Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 Norrænt barnaverndarþing í Reykjavík: Heimur sem tekur vel á móti bömum verður betri heimur Sagt frá setningu norræns barna - verndarþings í Há- skólabíói í gær NORRÆNT bamavemdarþing var sett í Háskólabíói i gær um klukkan fjórtán. Þar voru sam- ankomnir rösklega fimm hundr- uð þinggestir auk ýmissa frammámanna. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ávarpaði samkomuna, sem menntamálaráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson, setti. Flutt var tónverk eftir Mist Þorkels- dóttur og Hamrahlíðarkórinn söng. Dr. Sigurjón Björnsson flutti aðalerindi setningarsam- komunnar. Séra Bemharður Guðmundsson, kynnir samkomunnar, bauð gesti velkomna og sagði af því tilefni m.a.: „Ég vil leggja áherslu á það við norræna vini okkar að það er okkur Islendingum mikilvægt að halda Norrænt bamavemdarþing hér á landi. Það er líka mikilsvert fyrir böm okkar, auð framtíðarinn- ar í þessu landi, að upp verði vakt- ar umræður og umþenkingar um kjör þeirra." í ávarpsorðum sínum sagði for- seti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir m.a.: „Lærðir menn víða að frá Norðurlöndum hafa safnast hér saman til þess að skiptast á skoðun- um og viðhorfum um hvemig við getum orðið bömum að sem mestu gagni. Það er við hæfí að það ger- ist hér á landi nú, þegar hér eru uppi umræður um ræktun skóg- lendis hér á landi. Við höfum vakn- að til vitundar um að hægt sé að rækta hér mun meira en gert hefur verið á okkar harðbýla landi sem oft olli forfeðram okkar töluverðum erfiðleikum. Við eram þegar byijuð að sá til þeirra grænu jurta. Dýr- mætast af öllum dýrgripum lífsins era bömin. Því er líkt farið með bömin og plöntumar. Við verðum að standa um þau vörð svo þau vaxi upp og verði styrkur lands og samfélags." Ný Iagasetning varðandi börn væntanleg Næst var framflutt tónverk eftir Mist Þorkelsdóttur við ljóð Þor- steins Valdimarssonar. Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvi Snorrason iéku á hljóðfæri en John Speight söng, að því loknu setti menntamálaráðherra, Birgir ísleif- ur Gunnarsson, hið norræna bama- vemdarþing. Hann sagði af því til- efni m.a.: „Við neyðumst til að við- urkenna aó við höfum ekki skapað nægilega öragg uppvaxtarskilyrði fyrir böm okkar í því róti breyttra þjóðfélagskringumstæðna sem ríkt hefur. Þetta má til að breytast fyrr Frá setningu norræna bamavemdarþingsins. Kynnir á setningu Norræns bamavemdarþings i Reykjavík, séra Bemharður Guðmundsson, í ræðustóli. Við hlið hans situr dr. Sigur- jón Bjömsson. en síðar. í stjómarsáttmála íslensku ríkisstjómarinnar er gefíð loforð um að unnið verði að auknu öryggi flöl- skyldunnar, ekki síst með velferð bamanna fyrir augum. Með þetta í huga var sett á laggimar nefnd sem unnið hefur að þessu máli og mun senn skila niðurstöðum sínum.