Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 25 Könnun flugráðs: Hentugast að gera vara- flugvöll fyrir farþega- þotur á Egilsstöðum Húsavík efst á blaði miðað við þarfir herflugsins SAMKVÆMT niðurstöðum starfs- hóps sem flugráð skipaði til að gera tillögur um staðsetningu varaflugvallar yrði lenging flug- brautarinnar á Egilsstöðum væn- legasti kosturinn miðað við far- þegaflug milli landa. Varaflug- velli fyrir herflugvélar Morgunblaðið/KGA Hluti þeirra er hlutu Fréttamannastyrk íslandsdeildar Norðurlandar- áðs 1988, f.v.: Björn Vignir Sigurpálssson blaðamaður, Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttastjóri, Axel Ammendrup fréttamaður, Elías Snæland Jónsson aðstoðarritsfjóri og Fríða Björnsdóttir ritstjóri. Á myndina vantar ÓLaf K. Magnússson blaðaljósmyndara og Óðinn Jónsson fréttastjóra. Sjö íslendingar hlutu Nor- ræna fréttamannastyrkinn SJÖ íslenskir fréttamenn hlutu flölmiðla; Óðinn Jónsson frétta- ar, Grænland og Álandseyjar. Norræna fréttamannastyrkinn 1988 á mánudag. Fengu allir þeir sem um sóttu, styrk, og er fjöldi þeirra svipaður og verið hefur. Alls hafði íslandsdeild Norðurlandaráðs 50.000 krónur sænskar til úthlutunar og hlýtur hver fréttamaður því rúmlega 7.100 skr. Þá hefur Norðurland- aráð staðið að útgáfu bæklinga með hagnýtum upplýsingum fyr- ir þá sem flytjast milli Norður- landa. Fréttastyrkinn hlutu: Björn Vignir Sigurpálsson blaðamaður, til að kynna sér kauphallarviðskipti, einkum starfsemi hlutabréfamark- aða á hinum Norðurlöndunum; Sig- mundur Ernir Rúnarsson frétta- stjóri, til að kynna sér finnskt sam- félag og vinna að gerð heimildar- myndar um finnskt atvinnulíf og menningu, þá sérstaklega menn- ingu Sama; Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri, til að kynna sér áhrif siðareglna blaðamanna í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð á störf stjóri, til að kynna sér menningar- samstarf á Norðurlöndum á vegum Norðurlandaráðs og bókaútgáfu á Norðurlöndum, áherslu og mark- aðssetningu; FVíða Bjömsdóttir rit- stjóri, til að kynna sér útgáfu blaðs leigjendasamtakanna í Svíþjóð og starfsemi samtakanna, einnig starf- semi sænska blaðamannafélagsins; Axel Ammendrup fréttamaður, til að kynna sér útgáfu á fréttum og fræðsluefni fyrir _ sykursjúka á Norðurlöndum og Ólafur K. Magn- ússon blaðaljósmyndari, til að kynna sér skipulagningu og tölvu- væðingu á fréttamynda- og filmu- safni við Aftenposten. Við sama tækifæri og styrkveit- ingamar vom kynntar, var sagt frá nýútkomnum bæklingum með hag- nýtum upplýsingum fyrir fólk sem flyst milli Norðurlanda, um réttindi þess í því landi er flust er til. Þeg- ar em komnir út bæklingar með upplýsingum um Danmörku, Noreg, Svíþjóð og Finnland og era væntan- legir bæklingar um ísland, Færeyj- Bæklingamir em á máli þess lands sem kynnt er en fyrirhugað er að þýða þá á önnur mál. Þeir liggja frammi í Háskóla íslands, Norræna húsinu og verða einnig til sölu í bókabúðum. Togveiðar bannaðar í Reykjafjarð- arál og á Strandagruimi Sjávarútvegsráðuneytið