Morgunblaðið - 18.05.1988, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
- >
53
Minning:
Skafti Jakobsson
frá Skagaströnd
Minning:
Jónas Gunnars-
son kaupmaður
Fæddur 24. desember 1924
Dáinn 8. maí 1988
í dag verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju Jónas Gunnarsson,
kaupmaður. Hann var fæddur á
Helluvaði í Rangárvallasýslu 24.
desember 1924. Sonur hjónanna
Gunnars Erlendssonar, bónda þar
og konu hans Kristínar Kristjáns-
sonar.
Snemma urðu verslunarstörf við-
fangsefni hans, og varð svo alla
tíð. Þegar hann var 13 ára gamall
réðist hann til starfa hjá Kaup-
félaginu Þór á Hellu, sem þá var
stýrt af skörungnum Ingólfí Jóns-
sjmi, síðar ráðherra. Þar var Jónas
þar til hann fór í Verzlunarskólann,
en einnig í sumarleyfum á skólaár-
unum. Arið 1946 lýkur hann burt-
fararprófí frá Verslunarskóla ís-
lands og fljótlega þar á eftir liggur
leiðin til starfa hjá versluninni Síld
og fiski.
Hjá Þorvaldi Guðmundssyni,
þeim alkunna athafnamanni, vann
Jónas í um það bil 9 ár og naut
þá heilladijúgra leiðbeininga vinnu-
veitandans, sem hann dáði mjög.
Þama meðal vinnufélaganna eign-
aðist hann lífstíðarvini og síðast en
ekki sist, þama hitti hann stúlkuna,
sem síðar varð eiginkona hans.
Jónas og Sigríður Rakel Þórar-
insdóttir gengu í heilagt hjónaband
9. júní 1951. Hamingja Jónasar var
mikil því eftirlifandi kona hans er
einstaklega ljúf og elskuleg dugn-
aðarkona sem alla tíð var manni
sínum stoð og stytta. Þau eignuð-
ust §óra syni þá: Þórhall, verk-
smiðjustjóra hjá Síldarverksmiðjum
ríkisins, Gunnar, kaupmann, Berg-
þór, húsasmið og Kristján, kaup-
mann.
Þeir þrír fyrsttöldu em kvæntir
og bamabömin em orðin 6 að tölu.
Allt er þetta mikilhæft dugnaðar-
fólk.
Jónas stofnaði eigin verslun,
Kjötborg árið 1956 og var áhuga-
samur og duglegur kaupmaður, en
fljótlega urðu verslanimar tvær í
borginni með þessu efíii, síðar ein
en aftur tvær nú síðustu árin.
Allan tímann naut Jónas aðstoð-
ar hinnar ósérhlífnu eiginkonu
sinnar en hin seinni ár einnig son-
anna Gunnars og Kristjáns sem
helguðu sig verslunarstörfum. Jón-
as var vel metinn og vinsæll kaup-
maður.
Hann var afar félagslyndur að
eðlisfari og hvarvetna eftirsóttur
liðsmaður.
Jónas var ræðumaður góður og
var honum einkar létt að standa
upp og tjá skoðanir sínar í rökföstu
máli sem oft var kryddað með-
fæddri gamansemi og glettni, enda
hlóðust að honum trúnaðarstörf
fyrir félaga sína.
Hann var félagsmaður í
frímúrarareglunni um árabil, og
þótti það mikið gæfuspor er hann
gekk þar inn. Fölskvalaus tiltrú
hans og tryggð við þann félagsskap
verður ekki véfengd.
Jónas var félagi í Kaupmanna-
samtökum íslands og gegndi þar
margháttuðum trúnaðarstörfum
ámm saman. Hann var formaður
Félags lq'ötverslana á árunum
1964—1965, í mörg ár í stjóm Fé-
lags matvörukaupmanna, og þar
af formaður þess félags frá 1977—
1981.
Hann var í stjóm K-samtakanna
og sem formaður 1983—1987.
Þessi upptalning er einungis sýn-
ishom eða brot af þeim Qölmörgu
trúnaðarstörfum sem hann gegndi
fyrir kaupmenn. Sem þakklætisvott
sýndu Kaupmannasamtökin honum
þá virðingu að sæma hann gull-
merki samtakanna árið 1984.
Eru nú að leiðarlokum áréttaðar
þakkir KÍ fyrir fómfús félagsstörf.
Jónas var hluthafi í heildverslun-
inni Matkaup hf. og sat í stjóm
félagsins frá árinu 1982 og til
dauðadags, hann var stjómarfor-
maður 1985—1986, fyrir hönd
stjómarinnar skulu honum hér
þökkuð vel unnin störf.
