Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
fclk f
fréttum
Það er auðséð að skíðakennarinn
er skemmtilegxir.
KERLINGARFJÖLL
Skíðaferðalag
Nemendur í gunnskólunum að
Varmalandi og Kleppjáms-
reylqum í Borgarfírði fóru í skíða-
ferðalag dagana 18.-21. júní og var
dvalið í Skíðaskólanum í Kerlingar-
Qöllum. Borgfírskir nemendur hafa
farið í slíkar ferðir undanfarin 2-3
ár og fer þetta því að verða árviss
atburður.
Að þessu sinni bættust nemendur
í 7.-9. bekk Bamaskólans á Eyrar-
bakka í hópinn. Eitthvað munu
Borgfirðingar hafa óttast að þessi
viðbót yrði til að spilla stórkostlegri
dvöl þeirra. Ekki bar þó á öðm en
að unglingunum kæmi bráðvel sam-
an og allir skemmtu sér konung-
lega.
Þó að veður væm válynd á stund-
um, var skíðað af miklum krafti
undir stjóm hinna mestu snillinga.
„Það er merkilegt hvað skíðakenn-
arar em miklu skemmtilegri en
aðrir kennarar", sagði einn nem-
andinn, en bætti svo við kennara
sínum til huggunar, „Þið hinir emð
svo sem ágætir líka, á ferðalögum
u
A hveiju kvöldi vom raddböndin
þanin og leikið við hvem fingur á
kvöldvökum. Síðan var dansað við
undirleik hljómsveitarinnar „Skíða-
brot“.
Unglingamir vom mjög ánægðir
með ferðina og ákváðu Borgfírðing-
ar og Eyrbekkingar að hittast aftur
í KerlingarQöllum að ári.
Á kvöldin voru haldnar kvöld-
vökur og dansað við undirleik
hljómsveitarinnar „Skíðabrot".
Morgunblaðið/Silli
Sigrún Kristjánsdóttir bóndi með minkinn sem hún drap með ístaði.
Minkur veginn í
Öxarfirði
BÓNDINN Sigrún Krisyánsdótt-
ir, Vestara-Landi, Oxarfirði,
tók ístað frá hnakk sínum og drap
með því mink. Sigrún var á hesti
sínum í leit að lambi, sem villst hafði
frá móður sinni, og var heimilis-
hundurinn með í för.
Ekki langt frá bænum varð á
vegi hennar minkur, óboðinn gestur
í landareigninni, og henni kom ekki
annað til hugar en að hann skyldi
veginn og ekki um annað að tala
en að treysta á sig sjálfa, því „ég
hræðist hvorki mýs né mink“, sagði
Sigrúh.
Henni kom strax til hugar að hún
yrði að halda minknum frá læk, sem
þama var nálægur, því ef hann
kæmist í lækinn væri orustan töpuð.
Fyrst datt henni í hug að siga hund-
inum á minkinn, en er þeir stóðu
andspænis hvor öðrum sneri hundur-
inn undan. Þá datt Sigrúnu í hug
að reyna að láta hestinn stíga ofan
á minkinn, en sú tilraun tókst ekki,
því það var eins og blessaður hestur-
inn forðaðist að stíga á það, sem
lifandi var.
Vopn voru nú fá til orustu en þá
kom Sigrúnu til hugar, að lýja min-
kinn, eins og veiðimenn lýja laxana
og þar sem hún var ríðandi þeyttist
hún á eftir honum og tókst að halda
honum frá læknum. Þegar hún sá
að hann var farinn að lýjast fór hún
af baki, tók annað ístaðið frá
hnakknum og lagði til orustu með
hríslu í annarri hendi og ístað I
hinni. Hún þóttist ætla að beija
hann með hríslunni og blekkti hann
þannig, þar til hún reiddi ístaðið til
höggs og felldi hann I fyrsta höggi,
og þar með var hún laus við varginn
úr landareign sinni.
- Fréttaritari
MÓNAKÓ
Karólína prinsessa
Fyrir nokkrum árum var Ka-
rólína prinsessa af Mónakó
sífellt á ferð og flugi í samkvæmum
og skemmtunum um allan heim.
Hún var í uppáhaldi hjá slúður-
dálkahöfundum og umtöluð fyrir
lífemi sitt.
