Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
Einræði í SÍNE
eftir Sólveigu
Hreiðarsdóttur
í Morgunblaðinu þann 11. maí
birtist yfirlýsing frá meirihluta
stjómar SÍNE, þar sem haldið var
fram að í ályktun vorfundar New
York-deildar SÍNE væru „ósannar
og illa rökstuddar fullyrðingar", að
auki hefðu komið fram mótmæli
nokkurra námsmanna frá New
York gegn ályktuninni og gæti
stjómin því á engan hátt skilið
ályktunina sem vilja deildarinnar.
Miðað við vinnubrögð meirihluta
stjómarinnar í vetur kemur þessi
yfirlýsing ekki á óvart, en ég vil
leiðrétta framkominn misskilning
meirihluta stjómar SÍNE.
Ályktun löglegs aðalfundar
Meirihluti stjómar SÍNE býsnast
yfir því að einungis átta manns
hafí mætt á vorfund New York-
deildarinnar af 70 félagsmönnum,
en á það má benda að á sumarráð-
stefnu SÍNE 1987 mættu 20 manns
af 2.500 félagsmönnum.
Áðumefndur vorfundur í New
York var löglega boðaður með viku
fyrirvara og var öllum félags-
mönnum sent eintak af fréttabréf-
inu þar sem fundurinn var boðaður
og dagskrá tilkynnt, ásamt öðmm
nytsamlegum upplýsingum. Allir
hafa því átt að vita af fundinum
og hefðu getað mætt, ef áhugi hefði
verið fyrir hendi. En það er nú einu
sinni þannig að partýin em alltaf
vinsælli en fundimir. Mæting á
fundinn var svipuð og verið hefur.
Á fundinum var borin fram álykt-
un undir liðnum „önnur mál“. í
ályktuninni var stuðningsyfirlýsing
við Svanhildi Bogadóttur varafor-
mann SÍNE vegna árása á störf
hennar í síðasta tölublaði Sæmund-
ar. Ennfremur var lýst yfír óánægju
með starfshætti Kristjáns Ara Ara-
sonar formanns SÍNE og lagt til
að hann segði af sér trúnaðarstörf-
um í þágu félagsins. Félagsmönnum
vom kynntir málavextir og í fram-
haldi af því var ályktunin sam-
þykkt einróma.
Stjómarmönnum var falið f.h.
deildarinnar að undirrita ályktunina
og koma henni til stjómar SÍNE
og fiölmiðla á íslandi. Það er undar-
„Meirihluti stjórnar
SÍNE bregst við álykt-
un New York-deildar-
innar á sama hátt og
samþykkt sumarráð-
stefnu um aukakosn-
ingar, vilji félagsmanna
er í annað sinn virtur
að vettugi og lög fé-
lagsins brotin. Starfs-
hættir meirihluta
stjórnar eru sambæri-
legir við starfshætti í
einræðisríkjum þar sem
engum leyfist gagn-
* • /i
rym.
legt að meirihluti stjómar SÍNE
skuli eigna stjómarmönnum deild-
arinnar ályktunina en ekki félags-
mönnum öllum. Það er viðtekin
venja að kosnir fulltrúar félags
undirriti fyrir hönd þess. Rétt eins
Sólveig Hreiðarsdóttir
og Gunnlaugur Júlíusson undirrit-
aði yfírlýsingu meirihluta stjómar
SÍNE fyrir hönd stjómarmanna, þá
undirrituðum við ályktunina fyrir
hönd New York-deildar SÍNE.
Stjóm SÍNE ásakar okkur um að
hafa staðið ein að ályktuninni, þar
sem við undirrituðum hana. Á móti
má spyija hvort Gunnlaugur Júlíus-
son hafí einn staðið að yfírlýsing-
unni sem birtist í Morgunblaðinu
og hvort allir stjómarmenn hafi
verið sammála um yfirlýsinguna,
eða var hún álit Gunnlaugs eins?
Lög svívirt
Það er orðin hefð meirihluta
stjómar SÍNE að svívirða lög fé-
lagsins. Frægt er orðið að meirihlut-
inn ákvað að virða að vettugi sam-
þykkt sumarráðstefnu 1987 um að
aukakosningar skyldu fara fram
strax að hausti, á þeirri forsendu
að þær væru „óþarfar" og „kostn-
aðarsamar". Samt sem áður segir
Gunnlaugur Júlíusson í yfírlýsing-
unni í Morgunblaðinu að sumarráð-
stefna félagsins sé aðalfundur þess
og mun það líklegast einsdæmi að
stjóm sem var dæmd ólögleg á
sumarráðstefnu skyldi telja sig hafa
vald til að vísa á bug samþykkt
félagsmanna.
