Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 58

Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 58
58 MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 H Bg á. ekiö von ci, þui céþú jnunir efiir mer, tiaa£> ? " * Ast er________ c? £> X? H- V\ byggð á eigin hugmynd- um. TM Reg. U.S. Pat. Off — all rights reserved © 1986 Los Angeles Times Syndicate Gerið þið ykkur grein fyr- ir að ég er með öllu ósynd- ur? HÖGNI HREKKVlSI Fyrirspurn um barnabætur Til Velvakanda. Mig langar til að koma með fyrir- spum varðandi _ bamabætur og bamabótaauka. Ég hef hringt bæði til skattstofunnar, ríkisskattstjóra svo og í ríkisbókhald en ekki fengið nægilega góð svör. Það segja allir sitt á hvað. Þegar staðgreiðsla skatta kom til sögunnar var talað um að borga fyrstu greiðslu 1. janúar en það dróst til 1. febrúar, sem var í lagi í sjálfum sér. Mér hefur skilist að bamabætumar munu greiðast á þriggja mánuða fresti, í fyrsta skipti 1. janúar og þá fyrir janúar, febrú- ar og mars. Síðan 1. apríl fyrir apríl, maí og júní o. s. ffv., en önn- ur greiðslan komi ekki fyrr en 1. maí. Og þá kemur síðasta greiðslan á næsta ári, sem sé fjórða greiðsl- an. Eftir að staðgreiðslan kom hélt ég að ijármálaráðuneytið mundi skila af sér greiðslum á árinu 1988 eins og við eigum að gera með skattana okkar. Hvers vegna er það ekki gert? Hanna Sigurðardóttir Afnennð vísitölubind- ingu húsnæðislána Til Velvakanda. Þegar þessi ríkistjóm tók við höfðu allir flokkamir sem að henni standa lofað að koma á móts við húsbyggendur og íbúðakaupendur en ekki hefur verið staðið við þau loforð. Lánskjaravísitalan hækkar stöðugt í stórum stökkum og þar með afborganir af lánum sem tekin hafa verið til íbúðakaupa. Ég tel að óskynsamlegt hafi verið að hafa þessi lán verðtryggð, þetta kerfi Ieiðir aðeins til þess að menn geta ekki staðið í skilum. Mikill hávaði var gerður vegna kaupleiguíbúða og þóttust Alþýðu- fokksmenn miklir að koma því fmmvarpi í gegn. En þessi leið nýtist ekki nema fáum, hinir sem byggt hafa eða keypt á almennum markaði verða að borga af lánum sem margfaldast með verðbólgunni og ekkert hefur verið komið á móts við þá. Það hlýtur þó að vera hag- kvæmst fyrir stjómvöld að menn reyni að bjarga sér sjálfir og koma sér upp eigin húsnæði. Ég vona hins vegar enn að þeir sem halda um stjómartaumana muni úthugsa einhveijar aðgerðir þeim til bjargar sem komnir em í þrot við að greiða af lánum vegna íbúðarkaupa. Ég er ekki að fara framá að staðið verði við kosningaloforðin heldur aðeins minniháttar aðgerðir, t.d. að afnema vísitölubindingu þessara lána að hluta. Húsbyggjandi Hlutf öll og prósentur Ágæti Velvakandi. Ég vil gjarnan láta í ljós þakk- læti til Kristins Péturssonar fyrir grein hans í Mbl. hinn 7. 5. sl. Hins vegar er vert að vekja athygli á misskilningi eða prentvillum, sem þar koma fram. Orðrétt segir: „í Þýskalandi em vextir nálægt 6%, hér á landi em þeir 30%, mismunurinn er 5-faldur eða 500%!“ Mismunurinn á tölunum 6 og 30 er 400% en ekki 500%. Þetta er líklega auðveldast að skilja með því að athuga margfeldi af tölunni 6. 12 er 100% hærra en 6. 18 er 200% hærra en 6. 24 er 300% hærra en 6. 