Við erum margir sem nú horfum
hryggum huga til horfíns dánu-
manns. Við felum himnaföðumum
bænir vorar um leiðsögn á ókunnum
leiðum.
Sannur félagi er allur, en minn-
ingin lifir. Um leið og við þökkum
samfylgdina, sendum við ástvinum
hans öllum dýpstu samúðarkveðjur
og biðjum hinn hæsta höfuðsmið
himins og jarðar að veita þeim styrk
f sorg sinni.
Hreinn Sumarliðason,
kaupmaður.
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast tengdaföður okkar Jón-
asar Gunnarssonar sem lést á
Vífilsstaðaspítala 8. maí sl. eftir
langvarandi veikindi.
Jónas var sterkur persónuleiki,
vel lesinn, glaðlyndur og hafði gam-
an af að segja sögur. Þegar við
hugsum til hans koma fjölmargar
minningar fram í hugann t.d. þegar
fyrstu fundum bar saman og allra
glettnisorðanna sem fylgdu í kjöl-
farið. Seinna fundum við að undir
glaðlegu yfirborði sló hlýtt hjarta.
Þetta fundum við ekki hvað síst
þegar bamabömin uxu úr grasi,
því Jónas heitinn var sérlega bam-
góður maður og aldrei gleymdi
hann bömunum. Þeir em ófáir pok-
amir sem komu upp úr vasa afa
þegar hann kom heim úr vinnunni
og alltaf var jafn spennandi að
koma í afabúð.
Þrátt fyrir að hann bæri sig vel
duldist engum að síðustu árin var
hann töluvert veikur, ferðir hans á
Vífilsstaði urðu æ tíðari og í janúar-
byijun fór hann sína síðustu ferð
þangað. Samt sem áður reyndi hann
ætíð að slá á létta strengi og sýn-
ast hress og kátur.
Ekki er hægt að minnast
tengdapabba án þess að hugsa um
leið til tengdamömmu sem alla tíð
stóð við hlið hans eins og klettur
og fór á hveijum einasta degi að
Vífilsstöðum til að stytta honum
stundimar.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund viljum við þakka Jónasi fyrir
allar ánægjulegu samvemstundim-
ar og biðjum Guð að blessa minn-
ingu hans.
Tengdadætur
Jónas Gunnarsson kaupmaður
var glöggur maður og góðviljaður.
Nágrönnum hans á Sólvöllum varð
það ljóst þá er hann hóf verslunar-
rekstur á grónum stað, að hann
vildi eigi aðeins fylgja gömlum og
góðum siðum heldur einnig ryðja
braut nýjum verslunarháttum og
treysta . jafnframt stöðu „kaup-
mannsins á hominu", en það sæmd-
arheiti vildi Jónas umfram allt bera
í stétt sinni. Verslun Jónasar á homi
Ásvallagötu og Blómvallagötu
minnti um margt á búðir fyrri daga,
fyrir sérhæfingu og sundurgerð.
Þar var fjölbreytt vömval. Þangað
sótti fjöldi fólks á ýmsum aldri.
Starfsfólkið var geðprútt og við-
mótsþýtt. Kaupmaðurinn sjálfur
var fyrirmyndin. í búð hans átti
margur minnisstæða og góða morg-
unstund. Menn skiptust á glettum
og gamanyrðum. Sendu skeyti sín
á milli, meðan beðið var afgreiðslu
og spáð og spjallað um lífið og til-
vemna.
Það var snemma ljóst að Jónasi
og fólki hans var umhugað um hag
og heill viðskiptamanna. Grannar
hans margir, aldraðir og ellihmmir,
áttu erfitt að fóta sig á flughálum
stéttum vetrarbrautanna. Af hag-
kvæmni sinni gekkst Jónas fyrir
því að setja upp handrið við tröppur
verslunar sinnar og veita með því
stoð og styttu einkum þeim er
komnir vom til ára sinna og gerð-
ust göngumóðir.
Þeim sem kynntust Jónasi og
viðhorfi hans vissu að honum var
það eigi síður hugstætt að hlynna
að þeim sem gengu úr búð hans
með léttan mal og lítinn skjatta en
hinum sem stórtækari vom og áttu
alls kostar.
Eiginkonu Jónasar, Sigríði, son-
um hans Gunnari og Kristjáni, sem
með honum störfuðu, og þeim öðr-
um er studdu hann drengilega í
hvívetna em sendar samúðarkveðj-
ur.
Pétur Pétursson þulur
Fæddur 12. október 1917
Dáinn 30. apríl 1988
Vinur okkar Skafti Jakobsson frá
Skagaströnd er látinn. Hann lést á
heimili sínu í Dalekvam í Noregi
þann 30. apríl.
