðu enn í Stepana- kert, höfuðborg Nagorno-Kara- bakhs. Fjölmiðlar í Sovétríkjunum hafa gefíð í skyn að verkföll í héraðinu séu farin að hafa áhrif á atvinnulíf annars staðar í Sov- étríkjunum. Það hafí lamandi áhrif á ýmiss konar framleiðslu þegar vörur og hráefni berist ekki frá héraðinu. Dýr eðalsteinn Reuter Starfsmaður De Beers demantafyrirtækisins í Suður-Afríku dáist að einum verðmætasta demanti sem fundist hefur. Hann er 599 karöt og metinn á meira en milljarð íslenskra króna. Mánuður síðan borgastríð Irana og Iraka hófst: Getum brátt skotið 20 eld- flaugiim á dag- á Bagdad Fyrirvaralaus mót- mæli bönnuð í Grúsíu Noregur: Tékknesk andófskona kvartarund- an lögreglu Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. TÉKKNESKA andófskonan Maria Valachova segir, að hún hafi orðið fyrir áreitni af hálfu norsku lögreglunnar, þegar hún kom til Fornebu-flugvallar nýlega. „Meðferðin, sem ég sætti, var ekki svo ólík þeim viðtökum, sem ég hef fengið hjá tékknesku lög- reglunni vegna þess að ég er and- ófskona," segir hún. Maria er gift Jiri Hajek, sem var utanríkisráð- herra í Dubcek-stjóminni í Tékkó- slóvakíu á árunum 1967-68. Hún hefur staðið í fylkingarbijósti í mannréttindahreyfíngunni Charta 77 í heimalandi sínu. Það var fyr- ir tilstyrk norska utanríkisráðu- neytisins að Valachova fékk leyfi til að ,fara til Noregs til þess að heimsækja son sinn, Jan Hajek, sem þar er við nám. Uppistandið á flugvellinum hefur vakið mikla athygli í Nor- egi. Norska útlendingaeftirlitið hefur fengið orð fyrir að vera fremur harðhnjóskulegt við út- lendinga, sem koma til landsins. Maria Valachova segir, að lög- reglan hafí stöðvað hana og grun- að hana um að hafa í hyggju að sækja um hæli í Noregi. Þá segist hún hafa verið sökuð um að vera með fölsuð skilríki, auk þess sem lögreglumenn hafi ekki trúað sér, þegar hún sagðist vera komin til að heimsækja son sinn. Yfírmaður útlendingaeftirlits- ins á Fomebu, Amstein 0verkil lögreglustjóri, sagði á sunnudag- inn, að hann mundi ekki biðjast afsökunar á þessum atburði, fyrr en nánari rannsókn hefði farið fram. Að sögn lögreglunnar neit- aði Valachova m.a. að sýna lög- reglunni farseðil sinn vegna heim- ferðar, sem eftirlitsmenn eiga heimtingu á að fá að sjá, áður en þeir hleypa útlendingum inn í landið. - segir Ali Akbas Rafsanjani Nikósíu, Reuter. ÍRAKAR segja að orrustuþotur sinar hafi í gær gert árásir á írönsk olíumannvirki á Lavan- eyju á Persaflóa. Einnig réðust írakar á fjórar iranskar borgir. Ekki er vitað um mannfall í árás- unum. Mánuður er nú liðinn siðan striðsaðiljar byijuðu að skjóta eldflaugum hvor á annars borgir. íranir sögðu í gær að bráðlega myndu þeir framleiða nóg af eld- flaugum til að skjóta tuttugu stykkjum á dag á Bagdad, höfuð- borg íraks. íranska fréttastofan IRNA vitnaði í þau orð Alis Akbas Rafsanjanis, talsmanns íranska þingsins að elflaugamar sem um væri að ræða drægju allt að 130 km og gætu hæft flest mikilvæg skotmörk í Irak. Skæruliðar í Iran sem beijast gegn kle'rkastjóm Ayatollahs Khomeinis segja að þeir hafi um Þijár blöðrur í stað tveggja Bandaríkjamennimir tveir, Rowland Smith og John Petrehn, sem ætla sér að verða þeir fyrstu að fljúga í loftbelg kringum jörðina, tilkynntu í gær að þeir ætli sér að notast við þijár blöðrur í stað tveggja í ioftferðinni. Yst verður helíumblaðra, þar undir aukablaðra sem kemur ekki að notum fyrr en í háloftunum er helíumið þenst