hefur að tUlögu Hafrannsóknastofnun- ar gefið út reglugerð um bann við togveiðum með botn- og flot- vörpu í Reykjafjarðarál og á Strandagrunni frá og með 14. mai sl. til 30. september nk., seg- ir í fréttatilkynningu frá sjávar- útvegsráðuneytinu. Atlantshafsbandalagsins yrði hins vegar best fyrir komið á Húsavík að mati hópsins. Miðað við núver- andi vélakost Flugleiða þyrfti að lengja þær flugbrautir sem til greina koma i öllum tilvikum. Endumýjun á þotum félagsins í Atlantshafsfluginu gæti þýtt að flugbrautirnar á Akureyri og Eg- ilsstöðum þjónuðu hlutverki vara- flugvalla með tiltölulega litlum breytingum. Flugráð á eftir að fjalla um niður- stöður skýrslunnar. Við umfjöllun í ráðinu verður væntanlega tekið tillit til fleiri forsenda en liggja til gmnd- vallar skýrslunnar, svo sem kostnað- ar við gerð mannvirkja, kaupa á landi, aðstöðu til þjónustu við far- þega og þróunar í flugi ísjendinga og annarra til landsins. í tillögu starfshópsins um varaflugvöll fyrir her- og farþegaflug er ekki tekið til- lit til kostnaðar en sá þáttur var hafður til hliðsjónar þegar þarfir far- þegaflugsins eins vom skoðaðar. Starfshópurinn kannaði fimm staði fyrir varaflugvöll, Blönduós, Sauðárkrók Akureyri, Húsavík, Eg- ilsstaði og Hornafjörð. Að jafnaði em veðurfarsskilyrði best á Egilsstöðum þegar Keflavíkurflugvöllur lokast. Á Sauðárkróki er vindasamara en á öðmm stöðum sem kannaðir vom og fylgni milli hvassviðris í Keflavík og þar. Mörgum hefur þótt fysileg- ast að staðsetja varaflugvöllinn á Sauðárkróki en starfshópurinn virð- ist hafa komist að annarri niður- stöðu. Starfshópurinn byggði könnun sina fyrst og fremst á þeirri forsendu að varaflugvöllur yrði að þjóna jafnt herflugi og farþegaflugi en skoðaði einnig þarfir íslensks millilandaflugs sérstaklega. Herflugið krefðist flug- brautar sem væri 3000 metra löng með akstursbrautum og flugvéla- stæðum í samræmi við kröfur Atl- antshafsbandalagsins. Fyrir þær flugvélategundir sem Flugleiðir nota nú í Atlantshafsfluginu nægir hins- vegar 2400 metra löng flugbraut. Endumýi Flugleiðir vélakost þeirra og taki í notkun tveggja hreyfla Boeing 767 þotur á Atlants- hafsflugleiðinni yrði væntanlega að- eins þörf á 2050 metra langri flug- braut. Á Akureyri er malbikuð flug- braut 1940 metra löng og á Egils- stöðum em framkvæmdir hafnar við malbikaða flugbraut sem verður um 2000 að lengd. Á gmndvelli þess að þörf sé fyrir stóran varaflugvöll sem henti jafnt herflugi og farþegaflugi mælir starfshópurinn með nýrri flugbraut á Húsavík vestan þjóðvegarins. Suðurendi yrði til móts við enda núverandi brautar en norðurendinn skammt frá Æðarfossum í Laxá, ein- um besta laxveiðistað í ánni. Flug- brautin lægi yfir spmngið hraun og ryðja þyrfti birkiskóg en að öðm leyti telur starfshópurinn skilyrði ákjósan- leg í Aðaldal til að gera fullkominn varaflugvöll. Samkvæmt lauslegri áætlun sem . Matthías Á. Mathiesen samgöngu- ráðherra lagði fram á þingi í vetur kostaði um 100 milljónir króna að lengja Akureyrarflugvöll og gera hann þannig úr garði að stærstu þotur Flugleiða gætu notað hann sem varaflugvöll. Sambærilegur kostnað- ur vegna breytinga á nýju flugbraut- inni á Egilsstöðum væri um 127 milljónir króna. Árið 1986 áætlaði flugmálanefnd að það kostaði tæpar 200 milljónir á verðlagi þess tíma að gera varaflugvöll fyrir íslenskar þotur á Sauðárkróki. HÁSKÓLI ÍSLANDS Endurmenntunarnefnd og Reiknistofnun TÖLVUNÁMSKEIÐ VORIÐ1988 UNIX KYNNING 6.