Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Stjörrm-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ég er fædd 9. maí 1963
kl. 2.40 að nóttu til (í Rvík).
Mér þætti vænt um ef þú
gætir lesið úr stjömukortinu
mlnu og þá um starf, kosti
og galla. Með fyrirfram
þökk.“
Svar:
Þú hefur Sól I Nauti, Tungl
I Sporðdreka, Merkúr I
Tvíbura, Venus I Hrút, Mars
I Ljóni, Steingeit á Rísandi
og Bogmann á Miðhimni.
Mörg merki
Á framangreindri upptaln-
ingu sést að þú átt þér mörg
merki og ert því að mörgu
leyti margslunginn persónu-
leíki.
Föst jyrir
Það sem stendur þó upp úr
er sterk afstaða á milli stöð-
ugu merkjanna Nauts,
Sporðdreka, Ljóns og síðan
Satúmusar I Vatnsbera. Það
táknar að þú ert föst fyrir
og þarft að gæta þín á að
festast ekki I of þröngum
persónulegum stíl.
Öryggi
Sól I Nauti táknar að þú ert
I grunnatriðum róleg og yfir-
veguð persóna, ert jarð-
bundin og þarft öryggi og
áþreifanlegan árangur. Það
er t.a.m. æskilegt að starf
skili þér nokkuð ömggum og
góðum tekjum.
Nœmar
tilfinningar
“Tungl I Sporðdreka táknar
að þú hefur sterkar, djúpar
og næmar tilfinningar.
Steingeit Rísandi og Satúm-
us I spennustöðu við Tungi
gefur hins vegar til kynna
að þú eigir stundum erfitt
með tjá tilfínningar þinar.
Þú þarft því að vinna gegn
tilfínningalegri bælingu og
varast að halda skapi þinu
innra með þér, safna t.d. upp
reiði o.þ.h.
Fullkomnunarþörf
Það sem ég tel liklegt að sé
mesti veikleiki þinn er sterk-
ur metnaður og fulkomnun-
arþörf sem siðan gæti leitt
til minnimáttarkenndar. Þú
þarft þvi að læra að treysta
á sjálfa þig og varast að
gera of miklar og lamandi
kröfur til þin.
Skipulags-
hœfileikar
Ég tel að þú hafir hæfileika
í skipulagsmálum, sérstak-
lega á sviðúm sem tengjast
listum eða þvi að hjálpa öðm
fólki (Neptúnusi). Dæmi
gæti verið arkitektúr eða ein-
hvers konar hönnun. í öðm
lagi hefur þú hæfileika á við-
skiptasviðinu.
- SjálfstœÖ hugsun
Merkúr í Tvíbura í spennuaf-
stöðu við Úranus táknar að
þú hefur eirðarlausa, fjöl-
hæfa og sjálfstæða hugsun.
Þú ert uppfínningasöm og
ferð eigin leiðir. Það ásamt
Steingeit og Nauti gæti bent
tii viðskipta- og stjómunar-
hæfileika sem mætti nýta í
fjölmiðlun eða annarri miðl-
un.
Starfsfrelsi
ogöryggi
Mars í Ljóni táknar að þú
ert ráðrík í vinnu en jafii-
framt stolt og vilt vissa virð-
ingu. Það ásamt Bogmanni
á Miðhimni bendir til að
ákveðið starfsfrelsi sé æski-
legt. Það má segja að þú
þurfir öryggi en jafnframt
ákveðið svigrúm.
GARPUR
llfflSIIII! pjjH ::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: V3 It K III iV
DASBÓK R7/U-U3ÖW<3U/MANNS1NS:
KOMIWW 12.000 FET OPP
GFMSUR. ti/FGT
SÚHEFbltp Fií AFákORNUW
SKXAMm I þESSARi HÆÐ.HIWN
[?eywDi csarpup veiT ae> hann
FERDINAND
II ' ■ —.... 11"
SMÁFÓLK
Hvað heitir þetta verk? Mér finnst gaman að því. Á ég að segja þér nokkuð? Mér finnst gaman að lifa!
Viðhöfn og hátíðleiki eftir Mér líka. Hvað?
Elgar.___________________________________________________________
Umsjón: Guðm. Páll -
Arnarson
Sömu spil em spiluð í öllum
leikjum á Norðurlandamótinu,
sem fram fer þessa dagana á
Hótel Loftleiðum. Spil númer 7
í fyrstu umferð var hættulegt,
enda skilaði það 9 mismunandi
útkomum á þeim 10 borðum sem
það var spilað á!
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 109
♦ 764
♦ 4
♦ ÁD109753
Vestur Austur
♦ 7632 ♦ÁDG5
♦ 3 | VKG82
♦ KD97653 ♦ 82
♦ G +K84
Suður
♦ K84
♦ ÁD1095
♦ ÁG10
♦ 62
AV yfirtók samninginn á 7
borðum og spiluðu frá tveimur
spöðum upp í fjóra, eða tígul-
bút. Geimin töpuðust, en þeir
sem voru í spaðabútnum unnu
flóra. Á hinum 4 borðunum spil-
uðu NS geim — flögur hjörtu
og þijú grönd. Sævar Þorbjöms-
son í liði íslands vann þrjú grönd
redobluð í leiknum gegn Færeyj-
um. Sagnir gengu þannig, með
Sævar í suður, Karl Sigurhjart-
arson í norður og Færeyingana
Vestergaard og Mouritsen í AV:
Vestur Norður Austur Suður
- 31auf Dobl 3 grönd
Dobl Pass Pass Redobl
Pass Pass Pass
Dobl vesturs er í harðara lagi,
en redobl Sævars neitaði háspili
í laufí. Karl hafði áður lofað
tveimur af þremur efstu í litnum
með því að passa doblið og ák-
vað því að sitja með ÁD109 i
toppnum.
Út kom tígulkóngur, sem
Sævar drap á ás og spilaði laufi
á drottningu. Austur dúkkaði
að sjálfsögðu. Sævar svínaði
næst hjartatíu, spilaði laufi á ás
og svinaði aftur í hjarta. Vestur
henti tveimur spöðum.
Næst sótti Sævar tígulslag
og vestur skipti yfir í spaða, sem
austur drap á ás og sótti spað-
ann áfram. Sævar hafði nú
nokkuð glögga mynd af spilum
AV. Hann drap á spaðakóng, tók
tígulslaginn og spilaði vestri inn
á spaða. Tvo síðustu slagina
fékk hann svo á ÁD í hjarta.
Slétt staðið og 1.000 í NS.
Á morgun skulum við huga
að því hvemig Finninn Kalvero
Koistinen vann fjögur hjörtu
dobluð í leiknum gegn Norð-
mönnum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í landskeppni Dana og Svia í
mai kom þessi staða upp i skák
alþjóðlega meistarans Lars-Ake
Schneiders og nýbakaðs Dan-
merkurmeistara, Lars Schan-
dorffs, sem hafði svart og átti
leik.
20. - Bxh3! 21. gxh3 - Dxh3
22. Bxg3 - fxg3 23. Re3 - Rf4
24. Rc5 - Had8 25. Hc2 - Hcd6
26. Rg4 (Til að hindra 26. —
Hh6) 26. - g2 27. Hfcl - Dg3
28. Rf2 — Hh6 og hvítur gafst
upp. Danir sigruðu naumlega í
landskeppninni, 8V2—7*/2.