Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 54
54 fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Galdur leikhússins og börnin í gegnum „göngin“ var haldið úr ævintýralandi i málningarland. Töfraklút er sveiflað yfir höfðinu til að komast inn í ævintýra- land þar sem menn geta flogið, breytt sér í hreindýr, galdrað og farið ofan í sjóinn eins og ekkert sé. í ævintýralandinu er alltaf dag- ur. Þaðan er skriðið gegnum dimm göng inn í málningarland. Ekkert heyrist annað en tónlist og sull í vatninu sem penslamir eru skolaðir í. Hópur sex ára bama málar litrík- ar myndir úr ævintýralandinu á langan renning á gólfinu. Það er nóg að gera í leiksmiðju bamanna hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þijár konur vinna með bömunum í leiksmiðjunni, þær Asdís Skúla- dóttir leikari og leikstjóri, Soffía Vagnsdóttir tónlistarkennari og Margrét Ámadóttir leikari sem undanfarin ár hefur unnið með spænska leikhópnum „Els Come- diants" er hingað kom á Listahátíð 1980. Að sögn Ásdísar hefur Leikfélag Reykjavíkur haft samvinnu við Melaskóla um þessa tilraun að bamaleiksmiéju. Nemendur úr sex ára bekkjum skólans hafa komið í Iðnó nokkra föstudagseftirmiðdaga í vor. „Fyrstu skiptin byijuðum við leikhússtundina á að segja börnun- um ævintýri og álfasögur en höfum nú breytt til, reynum að komast inn í veruleika þeirra." „Við tölum um land þar sem bæði er skemmtilegt og leiðinlegt, gleði og sorg. En þetta er líka ævintýraland þar sem sitthvað ger- ist sem er ómögulegt í verunni," segir Ásdís. ímyndunarafl bam- anna er virkjað með því að fá þau til að mála myndir af því sem á sér stað í ævintýralandinu. Vitaskuld speglast vemleiki þeirra í hug- myndafluginu og myndimar em margar mjög skemmtilegar. Þegar þau em búin að mála syngur Soffía með þeim en í lokin fara þau í bún- inga og prófa að standa á sviði. Við viljum eiga rólega stund með bömunum í leikhúsinu, nóg er af glummganginum úti fyrir.“ •• Oðru vísi barnaleikhús Að sögn Hallmars Sigurðssonar leikhússtjóra Leikfélags Reykjavík- ur er leiksmiðjan tilraun til að taka bamaleikhús öðmm tökum en venja er til. „Við viljum skoða á því fleiri hliðar en stórar leiksýningar þar sem böm em aðeins áhorfendur, og leitast við að opna leikhúsið fyr- ir hugmyndum ungra áhorfenda. Samvinna við böm á að vera sjálf- sagður hlutur fyrir leikara sem oft- ar en ekki setja sig í ákveðnar stell- ingar þegar leikið er fyrir þennan hóp. Hlutverk leiksmiðjunnar er meðal annars að vinna gegn hneig- ingum til að tala niður til bama og vantreysta skilningi þeirra. Oftast em þau einmitt næmari áhorfendur en fullorðnir." „Við emm að þreifa okkur áfram með þetta starf en sennilega verður til leikverk í tengslum við það og vonandi sýning næsta vetur," segir Hallmar. „í haust getum við byggt á reynslunni sem við öðlumst þessar vikumar og vonir standa til að starfíð með bömunum verði fjöl- breyttara í framtíðinni. Nú styttist í að Leikfélagið flytjist í Borgarleik- húsið en við sem vinnum hjá LR teljum að í þvi húsi eigi ekki einung- is að fara fram miðasala á daginn og leiksýningar að kvöldlagi. Við viljum bjóða upp á meira, ekki síst fyrir böm.“ Hallmar ræddi um nauðsyn þess að skapa mótvægi við flóð útlends skemmtiefnis. „Mikið af bamaefni sjónvarpsstöðvanna til að mynda ,Það sem geríst í ævintýralandi fer frá höfðinu til handarinnar og með penslinum niður á blaðið,“ var sagt við börnin. er flutt á erlendum málum og mnn- ið úr framandi menningammhverfí. Við þurfum að halda fram íslenskri menningu gegn þessu.“ „Bömum hefur oft á tíðum verið lítið sinnt af listamönnum þjóðar- innar, þeim mun meira með mis- góðu innfluttu efni. Krakkar sem aðeins alast upp við bíóferðir og að horfa á sjónvarp fara á mis við galdur leikhússins. Helsta hráefni þess er ímyndunaraflið en obbi inn- flutts efnis er mikið matreiddur, á vissan hátt lamandi. Við viljum hvetja til sköpunar og vonum að leiksmiðja bamanna sé leið til þess." Morgunblaðið/Þorkell Sex ára börn úr Melaskóla með Ásdísi Skúladóttur í Iðnó. Þar hefur leiksmiðja barnanna veríð starfrækt til reynslu í vor. Liklegt er að til verði bamaleikrit næsta vetur f tengslum við starfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.