Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Fjárbændur í Hrunamannahreppi uggandi:
Hætt er við að riðu-
veikin sé komin víðar
- segir Sveinn Kristjánsson í Efra-Langholti
Selfossi
FJÁRBÆNDUR í Hrunamanna-
hreppi og annars staðar á svæð-
inu milli Hvítár og Þjórsár eru
uggandi vegna riðuveiki sem
gTeindis í einni á í Efra-Lang-
holti. Riðuveiki hefur ekki áður
orðið vart á þessu svæði. Annað
kvöld, fimmtudagskvöld, verður
fundur á Flúðum um þetta mál.
„Mér finnst þetta stóralvarlegt
fyrir svæðið því það er hætt við að
þetta sé komið víðar eða geti kom-
ið,“ sagði Sveinn Kristjánsson bóndi
á Efra-Langholti og eigandi ærinn-
ar sem riðuveikin fannst í. Hann,
ásamt Jóhanni Einarssyni, er með
110 ær og sagði að það væri ekk-
ert mál fyrir þá, þetta gamla menn,
að skera niður féð. Það horfði hins
vegar illa fyrir þá sem væru með
stór ij'árbú, ef veikin kæmi upp hjá
þeim.
Sveinn sagði að það væri ekki
nokkur leið fyrir þá að vita hvernig
kindin hefði smitast. Féð á bænum
hefði ekki farið á fjall í fyrra og
Arnarflug með leigu-
vél í innanlandsf lug
ARNARFLUG hefur tekið á leigu
Twin Otter flugvél tíl notkunar í
innanlandsflugi, en talsverð aukn-
ing hefur orðið i innanlandsflugi
á vegum félagsins upp á síðkastið.
Flugvélin sem tekin hefur verið á
leigu er af gerðinni Twin Otter 300,
og getur tekið 19 farþega. Þetta er
nýleg vél, en Amarflug á eldri vélar
sömu tegundar. Flugvélin er tekin á
leigu til 2—3 mánaða til að byija
með, og verður notuð á öllum áætíun ■
arleiðum Amarflugs, og jafnframt í
leiguflugi á vegum félagsins.
Ami Ingvarsson hjá Amarflugi
segir að talsverð aukning hafi orðið
í innanlandsflugi á vegum félagsins
upp á síðkastið, og allt útlit sé fyrir
að bæta verði vél af þessari gerð í
flugflota Arnarflugs áður en langt
um líður.
hefði lítinn samgang við fé af öðrum
bæjum, hvað þá að það hefði komið
fram í útréttum á svæðinu.
Á nágrannabæjum við Efra-
Langholt em menn uggandi vegna
þessá. Þar em nokkuð stór íjárbú,
í Langholtskoti og á Hrafnkelsstöð-
um. Menn bentu á að þó svæðið
milli Hvítár og Þjórsár hefði verið
laust við riðu þá væm svæði
skammt undan, í Biskupstungum
og í Laugardal, þar sem hennar
hefði orðið vart.
^Það er samstaða um að komast
fyrir þetta og það er aðalatriðið.
Maður vonar að þetta sé bara í
þessari einu kind og hverfi þegar
fjárstofninn hefur verið skorinn nið-
ur,“ sagði Unnsteinn Hermannsson
í Langholtskoti.
„Það er heilmikið áfall að fá þetta
á svæðið, að ekki sé talað um fyrir
þá sem byggja á fjárbúskap ein-
göngu. Maður stendur vamarlaus
gagnvart þessu," sagði Þorgeir
Sveinsson á Hrafnkelsstöðum.
Hann sagði að fylgst yrði vel með
fé í sveitinni eftir að skorið hefði
verið niður á Efra-Langholti í haust.
— Sig. Jóns.
Sveinn Kristjánsson Efra-Langholti
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
NM í brids:
íslenzka sveitin
tekur forystuna
ÍSLENDINGAR unnu Dani í
finuntu umferð Norðurlanda-
Klofningur meðal rækjuframleiðenda:
Ráðuneytið getur alveg eins
sett kvóta á hraðfrystihúsin
- segir Garðar S. Árnason formaður
Félags rækjuvinnslustöðva
ÞRÍR rækjuframleiðendui hafa
sagt sig úr Félagi rækju- og
hörpudisksframleiðenda í fram-
haldi af því að vinnslukvóti var
settur á rækjuverksmiðjur með
reglugerð sjávarútvegsráðherra.
Þetta eru Dögun hf. á Sauðár-
króki, Skelver hf. Garði og
Rækjuver hf. á Bíldudal. 11. apríl
stofnuðu óánægðir rækjufram-
leiðendur með sér félag, Félag
rækjuvinnslustöðva. Forsvars-
menn nýja félagsins fullyrða að
16 framleiðendur standi að nýja
félaginu og úrsagnir úr því
gamla séu margar á leiðinni, en
vilja ekki gefa upp nöfn þeirra
þar sem slíkt gæti komið viðkom-
andi fyrirtækjum í vanda. Klofn-
ingur er þannig orðinn staðreynd
í röðum rælguframleiðenda.
