Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 64
Nýtt
numer
692500
SJOVÁ
H
löföar til
fólksíöllum
starfsgreinum!
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Afleiðing gengisfellingarinnar:
Bensín- og olíu-
verð hækkar í dag
Á FUNDI verðlagsráðs í gær var
heimiluð hækkun á verði fljótandi
eldsneytis, þ.e. bensíns og olíu.
Hækkunin, sem er vegna gengis-
fellingar krónunnar, tekur gildi f
dag. Bensín hækkar um 2,4%.
Blýlaust 92 oktan bensín hækkar
úr 33,50 kr í 34,30 kr lítrinn, eða
um 2,39%. 98 oktan Super bensín
hækkar úr 34,90 kr í 35,70 kr lítrinn,
eða um 2,29%. Dísilolía hækkar úr
10,20 kr í 10,90 kr lítrinn, eða um
6,86%. Gasolía hækkar úr 8,20 kr í
8,90 kr lítrinn, eða um 8,54%. Svart-
olía hækkar úr 5.900 kr í 6.600 kr
tonnið, eða um 11,86%.
Ástæða þess, hve mismiki! hækk-
unin er á tegundunum er mismun-
andi vægi innkaupsverðs í útsölu-
verðinu. Innkaupsverð er hlutfalls-
lega lægst í útsöluverði bensíns, aðr-
ir þættir verðsins eru fastar stærðir
sem breytast ekki vegna gengisfell-
ingarinnar. Hækkunin á svartolíu er
að hluta vegna hærra innkaupsverðs.
Þær birgðir sem til eru í landinu
voru keyptar á gamla genginu, en
mest af bensínbirgðunum á þó eftir
að greiða og verða þær þvf greiddar
á nýja genginu. Hins vegar hafa toll-
ar og aðflutningsgjöld þegar verið
greidd af bensínbirgðunum sam-
kvæmt gamla genginu og hafa því
ekki áhrif til verðhækkunar nú.
Væru bensínbirgðir landsmanna
keyptar í dag á Rotterdamverði og
á núgildandi gengi, væri bensín-
verðið um 36 krónur lítrinn, að sögn
Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra.
Bensín hækkaði síðast í verði þann
12. maí sl. um 5% og var sú hækkun
vegna hærra innkaupsverðs og
breytingar yfir í blýlaust bensín.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra koma til fund-
ar með verkalýðsleiðtogum sfðdegis f gær, en fundurinn var haldinn f Borgartúni 6.
Fundað um efnahagsmálin
FORMENN stjómarflokkanna þriggja ræddu í gær við aðila vinnumarkaðarins um stöðu mála í kjölfar
gengisfellingarinnar á mánudag. Að þeirra sögn fékkst engin niðurstaða á fundinum. Frekari fundarhöld
um stöðu efnahagsmálanna og aðgerðir verða næstu daga en ríkisstjómin ætlar að grípa til efnahagsað-
gerða fyrir mánaðamótin.
Sjá nánar á bls. 26 og 27.
Húsavík:
Gaf út reikninga
fyrir óunnin verk
MEINT fjársvik manns á Húsavík
eru nú til rannsóknar hjá lög-
reglu. Maðurinn er talinn hafa
framvísað reikningum fyrir verk
sem aldrei voru nnnin og falsað
undirskrift manna á reikningana.
Talið er að hann hafi með þessum
hætti náð til sfn háum fjárhæðum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur maðurinn starfað
sjálfstætt og tekið að sér ýmis bygg-
ingaverkefni, meðal annars fyrir
Kaupfélag Þingeyinga. Hann mun
hafa framvfsað reikningum á skrif-
stofu kaupfélagsins fyrir verk, sem
aldrei vom unnin. Reikningamir vom
greiddir, þar sem undirskriftir deild-
arstjóra vom á þeim, en þær er
maðurinn talinn hafa falsað.
Menn frá Rannsóknarlögreglu
ríkisins fóm til Húsavíkur í síðustu
viku og yfirheyrðu ýmsa aðila, meðal
annars starfsmenn hinna ýmsu
deilda Kaupfélagsins. Amar Guð-
mundsson, deildarstjóri hjá Rann-
sóknarlögreglunni, vildi ekki gefa
neinar upplýsingar um málið í gær,
en neitaði ekki að mál þessa eðlis
væri í rannsókn þar.