Skafti fæddist 12. október 1917
á Blálandi í Hallárdal, Austur-
Húnavatnssýslu. Foreldrar hans
vom Jakob Guðmundsson og Þórdís
Jósefsdóttir Stiesen. Skafti var
yngstur í stómm systkinahópi. Þeg-
ar hann var 3ja ára fluttu foreldrar
hans frá Blálandi til Skagastrand-
ar. Þar bjuggu þau til efri ára og
stundaði Jakob þar alla vinnu sem
bauðst, bæði til sjós og lands.
Kynni okkar Skafta hófust þegar
við vomm fímm ára. Móðir mín var
berklaveik og var flutt suður á
Vífilsstaðaspítala. Þá kom systir
Skafta, Steinunn, þá um tvítugt, inn
á heimili okkar. Hafði hún Skafta
með sér og með okkur tókst sú vin-
átta sem hélst alla tíð. Steinunn sá
um heimilið í ár og var bæði mér
og Skafta sem besta móðir. Tvö
sumur dvaldi Skafti hjá okkur eftir
þetta. Árið sem Skafti fermdist
missti hann föður sinn, og eftir það
kom hann aðeins sem gestur til
Skagastrandar. Skafti dvaldi nokk-
ur sumur í Vatnsdal, en á vetmm
var hann á vertíð í Höfnum og
Vestmannaeyjum.
Þegar Skafti var um þrítugt fór
hann til Noregs, að heimsækja syst-
ur sína. Noregsferðin varð lengri
en ætlað var, því þar hitti Skafti
konuefnið sitt. Eiginkona Skafta
er Anna Jakobsson. Þau bjuggu
allan sinn búskap í Dalekvam. Böm
þeirra em tvö, Björg, sem er gift
og búsett í Dalekvam og á hún 3
dætur. Skafti var ákaflega bam-
góður og sá ekki sólina fyrir litlu
stúlkunum. Gunnar, sonur Skafta,
er ógiftur og starfar hjá Norsku
jámbrautunum.
Anna var alla tíð stoð og stytta
eiginmanns síns. Hún var honum
einstök í öllum hans erfiðleikum og
veikindastríði. Systur Skafta, þær
Alla og Sigga, komu mikið á heim-
ili þeirra hjóna, enda miklir kærleik-
ar með þeim systkinum.
Skafti starfaði alla tíð í Dale-
verksmiðjunum, síðustu árin sem
vaktmaður. Hann lét af störfum
fyrir nokkmm ámm vegna heilsu-
brests.
Öll árin höfum við haldið sam-
bandi, bæði með heimsóknum,
bréfaskriftum og símtölum. Við
hjónin fómm margar ferðir til Nor-
egs og dvöldum hjá Skafta og fjöl-
skyldu hans. Anna var alltaf boðin
og búin að taka á móti vinum
Skafta. Eftir allar heimsóknimar
er Anna farin að skilja fslenskuna
bara vel. Skafti og Anna komu líka
til íslands nokkrar ferðir. í sfðustu
íslandsferðinni kom Skafti einn. Þá
var hann orðinn illa haldinn af þeim
sjúkdómi sem lagði hann að velli.
Innra með okkur vissum við að
þetta var síðasta heimsóknin hans,
og að hann væri hér til að kveðja.
Á þessari kveðjustund minnist
ég þess er við Skafti vomm dreng-
ir að við sungum stundum saman
ljóð. Var ljóðið „Lækurinn" eftir
Gísla Ólafsson okkur hugleikið og
vildi ég gjaman kveðja hann með
einni vísu úr þessu ljóði.
Nú er ekkert eins og fyr,
á öllu sé ég muninn.
Liggja týndir leggimir,
og litli bærinn hruninn.
(G.Ó.)
Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Önnu og bama
þeirra og bamabama. Og til systr-
anna Öllu og Siggu og til Ágústs
bróður Skafta svo og öllum vinum
og vandamönnum.
Ólafur Ásgeirsson, Ásta
Strandberg og fjölskylda.
Meðfæríleg
og öflug
rafsuðutæki
Power Inverter 250 og 315 eru afar öflug, jafn-
straums-rafsuöutæki til pinna- og tig-suöu.
Power Inverter rafsuöutækin eru 3ja fasa, 380
volt og vega aöeins um 28 kg. Þau eru miklu
meöfærilegri en eldri tæki af sama styrkleika.
Haföu samband viö sölpmenn okkar sem veita
allar nánari upplýsingar.
címy h \
pinnasuöa
tig-suöa
HEÐINN
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
ESAB
Lokað
Vegna jarðarfarar JÓNASAR GUNNARSSONAR
kaupmanns verða skrifstofur okkar og vörugeymsla
lokuð frá kl. 14.30 í dag.
Matkaup hf.