Morgunblaðið - 18.05.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
31
Alsír og Marokkó taka
upp stj ómmálasamband
Auknar líkur á friði í eyðimerkurstríðinu 1 Vestur- Sahara
Rabat, Reuter.
ALSÍRMENN og Marokkómenn
ákváðu á mánudag að koma að
Órsmá blóð-
dæla leysir
hjartað af
New York Times
BLÓÐDÆLU á stærð við blý-
antsyddara hefur verið kom-
ið var fyrir í mannshjarta og
lofa tilraunir með hana góðu.
Bjargaði hún lífi fyrsta sjúkl-
ingsins, sem dæluna fékk.
Talið er að dælan eigi eftir
að gjörbylta meðhöndlun
hjartasjúklinga.
Dælunni er komið fyrir í sla-
gæð í löpp og smokrað þaðan
til hjartans. Aflvél hennar er
utan líkamans. Hún er eins og
túrbína og er snúningshraði
hverfilblaðsins 25 þúsund
hringir á mínútu. Dregur hún
súrefnisríkt blóð um stutta pípu
frá hjartanu og dælir því inn í
ósæðina. Hjartað heldur sínum
takti en dælan tryggir líkman-
um og líffærum hans nægt
blóð.
Hugmyndin með dælunni er
að hún hvíli hjartað fyrstu vik-
una eftir að sjúklingur hefur
fengið hjartaslag, að sögn dr.
Richard K. Wampler, uppfinn-
ingamannsins, sem hannaði og
smíðaði dæluna.
Sjúkrahússlæknar í Texas
urðu fyrstir til að koma tækinu
fyrir í sjúklingi og segjast þeir
undrandi yfir því að jafn lítið
hjálpartæki geti tekið við hlut-
verki mannshjartans. „Dælan
er lftil, örugg og gefur góða
raun. Það tekur aðeins um 20
mínútur að koma henni fyrir í
sjúklingi, sem er styttri aðgerð
en við eigurrt að venjast. Ef
engir aukakvillar eða vandamál
koma í ljós við tilraunir með
dæluna á hún eftir að marka
þátttaskil, jafngilda byltingu, í
meðhöndlun hjartasjúklinga
sem á annað borð eiga ein-
hveija batavon,“ segja læknar.
lieknamir telja að ef ekkert
kemur upp á verði dælan sett
tímabundið í allt að 150 þúsund
sjúklinga á ári í Bandaríkjun-
um, þar á meðal sjúklinga sem
verða fyrir bráðri hjartabilun
og sjúklinga hvers blóðþrýst-
ingur snögglækkar vegna
taugaáfalls. Hins vegar munu
nokkur ár lfða þar til tilraunum
lýkur og dælan kemst í al-
menna notkun. Hún er einnota
og talin munu kosta um 3.000
dollara, eða jafnvirði 120 þús-
und króna.
Dælunni var fyrst komið fyr-
ir í sjúklingi 26. apríl sl. Þar
var um að ræða 62 ára gamlan
mann frá Colorado. Skipt hafði
verið um hjarta í honum en
hann þjáðist af höfnunarein-
kennum og fullyrða læknar
hans að maðurinn hefði örugg-
lega dáið nokkrum dögum
seinna ef dælan hefði ekki kom-
ið til. Hún var fjarlægð eftir
tvo daga og er sjúklingurinn á
góðum batavegi.
Að sögn lækna mun dælunni
svo til eingöngu verða komið
fyrir í sjúklingum, sem eru
nærri dauða, þ.á m. sjúkling-
um, sem gengist hafa undir
hjartaskurðaðgerð en þola ekki
að verða teknir úr hjarta- og
lungnavél, og sjúklingum sem
verða fyrir hörmulegum aukak-
villum við hjartaþræðingu.Hún
verður einnig notuð við lækn-
ingu bráðrar hjartabilunar.
nýju á stjórnmálasambandi sin
á milli eftir tólf ára ágreining
þjóðanna vegna átaka í Vestur-
Sahara. Talið er að þessi
ákvörðun auki mjög líkur á að
endi verði senn bundinn á eyði-
merkurstríðið.
Stjómarerindrekar sögðu að
ákvörðunin gæti flýtt fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu á vegum Samein-
uðu þjóðanna í Vestur-Sahara, þar
sem hermenn Polisario-hreyfing-
arinnar, studdir af Alsírmönnum,
hafa barist fyrir sjálfstæði við
Marokkómenn sfðan árið 1976.
„Við teljum þetta mikla framför.
Við erum fylgjandi öllu sem gerir
Alsírmönnum og Marokkómönn-
um kleift að gera út um ágreining-
inn og komast að samkomulagi,"
sagði bandarískur sendiráðsmaður
í samtali við fréttamann Reuters.
Marokkómenn riftu stjómmála-
tengslunum f febrúar árið 1976
eftir að Alsírmenn höfðu viður-
kennt Arabíska Sahara-lýðveldið,
sem Polisario-hreyfíngin stofnaði.
Óttast hefur verið að átökin í
Vestur-Sahara myndu breiðast út
um alla norðanverða Afríku. Að
undanfömu hefur bardögunum
hins vegar linnt og ekki hafa bo-
rist fregnir af árásum sfðan í jan-
úar, en það er lengsta hlé sem
verið hefíir síðan átökin hófust.
Sameinuðu þjóðimar hafa beitt sér
í vaxandi mæli fyrir varanlegum
friði á svæðinu og stríðsaðiljamir
virðast sáttir við að leggja niður
vopn. „Það að stjómmálasamband
hefur verið tekið upp að nýju hlýt-
ur að þýða að þessi viðleitni Sam-
einuðu þjóðanna er farin að bera
árangur," sagði sérfræðingur í
málefnum Norður-Afríku.
Reuter
Bensínsprengjum varpaðíSeoul
Óeirðir bmtust út í að minnsta kosti tveimur borgum í Suður-Kóreu
f gær er þess var minnst að átta ár em liðin frá blóðugri uppreisn
stjómarandstæðinga í borginni Kwangju í suðvesturhluta landsins.
Námsmenn komu saman við ekki færri en átta háskóla í höfuðborg-
inni, Seoul, til að mótmæla stefnu stjómvalda og var Roh-tae woo,
forseti landsins, fordæmdur með öllu en hann var einn þeirra sem
stjómuðu aðgerðum hersins í Kwangju árið 1980. Við rfkisháskólann
í borginni bmtust út miklar óeirðir er sveitir óeirðalögreglu hugðust
dreifa mannfjölda, sem þar hafði safnast saman. Námsmenn vom
margir hveijir vopnaðir bensínsprengjum og beittu þeim óspart gegn
lögreglusveitunum sem svömðu með táragassprengjum.
HÉR ER LAUSNIN
HP LaserJet II gengur nú beint við IBM 36/38
HHOZ5KHZ
Fyrirfer iarlítill
I / Hentar fyrir Ritvanfi 36
/~v11 'X_X-_/ / */ O
Auðveldur í
uppsetrjingu
Gott verð ★ Aukin afköst ★ Fleiri leturgerðir ★ Gengur jafnframt við PC tölvur
★ Lausnin sem IBM 36/38 notendur hafa beðið eftir
Söluaðilar:
GISLI J. JOHNSEN SF.
n
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
NYBYLAVEGI 16 • P.O. BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SIMI 641222
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100
Okkar þekking í þína þágu