„ Ósamko mulag sem þetta er allt-
af leiðinlegt og það er slæmt
fyrir greinina ef eitt félag er
ekki málsvari hennar. Ég trúi
því samt að allir stærstu fram-
leiðendumir verði áfram í okkar
röðum,“ sagði Jón Alfreðsson,
formaður Félags rækju- og
hörpudisksframleiðenda og
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Steingrímsfjarðar, sem rekur
rækjuvinnslu á Hólmavík, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Stjómarfundur var í nýja félag-
inu í gær í Reykjavík. Fundinn sátu
Garðar Sveinn Ámason, formaður
og framkvæmdastjóri Dögunar hf.,
Óttar Ingvason, framkvæmdastjóri
íslensku útflutningsmiðstöðvarinn-
ar, Júlíus Ólafsson, stjómarmaður
í Skelveri í Garði, Aðalsteinn Jóns-
son frá Eskifirði og Stefán Gunn-
arsson frá Dögun hf. Félagið var
stofnað 11. apríl síðastliðinn og að
sögn stjómarmanna standa 16
framleiðendur að því. Ekki vildu
þeir gefa upp nöfn þessara fram-
leiðenda, bám fyrir sig að það
gæti bitnað á þeim á einhvem hátt.
Þeir yrðu að gefa sig fram sjálfir.
„Þetta félag er stofnað vegna
vinnubragða, sern viðhöfð vom á
fundi í Félagi rækju- og hörpudisks-
framleiðenda 2. febrúar, þar sem
samþykkt var af meirihluta fundar-
manna að mótmæla hugmyndum
um hámarkskvóta á rækjuframleið-
endur. Þessi meirihluti fundar-
manna var í minnihluta í stjóminni
og hún var í samráði við ráðuneyt-
ið við undirbúning kvótans ásamt
framkvæmdastjóranum þrátt fyrir
þessa samþykkt," sagði Óttar Ingv-
arsson.
En hvers vegna að stofna nýtt
félag ef meirihluti félagsmanna í
Félagi rækju- og hörpudisksfram-
leiðenda var á öndverðum meiði við
stjómina? Var ekki hægt að velta
stjóminni? „Við höfðum ekki ráð-
rúm til að bíða eftir aðalfundi, enda
vissum við ekkert hvenær hann
yrði boðaður. Kvótinn gat skollið á
hvenær sem er,“ sagði Óttar. „Það
sem við viljum er atvinnufrelsi eins
og í öðrum greinum fískvinnslunnar
þar sem framtak, dugnaður og út-
sjónarsemi gildir. Þannig verður
eðlileg þróun í atvinnugreininni.
Það gengur ekki að fyrirtækjum sé
stjómað með kansellítilskipunum
eins og þessi kvótareglugerð er.“
Júlíus Ólafsson, einn stjómar-
manna nýja félagsins, sagði að
hann hefði á tilfínningunni, að ver-
ið væri að hygla mönnum, sem
stæðu höllum fæti. Ýmsar verk-
smiðjur vildu kvótann sem síðasta
haldreipið til að auka verðmæti fyr-
irtækjanna gagnvart viðskipta-
bönkum sínum. Og á þann hátt
væri kvótinn farinn að ganga kaup-
um og sölum, fyrirtækin væra nú
verðlögð eftir kvóta.
„Margar verksmiðjur Sambands-
ins og kaupfélaganna fara vel út
úr kvótanum, engin illa. Sumar ná
ekki einu sinni að vinna upp í kvót-
ann,“ sagði Garðar Sveinn Ámason,
formaður Félags rækjuvinnslu-
stöðva, eftir stjómarfundinn. „Mað-
ur veit ekki hvað verður næst.
Ráðuneytið getur alveg eins sett
kvóta á frystihús í landinu og loðnu-
verksmiðjumar gætu alit eins orðið
næstar," sagði Garðar.
Þeir sem sátu stjómarfundinn
sögðu að lokum, að félagið muni
standa að þeim aðgerðum og máls-
vömum, sem þættu nauðsynlegar.
Þeir lögðu áherslu á að það muni
reyna á lögmæti reglugerðarinnar
fyrir dómstólum.
„Málið er í rauninni það að 1
haust, þegar fyrst var farið að tala
um kvóta á rækjuveiðamar upp á
36.000 tonn, þá vildu verksmiðjum-
ar fá helminginn í sinn hlut. Ráðu-
neytið hafnaði því á þeim forsend-
um að það væri á skjön við kvóta
í öðrum veiðum. í framhaldi af því
komu fram þau sjónarmið að eðli-
legt væri að setja stýringu á vinnsl-
una í kjölfar kvóta á veiðiskipin,"
sagði Láras Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisks-
framleiðenda, í samtali við Morgun-
blaðið. „Samkomulag náðist um
þetta mál á Alþingi, en nokkrir
framleiðendur hafa ekki sætt sig
við vinnslukvótann og hafa skellt
skuldinni á félagið. Meirihluti
stjómarinnar vildi hafa samráð við
ráðuneytið, en reglugerðin er sett
alfarið á ábyrgð þess,“ sagði Láras.
