Morgunblaðið - 30.03.1988, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988
59
idámJi* dl^vájh
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
_ FRÁ MÁNUDEGI
R TIL FÖSTUDAGS
9__mr ijyym u~\ nvtw 'L
Þessir hringdu . .
Bílnúmer misritaðist
Erling Edwald hringdi, en
hann sendi fyrir skömmu pistil í
Velvakanda þar sem hann greindi
frá dónaskap sem hann hafði orð-
ið fyrir á bílaþvottaplani BP í
Álfheimum, en greiðabíll þvingaði
hann frá þvottaslöngu sem hann
ætlaði að nota. Sagði Erling að
númer bílsins hefði misritast í
Velvakanda og vildi leiðrétta það.
Númerið var ekki R-71279 held-
ur R-71249. Er eigandi fyrr-
nefnda númersins beðinn vel-
virðingar á misrituninni.
„Að setjast upp við dogg“
Hulda Runólfsdóttir hringdi
og var ósátt við bréf það sem
Gunnlaugur Sveinsson sendi og
fékk birt í þætti „Víkveija". þar
er uppi kenning um að orðatækið
að setjast upp við dogg eigi rætur
að rekja til þess tíma er erlendum
skipbrotsmönnum var bjargað í
land og þeir vöknuðu við hundsgá
og höfðu orð á því. „Þetta er út
í hött,“ sagði Hulda og sagði að
hver sem vildi gæti flett upp á
orðinu dogg í orðabókum Blön-
dals og Menningarsjóðs, þar kæmi
fram að dogg væri lóðrétt stoð
eða brík.
Hvar er
kisa?
Þessi 2 ára gamla læða hvarf frá
Melgerði 23, Reykjavík. Hún er
hvít, gul og svört. Ef einhver
hefur orðið hennar var er hann
vinsamlega beðinn að hringja í
síma 39377.
„Nýtísku tíðarandi“
Að vera maki í dag er ekkert
grín. Oft er komið fram við mann
eins og holdsveikisjúklingur væri.
Því er nefnilega þannig varið að
maki er óæskilegur í ansi mörgum
tilvikum. Þ.e.a.s. í vinnustaðapart-
íum, bekkjarpartíum og hjá alls kon-
ar félagasamtökum og þannig mætti
lengi telja. Það sem vekur mesta
furðu mína að þið konur, kynsystur
mínar, sem ég hélt að stæðuð vörð
um fjölskylduna, þið eruð alltaf
áhugasamastar í því að hafa þetta
eða hitt makalaust.
Hvað er það sem skeður og er
spjallað á slíkum samkomum að eig-
inkonur og eiginmenn þoli það ekki?
Þið nefnilega gleymið því að okkur
kemur þetta við. Nú gæti einhver
sagt sem svo, ja, þið makarnir hafið
ekkert gaman af að hlusta á okkur
tala um vinnuna, skólann eða hvað
það nú er sem þjappar fólki svona
Þjáning-
ar mígren-
sjúklinga
Kæri Velvakandi.
í tilefni af 10 ára afmæli Mígren-
samtakanna lýsi ég yfír furðu minni
að heilbrigðisyfírvöld skuli lítið sem
ekkert aðhafast í málefni mýgren-
sjúklinga. í hálfa öld hef ég þurft
að horfa upp á þjáningar fyrst
mömmu minnar og svo síðast eigin-
konu minnar.
Ég skora á Guðmund Bjamason
heilbrigðisráðherra að láta til skar-
ar skríða í þessum brýnu málum.
Virðingarfyllst,
Vilhjálmur Alfreðsson
vel saman. En ég vil fá að dæma
um það sjálf, takk fyrir. Við ykkur
kynsystur, giftar sem ógiftar, vil ég
segja þetta: Þessar elskur. þ.e.a.s.
eiginmennimir, eru flestir svona
hressir, sætir og snyrtilegir vegna
þess að þeir eiga konur sem nenna
að hugsa vel um þá, þvo og strauja
skyrtur og slíkt. Síðast en ekki síst
eru þeir vel nærðir á allan hátt. Við
eiginkonumar eigum nefnilega sum-
ar þátt í því hversu aðlaðandi þeir
eru.
En hver eru launin? Þetta með
Til Velvakanda.
