Morgunblaðið - 30.03.1988, Page 64
| 7VLHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
I GuðjónÓLhf.
91-2 72 33 I
L
á tékkareikninga
meÖ
hávaxtakjörum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
♦
Indriði H. Þorláksson um verkfall HÍK:
Ekki þörf á úr-
^skurði félagsdóms
Laganefnd BHMR athugar málið
INDRIÐI H. Þorláksson formaður samninganefndar ríkisins segir
varla þörf á að visa til félagsdóms deilu um hvort verkfall Hins
íslenska kennarafélags hafi verið samþykkt eða ekki, þar sem ljóst
sé að verkfall hafi ekki verið samþykkt og það sé skoðun allra lög-
fræðinga sem hann hafi rætt við. Stjórn Hins íslenska kennarafé-
lags ákvað í gær að vísa þessu máli til athugunar til stjórnar og
laganefndar BHMR. Páll Halldórsson formaður BHMR segir banda-
lagið álíta að þarna hafi verið samþykkt að fara i verkfall. Sú niður-
staða hafi verið véfengd og verið sé að skoða lagalega fleti á mál-
inu en væntanlega muni einhver dómstóll skera úr um það.
í allsheijaratkvæðagreiðslu HÍK
um boðun verkfalls frá og með 13.
■"Sykurmol-
arnir skrifa
uiidirútgáfu-
samning
Meðlimir íslensku rokkhljóm-
sveitarinnar Sykurmolarnir fóru
til Lundúna á mánudag til að
skrifa undir samning við banda-
riska stórfyrirtækið Electra um
■M^slötuútgáfu í Bandaríkjunum.
Sykurmolamir hafa vakið mikla
athygli hjá hljómplötuútgefendum
víða um heim í kjölfar þess að lög
þeirra Birthday og Cold Sweat náðu
hátt á hinn svonefnda óháða lista í
Bretlandi og náðu bæði lögin auk
þess hátt á lista jrfír 50 vinsælustu
íög Bretlands; Cold Sweat í 23. sæti.
Samningurinn við Electra, sem er
undirfyrirtæki WEIA., eins stærsta
tónlistarútgáfufyrirtækis í heimi, fel-
ur í sér umtalsverðar íjárupphæðir,
en samningurinn er til fímm ára og
kveður á um að hljómsveitin sendi
frá sér sex hljómplötur á þeim tíma.
Ekki fengust samningsatriði gefín
upp, en samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins fær hljómsveitin töluvert
^a tíundu milljón króna við undirritun
samningsins og skilmáli um pró-
sentugreiðslur vegna sölu væntan-
legra hljómplatna eru á meðal þess
besta sem þekkist í slíkum samning-
um.
apríl, varð tveggja atkvæða munur
með verkfallsboðuninni en 60 at-
kvæðaseðlar voru auðir. í lögum
um samningsrétt opinberra starfs-
manna segir að meirihluti þeirra
sem taka þátt í atkvæðagreiðslu
verði að samþykkja verkfall, og er
það túlkun samninganefndar ríkis-
ins að svo hafi ekki verið í þessu
tilfelli þar sem þeir sem skili auðu
taki jafnan þátt í atkvæðagreiðsl-
unni og aðrir.
Morgunblaðið bar þetta undir
Kristján Thorlacius formann BSRB
og Birgi Bjöm Sigurjónsson starfs-
mann BHMR en þeir voru í nefnd-
inni sem samdi áðurgreind lög.
Kristján sagðist ekki vilja tjá sig
beint um málið þar sem BSRB
væri ekki aðili að því, en sagði að
þetta ágreiningsefni yrði greinilega
sent til dómstóla og bæri að fagna
því að úr þessu fengist skorið. Birg-
ir Bjöm sagði að lög tækju aldrei
til allra tilvika og þama væri greini-
Iega grátt svæði. Hann sagðist því
telja ágætt að fá úr þessu skorið.
Deila um auða atkvæðaseðla kom
upp í BSRB árið 1985, þegar Kenn-
arasamband íslands greiddi at-
kvæði um úrsögn úr BSRB. Stjóm
BSRB úrskurðaði að telja ætti auða
seðla með í atkvæðagreiðslu og réði
það úrslitum um að úrsögnin var
ekki talin gild. Kjörstjóm úrskurð-
aði aftur á móti að auð og ógild
atkvæði ætti ekki að telja með og
því væri úrsögnin gild. Málinu lauk
með því að atkvæðagreiðslan var
endurtekin.
Morgunblaðið/Karl Th. Sæmundsson
RA UÐMAGINN ÞYKIR LOSTÆTI
Trillukarlamir við Ægissíðuna í Reykjavík eru byij-
aðir að vitja um rauðmaganetin. Myndin var tekin
á sunnudaginn þegar Bjöm Guðjónsson var að selja
tveimur frúm rauðmaga í kvöldmatinn. Mörgum
þykir rauðmaginn eitthvert mesta lostæti sem þeir
fá.
