Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 32
Fornleifagröftur á Granastöðum:
Merkilegt jarðhýsi
einangrað með torfi
-BJARNI Einarsson fomleifafraeðingur hefur undanfarinn hálfa
mánuð unnið að uppgreftri við eyðibýlið Granastaði í Eyjafirði.
Morgunblaðsmenn heimsóttu Bjama sl. þriðjudagsmorgun þar sem
hann var að ljúka störfum að sinni, en hann er á fömm tU Gauta-
borgar í Svíþjóð þar sem hann hefur stundað doktorsnám í fom-
leifafræðum. Bjarai hefur síðustu daga grafið niður í jarðhýsi, sem
verið hefur aldursgreint í Kiel í Þýskalandi. Talið er að jarðhýsið
hafi verið í notkun á tímabilinu 795 til 1030. Það þýðir þó ekki
að jarðhýsið hafi verið í notkun allan þennan tima, en þó má gera
ráð fyrir að það hafi farið í eyði einhveratímann á þessu tíma-
skeiði. Það sem er merkUegast og einstakt við þetta jarðhýsi er
að það er fóðrað að innan með mjög þunnum torfveggjum, sem
ekki em berandi heldur tU upphitunar og einangrunar frá nán-
asta umhverfi, að sögn Bjarna.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kolbrún Guðmundsdóttir og Magnús Vilmundarson á heimUi sínu
eftir að þau fundust heil á húfi eftir „tveggja sólarhringa bíltúr“.
Festu fólksbíl uppi á hálendinu:
„Ætluðum bara í
sunnudagsbfltur“
„ÞETTA átti bara að vera sunnudagsbíltúr hjá okkur, en við fest-
um bUinn svona kyrfUega uppi á hálendinu og urðum þvi að bíða
eftir aðstoð sem kom um það bU sólarhringi eftir að í óefni var
komið,“ sagði Kolbrún Guðmundsdóttir 38 ára Akureyringur í sam-
tali við Morgunblaðið sem ásamt sambýlismanni sínum Magnúsi
Vilmundarsyni 50 ára fór í bíltúr á sunnudaginn.
Bjami hóf uppgröft að Grana-
stöðum í fyrrasumar og kom hann
þá meðal annars niður á bein, sem
4fann taldi miklar líkur á að væru
kuml - gröf frá heiðnum sið. Bein-
in voru send til greiningar í
Reykjavík þar sem þau voru greind
sem stórgripabein. Þá sendi Bjami
þau til sérfræðings í Gautaborg
sem vinnur að frekari greiningu
þeirra. Bjami sagðist viss um að
hér væri kuml á ferðinni og hefði
hann sannfærst enn betur um það
fyrir nokkrum dögum er hann fór
að róta í gröfinni á ný og fann þá
bein úr hesti við hlið mannabein-
anna, en sá siður var f heiðni að
stórgripur skyldi grafín með hinum
látna og er helmingur kumla í
Eyjafírði með hross 'sér við hlið.
Bjami kallar doktorsverkefnis-
itt„Islensk-indlands busetning" og
hefur hann ávallt hafa haft mikinn
áhuga á íslenskum hálendisbyggð-
um. „Ég fór í göngur með bændum
hér í Eyjafirði og bað ég bóndann
á Haildórsstöðum að sýna mér all-
ár þær rústir, sem hann þekkti til
hér um slóðir. Hér eru tveir mjög
áhugaverðir staðir til að grafa upp
fyrir utan Granastaði, Hólasel og
Márstaðir. Bændur í sveitinni segja
Granastaði hafa farið í eyði árið
1402 með svartadauða, en það gat
ekki staðist. Ég tel ákveðið sam-
hengi milli upphafs Seljabúskapar
og eyðingar Granastaða og að
upphaf Hólasels hafí verið á kostn-
að Granastaða þar sem ákveðnir
aðilar sóttust eftir afrétt í Eyja-
fjarðardal. Þessa tilgátu langar
mig að kanna á næsta ári. Mikill
jámaldarbragur er yfír öllu hér
sem sést í jarðhýsinu, túngarðinum
og í íbúðarhúsinu sjálfu. Yfírleitt
voru þijár orsakir fyrir því að býli
fóm í eyði á þessum tímum, eld-
gos, kólnandi veðurfar eða svarti-
dauði. Eldsumbrot voru engin í
Eyjafirði, veður fór ekki kólnandi
fyrr en á 13. öld og svartidauði
kom ekki til sögunnar fyrr en 1402.
Því hlaut hér að vera á ferðinni
samfélagslegt vandamál sem ég
vil rekja til Seljabúskapar."
