Morgunblaðið - 29.06.1988, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Fundur norrænna heilbrigðis-- og félagsmálaráðherra:
Norræn samvinna gegn
f íkniefnavandanum
SAMSTARFSNEFND ráðuneyta
um ávana— og fíkniefnamál hef-
ur sent frá sér tilkynningu þar
sem lögð er áhersla á samstarf
Norðurlandanna i baráttunni
gegn fíkniefnum og minnt á bar-
áttudag Sameinuðu þjóðanna
gegn fikniefnavandanum, 26.
júní.
í fréttinni segir m.a.: „Fíkniefna-
vandinn fer sívaxandi í heiminum.
-I mörgum löndum heims ógna ólög-
leg fíkniefnaviðskipti og misnotkun
fíkniefna efnahagslegum, félags-
legum, stjómmálalegum og menn-
ingarlegum stoðum þjóðanna.
Á síðastliðnu ári stóðu Samein-
uðu þjóðimar fyrir fyrsta heims-
þinginu um fíkniefnavandann. Þá
var m.a. ákveðið að 26.júní á hverju
ári skyldi helgaður baráttu Samein-
uðu þjóðanna gegn fíkniefnavá.
Norrænir félagsmála— og heil-
Borgarfj ör ður:
Kaldur og
úrkomusamur
júnímánuður
Grund, SkorradaJ.
VEÐRÁTTAN hefur verið
með eindæmum leiðinleg í
Borgarfirði allan júnímánuð.
Eftir óvenju úrkomusaman
maimánuð, en þá rigndi sam-
tals 168 mm, hefur nánast
verið úrkoma og sólarlaust
hvem einasta dag júnímán-
aðar.
Mesta sólarhringsúrkoma
var 70,1 mm þann 18. júní og
þegar 3 sólarhringar eru eftir
af mánuðinum þá er heildarúr-
koma _ mánaðarins orðin 141
mm. Ársmeðalúrkoma maí er
60 mm en 65 mm í júní.
Loftkuldi er samfara þessari
úrkomu og er algengt hitastig
að deginum þetta 8—10°C, far-
ið að næturlagi niður í 3,1°C.
Þann 20. júní gránuðu fjöll
niður í 500 m hæðarlínu en
fjallatindar hafa gránað marga
daga. Urkomu og hitamælingar
þessar eru frá Andakílsvirkjun.
Grassprettu miðar afar
hægt, svo útlit er fyrir að slátt-
ur hefjist almennt ekki fyrr en
um 10. júlí, nema verulega
hlýni næstu daga.
- D.P.
brigðisráðherrar, sem koma saman
til fundar í Norrköping í Svíþjóð,
dagana 27.— 29. júní, minntust
Iþessa dags í upphafí fundar.
í norrænni samvinnu eru fíkni-
efnamál mjög ofarlega á blaði.
Unnið er samkvæmt norrænni
framkvæmdaáætlun að ýmsum
þáttum þeirra mála, m.a. aukinni
fræðslu, rannsóknum og meðferð
fíkniefnaneytenda. Ráðherramir
eru sammála um að halda áfram
að þróa þetta samstarf. Norðurlönd-
in hafa skipst á hagnýtum upplýs-
ingum um framkvæmd baráttunnar
gegn fíkniefnavandanum og tekist
að samhæfa vamir gegn þeim sem
dreifa fíkniefnum á norrænni
grund.
í norrænni samvinnu þarf að
gefa framlagi Sameinuðu þjóðanna
aukinn gaum. í sameiningu þurfa
Norðurlandaþjóðimar að veita þeim
meiri stuðning m.a. með því að
hjálpa fátækari þjóðum að snúast
til vamar ört vaxandi fíknefna-
vanda. Baráttudagur Sameinuðu
þjóðanna gegn fíkniefnum á að vera
dagur sem minnst er um allan heim.
Við þurfum að leggja okkar af
mörkum til eflingar þessu átaki alla
daga ársins að mati norrænna fé-
lagsmála— og heilbrigðisráðherra. “
Samstarfsnefnd um ávana— og
fíkniefnamál var skipuð af forsætis-
ráðherra hinn 10. september 1987
og eiga fulltrúar frá fímm ráðuneyt-
um sæti í henni, en það eru: Dóms-
mála—, félagsmála—, fjármála—,
heilbrigðismála—, og menntamála-
ráðuneytið. Hlutverk nefndarinnar
er að vinna að vömum og samræm-
ingu ráðuneyta gegn ávana— og
fíkniefnum og vera stjómvöldum til
ráðgjafar varðandi þessi mál.
(Úr fréttatilkynningu.)
