Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
61
Morgunblaðið/BAR
SAABdagar
SAAB umboðið á íslandi, Globus hf, stendur fyrir sérstakri kynn-
ingu á SAAB bilum þessa viku. Tilefnið er, að nú eru komnir
til landsins nýjustu bilar SAAB verksmiðjanna, 9000 CD. Þeir
eru flaggskip SAAB og hafa vakið mikla athygli erlendis. Tæki-
færið var einnig notað til að fá hingað til lands aðra nýja gerð
af SAAB, þar er um að ræða blæjubíl af gerðinni 900 turbo 16.
Hann er fyrsti blæjubíllinn sem Globus flytur inn og að likindum
fyrsti blæjubQlinn sem fluttur er nýr til Iandsins. A SAAB kynn-
ingunni verða til sýnis allar gerðir bíla, sem verksmiðjumar
bjóða upp á og að auki einn öldungur. Það er sjötti SAAB bíllinn
sem fluttur var tíl landsins og er af gerðinni 96 frá árinu 1961.
Á myndinni má sjá blæjubílinn f forgrunni, aftar sést i flaggskip-
ið, 9000 CD. SAAB-dögum lýkur næsta laugardag.
Bíóborgin:
„Veldi sólarinnar“
BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „Veldi sólar-
innar“ (Empire of the Sun). Leik-
stjóri er Steven Spielberg en
handrit gerði Tom Stoppard eft-
ir skáldsögu J.G. Ballards. Með
aðalhlutverk fara Christian Bale,
John Malkovieh og Miaranda Ric-
jardson.
Myndin flallar um dreng sem býr
með foreldrum sínum í útlendinga-
hverfinu í Shanghai við upphaf
seinni heimsstyijaldar, en verður
viðskila við þá og er settur í fanga-
búðir eftir að Japanir gera árás á
Pearl Harbor og undankomuleiðum
útlendinga hefur verið lokað.
INNLENT
Christian Bale í hlutverki Jims f
kvikmyndinni „Veldi sólarinnar"
sem sýnd er f Bfóborginni.
Drengurihn kynnist ýmsu misjöfnu
í fangabúðunum og þegar hann
sleppur út sjá foreldrar hans að
hann er ekki óskaddaður.
(Úr fréttatilkynningn)
Seyðisfjörður:
Dagnr tileinkaður
„Vímulausri æsku“
Morgunblaðið/Magnús Reynir
Hljómsveitin Snóker frá Seyðisfirði.
Seyðisfirði.
í TILEFNI af því að 7. maí er
tileinkaður „vfmulausri æsku“
hjá öllum Lions-klúbbum um all-
an heim, bauð Lions-klúbbur
Seyðisfjarðar öllum nemendum
úr 5. 6. 7. 8. og 9. bekk Grunn-
skóla Seyðisfjarðar til samkomu
í félagsheimilinu Herðubreið
þann dag. Atli Árnason læknir
flutti erindi um fíkniefni, skað-
semi þeirra og þær afleiðingar
sem neysla slíkra efna hefur á
lífshamingju fóks. Síðan svaraði
hann fyrirspurnum frá krökkun-
um um þessi mál, umræðum
stjórnaði Gunnar Sverrisson
iionsmaður. Hljómsveitin Snóker
frá Seyðisfirði flutti frumsamið
lag og texta f tilefni þessarar
samkomu Lionsmanna. Sigrún
Steinarsdóttir nemandi úr 8.
bekk sýndi free-style dans og
Sveinn Valgeirsson lionsmaður
fór með gamanmál, sfðan spilaði
Snóker nokkur danslög fyrir
krakkana. Kynnir og stjóraandi
var Gísli Sigurðsson Lionsmaður.
