Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTJR MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
3S’
ínémR
FOLX
■ FYRSTA umferð ensku knatt-
spyrnunnar fer fram laugardaginn
27. ágúst. Þá fara fram eftirfar-
andi leikir í 1. deild:
Aston Villa - Mill-
Frá wall
Bob Hennessy Charlton - Li-
1 Englandi verpool
Derby - Middles-
brough
Everton - Newcatle
Man. United - QPR
Norwich - Nott. Forest
Sheffield W. - Luton
Southamton - West Ham
Tottenham - Coventry
Wimbledon - Arsenal
■ BIKARMEISTARAR
Wimbledon munu leika fímm leiki
í Svíþjóð í tíu daga keppnisferð sem
hefst 27. júlí.
MPAT Van Den Hauwe, bakvörð-
ur hjá Everton, hefur gert nýjan
fíögurra ára samning við lið sitt.
■ KENNY Sansom, bakvörður
í enska landsliðinu, krefst þess að
fá nýjan tveggja ára samning við
Arsenal, eigi hann að vera áfram
hjá félaginu. Sansom hefur ekki
verið í náðinni hjá George Graham
framkvæmdastjóra og missti fyrir-
liðastöðuna fyrir skömmu. Graham
keypti nýlega tvo bakverði, Nigel
Winterburn og Lee Dickson og
er talað um að hann vilji losa sig
við Sansom. Ef Sansom yrði tvö
ár til viðbótar hjá Arsenal, ætti
hann rétt á ágóðaleik, þar sem
hann væri þá búinn að vera tíu ár
hiá félaginu.
I LIVERPOOL og Manchester
United hafa bæði áhuga á Klaus
Eftevaag, sem leikur með norska
liðinu Start. Liverpool sendi njósn-
ara til að fylgjast með honum leika
en hann hefur einnig æft eina viku
með Manchester United. Auk þess
hafa þýzk lið sýnt honum áhuga.
■ PAUL McGrath er sennilega
á förum frá Manchester United
til Tottenham. Terry Venables
framkvæmdastjóri Tottenham
hefur mikinn áhuga á McGrath
og rætt hefur verið um að kaup-
verðið verði 850 þús. pund. Vitað
er, að McGrath, sem átti frábæra
leiki með írska landsliðinu í Evr-
ópukeppninni fyrir skömmu, er
rniög í mun að skipta um félag.
■ KEVIN Moran, félagi
McGraths í Manchester United
og írska landsliðinu, fær fijálsa
sölu frá félagi sínu. Nágrannaliðið
Manchester City hefur sýnt honum
áhuga.
■ KEVIN Mcdonald vill ekki
framlengja samning sinn við Li-
verpool. Hann var keyptur til liðs-
ins fyrir þremur árum á 400 þús.
pund og lék þá mjög vel. Síðan var
hann frá vegna meiðsla og eftir að
hann náði sér af þeim hefur hann
Paul McGrath er sennilega á förum
frá Manchester United til Tottenham.
ekki komizt í hið stjömum pfydda
lið Liverpool.
I BRIAN Claugh, fram-
kvæmdastjóri Nottingham Forest,
hefur keypt bakvörðinn Brian Law
frá Middlesbrough. Kaupverð er
ekki endanlega ákveðið en Law er
metinn á 160 þús. pund.
■ TERRY Venables, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, seldi
hinn 19 ára gamla vamarmann
Neil Ruddock til Millwall á 300
þús. pund. Ruddock reyndist Tott-
enham hagstæð fjárfesting, því að
hann var á sínum tíma keyptur á
50 þús. pund frá Millwall.
■ PAUL Gascoigne er mjög
eftirsóttur leikmaður og ósennilegt
að Newcastle geti hafnað þeim
upphæðum, sem í hann eru boðnar.
Bæði Tottenham og Manchester
United vilja ólm fá hann í sínar
raðir og er sagt að Alex Fergus-
son, framkvæmdastjóri United, sé
reiðubúinn að greiða 2 milljónir
punda fyrir hann en það yrði hæsta
upphæð sem greidd hefði verið
vegna sölu leikmanns milli enskra
félagsliða. Einnig hefur verið
nefndur sá möguleiki, að Bryan
Robson fyrirliði enska landsliðsins
fari frá United til Newcastle í
skiptum fyrir Gascoigne.
■ EKKERT verður af móti fjög-
urra stórliða, sem fyrirhugað var á
Wembleyleikvanginum í London
um miðjan ágúst. Þar áttu að leika
Arsenal, Tottenham, AC Milan
og Bayern Mtinchen. Innan við
klukkustund eftir að skipuleggjend-
ur keppninnar tilkynntu um mótið,
hafnaði enska kanttspymusam-
bandið því að það yrði haldið á
þeirri forsendu að hætta væri á ólát-
um og ekki væri unnt að tryggja
öryggi erlendu stórstjamanna.
VETRAROLYMPIULEIKAR
Fær Lillehammer
vetrar-ÓL 1994?
Frá
Sigurjóni
Einarssyni
iNoregi
Fórmaður Alþjóða Olympíu-
nefndarinnar, Juan Antonio
Samaranch heimsótti Lillehammer
á sunnudaginn. Tilgangur heim-
sóknarinnar var að
líta á aðstæður til
Olympíuleikahalds,
en Lillehammer er
meðal umsækjenda
um’“vétrar Olympíuleikana 1994.
Bærinn skartaði sínu fegursta og
virtist Samaranch vera hæstánægð-
ur með það sem fyrir augu bar.
Staða Lillehammer í baráttunni um
að fá að halda leikana hefur styrkst
verulega eftir að Lausanne dró
umsókn sína til baka nú um helg-
ina. Ástæða þess að Lausanne hætti
við er sú að í atkvæðagreiðslu sem
fram fór meðal bæjarbúa um málið,
voru 63% þeirra mótfallnir þvi að
bærinn falaðist eftir að halda leik-
ana.
„Lillehammer kemur afar sterkt til
greina," sagði Samaranch við
fréttamenn. „Hér eru allar aðstæð-
ur til fyrirmyndar."
Það bar til tíðinda á meðan á heim-
sókn Samaranch stóð að götuhiaup
sem íþróttahreyfingar í Lilleham-
mer gengu fyrir endaði með ósköp-
um. I Lillehammer var 30 stiga
hiti þennan dag og í hlaupinu ör-
mögnuðust 20 hlauparar svo að
flytja varð þá á sjúkrahús. Allir
voru þó útskrifaðir að meðhöndlun
lokinni.
Kópavogsvöllur
i kvöld 29. júní
kl. 20.00
BREIÐABLIK
ÍBV
Zenith tölvur ( JSM£
BYKO
<SAMEIND>=
HBHBVf
RADIAIDEKK
GÓÐ DEKK Á GÓÐU VERÐI
STÆRÐ VHRO m/söluskatti
155 SR 12 2015.-
145 SR 13 2220.-
155 SR13 2265,-
165 SR13 2385.-
175 SR14 2775.- |
185 SR14 3040.-
165 SR 15 2940.-
175/70 SR13 2845.-
185170 SR13 2930-
185/70 SR 14 3010-
195/70 SR14 3325.-
205/70 SR14 3600.-
185/70 SR 14 4200-
195/60 SR 14 4515-
205/65 SR 15 4840-
ssmmmmmB
Réttarháls 2 s. 84008 <5 84009 • Skipholt 35 s. 31055"'