„Það er með þessa stýringu eins
og aðra að menn eru ekki á einu
máli. Mjög margir framleiðenda,
sem hafa verið lengi í rækjuvinnslu,
telja stýringu óhjákvæmilega til að
takmarka fjölda fyrirtækja í þessari
grein. Svo deila menn um fram-
kvæmd slíkrar stýringar og sumir
eru henni alfarið andvígir," bætti
hann við.
Láras var spurður hvort þama
væri ekki á ferðinni hagsmuna-
ágreiningur milli stærri fyrirtækja
og minni. „Það má kannski setja
það þannig upp, en af 50 fyrirtækj-
um era 20 sem litla eða enga
reynslu hafa af rækjuvinnslu ogþau
fá bara lágmarkskvótann, 500 tonn.
Og það er mismunandi hvemig
menn sætta sig við slíkt.“
mótsins í brids, sem stendur yfir
á Hótel Loftleiðum. Mótið er
hálfnað og hafa íslendingar for-
ystu með 97 stig. Danir eru i
öðru sæti með 94 stig. Kvenna-
sveit íslands vann í gærkvöldi
sinn fyrsta sigur á mótinu, er
Norðurlandameistararnir Norð-
menn voru lagðir með 18 stigum
gegn 12.
Sigur íslenzku sveitarinnar á
Dönum var öraggur og sanngjam,
22-8, og era sigramir þá orðnir fjór-
ir af fímm mögulegum. Leikurinn
gegn Svíum tapaðist 12-18. Norð-
menn unnu Svía 23-7 í fímmtu
umferðinni og era í þriðja sæti með
77 stig. Svíar eru í þvi fjórða með
75. Finnar unnu Færeyinga 25-4
og era með 68 stig en Færeyingar
reka lestina með 34 stig.
Sjá bridsþátt bls. 31.
Framtennurnar
fundust á slysstað
Tennur græddar
í stúlku eftir
hjólreiðaslys
„ÉG FÓR alltof hratt, vissi ekki
fyrr en ég hentist af hjólinu
og lenti á andlitinu," segir
Brynja Jónsdóttir, fimmtán ára
stúlka úr Kópavogi sem datt
illa af hjóli síðastliðinn mið-
vikudag. Þó fór betur fyrir
henni en á horfðist um tíma.
Brynja missti tvær tennur þeg-
ar hún skall í götuna, en veg-
farendur sem óku henni á slysa-
varðstofu fundu þær aftur.
Tennumar vora svo græddar á
sinn stað innan klukkutíma frá
þvi að óhappið átti sér stað.
Brynja segist hafa verið að
hjóla í Suðurhlíðum á heimleið úr
vinnu og farið hratt upp moldar-
bing við gróðrarstöðina Garðs-
hom. Þá hafi ekki viljað betur til
en að hún hentist af hjólinu og
kom niður á andlitið. Hún skarst
frá nefí niður á höku og missti
tvær framtennur. Hjón sem leið
áttu hjá í bíl óku Brynju á slysa-
varðstofuna þar sem gert var að
sárum hennár.
Þegar í ljós kom að tvær tenn-
ur höfðu hrokkið úr með rótum
vora hjónin beðin að fara aftur á
slysstað og freista þess að fínna
tennumar'. Það tókst og Siguijón
Ólafsson tannlæknir burstaði þær
upp og græddi í Brynju. Hún fékk
að fara heim að lokinni um
klukkustundar aðgerð en þegar
sárin hafa jafnað sig verður
smíðað við þær tennur sem brotn-
aði úr.
Siguijón Ólafsson er annar
tveggja sérfræðinga á landinu í
kjálkaskurðaðgerðum. Hann segir
að slys svipuð þessu séu alltíð
meðal bama og unglinga, ekki
síst á sumrin þegar hjólin hafí
verið tekin fram. Útköll séu frá
tveimur upp undir tíu á viku á
þessum árstíma. Einnig sé nokkuð
um meiðsli í munni og andliti af
völdum skauta- og skíðaslysa á
vetuma.
Að sögn Siguijóns er æskileg-
ast að ekki líði lengra en klukku-
stund frá óhappi þar til tennur
eru græddar aftur í hinn slasaða.
Þó segir hann þess dæmi að sólar-
hringur hafi liðið uns ígræðsla
hófst, en hætta á sýkingum og
því að líkaminn hafni ígræddum
tönnum aukist eftir þvi sem lengra
Iíður frá slysi.