Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 Starfsfólk óskast ýmist í fullt starf eða hlutastarf Öldrunarlækningadeild. HjúkrunarfræÓingar Óskum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á öldr- unarlækningadeildir Landspítalans, nú þegar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða allar vaktir, einnig fastar kvöldvaktir. Sjúkraliðar Óskum eftir sjúkraliðum til starfa á öldrunarlækn- ingadeildir Landspítalans á allar vaktir, nú þegar eða eftir samkomulagi. Aðstoðarfólk Óskum eftir aðstoðarfólki við aðhlynningu á allar vaktir, nú þegar eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 29000-582. RÍKISSPÍTAIAR LANDSPÍTAUNN Þrjúþúsund sjotiu og fjorir starfsmenn óska eftír samstarfí víð þig Vífilsstaðaspítali Sjúkraliðar Óskum eftir að ráða sjúkraliða til starfa, nú þeg- ar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða allar vaktir, einnig fastar næturvaktir. Athugið sérstök launakjör á hjúkrunardeildum. Hjúkrunarfrceðingar Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á nætur- vaktir, nú þegar eða eftir samkomulagi. Athugið sérstök launakjör. Hjúkrunarfrxðingar Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til sumar- afleysinga, starfshlutfall eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda- stjóri í síma 42800. RÍKISSPÍTALAR STARFSMANNAHALD Islenskur danshöfundur hlýtur 1. verðlaun í Osló Dómnefndin einhuga um valið HLÍF Svavarsdóttur, danshöf- undur og listdansstjóri Þjóðleik- hússins, hlaut á laugardag fyrstu verðlaun í norrænni samkeppni danshöfunda, sem haldin var í Osló. Verðlaunin hlaut Hlíf fyrir dansverk sitt „Af mönnum“ sem er samið við tónlist Þorkels Sig- urbjörnssonar byggðri á ljóði Matthíasar Johannessens „Borg- in hló“. Orn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri íslenska dans- flokksins, sem sæti átti í dóm- nefnd, sagði dómara hafa verið einhuga um valið á verki Hlífar. Að sögn Amar kom „Af mönn- um“ og flutningur þess John Perciv- al, alþjóðlegum dómara og for- manni dómnefndar, mjög á óvart. Sagði Percival að verkið félli mjög vel að tónlistinni en hvorutveggja var fmmflutt. Verkið væri frá- bmgðið hinum verkum í keppninni þar sem það byggði að litlu leyti á frásögn og væri því ekki leikrænt heldur samanstæði það eingöngu af dansi og .tónlist. Percival er umhugað að koma „Af mönnum" á framfæri í Bretlandi og mun í því skyni birta greinar og gagnrýni um það m.a. í The Times. Dómnefnd samkeppninnar skipaði einn dómari frá hverju Norðurlandanna auk Hlíf Svavarsdóttir, höfundur verðlaunadansins „ Af mönnum“. Percivals. Hlíf Svavarsdóttir sagðist að von- um ánægð með verðlaunin, sem hefðu komið sér mjög á óvart. Verð- launin, sem kallast Petmshku- verðlaunin, vom veitt í fyrsta sinn og hlaut Hlíf veglega Petmshku- styttu til eignar. Auk þess mun eitt ópemhúsanna fjögurra á Norður- löndunum bjóða Hlíf að setja „Af mönnum" eða nýtt verk á svið. Kemur í ljós í september hvaða hús þáð verður en í kjölfar verðlaunanna var Hlíf boðið að semja verk fyrir Finnska þjóðarballettinn. Þá verður „Af mönnum“ sýnt á Listahátíð 7. og 8. júní næstkomandi í Reykjavík. Verkiá sagðist Hlíf hafa samið sérstaklega fyrir keppnina og Lista- hátíð. „Titillinn segir mikið um verkið, sem flallar um hóp fólks og spuminguna hvetjir þora að skera sig úr hópnum. Hver og einn getur túlkað dansinn eins og hann vill en það fallega við ballettinn er að hver hefur frelsi til þess. Þá var sam- vinna okkar Þorkels mjög skemmti- leg,“ sagði Hlíf. Sjö dansarar koma fram í „Af mönnum"; Birgitte Heide, Guð- munda Jóhannesdóttir, Helena Jó- hannsdóttir, Helga Bernhard, Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir og gestadansaramir Patrik Dady