í fræðsluerindi sínu um fíkniefrii
sagði Atli meðal annars, „ekkert
eitt veldur jaftimörgum sorg og nið-
urlægingu hér á íslandi og flestum
vestrænum löndum eins og fíkniefn-
in. Þið þekkið öll þessi áhrif, ef
ekki heima hjá ykkur sjálfum þá
úr næsta hús eða af götunni þó þið
skiljið ekki enn til fullnustu hversu
slæm þau eru. Fíkniefnin sem hér
um ræðir eru flölmörg, brennivínið
er þó mest notaða fíkniefriið og þar
með það sem veldur mestri óham-
ingju. Hass og ýmis örvandi efni
hafa sótt á nú síðari ár, en tegund-
ir fíkniefna skiptir ekki máli því
lokaniðurstaðan er alltaf sú sama,
óhamingja og vesöld. Það er vitað
mál að minnnsta kosti tveir af hveij-
um tíu lenda í vandamálum og
óhamingju vegna neyslu fíkniefna.
Hvort sem ykkur líkar betur eða
verr þá þurfið þið að velja ykkur
leið á næstu árum. Það verður
þrýstingur frá félögum og umhverfi
með nógu framboði af fíkniefnum
Sem mun hvetja ykkur að láta til
leiðast að prófa. En ég segi; gefið
sjálfum ykkur tækifæri á raun-
verulegu vali, látið ekki tilviljun eða
þrýsting ráða ákvörðun ykkar.
Eyðileggið ekki framtíð ykkar og
hamingju áður en lífið hefst í raun.
Valið ætti að vera auðvelt, líf án
vimuefna er miklu líklegra til að
skila ykkur hamingju og fullnægju
í lifinu. Við ykkur sem þegar eruð
farið að fikta við fíkniefnin snúið
við ef þið getið. Hafið í huga að í
þessu er hver sinnar gæfu smiður.
Ábyrgðin á valinu er ykkar eins er
með afleiðingamar." í lok erindisins
talaði Atli um tóbakið og sagði,
„tóbakið er einnig fíkniefni þó. ekki
hafi verið hægt að tengja það beint
óhamingju fólks. Þá er það oft
fyrsta fíkniefnið sem byijað er að
fikta við og dregur annað á eftir
sér, eftir að leið fíkniefna hefur
verið valin. Alla vega er tóbaks-
laust líf betra líf.“ Að lokum óskaði
hann krökkunum velfamðar f bar-
áttu næstu ára og vonaðist til að
þau fengju að höndla lífshamingj-
una.
Á eftir þessu fræðsluerindi Atla
Amasonar læknis frumflutti hljóm-
sveitin Snóker lagið „ekki“ sem er
eftir tvo meðlimi sveitarinnar, þá
Valdimar Júlíusson og Guðna Sig-
marsson við texta Valdimars. Þetta
lag var samið sérstaklega vegna
þessa tækifæris og tileinkað „vímu-
lausri æsku“. Textinn fjallar um
hversvegna ekki eigi að nota fíkni-
efni og er svohljóðandi.
Þegar þú byijar að reykja og drekka
þú byijar að Ijúga að sjálfum þér og blekkja
ég segi þér satt því ég tala af reynslu
kvöl og pína fylgir slíkri neyslu.
Já, vímuefnin ná taki á þér um síðir,
ég ráðlegg þér, á reynda menn þú hlýðir
því þegar þeir segja „ekki taka inn“
sannleikann þeir segja, vinur minn.
Ekki krakk, lím eða kók
ekki vín, sprautur eða smók
víman allstaðar kringum okkur er
í vímu og dauðans reyk alltaf illa fer.
Þetta byijar létt sprengja hífaður
áður en varir ertu hlekkjaður
þróunin er þú vilt fá að vera einn
og gætir alveg eins verið á Austurveginum
„steinn"
Þú ferð í felur og verður skelkaður
þú veist ekki hvort þú ert lifandi dauður
þú situr einn og horfir á naflann þinh
og biður Pétur um himnalykilinn.
Ekki crak lím eða kók
ekki vín sprautur eða smók
víman allstaðar kringum okkur er
í vímu og dauðans reyk alltaf illa fer
Það eru þeir Valdimar Júlíusson
söngvari, VaJgeir Sveinsson gítar-
leikari, Guðni Sigmarsson bassa-
leikari, Hafþór Jonsson, trommu-
leikari og hljómborðsleikari sem
skipa hljómsveitina Snóker.