-8. júní kl. 13:15-17:00. Kr. 8000.- (Notuð er HP 9000/840 tölva, nýt- ist í öllum Unix kerfum.) Þessi kynn- ing er ætluð þeim sem hafa nokkra reynslu af tölvuvinnu og forritun (einhverju stýrikerfi). WORD ritvinnsluforritið (fyrir Macintosh) 24.-27. maí kl. 8:30-12:00. Kr. 8000.- Þetta er þróað ritvinnslukerfi með fjölbreytta möguleika á uppsetn- ingu texta. Hentug fyrir Macintosh notendur sem skrifa bækur eða langargreinar. WORKS (fyrir Macintosh) 6.-9. júní kl. 16: 00-19:00. Kr. 8000.- ORÐSNILLD (Wordperfect fyrir pc tölvur) 24.-27. maí kl. 8:30-12:00. Kr. 8000.- Þetta er þróað ritvinnslukerfi með fjölbreytta möguleika á uppsetn- ingu texta og til þess að flytja gögn í prentsmiðju. Hentugt fyrir þá sem skrifa bækur eða langar greinar. WORD RITVINNSLUFOR- RIT (fyrir pc tölvur) 1 .-4. júní kl. 8:30-12:00. Kr. 8000.- FORRITUN í DBASE111+ (pc tölvur) 24.-27. maíkl. 13:00-17:00. Kr. 8000.- Forkröfur: Þekking á skráavinnslu ídBase III+. EXCEL (fyrir Macintosh) 27.-30. júníkl. 15:00-19:00. Excel töflureiknirinn er eitt öflug- asta hjálpartæki Macintosh not- andans og hefur bæði gagnagrunn og forritunarmál. PAGE MAKER (fyrir Macin- tosh) 13.-16. júní. TÖLVUNOTKUN (pctölvur). 45 stunda námskeið, 30. mai til 30. júní. Kennt verður þrjú kvöld íviku, 3 tíma í senn, kl. 19:30-22:30. Kennd helstu atriði í notkun IBM- pc og sambærilegra tölva: Einföld ritvinnsla (Ritstoð), töflureiknir (Multiplan), og skráavinnsla í dBase+ auk stýrikerfisins MS-DOS. Kr. 17.500.- Unnt er að sækja hvern einstakan af þremur hlutum þessa síðast talda námskeiðs ef forkröfur eru uppfylltar. MULTIPLAN (fyrir pc tölvur) 2., 6., 8. og 9. júní kl. 19:30-22:30. Kr. 6800.- MS-DOS stýrikerfið (fyrir pc tölvur): 13. og 15. júní kl. 19:30- 22:30. Kr. 3500.- Forkröfur: Nokkur reynsla og skiln- ingur á tölvunotkun, t. d. ritvinnslu eða tölvureikni. Fjallað um skrár, afrit og vélbúnað. SKRÁAVINNSLA í dBase 111+ (fyrir pc tölvur) 16.-30. júní sbr. lýsingu á námskeiði um tölvu- notkun. Kr. 12000.- Forkröfur: Veruleg reynsla og skiln- ingur á tölvunotkun, bæði ritvinnslu og töflureikni (í stað töflureiknis dugar þekking á forritunarmáli eða öðru skráavinnslukerfi). Námskeiðin fara fram í Odda við Suðurgötu eða í húsnæði Reikni- stofnunar. Skráning á námskeiðin er á aðal- skrifstofu Háskólans, s. 694306. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu endurmenntunarstjóra Háskólans í s. 23712 og 687664. Athugið að starfsmenntunarsjóðir BSRB og BHM og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur styrkja sína félagsmenn á þessi námskeið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.