Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Málefni fatlaðra:
Fötluð böm í Reykjavík
Geta ríkið og borgin unnið saman?
eftir AstuM.
Eggertsdóttur
Markmið með þjónustu við fatl-
aða er „að tryggja fötluðum jafn-
rétti á við aðra þjóðfélagsþegna og
skapa þeim sömu lífsskilyrði og
aðrir búa við ...“
Skilin milli heilbrigðis og fötlun-
ar eru oft óljós í svo flóknu fyrir-
bæri sem maðurinn er, enda er oft
sagt að tíundi hver maður sé fatlað-
ur. Fötlun breytir ekki þeirri stað-
reynd að viðkomandi fatlaður á
meira sameiginlegt með ófötluðum
en það sem skilur á milli. Það sem
er æskilegt og gott fyrir ófatlaða
er það einnig fyrir fatlaða. Góðar
uppeldisaðstæður og skilningur á
sérstöðu hvers bams ásamt fag-
legri þekkinu á þroskamöguleikum
og aðferðum við að kenna því og
þjálfa er það sem keppt er að. Gild-
ir það sama um öll böm hvemig
sem þau em í stakk búin til að til-
einka sér uppeldi og nám.
Það er úrelt hugmynd að þá eigi
að afskrifa frá námi sem ekki geta
lært að lesa og skrifa. Það er einn-
ig úrelt hugmynd að fatlaðir eigi
að vera afsíðis. Þess vegna á ekki
að aðgreina fötluð böm frá ófötluð-
um, heldur laga umhverfið að þörf-
um þeirra.
Utivinna kvenna og hraði í þjóð-
félagsbreytingum gera sífellt meiri
kröfur til opinberra aðila um að
bömunum sé séð fyrir þjónustu á
meðan á vinnutíma foreldranna
stendur.
Þörf foreldra fatlaðra bama fyr-
ir þjónustu er meiri en annarra og
varir oft ævilangt. Miklu skiptir að
styðja foreldra á fyrstu æviárum
bamsins, því þar er lagður grunnur
að því sem síðar verður. Stuðningur
í formi opinberrar þjónustu, t.d.
dagvistun og hvíldarvistun, geta
lengt dvalartíma hins fatlaða í for-
eldrahúsum og komið í veg fyrir
ótímabæra vistun til lengri tíma.
Ný sérdeild fyrir fötluð
börn í Breiðholti
Um síðustu áramót voru h.u.b.
3.950 böm í dagvistun á vegum
Reykjavíkurborgar.
Fötluð böm voru um 70 og eru
þá talin með 10 böm á sérdeild
Múlaborgar, sem er eina sérdeildin
til þessa. Sárlega hefur vantað
fleiri rými á dagvistarstofnunum
fyrir mikið fötluð böm undanfarin
ár. Úrbætur töfðust verulega vegna
ólíkra viðhorfa ráðamanna á því
hvemig ætti að skilgreina dagvist-
arþjónustu bamanna m.t.t. kostn-
aðar. Töldu sumir að ríkið ætti að
koma upp meðferðarstofnun fyrir
bömin en aðrir að hagur og velferð
bamanna væri best tryggður með
Ásta M. Eggertsdóttir
„Fáir málaflokkar eru
jafn viðkvæmir og" mál-
efni fatlaðra. Tog-
streita opinberra aðila
um þau tefja og jafnvel
hamla eðlilega þróun.
Þess vegna er það f ötl-
uðum í hag að borg og
ríki taki höndum saman
og vinni að úrlausnum
í málaflokki þeirra.“
því að búa þeim þjónustu sem
næst umhverfi annarra barna á
dagvistarstofnunum borgarinnar.
Hillir nú loksins undir nýja sér-
deild sem staðsett verður í Breið-
holti fyrir 6 fötluð böm.
Ríkið og Reykjavíkurborg
— þversagnir?
Nýlega voru kynntar tillögur um
breytingar á kostnaðarskiptingu
ríkis og sveitafélaga, þar sem lagt
er til að ríkið greiði kostnað af
dagvistunarþjónustu fatlaðra
bama. Ef tillögumar ná fram að
ganga er hætta á að fötluð böm
verði af þjónustu á almennum dag-
vistarheimilum á vegum Reykjavík-
urborgar.