og Hany Hadaya. Sjö manna hljóm- sveit undir stjóm Jóhanns G. Jó- hannssonar leikur undir dansinum, en á samkeppninni var tónlistin flutt af segulbandi. Búningana hannaði Sigrún Úlfarsdóttir og em þeir saumaðir í saumastofu Þjóð- leikhússins. Tel meiri þörf á starfs- ^ kröftum mínum hjá ASI - segir Lára V. Júlíusdóttir, sem lætur af störfum sem aðstoðarmaður félagsmálaráðherra LÁRA V. Júlíusdóttir lögfræð- ingur hefur verið endurráðin lögfræðingur Alþýðusambands íslands. Lára hefur verið aðstoð- armaður Jóhönnu Sigurðardótt- ur félagsmálaráðherra síðastlið- ið ár. „Mín bíða ótal verkefni hjá Al- þýðusambandinu. Ég tel að það sé að mörgu leyti meiri þörf á mínum starfskröftum hjá ASÍ en í félags- málaráðuneytinu, þó að vissulega sé best að aðstoðarmaður ráðherra starfi út tímabil ráðherra," sagði Lára aðspurð um ástæður endur- ráðningarinnar. Hún sagði að geng- ið hefði verið á eftir sér að koma til starfa hjá ASÍ að nýju og að leitað hefði verið til sín með ýmis smáverkefni. Ekki væri hægt að sinna þessum tveimur störfum samtímis og því hefði hún ákveðið að skipta. Lára mun hefja störf síðsumars. Hún lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1977 og starfaði við almenn lögfræðistörf og kennslu fram til 1982 er Mn tók við starfi lögfræð- ings ASÍ. Frá júlí 1987 hefur Lára starfað sem aðstoðarmaður félags- málaráðherra og mun gegna þeirri stöðu allt þar til hún hefur störf hjá ASÍ. Akranes: U ndirbúningnr að gjaldheimtu á Yesturlandi í fullum gangi FYRR í vetur var skipuð nefnd innan samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem gera á tillögur um hvernig gjaldheimtu á Vest- urlandi verði best komið fyrir í kjölfar staðgreiðslukerfis skatta. í þessari nefnd eiga sæti Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkis- hólmi, Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akranesi, og þeir Marteinn Valdi- marsson, Búðardal, og Eyjólfur Torfi Geirsson, Borgarnesi. Nefndin hefur unnið að tillögugerð og nú hafa verið lögð fram drög að samn- ingi við fjármálaráðuneytið þar sem gert er ráð fyrir að reknar verði allt að sjö útstöðvar á Vesturlandi, þannig að hver útstöð verði tiltölu- lega sjálfstæð innheimtueining og miðist við ákveðið þjónustusvæði. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, sagði í samtali við frétta- ritara að nefndin gerði ráð fyrir að samkomulag tækist við ríkisvaldið á næstu dögum og hæfist þá starf- ræksla gjaldheimtanna um næstu áramót. Að sögn Gísla hefur nefnd- in lagt áherslu á að rekstur verði sem hagkvæmastur og unnt verði að nýta starfsmenn sveitarfélaga og þann búnað sem sveitarfélögin hafa fest kaup á. Gert verður ráð fyrir að innan gjaldheimtunnar STOFNUN Sigurðar Nordals gekkst nú á laugardaginn fyrir umræðufundi undir yfirskrift- inni: „Á íslensk menning framtið fyrir sér?“ Þetta var fyrsta opin- bera verkefni stofnunarinnar, en að sögn forsvarsmanns hennar er hlutverk hennar að efla kynn- ingu á íslenskri menningu og rannsóknum hvarvetna i heimin- um. Fundurinn var haldinn í Odda, verði innheimta á tekjuskatti, eign- arskatti, útsvari og aðstöðugjöldum og að einnig verði mögulegt að gjaldheimtan sjái um innheimtu fasteignaskatta. —JG hugvísindabyggingu Háskóla ís- Iands, og sóttu hann um 60 manns. Páll Skúlason prófessor stjómaði fundinum og hófst hann með tveim- ur erindum sem þau Gerard Lemar- quis og Mary Guðjónsson fluttu en síðan voru almennar umræður. Að sögn Úlfars Bragasonar hjá stofnun Sigurðar Nordals er ýmis- legt á döfinni í sumar og m.a. von á erlendum gestum á ráðstefnu sem haldin verður í lok júlí í sumar. Stofnun Sigurðar Nordals: Umræðufundur um íslenska menningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.