Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 Studebaker Erskine 1930. Fyrsti eigandi Ólafur Magnússon í Fálkanum. Fyrsta ferð á þjóðhátíðina á Þingvöllum 1930. Kálfuppgerður. Chrysler Windsor árg. 1947. Kon- súlsbíll. Fyrsti eigandi Ludvig Storr. Konungleg drossía í góðu lagi. Af sérstökum ástæðum verða þessir öldnu höfðingjar frá fyrri tíð seldir ef um semst. Aðal- atriðið er að flytja þessa bíla óskemmda inn í framtíðina. Þetta er líka mjög góð fjárfesting. Upplýsingar milli kl. 17 og 18 í símum 686644 og 626644. óskast ýmist í fullt starf eéa hlutastarf Kópavogshæli Þroskaþjálfar Óskum eftir að ráða deildarþroskaþjálfa til starfa við sundlaug Kópavogshælis. Starfshlutfall sam- komulagsatriði. Vinnutími breytilegur. Starfið felst í vatnsmeðferð, skipulagningu og leið- beiningu við sundlaug í nánu samstarfi við annan þroskaþjálfa. Þroskaþjálfar Óskum eftir að ráða deildarþroskaþjálfa á deild 5 og 9 sem fyrst. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Starfið felst í því að stjórna daglegum rekstri deildarinnar. Boðið er upp á stuðning og faglega ráðgjöf með yfirþroskaþjálfa, sálfræðingum og öðrum fagaðilum. Nánari upplýsingar veitir yfirþroskaþjálfi, sími 41500. RÍKISSPÍTALAR KÓPAVOGSHÆU Itbnica UBIX UÓSRITUNARVÉLAR Staða íslenskrar fiskversl- unar í Bandaríkjunum Washington, frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Á þessari öld hafa fiskkaupmenn á íslandi orðið ríkir og farið á haus- inn til skiptis vegna framleiðslu sinnar. Þessar staðreyndir bar á góma er íslendingar og vinir þeirra, sem sóttu ársþing Fiskifélags Banda- ríkjanna (NFI) í New York á dögun- um hittust. Það var sama við hvem var talað, Magnús Gústafsson, for- stjóra Coldwater, Othar Hansson, eða Erling Hulgaard, fiskifulltrúa Dana í New York, sem veit meira um íslenska fiskverslun en allir land- ar hans samanlagðir. Sigurður Mark- ússon hjá Sambandinu lagði orð í belg um leið og hann gekk framhjá í morgunkaffinu. Sigurður stóð þó ekki lengur við að þessu sinni en til að minna okkur á, að verðbólgan á íslandi væri versti vágestur landsins og hennar vegna gætu íslendingar ekki hagnast á fiskverslun einsog aðrir. Horft til baka Þess var og minnst í kaffinu, að á þessari öld hefðu þáttaskil orðið ör í fískverslun landsmanna. í upphafi og á fyrsta fjórðungi aldarinnar var „lífið eintómur saltfiskur". Ungir og gamlir í sjávarþorpum íslands risu árla úr rekkju, þegar þurrt var, til að breiða saltfisk á reit. Næst kom að því, að fiskur sem áður „fór í salt“ var nú geymdur á ís og settur í seinfara togara, sem ösluðu 5-6 daga siglingu, með V3 af ís og 2/3 af fiski, í lestinni, suður Pentlandsfjörð til Grimsby og Hull. Svo kom síldin fyrir norðan og villt- ist einu sinni alla leið inn í Hvalfjörð og fyllti hann. Þá var mikij síldar- verksmiðja reist í Örfirisey. i heims- styijoldinni hélt lífið á íslandi áfram að vera ísfiskur. Þá var sagt: „íslend- ingar veiða fiskinn, Bretinn borðar hann og Kaninn borgar.