Morgunblaðið - 18.05.1988, Side 45
45
félagshyggjumanna, án þess að
kaupin væru borin undir félags-
menn. Styrktarlína frá SÍNE var
birt í kosningablaði Röskvu, sam-
tökum félagshyggjufólks í Háskóla
íslands, en ekki í kosningablaði
Vöku, f.l.s. Með þessu var SÍNE
að taka afstöðu í kosningabarátt-
unni í Háskóla íslands. SÍNE tók
þátt í að styrkja ferðir í kvikmynda-
hús án þess að það væri borið und-
ir stjómina.
Kristján Ari Arason hefur þegið
laun sem nema um kr. 100.000. á
mánuði. Undirrituð reyndi árang-
urslaust í heila þijá mánuði að ná
í Kristján Ara Arason símleiðis,
bæði á auglýstum símatíma og utan
hans. Fjárhagur New York-deildar-
innar var kominn í óefni og þurfti
undirrituð og meðstjómendur að
gefa út fréttabréf á eigin kostnað,
svo starfsemi deildarinnar lægi ekki
niðri. Er til of mikils ætlast af
Kristjáni Ara Arasyni, að hann sé
við a.m.k. þá tvo klukkutíma á dag
sem auglýstir eru sem símatímar
SÍNE?
Kristján Ari Arason fékk greidda
dagpeninga í níu daga ferðalagi
hans erlendis. Greiðsla á dagpen-
ingum var aldrei borin undir stjóm.
Aldrei höfum við fengið að vita í
hvaða tilgangi ferðin var farin og
þá hver niðurstaða hennar hafi ver-
ið. Ef hún var svo tilgangslaus að
Kristjáni Ara Arasyni telji sig ekki
þurfa að segja frá henni, þá má
hann allavega geta þess, svo þessi
mistök endurtaki sig ekki.
Samkvæmt lögum SÍNE skal
vorfundur kjósa endurskoðendur.
Ekki var okkur gefinn kostur á
því, þannig að við förum fram á
að fá óháða löggilta endurskoðend-
ur til að yfirfara fjárreiður félags-
ins. Hingað til hafa vinir og kunn-
ingjar stjómarmanna verið valdir
sem endurskoðendur. Hefur það
ekki skipt máli þó viðkomandi hafi
enga þekkingu á bókhaldi eða árs-
reikningum, undirritun hefur verið
talin nægja. Þess má geta að árs-
reikningar fyrir starfsárið
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
1986—’87 hafa enn ekki verið end-
urskoðaðir, þó svo að þeir hafi ver-
ið samþykktir á sumarráðstefnunni
í ágúst 1987 með þeim fyrirvara
að þeir yrðu endurskoðaðir. Þetta
sýnir að engin virðing er borin fyr-
ir ársreikningum félagsins og viljum
við víta þetta og skorum á stjómina
að útvega löggilta endurskoðendur.
Einnig skorum við á Kristján Ara
Arason að sundurliða launagreiðsl-
ur sínar og leggja fram á sumarráð-
stefnu. Eflaust verður það Kristján
Ara ljúft má.
Kristján Ari Arason hefur mis-
notað Sæmund með ótrúlegum
áróðri og lygum á hendur Svanhildi
Bogadóttur og meintum hópi í
kringum hana og síðast en ekki
síst hefur hann verið með róg og
ósvífni við 5_af 11 frambjóðendum
til stjómar SÍNE fyrir næsta starfs-
ár. af nógu er að taka í t.d. -2. tbl.
Sæmundar, 7. árgangi 1988, þar
segir m.a. um fimmmenningana að
þeir hafi unnið „níðingsverk“ með
framkomu sinni og hvetur hann þau
jafnframt til að draga framboð sín
til baka. Mannfyrirlitning skín úr
skrifum Kristjáns Ara Arasonar og
er honum best borgið í félagi þar
sem allir em honum sammála!
Eíðlileg niðurstaða okkar er að
krefjast afsagnar Kristjáns Ara
Arasonar, hann nýtur ekki trausts
okkar til að gegna áfram störfum
í þágu félagsins.
Orð Kristjáns Ara
Það kemur úr hörðustu átt að
meirirhluti stjómar SÍNE skuli vera
að tala um aðferðir sem „ekki eru
til þess fallnar að efla samstöðu
SÍNE-félaga“. Telja þau að fram-
koma þeirra við félagsmenn efli
samstöðuna? Er það vænlegt til
samstöðu að hunsa vilja félags-
manna og brjóta lög félagsins? Æ
ofan í æ hafa þau komið fram af
þvílíkum þóttaskap við félagsmenn
að einstakt er.
Mál er að einræði þeirra linni,
og búi Kristján Ari Arason yfir ein-
hverri sómatilfinningu þá segir
hann af sér. Stjómarseta hans er
honum til hneisu og SÍNE til van-
virðu, svo ég noti hans eigin orð
um frambjóðenduma fimm, eins og
þau birtust f leiðara Sæmundar,
síðasta blaði fyrir kosningar.
Höfundur er hagfræðinemi og
fyrrverandi trúnaðarmaður New
York-deildar SÍNE.
SÍNE-deildin í íþöku
styður Svanhildi
Á fundi SÍNE-deildarinnar í
•íþöku í New York-fylki í Banda-
ríkjunum var eftirfarandi ályktun
samþykkt heilshugar:
SINE-deildin í Ithaca lýsir yfír
eindregnum stuðingi við Svanhildi
Bogadóttur, varaformann SÍNE og
aðalfulltrúa SÍNE í stjóm LÍN.
Svanhildur nýtur fyllsta trausts
okkar til að vinna áfram að fram-
gangi málefna námsmanna. í störf-
um sínum hefur hún sýnt ósérhlífni
og atorkusemi og sett hagsmuni
námsmanna ofar öðm. Félagsmenn
harma þær ódrengilegu aðfarir sem
gerðar hafa verið að Svanhildi að
ósekju, m.a. í síðasta tölublaði „mál-
gagns" SÍNE, Sæmundi. Hvetjum
við meirihlutann í stjóm SÍNE til
lýðræðslegra vinnubragða fram-
vegis.
SÍNE-deildin í Ithaca i
New York.
Ingibjörg Harðardóttir
(sign.), trúnaðarmaður.
Blaðbaar
óskast
Símar 35408 og 83033
UTHVERFI
Síðumúli o.fl.
Heiðagerði
Álfheimar 3-30
AUSTURBÆR
Barónsstígur
Stórholt
Stangarholt
VESTURBÆR
Tjarnargata 39 og uppúr
o.fl.
Khakijakkaföt
Gal/afatnaður og bolir
Meiriháttar úrval
Láttu eftir þér að líta inn.
urcMeri
Laugavegi 45 - Sími 11388