Ef hætta er á að fötluð börn
verði aðgreind frá öðrum bömum
vegna lagasetninga og rangrar
kerfísbyggingar, þarf að endur-
skoða lögin og tryggja að þver-
sagnir í kerfínu bitni ekki á þeim
sem síst skyldi.
Dæmin sanna að ríki og borg
eiga í stríði um peninga, þar sem
verulega hallar á ríkið, að sögn
borgarinnar. Dæmi um þessa tog-
streitu er stofnkostnaður vegna
húsakaupa fyrir skammtímavist-
heimili fatlaðra barna, sem borgin
tók framkvæði um að flytja í Álfa-
land 6, en sú ráðstöfun var afar
kærkomin notendum þjónustunnar.
Ríkið færðist hinsvegar undan
lagalegum skyldum sínum að
greiða sinn hluta af kostnaðarverði
húss og búnaðar.
Með því gefur ríkið slæmt for-
dæmi og má reikna með að borgin
flýti sér ekki að ganga fram í fleiri
verkefnum í þágu fatlaðra barna
Símar 35408 og 83033
UTHVERFI
Nökkvavogur
Hjallavegur
AUSTURBÆR
Mávahlíð 1-24
Bollagata
KOPAVOGUR
Lyngbrekka
Hlaut önnur verðlaim
í arkitektasamkeppni
Guðmundur Jónsson arkitekt tekinn tali
20. júní síðastliðinn fór fram
verðlaunaafhending í skipu-
lagskeppni fyrir bæinn Dramm-
en í Noregi. Það þætti kannski
tæplega fréttnæmt hér, nema
vegna þess að það var íslenskur
arkitekt, Guðmundur Jónsson,
sem hlaut önnur verðlaun í sam-
keppninni. Guðmundur lærði í
Noregi og setti upp stofu þar
að loknu námi. Hann hefur oft
tekið þátt í samkeppni og verið
dijúgur við að krækja sér í
verðlaun. Skemmst er að minn-
ast að hann vann fyrstu verð-
laun í samnorrænni keppni um
tónlistarhúsið hér, sem vonandi
verður byrjað á sem fyrst.
Það var blásið til keppninnar
undir slagorðinu „Draumurinn um
Drammen“. En hvað felur slík
keppni í sér?
„Eins og yfirskriftin ber með
sér átti að vinna út frá þeirri hug-
mynd að þróa byggðina í Dramm-
en og næsta nágrenni þannig að
sem best færi um bæði íbúa og
starfsemi þeirra. Bærinn er mikill
iðnaðarbær, en í samkeppninni var
leitað eftir hugmyndum til að
byggja bæinn svo að vel færi um
mannfólkið innan um umsvifín
þar.“
Þátttakendur í samkeppninni
vora milli þijátíu og fjörutíu. Sam-
keppninni var deilt niður í nokkra
þætti eftir því hversu erfíð við-
fangsefni vora lögð fyrir. Guð-
mundur vann sín verðlaun í erfíð-
asta þættinum. „Það voru sam-
starfsmenn á stofunni hjá mér,
sem unnu að tillögunni með mér,
svo við voram alls sex, sem unnum
hana.“ Til gamans má geta þess,
að vinningstillagan er unnin á
stofu, sem hefur á að skipa milli
fjöratíu og fimmtíu manns. Flestir
þeirra komu á einn eða annan
hátt við tillögugerðina. í vetur
hafa Guðmundur og samstarfs-
menn hans unnið við tónlistar-
hússteikningarnar, en undir vorið
var ákveðið að gera hlé á undir-
búningi að húsbyggingunni, svo
vinnan við tillögumar kom á
heppilegum tíma.
Bærinn Drammen liggur við
Oslóarfjörð og stendur við mjög
fallega við árósa, opnast móti haf-
inu, eins og fleiri bæir á þessum
slóðum. Jámbrautarstöð bæjarins
stendur á öðram árbakkanum og
teinamir liggja upp með ánni.
Þama fer skemmtilegt íbúðasvæði
undir jámbrautina, svo í tillögu
Guðmundar er gert ráð fyrir að