Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
GOLF / ARCTIC OPEN
Alþjóðlegt miðnæturgolf:
Glæsilegt goHmót
á Jaðarsvelli
Björn Axelsson hlutskarpastur, lék á 156 höggum
Það var alþjóðlegt andrúmsloft
á Jaðarsvelli, golfvelli Akur-
eyringa, um helgina. Þá fór þar
fram alþjóðlegt golfmót, The
Arctic Open. Akureyringar hafa
með þessu móti rutt brautina
fyrir alþjóðleg mót kylfinga á
íslandi og á næsta sumri verð-
ur á Jaðarsvelii stórmót er-
lendra kvenna, sem allar hafa
golfleik að atvinnu.
Undirbúningur og kynning
þessa miðnæturgolfmóts með
þátttöku erlendra kylfínga hefur
staðið í nokkur ár og Jaðarsvöllur
komst fyrst veru-
lega í heimsfréttirn-
ar þegar Banda-
nkjamaðurinn Pat
O’Bryan fór um
heiminn árið 1985 til að leika golf
á nyrsta, syðsta, austasta, vestasta,
hæsta og lægsta golfvelli jarðar.
Jaðarsvöllur er sá nyrsti. Ári síðar
var farið af stað með Arctic Open
svo þetta var nú í þriðrja sinn sem
mótið fer fram og Pat O’Bryan var
einn fjölmargra þátttakenda.
Akureyringar voru 36 og auk þeirra
kepptu 13 íslendingar frá 8 golf-
-^klúbbum víða um land, flestir frá
ísafírði, 6 talsins. Flestir útlending-
amir komu frá Lundúnum en þar
hefur mótið verið kynnt sérstak-
lega. Jóhann Sigurðsson og Flug-
leiðir stóðu þar fyrir golfmóti í vet-
ur, Pre-Arctic Open, en sigurvegar-
inn þar, Desmond Sturdee, hiaut
að launum ferð og þátttöku í mót-
Sverrír
Páll
skrífar
Morgunblaöið/Rúnar Þór Björnsson
Jóhann Slgurðsson sagði að sig
hefði lengi dreymt um að leika golf á
bjartri sumamóttu og því hefði sér
verið kappsmál að kynna og styðja
þetta mótshald. Einkum hefði í draumi
sínum verið fólgin sú þrá að slá svart-
an golfbolta út í sólskinsbjarta nóttina
og þess vegna væri til orðið tákn
mótsins, svarta kúlan.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson
BJSrn Axelsson, GA, sigraði nokkuð örugglega og var sex höggum á undan
næsta keppanda.
inu hér. Jóhann sagði að sig hefði
lengi dreymt um að leika golf á
bjartri sumamóttu og því hefði sér
verið kappsmál að kynna og styðja
þetta mótshald. Einkum hefði í
draumi sínum verið fólgin sú þrá
að slá svartan golfbolta út í sól-
skinsbjarta nóttina og þess vegna
væri til orðið tákn mótsins, svarta
kúlan.
Töluverður hópur Grimsbyinga var
meðal þátttakenda, en þeir komu
nú flestir öðru sinni til að taka þátt
í mótinu. Fyrir þeim hópi fór einkum
Mike Haith. Þá tóku og þátt í mót-
inu Mark Jones og Andrew Clark,
sem voru öðrum þræði að kynna
sér aðstæður vegna atvinnukvenna-
mótsins næsta sumar. Þeir urðu
meðal 10 efstu manna án forgjafar.
Keppni hófst klukkan átta að kvöldi
föstudags og þá var leikið fram til
klukkan að ganga fímm að morgni.
Seinni keppnisnóttin hófst klukkan
átta á laugardagskvöld og iauk um
þrjúleytið aðfaranótt sunnudags.
Veður var þurrt en ákaflega hvasst
á suðvestan. Seinni nóttina naut
sólar að nokkru en þá var vindurinn
slíkur að í verstu rokunum var varla
stætt á vellinum. Þetta setti vissu-
lega svip á mótið og árangur
margra var verri en ella fyrir vikið.
Keppt var bæði með og án forgjaf-
ar. I keppni án forgjafar eftir fyrri
keppnisnótt var röð efstu manna
þessi: Þórhallur Pálsson GA (76),
Bjöm Axelsson GA (77), Kristján
Hjálmarsson GH (78), Sverrir Þor-
valdsson GÍ (80) og Friðþjófur
Helgason NK (81). í keppni með
forgjöf voru eftir fyrri nótt jafnir
og efstir Júlíus Haraldsson GA og
Jón Friðriksson GA (69) og Guð-
mundur Lárusson GA og Þórhallur
Pálsson GA (71).
Seinni nóttina urðu dálitlar tilfær-
ingar milli efstu manna. Keppni án
forgjafar lauk svo að samanlagt
varð Bjöm Axelsson GA hlutskarp-
astur (156). Næstir og jafnir urðu
Friðþjófur Helgason NK og Þór-
hallur Pálsson GA (162), en Þór-
hallur gaf Friðþjófí eftir annað
sætið. Fjórði varð Kristján Hjálm-
arsson GH (165) og fimmti David
Bamwell GA (168).
í keppni með forgjöf urðu meiri
sviptingar. Júlíusi Haraldssyni GA
gekk illa, en Eiríkur tvíburabróðir
hans skaut sér upp að hlið Jóns
Friðrikssonar og þeir urðu jafnir
samanlagt (145). Þeir léku til úr-
slita á sunnudag 18 holur og Eirík-
ur vann Jón með 4 höggum enda
þótt Jón hefði 11 höggum meiri
forgjöf. Því varð röð efstu manna
sú að Eiríkur Haraldsson GA vann,
Jón Friðriksson GA varð annar og
Guðmundur Lámsson GA lenti i
þriðja sæti. Eiríkur hlaut að launum
aðalverðlaun mótsins, stórglæsilegt
golfsett.
I lokahófí mótsins á sunnudags-
kvöld kvöddu margir hinna erlendu
þátttakenda sér hljóðs og luku upp
einum munni um það hvert ævin-
týri það hefði reynst að leika mið-
næturgolf á Akureyri. Þeir rómuðu
mjög fegurð, ástand og gæði golf-
vallarins og þeir sem áður höfðu
leikið á honum sögðu framfarir og
breytingar ævintýri líkastar. Þeir
sögðu stjóm og framkvæmd móts-
ins, þjónustu og gestrisni hafa ver-
ið með eindæmum, en þeim gafst
færi á að fara skoðunarferð til
Grímseyjar og um nágrenni Akur-
eyrar, sumir renndu fyrir lax og
Grimsbyingum bauðst að veiða
þorsk innan landhelgi(I), á smábát
á Eyjafírði.
Morgunblaöiö/Rúnar Þór Björnsson
Miðnæturgolf
Þátttakendur í Arctic Open á Jaðarsvelli voru að þessu sinni 72. Af þeim komu
23 frá útlöndum, Bretar og Bandaríkjamenn.
Morgunblaöiö/Rúnar Þór Björnsson
Krlstján Hjálmarsson púttar hér á Jaðvarsvelli.