Bjami sagði að jarðhýsi hefðu
fundist á tveimur öðrum stöðum á
landinu til þessa, við Grelutóttir á
Vestfjörðum og á Hvítárholti við
Skálholt. „Fomleifafræðingar þeir,
sem grófu upp þau jarðhýsi, telja
að jarðhýsi þessi hafí verið notuð
sem baðhús eða jafnvel vinnustofur
fyrir vefnað, en ég vil alls ekki
fallast á baðhúsaskýringuna þrátt
fyrir eldstæði og rennur sem fund-
ust. Ég held að jarðhýsin hafí ver-
ið fjölnota hús og er að gæla við
ákveðna hugmynd, sem ég vil at-
huga nánar.“ Bjami hafði gert sér
góðar vonir um styrk til verkefnis-
ins úr sjóðum hérlendis og hafði
hann meðal annars sótt um fé til
Vísindasjóðs, en fékk synjun. Ak-
ureyrarbær styrkti verkefnið um
50 þúsund krónur auk þess sem
Bjami hlaut ferðastyrk frá Svíþjóð.
Ég ætlaði mér að ljúka þessum
greftri af á sem stystum tíma svo
ég gæti séð fram úr náminu og
farið að snúa mér að öðrum við-
fangsefnum." Bjami sagði að at-
hyglivert væri við Granastaði að
ekki hefði enn fundist tangur né
tetur af jámi og í öðru lagi væru
allir gripir fyrir utan bein gerðir
úr steintegundum úr dalnum. Eng-
inn málmur væri innfluttur. í jarð-
hýsinu fundust tvö snældusnúða-
brot fyrir utan stórgripaleggjar-
bein. I bæjarhúsinu, sem er um
15 metra langt, fundust bein úr
kind, svíni, hesti, nautgripi og geit
sem eru hreinar matarleifar. Þá
fannst snældusnúður, tafla úr
hnefatafli, slípsteinn, eldsláttu-
steinn og ferhymingslaga steinn
með krossmarki á báðum hliðum
sem Bjami sagði að væri óútskýr-
anlegur. Flestir þessara gripa bæru
með sér tálguför eftir hníf sem
benti til að á Granastöðum hefði
verið jám. Helgi magri var land-
námsmaður í Eyjafírði og landið
átti hann að hafa gefíð syni sinum
Hrólfí, en Grani á Granastöðum
var eitt af bömum Hrólfs er Land-
náma skýrir frá.
Bjami sagði íslenska fomleifa-
fræði sífellt færast nær höfuð-
borginni og nær okkur í tíma.
„Við vitum litið um landnámið og
söguöldina og þrátt fyrir það er
verið að eyða fjármunum og tíma
í að grafa upp 100 ára gömul lík
nánast í höfuðborginni, sem allt
vill soga til sín. Þjóðhátíðarsjóður
og Vísindasjóður fjármagna fyrst
og fremst slíkar rannsóknir og
fínnst mér fjármagninu misvel
skipt. Landsbyggðin verður gjör-
samlega afskipt og elstu tímar
jafnframt, auk rannsóknastarf-
semi Þjóðminjasafnsins, sem er
gjörsamlega að verða hungur-
morða," sagði Bjami að lokum.
Kolbrún og Magnús lögðu af
stað um klukkan 11.00 á sunnu-
dagsmorgun og fóru sem leið lá
austur frá Akureyri og inn í
Bárðardal og upp úr honum hálend-
ismegin og stefndu á Laugafell, þar
sem skáli Ferðafélags Akureyrar
stendur. Hægt er að velja um tvær
leiðir inn að Laugafelli, önnur leið-
in er beint fram úr Eyjafírði en hin
er upp úr Bárðardal og er sú leið
yfírleitt fyrr fær. Leiðin er hinsveg-
ar ekki orðin fær nú og þegar kom-
ið var að bíl þeirra, sem er af gerð-
inni Subaru Station, sat hann fast-
ur í drullupytti og náði leðjan
bílnum upp að hurðum. Magnús
Einarsson varðstjóri hjá lögregl-
unni á Akureyri sagði að það hefði
ekki verið fytr en um kl. 11.00 á
mánudagskvöld að lögreglan hefði
fengið vísbendingu um hvar skyldi
leita að ferðalöngunum. „Þá kom
til okkar maður, sem hafði talað
við þau í síma áður en þau lögðu
af stað og hafði rúntur í Bárðardal-
inn verið á dagskrá hjá parinu og
gæti verið að þau litu inn á hálend-
ið. Við kölluðum strax í flugvél frá
Flugfélagi Norðurlands sem fór af
stað ásamt lögreglumanni um kl.