Stjómendur ÍSAL óttast
langa framleiðslustöðvun
Kostnaður við gangsetningu skiptir milljónahundruðum SnþÍsSu væri^æ^hvort viljinn
Forsetinn
hittir
Dukakis
FORSETI íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, mun hitta
Dukakis rikisstjóra Massae-
husetts og væntanlegan for-
setaframbjóðanda demó-
krata, f ferð sinni til Banda-
ríkjanna, sem hefst f dag.
Forseti og Dukakis munu
hittast á íslandskynningu, sem
Útflutningsráð íslands stendur
að ásamt fyrirtækjum í Boston,
23. maí næstkomandi. Um 500
manns hefur verið boðið til
kynningarinnar, en þar verður
sýndur íslenskur fatnaður og
boðið upp á íslenskan mat, sjáv-
arafurðir og lambakjöt.
í
RAGNAR Halldórsson, forsljóri
ÍSAL, kveðst óttast að álverið
stöðvist í langan tfma ef til boð-
aðs verkfalls starfsmanna þess
kemur á miðnætti á föstudag.
Stöðvunin færi þó eftir því hvað
langan tíma það tæki að gera
nýjan samning eftir að verkfall
væri skollið á. Ekki kvaðst hann
gera ráð fyrir algjörri stöðvun
tjpramleiðslunnar en það tæki
einhveijar vikur að koma starf-
seminni í gang og kostnaðurinn
við það ylti á milljónahundruð-
um. Hann sagði að þegar komið
væri fram á elleftu stundu í
samningagerð, eins og nú væri,
þá gæti brugðið til beggja vona
um framhaldið.
Stuttur fundur var í gær í
vinnudeilunni í álverinu þar sem
vinnuveitendur lögðu fram tilboð
sem samninganefnd starfsmanna
hafnaði. Annar fundur hefur verið
boðaður á morgun.
Öm Friðriksson, aðaltrúnaðar-
maður starfsmanna álversins,
sagði að tilboðinu hefði verið hafn-
að vegna þess að það hefði í heild
verið lakara en tilboð sem sett var
fram í lok apríl. Hann sagði að
starfsmenn vildu fá sömu með-
höndlun á samningnum og gert
var við síðustu samningsgerð þeg-
ar tillit var tekið til meðaltals-
launaskriðs sem aðilar voru sam-
mála um útreikning á. Þessu hefðu
vinnuveitendur alfarið hafnað.
Hann kvaðst ekki hafa mikla trú
á því að samningar næðust nema
veruleg afstöðubreyting yrði hjá
viðsemjendum þeirra. Að öllu
óbreyttu stefndi í stöðvun álvers-
ins. Om sagði að starfsmenn hlytu
að vera tilbúnir að taka afleiðing-
um stöðvunar, annars hefðu þeir
ekki boðað vinnustöðvun til að
reyna á slíkt.
Jakob R. Möller, fulltrúi ÍSAL
í samninganefnd vinnuveitenda,
sagði það ekki rétt að tilboðið sem
lagt var fram í gær væri Iakara
en fyrra tilboð. Það hefði verið
mat þeirra að tilboðið væri á svip-
uðum nótum og gerst hefði í samn-
ingum að undanfömu og ívið
hærra en áður hefði verið boðið.
Jakob kvaðst trúa því að báðir
aðilar vildu ná saman, þó svo mik-
ið bæri á milli, en það réðist á
Niðurstöður samræmdu prófanna:
Islenskueinkunnin
einum hærri en í fyrra
NIÐURSTÖÐUR samræmdu próf-
anna liggja fyrir og voru i gær
sendar skólum á landsbyggðinni.
Skólar á höfuðborgarsvæðinu fá
niðurstöðuraar sendar i dag. Ekki
liggur fyrir úttekt á árangri nem-
enda en þó virðist sem einkunnir
séu hærri í greinum sem gáfu lág-
ar einkunnir í fyrra.
Meðaltalsárangur nemenda í
íslensku virðist vera einum heilum
hærri en var í fyrra þegar meðaltal-
ið var 4,8. Þetta kom í ljós þegar
kannað var úrtak 500 nemenda og
við fyrstu athugun virðist danska
vera heldur lægri en var í fyrra. Á
skrifstofu samræmdra prófa lágu.
ekki fyrir neinar aðrar upplýsingar
varðandi prófin nema hvað stærð-
fræðin þótti frekar þung og að kenn-
arar voru yfirleitt ánægðir með próf-
ið í ensku. Nánar verður unnið úr
niðurstöðum prófanna næstu daga.