Það voru einkum tveir atburðir sem
gjörbreyttu lífí Karólínu. Fyrst kom
áfallið þegar Grace prinsessa, móð-
ir hennar dó í hræðilegu umferðar-
slysi. Þá varð Karolína að takast á
herðar alla þá ábyrgð sem fylgir
því að vera elsta dóttirin og þurfa
að koma í stað móður sinnar bæði
opinberlega og innan fjölskyldunn-
ar. Síðan giftist Karoifna seinni eig-
inmanni sínum, Stefano Cashiragi
og á hún 3 böm með honum. Sem
betur fer reyndist Stefano ekki vera
sama mannleysan og Philippe Ju-
not, glaumgosinn, sem var fyrri
eiginmaður Karólínu.
í dag er ímynd Karólínu gjörbreytt.
í stað skemmtana og óreglulegs
lífemis, lifír hún nú farsælu flöl-
skyldulífí og hamingjan blómstrar.
Hún er gífurlega vinsæl í Mónakó
og í fjölmiðlum í Frakklandi, Spáni
og Ítalíu er henni nánast lýst sem
dýrlingi. Auðvitað býr þar að baki
vel skipulögð ijölmiðlaherferð sem
á upptök sín í Mónakó en sú her-
ferð bæri aldrei árangur ef prinsess-
an væri ekki verðug hennar. Ka-
rólína hefur passað sig á að gefa
ekki höggstað á sér í íjölmiðlum
og aflað sér virðingar þjóðar sinnar.
Grimaldifjölskyldan hefur alla tíð
tilheyrt kaþólsku kirkjunni og því
geta fylgt ýmis vandamál. Karólína
prinsessa var áður gift glaumgosan-
um, Philippe Junot, en hann sveik
hana og þá var skilnaður óhjá-
kvæmilegur. Lagalega séð var ekk-
ert því til fyrirstöðu að Karólína
fengi skilnað og gifti sig aftur en
páfínn og kaþólska kirkjan líta
öðruvísi á málið. Frá bæjardyrum
páfans séð er Karólína enn gift
Philippe Junot og þar af leiðandi
lifír hún í synd og á óskilgetin böm
með Stefano Cashiragi. Þetta kem-
ur sér mjög illa fyrir Karólínu sem
flestir búast við að verði arftaki
krúnunnar eftir foður sinn. Nú von-
ast Karólína til þess að páfínn skipti
um skoðun og lýsi hjónaband henn-
ar og Philippes ógilt.
Philippe Junot hefur fengið að
kenna á því að hafa nokkum tíma
hitt Karólínu. Hann hefur féngið
mjög neikvæða umflöllun í fjölmiðl-
um um allan heim og nú þegar
hann er loksins tilbúinn til að lifa
rólegu Qölskyldulífí kemur þetta sér
afar illa fyrir hann. Hann er nýgift-
ur Ninu Wendelboe sem er af dönsk-
um og sænskum ættum og er talin
bæði forkúnnarfögur og gáfuð. Þau
hjónin hefðu helst kosið að búa í
París en það hefði orðið þeim óbæri-
legt vegna þess illa mannorðs sem
Philippe hefur eftir skilnaðinn við
Karólínu. Hann er sífellt minntur á
þetta misheppnaða hjónaband sitt
með prinsessunni og vegna þess
hversu vinsæl Karólína er, hefur
hann eignast ófáa fjendur á heima-
slóðum. Nú hafa þau hjónin fundið
sér heimili á Marbella á Spáni og
lifa þar nokkum veginn í friði og ró.
Stefano seinni eiginmaður Karólínu
er af ítölsku bergi brotinn. Faðir
hans er mikill auðjöfur og nú hefur
Stefano fetað í fótspor hans og
byijáð ir\eð’ sitt eigið fyrirtæki. Nú
flýgur hann um allan heim í við-
skiptaerindum. Stefano hefur alla
tíð verið mjög ábyrgur og alvarleg-
Stefano og Karólína giftust ekki
af ást en samband þeirra verður
betra ineð hveiju árinu sem líður.
Mónakóbúar eru mjög hreyknir
af Karólinu og hún er liklegur
arftaki föður síns.