Ég get ekki á mér setið nú þegar
ég í annað sinn á nokkrum vikum
les í Velvakanda hugleiðingar Þor-
leifs Kr. Guðlaugssonar um skatta-
mál. Sú niðurstaða hans, að fólk
með 70.000.- króna mánaðartekjur
hafi ekki meiri rauntekjur en þeir
sem hafa 40—45.000.- á mánuði er
auðvitað hrein fjarstæða og nenni
ég ekki að rekja nákvæmlega þær
reikningsaðferðir sem hann notaði í
fyrri grein sinni til þess að ná þess-
ari furðulegu útkomu. Það var þó
e-ð á þá leið að hann bætti 35,2%
við lægri tekjumar (kr. 40 þús.) en
dró þær frá hærri tekjunum og náði
þá fram þessari snarvitlausu út-
komu. Ég skil dæmið á þann hátt,
að sá sem hefur t.d. 42.000.- í mán-
aðartekjur sé reiknaður þannig til
skatts:
Mánaðarlaun kr. 42.000,-
mínus skattur 35,2% kr. 14.784.-
plús persónuafsl. kr. 14.797.-
að hver uppsker eins og hann sáir,
hvað varð um það? Og hvað um allt
sem manni var kennt í uppeldinu
að væru góðir mannkostir? Ég bara
spyr, því frekari sem þú ert og sjálfs-
elskari sem þú ert, þeim mun vin-
sælli ertu. Hvað er eiginlega að
fólki? Hvert er gildismat okkaur í
dag?
Að lokum smá orðsending til 4.A,
KÍ. Ég vona að ég hafi ekki eyðilagt
allt kvöldið fyrir ykkur fyrir tveimur
ámm þegar ég vogaði mér að mæta.
Jórunn
Rauntekjur verða því kr. 42.000.-
því persónuafsl. dekkar skattinn.
Ef við tökum svo 70.000.- mánaðar-
tekjurnar:
Mánaðarlaun kr. 70.000.-
mínus skattur 35,2% kr. 24.640.-
plús persónuafsl. kr. 14.797.-
Rauntekjur eru því kr. 60.157.-
og borgar þessi þá kr. 9.843.- í skatt.
Það vakti undrun mína að enginn
skyldi svara Þorleifi þegar fyrri
grein hans birtist en sennilega hefur
enginn gefið sér tíma til að skrifa
Velvakanda.
Af þessum sést einnig að af tekj-
um umfram kr. 42.000.- á mán.
getum við reiknað okkur 64,8% því
skatturinn fær af þeim 35,2%. Þegar
við svo spáum í hvort borgi sig að
vinna aukavinnu verðum við að
reikna í okkar vasa kr. 64,80 af
hverjum hundraðkalli sem við vinn-
um okkur inn umfram áðumefndar
42.000,- krónur.
8482-7797
„Snarvitlaus“
útkoma Þorleifs
Um heilagleiki barna
Ég má til með að svara konu
sem skrifaði í Velvakanda 26.
mars síðastliðinn og segist hafa
orðið einstæð móðir 17 ára. Ég
lýsi hér með undrun minni á kald-
lyndi hennar. Það er engu líkara
en að það sé henni mesta kvalræði
að hafa átt þetta bam. En eitt vil
ég benda þér á kona góð, að þú
ert ekki sú eina sem stendur ein.
Það eru margar konur sem eru
eflaust verr staddur en þú og með
fleiri böm. Þú talar um að líf í
móðurkviði sé heilagt. Heilagt segi
ég kannski ekki, en með fyrsta
rétt eins og þú til að fá að lifa.
Ekki er það barninu að kenna að
það kom undir og það óskilgetið.
Það er þitt að stjóma því. Svo tal-
ar þú um að bömnin séu ekki hei-
lög eftir að þau séu fædd. Hvað
meinar þú? Það hefur enginn rétt
til að binda enda á líf hvort sem
það er í móðurkviði eða fætt,-at-
hugaðu það, þannig að þau hljóta
að vera jafn heilög bæði eftir og
fyrir fæðingu. Nú tala ég ekki út
í bláinn, heldur af eigin reynslu. í
dag er ég 27 ára, eignaðist mitt
fyrsta barn 16 ára og varð einstæð
18 ára. Fóstureyðingu hefði eflaust
verið hægt að fá, en hún kom ekki
til greina frá minni hálfu. Oft var
erfítt og oft var þröngt í búi, en
okkur tókst það samt, mínu barni
og mér. Svo þetta með feðurna.
Það fer algerlega eftir áhuga og
þroska föðursins hvort hann tekur
þátt í umönnun bamsins. Ég vona
að þetta fái þig til að hugsa aðeins
og líta á fóstureyðingu aðeins al-
varlegri augum. Konur sem ganga
með heilbrigð börn og fara í slíka
aðgerð stíga mjög stórt og alvar-
legt skref í mínum augum. Með
viljanum er hægt að kljúfa næstum
hvað sem er. Ég gat bara ekki
orða bundist. Virðingarfyllst.
Kona sem varð einstæð
móðir 18 ára
I hótelinu ersundlaug, gufuböð, hvíldar-
herbergi, tækjasalur og nuddaðstaöa
\M útvegum hand-
klæói og sundföt
fyrir þá, er þess
óska, og viö viljum
benda á skokk-
brautimarum
Öskjuhlið.
\ • i
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA
„Heimurútaf
■bSm—11
HOTEL
rsig
BOGASKEMMUR
STÓRAR OG SMÁAR
Fyrir alls konar starfsemi.
Gott verð. Auðveld uppsetning.
Sterk stálgrind og veðurþolinn dúkur.
Leitið upplýsinga.