“ Við þetta misstum við hlutfallslega jafnmarga menn í sjóinn, við að ösla suður um Pentland með ís og físk til Bretans, eins og Bandaríkjamenn við að stríða. Þess var og minnst, að fyrsta fisk- farminum, sem sendur var til Banda- ríkjanna, var snúið aftur til íslands. Og það kom fyrir, að farmur af fryst- um fiski lá í vörugeymslu í New York í nokkur ár áður en honum var ekið á haug. En svo vann Jón Gunn- arsson „ísbjöminn" og varð, að verð- leikum, þjóðhetja er hann gerði þorsk- og ýsuflökin íslensku eftir- sóknarverð og verðmikil í Ameríku. Og lffið á íslandi varð nú nærri því eintómur freðfiskur, fiök og blokkir þegar frá leið með aðstoð yngis- meyja frá Ástralíu, Englandi og vfðar að. Þetta dugði vel á meðan dalurinn var gullsígildi. En svo fór að að harðna á dalnum. Nýtt ævintýri í fisksölu íslendinga er í uppsiglingu og það gengur vafalaust vel að minsta kosti á meðan sterlingspundið og markið eru í hágengi og jenið er eftirsótt sem gull. Harðnandi samkeppni í gæðafiski íslenski fiskurinn hefir enn yfir- höndina sem gæðafískur og það tekur vafalaust langan tíma að hnekkja þeirri trú. En samkeppnin fer harðnandi bæði frá Bandaríkja- mönnum sjálfum, Kanadamönnum og öðrum. Það hefír oft sýnt sig, að gæðavara heldur velli þótt sam- bærileg vara komi á markaðinn. Má í því sambandi minna á, að skoskur reyktur lax fær hæsta verð á markaðnum, í Bandaríkjunum og víðar, þrátt fyrir að annar reyktur lax frá öðrum löndum sé eins góður að dómi sérfræðinga. Sama er að segja um aðrar matvörur, sem hafa Morgunblaðið/Bjami Vigdis Finnbogadóttir forseti íslands, Davíð Oddsson borgarstjóri, Matthías Á. Mathiesen samgönguráð- herra og föruneyti skoðuðu framkvæmdir í Viðey á mánudag. Hér eru þau í risi stofunnar. Viðey: Húsin tekin í notkun á af- mæli Reykavíkurborgar STEFNT er að því að taka Viðeyjarkirkju og Viðeyjarstofu i notk- un á ný á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst. Endurgerð stofu og kirkju miðar vei, að sögn sr. Þóris Stephensen staðar- haldara. Vegleg bryggja hefur verið steypt upp og nýr bátur verður í ferðum milli lands og eyjar í sumar. 1 Viðeyjarstofu verð- ur í framtíðinni veitingasala og ráðstefnuaðstaða. Á mánudag heimsótti Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands Við- ey í fylgd Davíðs Oddssonar borg- arsstjóra, borgarráðs og nefndar um endurbætur á Bessastöðum. Skoðuðu gestimir framkvæmdir í eynni, fornleifauppgröft Árbæjar- safns norðan Viðeyjarstofu og nutu veitinga í veðurblíðunni. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að endurbyggingu Viðeyjar- stofu, en til þess þurfti að rífa innan úr húsinu gólffjalir og múr- húð og endurbæta innviði alla. Múrverki er lokið og liggur næst fyrir að mála, leggja gólfín og búa stofuna húsgögnum. Sr. Þórir sagði að sú hugmynd hefði komið fram að búa viðhafn- arstofu á jarðhæð hússins með húsgögnum frá tíma Skúla fógeta. Þeirra yrði væntanlega flestra að leita út fyrir landssteinana því slíkir munir hefðu sjaldnast verið varðveittir hér á landi. Viðeyjarkirkja er næstelsta kirkja landsins en geymir elstu upprunalegu innréttinguna. Hóla- dómkirkja er eldri að árum en þar er endurgerð innrétting. Arkitekt Viðeyjarkirkju var að líkindum Georg David Anton lærisveinn danska hirðarkitektsins Eigtved höfundar stofunnar. Eigtved var þekktasti arkitekt Dana á þeirri tíð og hafði teiknað meðal annars Amalienborg, konungshöllina í Kaupmannahöfn. Altari kirkjunnar, predíkunar- stóll og kirkjubekkir hafa verið fjarlægðir til viðgerðar í landi. Fyrir vígsluna í sumar á að kaupa til kirkjunnar lítið færanlegt pípu- orgel sem getur einnig nýst til tónleikahalds í Viðeyjarstofíi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.