Bretland:
Verð á freðfiski
lækkað um 6 tll 8%
ÍSLENZKU fisksölufyrirtækin í
Bretlandi hafa lækkað verð á af-
Einstætt mál fyrir Borgardómi:
Notaði nafn systur
sinnar við giranguna
Leysti síðan út sparimerki hennar
EINSTÆTT mál er nú rekið fyrir Borgardómi. Kona notaði nafn
systur sinnar þegar hún giftist og eftir giftinguna tók hún út spari-
merki systurinnar, nærri tvö hundruð þúsund krónur. Þetta var
gert með vitund brúðgumans og svaramannanna. Nú hefur systirin,
sem uppgötvaði skyndilega að hún var gift kona, höfðað mál til að
fá hjúskapinn ógiltan.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun forsaga málsins
vera sú, að konan átti um 200
! þúsund krónur í sparimerkjum og
hafði systir hennar óskað eftir að
fá það fé lánað. Hún vildi hins
vegar ekki lána systur sinni féð.
Þá tók systirin til þess bragðs að
gifta sig og notaði nafn systur
sinnar, sparimerkjaeigandans, svo
henni væri mögulegt að leysa út
sparimerkin eftir giftinguna.
Brúðguminn vissi af þessum fyr-
irætlunum og svaramennimir tveir
sömuleiðis, enda mun annar þeirra
hafa verið aðal hvatamaður gifting-
arinnar. Giftingin fór fram í lok
febrúar 1986 og lagði brúðurin þá
fram ýmis vottorð og plögg á nafni
systur sinnar. Brúðguminn og
svaramennimir notuðu sín réttu
nöfn við giftinguna. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er
ekki talið að presturinn hafi gert
mistök með því að gifta fólkið og
em ekki hafðar uppi kröfur á hend-
ur honum í málinu.
Þegar giftingin var afstaðin kom
að því að leysa sparimerkin út og
var það gert með aðstoð svara-
mannanna. Þeir hlutu dóm fyrir
rúmu ári í Sakadómi Reykjavíkur
fyrir fölsun umboða þegar pening-
amir voru leystir út. Systirin upp-
götvaði síðan hvemig í pottinn var
búið og hefur nú höfðað mál til að
hjúskapur hennar og „eiginmanns
hennar" verði ógildur með dómi.
Það er af sparimerkjunum að
segja, að fé það, sem leyst var út,
hafði annar svaramaðurinn með sér
af landi brott og er hann nú í Kaup-
mannahöfn. ,
Málið var þingfest í Borgardómi
um miðjan mars og mun Jón L.
Amalds, borgardómari, dæma í því.
urðum sfnum um 6 til 8%. Frá
áramótum hefur verð á blokk
lækkað um 10% og flökin aðeins
minna. Meiri verðlækkun hefur
orðið á flökurn frystum um borð
í frystiskipum. Verðlækkun þessi
hefur í för með sér umtalsverða
lækkun gjaldeyristekna miðað við
að óbreytt magn verði áfram flutt
á þennan markað. Skýring lækk-
unarinnar er meðal annars mikið
framboð af sjófrystum flökum og
hins vegar mikið framboð af
ferskum fiski og minnkandi fisk-
neyzla.
Iceland Seafood Ltd., sölufyrir-
tæki Sambandsins í Hull, lækkaði
verð hjá sér fyrir helgi, en Icelandic
Freezing Plants Ltd., dótturfyrirtæki
SH í Grimsby, lækkaði verðið í gær.
Verð á flestum sjávarafurðum fer
nú lækkandi víðast um heiminn,
meðal annars vegna mikils framboðs
og hins, að verð á sjávarafurðum er
orðið miklum mun hærra en á kjúkl-
ingum, svínakjöti og nautakjöti. Því
er spáð í Erkins Seafood Letter, sem
gefíð er út í Bandaríkjunum, að sala
sjávarafurða verði erfíð á þessu ári,
samdráttur verði í sölunni og verð
lækki.
Ingólfur Skúlason, forstjóri IFPL
í Grimsby, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að verð á þorskblokk væri
nú komið niður í 1,80 dali pundið
og hefði lækkað um 10% frá áramót-
um. Flakapakkningar hefðu frá sama
tíma lækkað heldur minna í verði.
Mikið framboð á ferskum físki hefði
valdið lækkandi verði á frystum og
ferskum afurðum. Birgðir væru
nokkrar og menn famir að bjóða físk-
inn niður hver fyrir öðrum. Nú hefði
svo farið að „páskahrotan" hefði
engin orðið. Fastan væri yfírleitt tími
mikillar sölu, en nú hefði engrar
hreyfíngar eins og fyrri ár orðið vart.
„Það er útlit fyrir mjög erfítt ár,“
sagði Ingólfur. „Það stefnir í verð-
lækkun á nánast öllum fiskafurðum,
neyzla þeirra hefur dregizt saman,
en framboð er mikið. Verð á blokk-
inni gæti lækkað enn meira og fersk-
fískverð fer lækkandi sömuleiðis.
Hækkun pundsins gagnvart krón-
unni og öðrum gjaldmiðlum hefur
reyndar þau áhrif að hún vegur upp
á móti verðlækkunum, en einnig að
fískafurðum er fremur beint inn á
þennan markað og afleiðingin verður
offramboð og verðlækkun hér, en
skortur á Bandaríkjamarkaði. Þar
að auki hvetur hátt gengi pundsins
enn frekar en ella til sölu fersks físk
að heiman. Við stefnum því í aukinn
útflutning á hráefni til vinnslu á er-
lendri grundu, útflutning á atvinnu
og skerðum möguleika okkar til verð-
mætasköpunar heima fyrir. Jafn-
framt skerðir aukið framboð á fersk-
um fiski möguleikana á arðbærri
sölu frystra afurða. Með öðrum orð-
um stefnum við í það að verða fyrsta
flokks bananalýðveldi," sagði Ingólf-