“ Ennfremur gat mennta- málaráðherra þess að verið væri að vinna að endurbótum á íslenskri löggjöf sem snerti böm í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í þjóð- félaginu síðan lög, þessu að lút- andi, vora sett fyrir röskum tuttugu áram. Taldi hann sennilegt að hægt yrði að leggja drög að þessum nýju lögum fyrir Alþingi er það kæmi saman á ný. Þessu næst söng kór Mennta- skólans við Hamrahlíð nokkur íslensk lög undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur. Að þeim söng loknum hurfu kórfélagar á braut einn á fætur öðram sönglandi fyrir munni sér lokalagið „Sofðu unga ástin mín“, en dr. Siguijón Bjömsson hóf að flytja erindi sitt sem hann nefndi „Kjör bama — framtíð Norður- landa". Siguijón sagði m.a.: „í hug- myndafræðilegum skilningi taka bamavemdarmál yfír miklu meira en „böm“ og „vemd". Þau grípa í raun á kjama alls mannslífs og þeirra markmiða sem stefnt er að.“ Ennfremur ræddi Siguijón um þá þversögn sem hann taldi það vera að á Norðurlöndum, þar sem að- stæður fyrir böm era ákjósanlegar, fæðast mjög fá böm en hins vegar mjög mörg þar sem aðstæður bama era ömurlegar, einnig sagði Sigur- jón: „Því verður víst ekki á móti mælt að nútíma velmegunarsam- félög samrýmast illa bammargri Qölskyldugerð. Þau samfélög eiga sitt undir mikilli og stöðugri neyslu, enda á sívaxandi hópur einstaklinga afkomu sína undir henni. Þessi mikla neysla útheimtir mikla vinnu, helst allra vinnufærra einstaklinga, hér á íslandi er það a.m.k. svo.“ Einnig sagði Siguijón: „Nútíma velmegunarsamfélög ástunda því annan lífsstíl og aðra hugmynda- fræði en þá sem er fylgifískur stórra Qölskyldna." Siguijón ræddi enn- fremur um ýmsar aðrar þversagnir, sem hann telur vera einkenni á samfélagi okkar, svo sem hina miklu togstreitu sem honum virðast konur vera settar í af hálfu sam- félagsins. „Nútíma samfélag viður- kennir svo sannarlega hjónaskilnaði og ekki er talið neitt athugavert við það að konur annist böm sín einar. Hins vegar er einstæðum mæðram nærri ógjörlegt að veita bömum sínum uppeldi til jafns við aðrar konur. Því að laun annars foreldris duga sjaldnast til fram- færslu fíölskyldu. Það er óneitan- lega dálítið undarlegt til þess að hugsa hversu stjómvöld hafa verið tvíátta og ráðvillt í þessu efni.“ Einnig ræddi Siguijón um verkefni bamavemdaryfírvalda og sagði: „Bamavemdaryfírvöld eiga fyrst og fremst að gegna neyðarþjónustu, þegar eftir henni er leitað og hafa að öðra leyti augun opin fyrir því sem miður fer, en í hófí þó.“ Sigur- jón lauk erindi sínu með þessum orðum: „Ég er sannfærður um að heimur sem tekur vel á móti bömum sínum, fagnar þeim og annast þau vel og sníður tilverana að þeim lífsmáta, er betri heimur en sá sem við höfum átt að venjast undanfar- ið, ekki aðeins betri fýrir böm, held- ur einnig fyrir okkur fullorðna fólk- ið. Á dagskrá Norræna bamavemd- arþingsins í gær vora einnig erindi Ingu Hagström frá Svíþjóð „Böm, ungmenni og menning" og erindi Guðrúnar Kristinsdóttur kennslu- stjóra um formleg og óformleg hjálparúrræði, þróun og breytingar í bamavemd á Islandi. Panu Pulma dósent frá Finnlandi flutti erindi um samfélagsbreytingar og bemsku og bamavemd í sögulegu ljósi. í gærkvöldi var á dagskrá „Þjóðarfundir", þar sem fulltrúar landanna hittust og blönduðu geði saman. texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Skólastjóramál Ölduselsskóla: I allra þágu að sætta sig við niðurstöðuna - segir Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra í bréf i til f oreldra Mikið af eldislaxi veiðist í Elliðaánum BIRGIR ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, hefur sent foreldrafélagi Öldusels- skóla bréf, þar sem hann rekur orsakir þess að hann skipaði Sjöfn Sigurbjörnsdóttur skóla- stjóra við