Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 Sólheimar í Grímsnesi: Landgræðsluátak og fjáröflun Selfossi. ÍBÚAR á Sólheimum i Grimsnesi munu á næstunni bjóða fólki þátttðku i land- græðsluátakinu Gefum landinu lit, með þvi að kaupa lúpínurætur sem stungnar hafa verið upp og pakkað í plastpoka. Landgræðsluátak þetta er einnig Qáröflun fólksins vegna byggingaframkvæmda á Sól- heimum en þar hefur mikil upp- bygging átt sér stað. Lúpínuræ- tumar eru stungnar upp í brekk- unum á Sólheimum og víðar þar sem mikið er um lúpínu. Rótun- um er pakkað í plastpoka og þannig gengið frá pakkningun- um að rætumar haldist sem heillegastar. Með í pakkanum er lítill tréspaði sem nota á við gróðursetningu. í hveijum pakka em tíu rótar- hnyðrjur sem tilbúnar em til út- plöntunar. Á pokann utan um rætumar em letraðar leiðbein- ingar og bent á að lúpínan sé sérlega hentug til að bæta jarð- veg og hefta uppblástur. Fólki er bent á að velja sér opið land, holt eða mel, til gróðursetning- ar. Landið þarf að vera lokað fyrir sauðfé og ekki skal velja þjóðgarða eða annað friðað land. Lúpínupakkamir verða boðnir til sölu dagana fyrir hvítasunnu og seldir á fjölfomum stöðum. Morgunblaðið/Siguröur Jónsson Unnið við að stinga upp lúpinurætur í einni brekkunni við Sól- heima. Hver pakki kostar 500 krónur og vonast Sólheimafólkið til þess að pakkamir og landgræðsluá- takið fái góðar viðtökur. „Nú klæðum við landið blátt," sagði einn vistmannanna þar sem hann vann við að pakka lúpín- unni. Sig. Jóns. Gefum landinu lit,“ stendur á pökkunum. Hér er ein pökkun- arstúlkan með tilbúinn pakka. gróður osmjE MOSAEYÐANDI! JARÐVEGSBÆTANDI! Gróöurkalk er ætlaö til notkunar fyrir gras, grænmeti, runna og limgerði. Þaö stuölar að jafnari sprettu og heldur mosa og varpasveif- grasi í skefjum. Gróðurkalk eykur uppskeru garöávaxta og skerpir vöxt lauftrjáa. Gróöurkalk er hagstæð blanda af fínni mélu og grófari kornum sem er þjál í meðförum og auðveld í dreifingu. Fínmalaö kalkið hefur strax áhrif en gróf kornin leysast upp smátt og smátt og stuðla að langtímaverk- un kalksins. I grasgarða og limgerði er best að dreifa og blanda kalkinu í gróðurmoldina við sáningu eða gróðursetningu. Gott er að dreifa kalkinu vor eða haust og raka það vel ofan í grassvörðinn með hrífu. Grænmetisgarða er hentugast að kalka á vorin eða á haustin. Best er að blanda kalkinu*vel í gróður- moldina um leið og garðurinn er unninn. N " hættu á kláöa þarf ekki að kalka kartöflugarða nema þeir séu mjög súrir. Ekki er heldur ráðlegt að kalka skrautrunna sem þurfa súran jarðveg. Nánari upplýsingar um Gróðurkalk oq notkun þess er að finna í bæklingi sem þú færð ókeypis á útsölustöðun- um. HEILDSÖLUDREIFING: SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS SÆVARHÖFÐA 11,112 REYKJAVÍK. SÍMI: 91-83400 MÁNABRAUT, 300 AKRANES. SÍMI: 93-11555 KALMANSVÖLLUM 3, 300 AKRANES. SlMI: 93-13355 Krystyna Cortes og Helgi Maronsson. Tónleikar í f s- lensku óperunni TÓNLEIKAR verða haldnir í ís- lensku óperunni fimmtudaginn 19. mai nk. Það er tenórinn Helgi Maronsson úr Njarðvík sem flyt- ur þar gamlar ítalskar aríur, Ijóð eftir Beethoven og Hugo Wolf og óperuariur eftir Donizetti, Bellini, Puccini, Flotow og Verdi. Helgi hélt burtfarartónleika vorið 1987 frá Tónlistarskóla Njarðvíkur þar sem Ragnheiður Guðmunds- dóttir hefur verið kennari söng- deildar undanfarin 10 ár. Undirleik- ari Helga á þessum tónleikum er Krystyna Cortes. Krystyna réðst sem undirleikari við söngdeild skól- ans sl. haust og hefur verið ómetan- leg lyftistöng fyrir deildina, því þar fer vanur undirleikari einsöngvara, kóra og einleikshljóðfæra. Tónleikamir í Islensku óperunni heQast kl. 20.30. Miðar fást í Bóka- búð Keflavíkur, Eymundsson og við innganginn. (Fréttatílkynnmg) Landsþing JC í Hafnarfirði 27. LANDSÞING JC-íslands verður haldið i Hafnarfirði dag- ana 19. — 23. maí n.k. Það er JC-Hafnarfjörður sem sér um framkvæmd þingsins, en þing- haldið sjálft fer fram á Hótel Loftleiðum. Kjörorð þingsins eru “ferðaþjón- usta - framtíðarsýn", og verður aðaláhersla lögð á að ræða ferða- þjónustu innanlands. Einnig verða á dagskránni ræðukeppni, nám- skeið og svonefndir sviðafundir, auk skemmtikvölda. Þingið verður sett í Vfðistaða- kirkju föstudaginn 19. maí og lýkur með hófi í Glæsibæ hinn 23. maí. Búist er við að fjöldi þátttakenda verði á bilinu 250 — 300 manns. (Úr fréttatiliiynningTj) í Víðistaðakirkju fer setningarathöfn landsþings JC-íslands fram. Kaupfélag Þingeyinga: Samþykkt tillaga um hámarkslaun Á AÐALFUNDI Kaupfélags Þing- eyinga þann 8.maí 8.1. var sam- þykkt tillaga í kjaramálum, þess efnis að stefnt verði að þvi að hæstu laun verði aldrei hærri en fjórföld lágmarkslaun. Tillaga Kaupfélags Þingeyinga hljóðaði á þessa leið: „Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga haldinn 8.maí s.l. beinir því til Vinnumála- sambands samvinnufélaganna og S.Í.S. að vinna af fullri einurð gegn því hrikalega launamisrétti sem nú er orðin staðreynd á íslandi. Unnið verði að þvf að hæstu laun verði aldr- ei hærri en fiórföld lágmarkslaun. Fundurinn felur fulltrúum sfnum á aðalfundi S.Í.S. 1988 að koma mál- inu á framfæri." Verslunarmannafélag Húsavíkur hefur lagt fram hliðstæðar tillögur og er í þeim gert ráð fyrir einum 20 flokka launastiga fyrir allt launa- fólk f landinu þar sem bil milli launa- flokka yrði 7-8% og mánaðarlaun í efsta þrepi jafngildi sem næst 4,3 mánaðarlaunum í _ lægsta þrepi. Verslunarmenn á Húsavík taka það jafnframt fram að ekki sé ástæða til að hækka laun f landinu almennt en draga heldur úr launamisrétti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.