1.30 aðfaranótt þriðjudags og fann
bflinn um kl. 3.30. Matarföngum
og teppum var fljótlega hent niður
til þeirra þar sem þau höfðu haldið
kyrru fyrir í bflnum allan tímann
og félagar úr Flugbjörgunarsveit-
inni á Akureyri fóru strax á bíl inn
á hálendið og sóttu bæði fólkið og
bílinn og voru þau komin til Akur-
eyrar klukkan 11.00 í gærmorg-
un.“
Kolbrún kvað þau engan veginn
hafa verið nægilega vel búin til
langrar útidvalar enda hefðu þau
talið ráðlegast að halda kyrru fyrir
í bílnum þar til aðstoð bærist enda
engir mannabústaðir nálægir. Hún
vildi sérstaklega þakka félögum
Flugbjörgunarsveitarinnar veitta
aðstoð, en fjórir þeirra hófust strax
handa við að grafa bflinn upp og
voru þeir klukkutíma við verkið
áður en lagt var af stað til
byggða.„Aðstandendur fóru að
grennslast um leið og við vorum
ekki komin heim í tæka tíð enda
átti ég að mæta til vinnu klukkan
8.00 á mánudagsmorgun. Vegur-
inn var ágætur nema þessi drullup-
yttur, sem við komumst ekki yfir.
Við ætluðum að fara að snúa við
þegar við sukkum á kaf í pyttinn.
Við reyndum að losa bflinn eins og
við gátum, en hann haggaðist ekki.
Við vorum alltaf viss um hjálp svo
við sátum þar til hún barst. Það
var til nóg bensín svo við gátum
annað slagið kynt bílinn. Hinsvegar
er ég óneitanlega svolítið stirð nú
eftir alla setuna, en Magnús þoldi
þetta miklu betur," sagði Kolbrún
að lokum.
Vinnuslys
hjá Möl
ög sandi
Tveir fluttir á
sjúkrahús
Vinnuslys varð í steypistöð-
inni Möl og sandi á Akureyri
um kl. 14.00 í gær þegar verið
var að undirbúa strengjasteypu-
mót. Vír lenti á höfði tveggja
manna, 18 ára og 37 ára, og
vom þeir báðir fluttir á Fjórð-
ungssjúkrahúsið með áverka á
höfði og annar með áverka á
hendi að auki. Talið var í gær
að meiðsl væm ekki alvarlegs
eðlis.
Danfel Snorrason rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri sagði í
samtali við Morgunbiaðið í gær að
þegar verið væri að undirbúa
strengjasteypu væru strengdir
vírar eftir 28 metra löngum mótun-
um. Víramir væru síðan festir með
svokölluðum kónum sem féllu sam-
an við átak. Festingar gáfu sig
hinsvegar þegar búið var að
strekkja vírinn til hálfs og fara
átti að fullstrekkja hann með fyrr-
greindum afleiðingum. Þá slóst
vírinn til og í höfuð mannanna
tveggja er stóðu við hinn enda
steypumótsins. Þess má geta að
þegar búið er að strekkja vírinn í
mótinu til fulls er um að ræða tólf
tonna átak.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bjami Einarsson foraleifafræðingur í jarðhýsi Granastaða í Eyja-
firði sem hann segir vera frá tímabilinu 795 til 1030. Jarðhýsið er
hlaðið þunnum torfveggjum til einangrunar sem er einstakt hérlendis.
Ibúasamtök sett á
stofn í Síðuhverfi
ÍBÚASAMTÖK Síðuhverfis vora stofnuð á fundi í safnaðar-
heimili Glerárkirkju 9. júni. Tilgangur þeirra er að vinna að
framfara-, hagsmuna- og menningarmálum hverfisins og bæjar-
ins í heild. Þá vilja félagsmenn auka samstarf og samhug íbú-
anna, vinna að fegmn og prýði hverfisins, eins og segir i frétta-
tilkynningu.
lokið þar grunnskólanámi. Þá
vilja þeir efla opinbera þjónustu
á Akureyri, þannig að hún gagn-
ist öllum íbúum bæjarins. Einnig
lögðu fundarmenn áherslu á að
uppbyggingu hverfísins verði
hraðað, komið þar upp aðstöðu
til íþróttaiðkana, frágangi gatna
lokið og öryggi skólabama og
gangandi vegfarenda tryggt með
bættri lýsingu og frágangi gatna.
Á stofnfundinum var kjörin 10
manna stjóm. Hún hefur ákveðið
að senda stofnfélagaskrá inn á
hvert heimili í hverfínu til þess
að gefa þeim sem ekki mættu á
fundinn kost á að gerast stofnfé-
lagar.
Fundarmenn samþykktu álykt-
un um að leggja áherslu á áfram-
haldandi uppbyggingu Síðuskóla
þannig að böm í hverfínu geti