í annað sinn er meirihluti stjóm-
ar SÍNE uppvís að því að svívirða
lög félagsins. Meirihluti stjómar
SINE leyfír sér að halda því fram
að hann geti ekki tekið ályktun
vorfundar New York-deildarinnar
sem vantraustsyfírlýsingu, þar sem
mótmæli bámst frá nokkmm náms-
mönnum í New York, sem ekki sáu
sér fært að vera á fundinum. í 20.
gr. laga SÍNE stendur skýrt að
vorfundir deilda séu aðalfundir fé-
lagsins (Gunnlaugur Júlíusson ætti
að athuga það) og er hlutverk fund-
anna m.a. að afgreiða ályktanir.
Þess vegna stendur ályktunin full-
gild og ber stjóm félagsins tafar-
laust að taka hana til meðferðar.
Meirihluti stjómar SÍNE bregst
við ályktun New York-deildarinnar
á sama hátt og samþykkt sumar-
ráðstefnu um aukakosningar, vilji
félagsmanna er í annað sinn virtur
að vettugi og lög félagsins brotin.
Starfshættir meirihluta stjómar em
sambærilegir við starfshætti í ein-
ræðisríkjum þar sem engum leyfíst
gagnrýni. Það er ótrúleg sjálfs-
blekking af meirihluta stjómar að
halda það að þau kæmust upp með
svona ólýðræðisleg og subbuleg
vinnubrögð til lengdar.
Rökleysa hvers?
Gunnlaugur Júlíusson segir í yfír-
lýsingunni að ályktun New York-
deildarinnar sé ósönn og ekki byggð
á rökum. Hvers vegna hrekur hann
þá ekki orð okkar? Því er auðsvar-
að. Allt sem fram kemur í ályktun-
inni er sannleikur og byggður á
föstunr rökum.
Vilji sumarráðstefnunnar var
hunsaður og engar aukakosningar
fóm fram. SÍNE keypti hlutabréf
upp á kr. 30.000 í RÓT, útvarpi
„Ripples
from Ice-
land“ end-
urútgefin
NÝ ÚTGÁFA af bók Amaliu
Líndal, Ripples from Iceland,
kemur út hjá Bókaforlagi Odds
Björnssonar þann 19. maí nk.
Þessi nýja útgáfa er í kiljuformi
og fyrst og fremst ætluð erlend-
um ferðamönnum.
Amalia Lindal er fædd og uppal-
in í Bandaríkjunum. Hún kynntist
íslenskum námsmanni sem var
samtíma henni við háskólanám í
Boston, giftist honum og þau stofn-
uðu heimili í Kópavogi 1949. í bók-
inni er bmgðið upp mynd af íslandi
og íslendingum, eins og þeir komu
hinni bandarísku konu fyrir sjónir
eftir 12 ára viðkynningu, en bókin
kom fyrst út í New York 19. maí
1962. Hún vakti þegar mikla at-
hygli og seldist fljótlega upp og
hefur verið ófáanleg þar til nú, að
hún kemur í þessari nýju útgáfu.
Höfundurinn lýsir fyrst tildrög-
um þess að hún fluttist til íslands,
síðan komunni hingað, staðháttum
og fólki, veðurfari, lifnaðarháttum,
siðum og ósiðum.
Amalia Líndal fluttist aftur vest-
ur um haf árið 1972 og er nú bú-
sett í Toronto í Kanada. Hún hefur
oft heimsótt ísland síðan, og í loka-
kafla þessarar nýju útgáfu greinir
hún frá þeim stórfelldu breytingum
sem orðið hafa á högum íslendinga
eftir að bókin var upphaflega samin.
Listakonan Halldóra Gísladóttir,
sem er tengdadóttir Amaliu Líndal,
hefur teiknað bókarkápuna.
(Úr fréttatilkynningu)
KVADRAT
E L ÐHÚS
Á meðan birgðir endast Kr.122.925.-
I Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Sími 686650
I_________________________________________________________________________________________________________