út, og neðst er blaðra með heitu lofti. Upphaflega ætluðu Bandaríkja- mennimir að leggja af stað á laugardag en þurftu að fresta förinni vegna veðurs. Þeir stefna nú að því að leggja af stað í dag. Ferðin hefst í bænum Mendoza í vestanverðri Argentínu en búist er við að hún muni taka 9-14 daga. helgina unnið sinn stærsta sigur á herliði stjómarinnar. Stjórnin segir hins vegar að sókn skæruliðanna hafí verið hrundið og stór skörð höggvin í raðir skæruliða. Irakar hafa- skrifað Perez de Cuel'ar, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, bréf og gagnrýnt ummæli hans um notkun íraka á efnavopnum í stríðinu við Irani. De Cuellar hefyr ákveðið að verða við tilmælum írana og láta rannsaka hvort írakar hafí í raun beitt efna- vopnum. Tariq Aziz, utanríkisráð- herra íraks, segir að framkvæmda- stjórinn sveiflist eins og lauf í vindi og hann hafi aldrei kannað hvort ásakanir íraka um að íranir notuðu efnavopn væru réttmætar. Hollenskur læknir sem kominn er til Amsterdam eftir að hafa ferð- ast um Kúrdistan segir íraka aug- ljóslega hafa beitt efnavopnum í stríðinu við írani. Hann segist hafa séð mörg illa leikin fómarlömb ár- ása íraka í bænum Halabja í Kúrd- istan. Bretland: Fimm vikna verkfalli lokið hjá Landrover St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BIRTAR voru á laugardag niður- stöður úr atkvæðagreiðslu starfs- Svíþjóð: Einkaaðilar rannsaka Palme-morðið Stokkhólmi, frá Clfis von Hofsten, frétta- ritara Morgunblaðsins. SVENSKA Dagbladet greindi frá því í gær að einkaaðilar í Lundi hafi um nokkurt skeið rannsakað morðið á Olof Palme. Blaðið segir frá því að 25 manna hópur hafi safnað upplýsingum um morðið frá því Palme var myrtur á tölvu. Gerir hópurinn ráð fyrir að með aðstoð upplýsingabankans geti það fundið morðingja Palmes. Forsp- rakkinn í hópnum er tölvufræðingur- inn Ulf Lindgárde, en með honum starfar fólk úr ólíkum stéttum og með ólíkar pólitískar skoðanir. Við rannsóknina hefur hópurinn komist í kast við marga öfgahópa í Svíþjóð, sem hefur orðið til þess að þeir haífa fengið líflátshótanir. Óstaðfestar heimildir herma að hópurinn hafí verið í nánu samstarfi við Sósíaldemókrataflokkinn, en Palme var formaður hans. manna Landrover-bílaverksmiðj- anna um það, hvort samþykkja ætti nýjan samning við vinnuveit- endur. Samningurinn var sam- þykktur með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Breska sjómanna- sambandið efnir til atkvæða- greiðslu i vikunni um boðun alls- heijarverkfalls. Eftir fímm vikna verkfall sam- þykktu um 80% starfsmanna Landro- ver að hefla vinnu á ný á mánudag. Fyrirtækið lagði fram nýjan samning í siðustu viku, þar sem boðin var sama hækkun og í upphafí áta- kanna, eða 14%, sem dreifíst á tvö ár. Fyrirtækið tapaði sem svarar fjór- um og hálfum milljarði íslenskra króna í þessu verkfalli og hver starfs- maður að jafnaði ríflega 70 þúsund krónum. Breska sjómannasambandið hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu nú í vikunni um allsheijarverkfall. í siðustu viku komst dómari að þeirri niðurstöðu, að atkvæðagreiðslan væri ekki lögleg og gera mætti eigur sambandsins upptækar, ef hún færi fram. Ástæðan til þess var sú, að dómarinn féllst ekki á, að hér væri verið að boða til allsheijarverkfalls, heldur samúðarverkfalls með starfs- mönnum á feijum T&O-fyrirtækisins í Dover. Samúðarverkföll eru bönnuð með lögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.