Morgunblaðið - 18.05.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
?
DAMIXA
DÚNDUR
UTSALA
40-90%
afsláttur
KRÓKHÁLSI 7
Vantar þig blöndunartæki í eldhúsið,
handlaugina, baðið, sturtuna
eða sumarbústaðinn?
STURTU
BLÖNDUNARTÆKI
áður kr. 4*450
nú kr.
ELDHÚS-
BLÖNDUNARTÆKI
áður kr. ©»2©6
nú kr. 1#000
HANDLAUGARTÆKI
áður kr. 6.192
nú kr
HANDLAUGARTÆKI
áður kr.
nú kr.
HANDLAUGARTÆKI
áður kr. 4*266
nú kr
BAÐBLÖNDUNARTÆKI
áður kr. 6*493
nú kr. 1.000
INNBYGGÐ
BAÐBLÖNDUNARTÆKI
áður kr. 9*01 S
nú kr.
STURTUHAUSAR
áður kr. 626
nú kr. ioo
STURTUBARKAR
áður kr. 230
nú kr.
STURTUSTANGIR
áður kr.
nú kr.
$ SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
KRÓKHÁLSI 7 S. 67 28 88 og 82033
Jörvi átti lægsta tilboð
Hvannatúni í Andakíl.
I LOKUÐU tilboði til 4 fyrir-
tækja innanhéraðs bauð Jörvi hf.
á Hvanneyri lægst í skurðgröft
um 2.400 m3 og lögn aðalveitu-
kerfis í jaðri flestra íbúðarhúsa
á Hvanneyri.
í samtali við fréttamann sagði
Haukur Júlíusson, framkvæmda-
stjóri Jörva hf., að skurðurinn væri
um 450 m langur og allt að 6 m
djúpur. í hann leggjast skólprör,
regnvatnslögnj 12 hreinsibrunnar
og vatnslögn. I tengslum við skurð-
lagninguna er frágangur vegar og
bflastæðis og jarðvegsskipti að
væntanlegum grunni undir hús bú-
tæknideildar Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins.
Það er Bændaskólinn sem lætur
vinna verkið að mestum hluta. Ing-
ólfur Margeirsson, tæknifræðingur
í Borgamesi, hannaði og hefur yfír-
umsjón með framkvæmdum.
Jörvi hf. er 10 ára gamalt fyrir-
tæki, sem hefur hingað til mest
unnið við jarðvinnslu í uppsveitum
Borgarfjarðar. Fyrirtækið hefur
einnig staðið í framkvæmdum fyrir
Vegagerð ríkisins, bæði samkvæmt
útboði og í tímabundinni vinnu.
Þetta verk vinnur Jörvi hf. í sam-
vinnu við Vélaleigu Sigurðar Pét-
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Sigurður Pétursson og Haukur
Júlíusson.
urssonar, Hellum í Bæjarsveit, Loft-
orku og Borgarverk í Borgamesi.
Sprengja þurfti klöpp að rúmmáli
600—700 m3. Ifyrirhugað er að
ljúka framkvæmdum í lok maí.
- DJ
Lofsvert framtak
eftírHákon
Bjarnason
Vistfólkið á Sólheimum í
Grímsnesi hefur tekið upp rætur
af Alaskalúpínu og sett 10 slíkar í
vel gerðan pappahólk, sem heldur
lífí í rótunum í allnokkra daga.
Þessir hólkar em svo í plastpokum,
þar sem prentaðar eru leiðbeiningar
um meðferð rótanna og hvemig
þeim skuli plantað. Pokamir eru
seldir til ágóða fyrir vistheimilið á
Sólheimum.
Lúpínan frá Alaska hefur reynst
öllum plöntum betur til að græða
upp melaog örblásin lönd hvarvetna
um allt ísland. Hún breiðist út af
sjálfsdáðum og breytir óftjóu landi
í frjósaman jarðveg á nokkrum
ámm. Hún hvorki þarf né þolir
áburð. Með aldrinum gisnar lúpínu-
gróðurinn og margskonar plöntur
komast á legg undir lúpínubreiðun-
um.
Tvennt er það, sem lúpínan þolir
ekki. Annað er sauðfjárbeit, sem
getur gengið af henni dauðri á fáum
árum, því að hún virðist kindum
mikið lostæti. Hitt er að hún er
mjög ljóselsk og þolir illa að standa
í skugga.
Vilji menn græða upp ördauða
lönd verður það ekki betur né ódýr-
ar gert en með því að planta lúpínu
í afgirt svæði. Þetta framtak vist-
manna á Sólheimum er mjög lofs-
vert, og með því má slá tvær flugur
Hákon Bjamason
„Vilji menn græða upp
ördauða lönd verður
það ekki betur né ódýr-
ar gert en með þvi að
planta lúpínu í afgirt
svæði.“
í einu höggi. Styrkja framúrskar-
andi gott málefni og stuðla að upp-
græðslu okkar nakta lands.
Höfundur er fyrrverandi
skógræktaratjóri.
HITACHI RYKSUGAN
lítil — kröftug — ódýr
rösbu
y»/#RÖNNING
W/f// heimilistæki
KRINGLUNNI - SÍMI (91)685868
FÆREYJAR
3xíviku
FLUGLEIÐIR
-fyrirþig-