Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
21
Mjóddin:
Byggt yfir göngu-
götuna á næsta ári
MIKIL uppbygging á sér nú stað
í Mjóddinni í Breiðholti. Mörg
fyrirtæki og þjónustustofnanir
hafa flutt aðsetur sitt þangað eða
eru í þann veginn að gera það.
Ýmsir forráðamenn þeirra gera
ráð fyrir, að þessi uppbygging
muni hafa mikil áhrif á rekstur
slíkra fyrirtækja annars staðar,
enda er þessi miðbæjarkjarni í
næsta nágrenni við fjölmennustu
íbúðarhverfi Reykjavíkursvæðis-
ins.
arhverfunum í nágrenninu. Til
dæmis hafa bæði Búnaðar- og
Verslunarbankinn flutt útibú sín í
Breiðholti hingað." _
Aðspurður sagði Ólafur að offjár-
festing í verslunar- og atvinnuhús-
næði væri augljós, en hún kæmi
ekki fram í Mjóddinni. „Það liggur
í augum uppi að einhvers staðar
þarf að gefa eftir, en það verður
ekki hér.“ *
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Byggingarframkvæmdir í Mjóddinni eru nú að komast á lokastig.
Amitsubishi
Sjónvarpstækl
Skipholti 9. Slmar 24255 og 622455.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Nokkur tími er liðinn síðan fyrst
voru gerðar áætlanir um fram-
kvæmdir í Mjóddinni. Að sögn Þor-
valds S. Þorvaldssonar, forstöðu-
manns Borgarskipulags, eru fram-
kvæmdir nú að komast á lokastig
í miðbæjarkjamanum milli Álfa-
bakka og Breiðholtsbrautar, en það
svæði er hin eiginlega Mjódd. Norð-
an Álfabakka er gert ráð fyrir
grænu svæði, en þar eru nú skóla-
garðar. Hins vegar er Suður-Mjódd,
sunnan Breiðholtsbrautar hugsuð
fyrir ýmis konar þjónustu í sam-
bandi við miðbæjarkjamann.
Þegar er fjölbreytileg starfsemi
í Mjóddinni. Meðal fyrirtækja sem
þar hafa tekið til starfa má nefna
stórmarkaðinn Kaupstað, 3 banka-
útibú, efnalaug, _ Breiðholtsapótek,
Svein bakara, Útsýn, Breiðholts-
blóm, auk nokkurra verslana. Einn-
ig em Seljakirkja, Bíóhöllin og
skemmtistaðurinn Broadway í
næsta nágrenni. Seinna koma t.d.
áfengisútsala, skiptistöð SVR fyrir
allt Reykjavíkursvæðið og útibú
Pósts og síma.
Forráðamenn fyrirtækja í Mjódd-
inni hafa af því töluverðar áhyggj-
ur, að aðkoman að verslunarkjam-
anum sé erfið. Hafa þeir meðal
annars viljað opna umferðareyjuna
milli Álfabakka og Reykjanesbraut-
ar. í samtali við Morgunblaðið sagði
Þórður Þ. Þorbjamarson borgar-
verkfræðingur, að óráðlegt væri að
fara þá leið. Hins vegar væm ýms-
ar hugmyndir til umfjöllunar í borg-
arstjóm um lausn þessa vanda.
Hann benti jafnframt á að gatna-
mót Stekkjabakka, Álfabakka og
Breiðholtsbrautar við Reykjanes-
brautina væm ekki fullfrágengin.
Þegar því verki verður lokið, ætti
að vera auðveldara að komast að
Mjóddinni.
Unnið er að lagningu göngugötu
milli nokkurra bygginga á svæðinu
og er stefnt að því að ljúka því
verki fyrir haustið. Ætlunin er, að
byggja glerþak yfir hana á næsta
ári. Að þeim framkvæmdum stend-
ur Svæðisfélag um göngugötu í
Mjódd, sem er félag þeirra aðila,
sem eiga húseignir við götuna.
Rúnar Sigmarsson, verkfræðing-
ur hjá Hönnun hf. hefur starfað
fyrir félagið að undirbúningi fram-
kvæmdanna. Samkvæmt útreikn-
ingum hans, verður um að ræða
meira en 20.000 fermetra samfellt
verslunarhúsnæði í Mjóddinni. Að
auki tengjast hús Pósts og síma og
SVR hinum byggingunum með yfír-
byggðu göngugötunni.
Formaður _ svæðisfélagsins í
Mjóddinni er Ólafur Stefán Sveins-
son, framkvæmdastjóri Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis. í sam-
tali við Morgunblaðið sagði hann,
að viðskipti í Mjóddinni færu stöð-
ugt vaxandi. „Mjóddin er vel stað-
sett,“ sagði hann. „Aðrir þurfa að
gefa eftir í samkeppninni. Viðskipt-
in hér aukast til dæmis á kostnað
ýmissa minni þjónustukjama í íbúð-
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
fltiorgpmMftfrili
■ : ’ ■ ■ ■
m -:
Er ekki tími til
kominn...
aö vera í öruggu
sambandi viö umheiminn ?
Mitsubishi farsíminn
sér um þaö !
Komdu og kynntu þér kosti
Mitsubishi
það borgar sig !
'
Greiðslumáti Útborgun Verð
Staðgreitt 127.510,-
Almennt verð • 137.108,-
Eurokredit 11 mán. 0,- 137.108,-
Visa raðgr. 12 mán. 0,- 137.108,-
Kaupleigusamn. 3 ár 0,- 137.108,-
tö/íu*íL vel á vKóti jí&i !