Verðlagsstofnun:
Allt að 60% verðmunur
er á öli og gosdrykkjum
VERÐLAGSSTOFNUN gerði ný-
lega könnun á verði á gosdrykkj-
um og öli í matvöruverslunum
víðsvegar á landinu og fer hér á
eftir fréttatilkynning um niður-
stöður könnunarinnar:
I 14. tbl. þessa árs af Verðkönn-
un Verðlagsstofnunar em birtar
niðurstöður könnunarinnar og kem-
ur þar fram hvert meðalverð ein-
stakra tegunda af gosdrykkjum og
öli var í hveiju kjördæmi og nokkr-
um kaupstöðum.
Verð á gosdrykkjum og öli er
mjög mismunandi á landinu. Sem
dæmi má nefna að í verslun á Akra-
nesi kostaði innihald einnar lítillar
flösku af Coca Cola 19,50 kr. en
sama magn kostaði 40,00 kr. í
verslunum á Þórshöfn og Bakka-
fírði en það er 105% hærra verð.
Pripps öl í 50 sl dós kostaði frá
34,00 kr. til 70,00 kr. (106% verð-
munur). Munurinn á hæsta og
lægsta verði einstakra tegunda af
gosdrykkjum var að öllu jöfnu
50-90%.
Meðalverð á einstökum gos-
drykkjategundum í hveijum lands-
hluta var mishátt. Þannig var t.d.
meðalverð á 19 sl flösku af Coca
Cola 21,80 kr. á höfuðborgarsvæð-
inu en 31,30 kr. á Norðurlandi
eystra sem var 44% hærra meðal-
verð.
Þegar litið er á einstaka lands-
hluta var gos og öl að jafnaði ódýr-
Nýtt hárrækt-
arfyrirtæki
NÝTT fyrirtæki, Heilsuval, hefur
verið opnað að Laugavegi 92 í
Reykjavík, við Stjörnubíósplanið.
í Heilsuvali er boðið upp á nálarst-
ungumeðferð, rafmagnsnudd og
Ileysigeislatækni beitt við hárlosi,
blettaskalla, líflausu hári og öðr-
um svipuðum hárvandamálum.
Hliðstæðum aðferðum er einnig
beitt við að eyða hrukkum og
vöðvabólgu.
Hjá Heilsuvali eru einnig seldar
snyrtivörur fyrir húð og hár, unnar
úr lífrænum efnum. Þar má t.d.
nefna Aloe Vera heilsuvörur frá
G.N.C. sem einungis fást í Heilsuvali.
Aðaleigandi Heilsuvals er Sigur-
laug Williams sem áður veitti hár-
ræktarstofunum Heilsulínunni og
Hárræktinni forstöðu.
Sigurlaug Williams, eigandi hárræktarfyrirtækisins Heilsuvals.
ast á Suðurnesjum en dýrast á
Vestfjörðum. Lægsta Hæsta
meðalv. meðalv.
Vesturland 2teg.
Vestfírðir llteg.
Norðurland v. 3teg.
Norðurland e. lteg. 2teg.
Austurland 7 teg.
Suðurland 5 teg.
Suðumes 14teg.
í þeim kaupstöðum sem athugað-
ir voru sérstaklega reyndist verð á
gosdrykkjum og öli að jafnaði vera
lægst í höfuðborginni en hæst á
Sauðárkróki.
Lægsta Hæsta
meðalv. meðalv.
lOteg.
3teg.
Höfuðb.svæði
Akranes
ísaflörður
Sauðárkrókur
Akureyri
Egilsstaðir
Vestmannaeyjar
I Selfoss
Keflavík
lteg.
4teg.
9 teg.
1 teg. 3 teg.
5 teg.
lteg.
8teg.
Mikill verðmunur er á ákveðnu
magni af einstökum gosdrykkjateg-
undum eftir því í hvers konar um-
búðum þær eru seldar. Sem dæmi
má nefna að einn sl af Coca Cola
í 19 sl flösku kostaði að meðaltali
1,43 kr. en einn sl í 1,5 1 plast-
flösku kostaði 0,78 kr. í litlu flösk-
unni kostaði einn sl 83% meira en
í þeirri stóru.
(Fréttatilkynning)
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Sumarnámsk. í vélritun
Ný námskeiö byrja 4. júlí.
Vélritunarskólinn, simi 28040.
Aðalfundur skiðadeildar Víkings
verður haldinn i dag, miðvikudag
29. júni kl. 18.30 í félagsheimili
Víkings v/Hæðargarð.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Miðvikudagur 29. júnf:
Kl. 8 - Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 1200.
