Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 47
MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVÍKÚDAGUR 29. JÚNI 1988
44
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Krakkarnir frá Árósum á tröppum Hótels Arkar þar sem þau komu við á leið um Hveragerði.
Lásu Njálu fyrir íslandsferð
Nemendur 7. bekkjar í Lisbjerg
skólanum í Árósum í Dan-
mörku ákváðu að fara í skólaferða-
lag til íslands, eftir að piltur frá
íslandi, Jóhann Bragi Oddsson,
hafði verið í skólanum í þrjú ár.
Krakkarnir lásu Njálu fyrir ferðina
og undirbjuggu sig einnig með því
að kynna sér efni um ísland.
Jóhann Bragi fór til Danmerkur
með foreldrum sínum 1983, þá 8
ára. Hann var þá í bekk hjá Ullu
Buhl kennara sem kom með krökk-
unum. Ulla sagði að Lisbjerg skól-
inn væri í útjaðri Árósa, með um
100 nemendur. Einn bekkur er í
hveijum árgangi og sjöundu bekk-
ingamir eru elstir í skólanum. Eftir
þann bekk fara nemendumir í aðra
skóla.
Ulla sagði að það væri venja að
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jóhann Bragi Oddsson með kennurunum Ullu Buhl og Mathiasi
Hansen.
fara með elsta bekkinn í ferðalag
og þegar Jóhann flutti til íslands
ákvað bekkurinn að safna fyrir ís-
landsferð til að heimsækja hann.
Krakkarnir söfnuðu fé með ýmsu
móti og fengu auk þess styrki, frá
sjóði um dansk/íslenska samvinnu,
frá sveitarfélaginu og frá Norræna
félaginu í Árósum.
„Þetta hefur verið mjög spenn-
andi verkefni að koma hingað,"
sagði Ulla. Hún sagði að þau hefðu
tekið ísland fyrir í tímum í nokkrar
vikur áður en farið var og í lokin
var Njáia lesin. Hún sagði að upplif-
unin við að koma hingað væri allt
önnur en bara að lesa um landið,
þó krökkunum hefði þótt það fróð-
legt líka. Hún kvaðst álíta að krakk-
amir ættu öll eftir að koma aftur
til íslands og þá með foreldrum
sínum því það væri erfitt fyrir þau
að segja frá því sem hér væri að
sjá án þess að þeir sem hlustuðu
vissu hvað átt væri við.
Krakkamir vom mjög ánægðir
með ferðina og sögðust hafa upplif-
að Njálu aftur þegar farið var á
söguslóðimar, um Fljótshlíð og í
Þórsmörk. Þau gista í skóla skammt
frá heimili Jóhanns í Reykjavík en
heima hjá honum er eldað í hópinn.
-Sig. Jóns.
Karólína ásamt bömunum, Andrea, Pierre og Karlottu.
4.
I
ur í framkomu. Kunnugir segja að
Karólína hafí ekki gifst honum af
ást, heldur þótti það skynsamlegt
og svo urðu þau tvö mjög góðir
vinir. Samband þeirra hefur styrkst
með ámnum og í dag em þau mjög
hamingjusöm. Rainer fursti er einn-
>g mjög ánægður með tengdasoninn
og bömin em honum allt.
KÖFUNARNÁMSKEIÐ
Nú gefst einstakt tækifæri til að kynnast
undraheimi undirdjúpanna og læra froskköfun.
Námskeiðið er haldið á Reykjanesi við ísafjarðardjúp
og stendur í 8 daga. Því lýkur með prófi sem miðast
við tveggja stjörnu alþjóðleg réttindi til sportköfunar.
Næsta námskeið hefst 9. júlí 1988.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
Bandalagi íslenskra farfugla,
sími (91)10490.
- Halló, er þetta á lögreglustöðinni?
- Jújú, þetta er þar.
- Viljið þið koma strax út á hornið á
Kríustíg og Skógarstíg, staerðfræðikennarinn
minn hefur lagt bílnum sínum þar ólöglega!!
KÓkÓAAJÓLK FJjRJR 6LATT FÓLK /