30 er 400% hærra en 6. o.s.frv. Á sama hátt er talan 25 ekki 2.500% hærri en talan 1, eins og segir í greininni, heldur 2.400% hærri. Skolli Yikverji skrifar Víkveiji sem nú situr og skrifar á skjá er einn þeirra Reyk- víkinga, sem hefur verið heimilis- sfmalaus í um það bil viku vegna þess að ekki hefur verið hægt að gera við jarðstreng, sem er bilaður í um 100 metra fjarlægð frá höfuð- stöðvum Pósts og síma við Austur- völl. í Morgunblaðinu hefur komið fram, að starfsmenn þeirrar deildar hinnar miklu símastofnunar er gera við jarðstrengi vilja ekki vinna yfir- vinnu í neyðartilvikum, af því að þeir hafa fengið tilmæli um að minnka eftirvinnu. Þá voru þeir einnig veikir á föstudaginn, þannig að frá miðvikudegi fram á mánudag var ekkert aðhafst við hinn bilaða jarðstreng. Eftir því sem Víkveiji best veit mega nú fleiri en starfsmenn Pósts og síma vinna við símakerfi og setja upp símstöðvar til dæmis í fyrir- tækjum. Þá knúði samkeppni í sölu símatækja Póst og síma til að lækka verð á viðtækjum eftir að opinber gjöld á þeim Iækkuðu. Hvers vegna mega ekki aðrir en starfs.menn Pósts og síma gera við bilaða jarð- strengi? XXX Fyrir skömmu varð Víkveiji fyr- ir því að jarðstrengur Raf- magnsveitu Reykjavíkur bilaði skammt frá húsi hans. Var brugð- ist hart við af hálfu rafveitunnar; gert var við strenginn til bráða- birgða að morgni laugardags og síðan lokið við verkið strax eftir helgina. Var auðvelt að fá svör við því, hvað um var að vera. Þegar Víkveiji hringdi í 05 og spurði um bilunina á símanum, var honum svarað á þann veg, að það hljóp í skapið á honum. Fékk hann meðal annars fyrirlestur um, að þeir sem gera við jarðstrengi væru ekki of- sælir af launum sínum og síst væri þörf á að banna þeim að vinna yfir- vinnu. Á föstudagskvöldið var Víkveiji síðan upplýstur um það, að 800 símanúmer væru í lama- sessi í höfuðborginni, eins og það væri einhver huggun fyrir hann, að fleiri ættu við sama vanda að etja vegna þess að starfsmenn Pósts og síma sinntu ekki skyldum sínum. Afnotagjöldin eru vafalaust mið- uð við að Póstur og sími geti veitt jafn sjálfsagða þjónustu og þá, að sjá til þess að skjótt sé brugðist við, þegar sími verður sambands- laus. Því fleiri notendur, sem verða fyrir óþægindum vegna sömu bilun- arinnar, þeim mun meiri ástæða er til að sýna árvekni og skjót við- brögð. Þá hefði mátt ætla, að stofn- unin veitti þeim sem mega bíða sólarhringum saman eftir að símar þeirra séu endurtengdir þá þjónustu að auglýsa hvaða númer séu sam- bandslaus vegna bilunar. XXX Nýlega fékk Víkveiji glæsilegan bækling í hendur frá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Heitir hann: Sumstarstarf í Reykjavík fyrir börn og unglinga og er fylgt þannig úr hlaði: „Þessu riti sem þú hefur fengið í hendur er dreift til allra bama á grunn- skólaaldri í Reykjavík. Ritinu er ætlað að veita bömum, unglingum og foreldmm sem bestar upplýsing- ar um starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga, æskulýðsfélaga og stofnana sem sinna æskulýðsstarfi yfir sumarið. íþrótta- og tómstundaráð hvetur öll böm og foreldra til að skoða vel það sem boðið er uppá í ritinu og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi.“ Á 26 blaðsíðum er síðan gerð grein fyrir því, hvað borgaryfirvöld og félagasamtök hafa að bjóða yngstu borgarbúuhum í sumar. Kom það Víkverja þægilega á óvart hve fjölbreytt úrvalið er og tekur hann undir hvatningu íþrótta- og tómstundaráðs til bama og foreldra um skoða þetta ágæta rit gaum- gæfilega og nýta sér það, sem þar er boðið. XXX ýtt málblóm, „fjórra" í stað fjögurra, skaut upp kollinum á síðum Morgunblaðsins í gær. Aldrei er nóg að gert til vemdar tungunni!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.