Nú er rétti timinn til þess að
dvelja í Þórsmörk. Ferðir föstu-
daga, sunnudaga og miðviku-
daga.
Miðvikudagur 29. júnf: Kl. 20
GÁLGAHRAUN.
Létt og skemmtileg kvöldganga
á Álftanesi. Verð kr. 400. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bfl.
Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Ferðafélag fslands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Vitnisburðir.
IHf útivist,
Helgarferðir 1 -3 júlí:
1. Þórsmörk. Gist i skálum Úti-
vistar í Básum. Fjölbreyttar
gönguferðir við allra hæfi. Ath.
Básar eru tilvalinn sumardvalar-
staður fyrir alla fjölskylduna.
Kynnið ykkur afsláttarkjör og
ferðamöguleika.
2. Eiriksjökull. Gengiö á jökul-
inn. Einnig skoðaður Surtshellir,
farið að Húsafelli og viðar. Tjöld.
Sértilboð til nýrra félagsmanna
á ársritum Útivistar frá upphafi,
kr. 5.780,- fyrir 13 rit. (Ársrit
1988 innifalið) Gildir til 1. ágúst.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofu Grófinni 1, símar 14606
og 23732. Sjáumst!
Útivist.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
[BD útivist, o,—;.
Miðvikudagur 29. júní.
Kl. 20 kvöldferð f Viðey. Leið-
sögumaður Guðmundur Guð-
brandsson. Gengið um eyjuna
og fræðst um sögu og minjar.
Kynnist útivistarparadís Reyk-
víkinga. Kaffiveitingar í Viðeyjar-
skála. Brottför frá kornhlöðunni
í Sundahöfn. Verð 400 kr., frítt
f. börn yngri en 12 ára með for-
eldrum sínum.
Gönguferð á Heklu laugardag
2. júlf kl. 8.
Sjáumst. útivist
1927 60 ára 1987
Æ\ FERÐAFÉLAG
Æy ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferðir
Ferðafélagsins:
1.-3. júlí: Snæfellsnes - Ljósu-
fjöll. Gist I svefnpokaplássi.
Gengið á Ljósufjöll.
1.-3. júlf: Þórsmörk. Gist f Skag-
fjörðsskála/Langadal.
1.-3. júlf: Fyrsta helgarferðin á
sumrinu til Landmannalauga.
Gist i sæluhúsi F.í. i Landmanna-
laugum.
8.-10. júlí: Hagavatn - Jarihettur.
Gist í sæluhúsi F.í. við Einifell
og í tjöldum.
8.-10. júlf: Hagavatn - Hlöðu-
vellir - Geysir (gönguferð).
Gengið frá Hagavatni að Hlöðu-
völlum og gist þar, siðan er
gengið að Geysi.
15.-17. júlf: Þórsmörk - Teigs-
tungur. Gist i tjöldum i Stóra-
enda og gengið þaðan i Teigs-
tungur og víðar.
Brottför í helgarferðirnar er kl.
20.00. Farmiðasala og upplýs-
ingar á skrifstofu Ferðafólags-
ins, Öldugötu 3.
Ferðafólag íslands.
ÚtÍVÍSt, G'olinm ,
Notið sumarfrfið til
Útivistarferða
1) 1.-6. júlf. Sumar á Suðaust-
urlandi 6 d. Gist i svefnpoka-
plássi á Stafafelli, f Lóni eða i
tjöldum. Brottför kl. 8 þ. 1.7.
Farið um tilkomumiklar göngu-
leiðir í Lóni og nágrenni og skoð-
unarferð um Suöurfirðina. Báts-
ferð f Papey. Fararstjóri: Berg-
sveinn Ólafsson.
2) 7.-15. júlf. Hornstrandir I:
Hornvík. Tjaldað ( Hornvik.
Gönguferðir um stórbrotið lands-
lag m.a. á Hombjarg og í Hlööuvík.
Fararstjórar Óli G.H. Þórðarson
og Lovisa Christiansen.
3) 7.-12. júlf. Hornstrandir I:
Hornvfk. Sama og ferð nr. 3,
nema Hlööuvik. Undirbúnings-
fundur þriöjudaginn 28. júni.
4) 7.-15. júlf. Hornstrandir II.
Hesteyri - Aðalvík - Homvfk.
Skemmtileg bakpokaferð. Farar-
stjóri: Þráinn Þórisson.
5) 6.-10. júlf. Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Gengið milli
skála. Fararstjóri: Rannveig Ól-
afsdóttir. Aukaferð 28.7-1.8.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofu Grófinni 1, simar 14606
og 23732. Sjáumst.
Útivist.