- Garðar Rúnar
Sauðárkrókur:
Framkvæmdir við
höfnina á undan áætlun
Morgunblaíið/Bjöm Bjömsson
Séð yfir smábátahöfnina að viðbótinni við hafnargarðinn.
Sauðárkróki.
NÚ STANDA yfir miklar fram-
kvæmdir við Sauðárkrókshöfn.
Veríð er að lengja Norðurgarð-
inn um 60 metra til suðausturs
og er verktaki Króksverk hf.
Verklok eru áætluð fyrír miðj-
anjúní.
í viðtali við Snorra Bjöm Sig-
KOMIN er í verslanir ný jóg-
úrt frá Baulu hf. sem kölluð
er Baulubros.
Hér er um að ræða jógúrt sem
ætlað er að höfða sérstaklega til
þeirra sem ekki vilja ávaxtabita,
tre^ar eða annars konar mola í
jðgúrt eins og annars er algeng-
ast.
urðsson bæjarstjóra kom fram að
búið er að keyra út kjama í leng-
inguna, en í kjamann er notað
grjót sem sprengt er í Hegranesi,
um það bil 10 þúsund tonn. Nú
er hinsvegar verið að þekja kjam-
ann með stórgrýti, sem sótt er út
á Skaga, að Hvalnesi, og em það
Hið nýja Baulubros fæst nú
með tveimur bragðtegundum, þ.e.
með súkkulaði- og jarðarbeija-
bragði og með karamellu- og
hnetubragði. Eftir nokkra daga
er svo von á þriðju tegundinni
með banana- og súkkulaðibragði.
(Fréttatilkynning)
rúmlega 28 þúsund tonn af gijóti
sem áætlað er að þurfí í aíla
klæðninguna. Var þessi hluti efti-
isins sóttur í vetur, og fluttur á
hafnarsvæðið og geymdur þar til
nú, að framkvæmdir hófust. Það
er Króksverk hf. sem annast allar
þessar framkvæmdir, og sagði
Snorri Bjöm að verkinu miðaði
mjög vel og hefðu verktakar verið
um það bil hálfum mánuði á und-
an áætlun við lok fyrri áfanga
verksins. Áætlaður kostnaður við
alla framkvæmd lengingar hafn-
argarðsins mun vera á bilinu
30—32 milljónir króna.
Þá sagði Snorri Bjöm að nú
væri unnið að því að ganga endan-
lega frá landtengingu skipa og
gætu nú öll skip tengst 220 og
360 volta spennu, einnig væri
verið að koma fyrir tengibúnaði
fyrir frysti- og kæligáma á hafn-
arsvæðinu, en þennan búnað hefði
mjög verið farið að vanta.
Næstu nauðsynlegar fram-
kvæmdir á hafnarsvæðinu sagði
Snorri Bjöm vera endanlegan frá-
gang við smábátahöfnina, en þar
vantaði mjög alla aðstöðu fyrir
dekkbáta. Þá yrði Sauðárkróks-
höfn væntanlega á næsta ári tek-
in til líkantilrauna og í framhaldi
af niðurstöðum þeirra ákvarðað
endanlega um gerð allrar hafnar-
innar. Mikil aukning skipakoma
hefur verið um Sauðárkrókshöfn,
meðal annars komu á síðasta ári
á þriðja hundrað flutningaskip,
auk þriggja togara Útgerðarfé-
lags Skagfirðihga, sem landa afla
sínum að mestum hluta á Sauðár-
króki. Yfir sumarið eru einnig all-
mörg rækjuskip, sem ýmist landa
afla sínum hjá Rækjuvinnslunni
Dögun hf. eða beint á bfla sem
flytja aflann suður á land til frek-
ari vinnslu.
- BB
Baulubros, nýjógúrt