skólann þrátt fyrir undirskriftalista foreldra, kennara og starfsmanna til stuðnings Daníel Gunnarssyni. Ráðherra segir mat ráðuneytis- ins á umsækjendum eingöngu hafa verið faglegt og það hljóti að vera öllum aðilum í hag að láta nú deilur niður falla og sætta sig við niðurstöðuna. Ráðherra tekur fram í bréfinu að ráðningin hafí farið fram með fullkomlega eðlilegum hætti og í samræmi við grunnskólalög. Stað- an hafíð verið auglýst og síðan óskað álits fræðsluráðs Reykjavíkur, þar sem fjórir full- trúar af fímm hafí stutt Sjöfn. Fræðslustjórinn í Reykjavík hafi talið báða umsælgendur hæfa, en ekki viljað gera upp á milli þeirra í umsögn sinni. „Mat ráðuneytisins á umsókn- um byggðist eingöngu á faglegum sjónarmiðum," segir í bréfí ráð- herra. „Að fengnum tillögum þeirra aðila, sem að frarnan grein- ir, var það mat ráðuneytisins að Sjöfn Sigurbjömsdóttir hefði víðtækari og Qölþættari menntun og reynslu til að takast á við þetta starf. Báðir umsækjendur voru vel hæfir, en hinar almennu grund- vallarreglur um skipan slíkra embætta vora að þessu leyti Sjöfn Sigurbjömsdóttur í vil. Því má og bæta við að ákvæði laga um jafn- rétti karla og kvenna gefa vissar leiðbeiningar um hvemig með skuli fara í slíkum tilvikum." Ráðherra lætur síðan í ljós þá skoðun að opinber fundahöld um málin verði aðeins til þess að hella olíu á eldinn, sem orðið hefur vegna þessa máls, og hann sé því ekki tilbúinn að taka þátt í slíkum fundi, eins og foreldrar hafa farið fram á. „Ákvörðun hefur verið tekin í viðkvæmu og erfíðu máli og verður henni af hálfu ráðuneyt- isins ekki breytt. Það hlýtur að vera í þágu bama skólans og fjöl- skyldna þeirra svo og skólastarfs- ins í heild að aðilar sætti sig við þá niðurstöðu sem fengist hefur í þessu máli,“ segir menntamála- ráðherra í bréfinu. MIKIÐ af eldislaxi veiðist nú í Elliðaánum og kvarta veiðimenn undan honum þar sem yfirleitt er um að ræða smáfisk, í kring- um eitt pund að stærð. Eldislax- inn er nokkuð auðvelt að þekkja frá hinum eiginlega laxastofni árinnar þar sem hann er yfirleitt uggaskemmdur, styttri og feit- ari. Jón Kristjánsson fískifræðingur segir að þetta sé að verða virkilegt vandamál í Elliðaánum og nú æði eldislaxinn upp þær í löngum bun- um. Jón vann skýrslu um árnar árið 1986 og þá þegar kom fram að um 60-70 eldislaxar höfðu geng- ið upp í ámar, eða um 2-3% af heildarfjöldanum. „Þegar þetta mál er skoðað verð- ur að líta á fjöldann sem gengur en ekki prósentuhlutfallið og 60-70 fiskar era mikill fjöldi þegar hugað er að hugsanlegri blöndun þessa físks við þann stofn sem fyrir er í ánni,“ segir Jón Kristjánsson. Tveir fískifræðingar vinna nú að rannsóknarverkefni í Elliðaánum þar sem meðal annars er kannaður flöldi eldisfíska í þeim. Annar þess- ara fiskifræðinga, Guðni Guðbergs- son, segir að verkefnið sé enn of skammt komið til að draga nokkrar ályktanir af því, en þeir hafí vissu- lega orðið varir við eldislax. „Það er ekki alltaf gott að sjá hvort um eldislax er að ræða en sá sem við höfum orðið varir við hefur senni- lega sloppið úr sjókvíjum í Faxa- flóa. Miðað við reynslu Norðmanna í þessum efnum má álykta að eldis- lax sé um 10% í ám eins og Elliðaán- um sem liggja i grennd við margar eldisstöðvar,“ segir Guðni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.