Morgunblaðið - 13.07.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
19
Sprek og sprettfiskar
eftir Tryggva
Helgason
í upphafi komu menn til landsins
frá Noregi. Menn sem nokkrum öld-
um áður komu til Norðurlandanna
frá landsvæðunum við Svartahaf; frá
Skýþíu — Svíþjóð hinni miklu; og
nokkrum öldum þar áður frá löndun-
um milli Miðjarðarhafs og Persaflóa.
Við landnám var landinu lýst svo,
að það væri viði vaxið milli fjalls og
íjöru, sem var vafalaust rétt. I Nor-
egi voru skógar og þar höfðu menn
timbur í öll hús og skip. A Islandi
var bara viður, en við kölluðu forn-
menn greinar og hrís sem hægt var
að brenna. Viður var það sem við
þekkjum betur í dag undir nafninu
eldiviður. Landið var sem sagt vaxið
eldiviði milli fjalls og fjöru.
Timbur allt til húsagerðar urðu
menn að flytja með sér frá Noregi,
og það var út úr neyð og timbur-
leysi sem menn fóru að búa í moldar-
kofum, það er torfbæjum. Astæðan
var einföld; á Islandi var enginn
skógur og ekkert timbur og hafði
aldrei verið, bara viður, — eldiviður.
Veðráttan var of köld fyrir þær trjá-
tegundir sem hægt var að nota til
húsagerðar og annarra smíða.
Og veðráttan er nákvæmlega eins
í dag, og hefur ekkert breyst. Það
er því algjörlega, og jafn vonlaust
nú sem áður, að ætla sér að rækta
hérlendis suðrænar trjátegundir til
timburgerðar. Á skjólsælustu og
sumarhlýjustu blettum landsins geta
nokkrar trjátegundir lifað, en þær
eru allar ónýtar til timburgerðar.
Þegar flogið er til norðurs yfir
skógabelti Kanada kemur senn að
þeim mörkum að skógurinn breytir
um svip. Trén verða lágvaxnari, teg-
undir breytast og trjálausir blettir
fara vaxandi. Loks kemur að þeim
mörkum að allur tijágróður hverfur,
en við tekur graslendi mörg hundruð
kólómetra til norðurs. Landslagið er
þó alveg óbreytt, flatt land nokkra
metra yfir sjávarmáli, með fjölda
vatna og með moldaijarðvegi.
Hvað er það þá sem hindrar skóg-
inn að vaxa enn norðar; hann hefur
haft árþúsundir til þess að færast
út? Svarið liggur í augum uppi, en
það er kuldinn. Veðráttan dregur
mörkin. Mörk skógarbeltisins eru
jafnframt mörk veðráttunnar.
Stundum er sagt að norðurmörk
skógarbeltisins séu jafnframt mörk
hin byggilega heims. Island liggur
rétt norðan við þessi mörk. Ræktun
svokallaðra nytjaskóga á íslandi er
með öllu óhugsandi, veðráttan setur
mörkin.
Margir þingmenn og ráðherrar
fullyrða að íslendingar lifi um efni
fram. Sagt með öðrum og einfaldari
orðum, þá lifir þjóðin flott á útlend-
um lánspeningum, sem hún getur
aldrei að eilífu borgað til baka.
Stefnir hröðum skrefum í það að
þjóðin missi efnahagslegt sjálfstæði
sitt, og Bandaríkin verði beðin af
Alþingi að yfirtaka skuldir íslend-
inga og taka við stjórn efnahags-
mála, og þar með verður landið trú-
lega gert að sérstöku verndarsvæði
Bandaríkjanna. Þetta yrði þjóðinni
vafalaust fyrir bestu.
Sukk og sóun íslendinga er með
ólíkindum, og eru fjárlögin órækasti
Tryggvi Helgason
„Marg-ir þingmenn og
ráðherrar fullyrda að
Islendingar lifi um efni
fram. Sagt með öðrum
og einfaldari orðum, þá
lifir þjóðin flott á út-
lendum lánspeningum,
sem hún getur aldrei
að eilífu borgað til
baka.“
vitnisburðurinn þar um. Ég hvet alla
til þess að kynna sér fjárlögin. Ár-
lega er eytt milljörðum í alls kyns
gæluverkefni og haldið uppi þúsund-
um manna í einskisverðum störfum;
langflestum í Reykjavík.
Ef í alvöru á að taka á og koma
lagi á efnahagsmálin, þá er brýn
nayðsyn að loka nú þegar fjölda
ríkisstofnana og segja tafarlaust upp
öllum starfsmönnum þeirra sömu
stofnana, en fækka hjá öðrum. Þjóð-
leikhús, sinfóníuhljómsveit og lista-
söfn eru aðeins hluti af þeim stofn-
unum sem á að loka strax; þessar
stofnanir eru aðeins sem kollurinn á
ísjakanum.
Skógrækt ríkisins er ein af þeim
ótal mörgu stofnunum sem á að
SKÁTAFÉLAGIÐ Vífill í
Garðabæ heldur sitt árlega
skátamót dagana 15.-17. júlí
næstkomandi. Mótið verður hald-
ið í Efridal, sem er rétt fyrir
ofan Heiðmörkina, Garðabæjar-
megin.
Að þessu sinni er rammi mótsins
„Vertu með“ og miðast öll dagskrá-
in við það að allir skátarnir kynnist
sem flestum. Á mótið koma skátar
frá Þýskalandi og Danmörku og
einnig bandarísku skátarnir frá
Keflavíkurflugvelli. Á mótinu verða
fjölskyldubúðir og eru gamlir skátar
hvattir til að koma og taka þátt.
Þeir sem ekki geta verið allan
tímann eru hvattir til að koma á
grillhátíðina, ,sem hefst um kl.
19.00, og kvöldvökuna, sem verður
um kl. 20.30 laugardagskvöldið.
Mótsgjald er 500 krónur og eru
innifalin í því mótsmerki, mótsbók,
leggja niður, enda óhugsandi að
rækta nytjaskóga hér á landi.
I hafinu umhverfis landið er að
fínna eina mestu uppeldisstöð fyrir
fisk, og eitthvert mesta matbúr fyr-
ir fisk sem fyrirfinnst í víðri veröld,
enda hefur verið ausið ótæpilega úr
þeim nægtabrunni gegnum árin.
En nú er farið að ryðja sér til
rúms eitt nýjasta gæluverkefnið, og
það er að mata fiska í búrum, uppi
á landi. Þetta virðist mér algjör fá-
sinna, þótt annars staðar geti þetta
gengið, svo sem í Kína 300 km frá
sjó.
Og þótt hvert áfallið reki annað,
og alilaxinn drepist af öllum mögu-
legum og ómögulegum ástæðum, þá
er stöðugt verið að mála gróðatöl-
urnar á vegginn, í fögrum litum; og
stjómmálamennirnir virðast nánast
sem heillaðir upp úr skónum. Það á
bara að slá nokkra milljarða að láni
erlendis, — til viðbótar, — og þá fer
allt að ganga fínt.
Stjórnvöld eiga, að mínu áliti, að
taka fyrir allan þennan alifiskabú-
skap, en klak seiða til sleppingar í
„alibúrið" umhverfis ísland á að
geta skilað miklum gróða.
Þá má minna menn á hrikaleg-
asta gæluverkefni allra tíma, en það
er gerð íslenskra raforkuvera. Síðan
er megnið af rafmagninu selt útlend-
ingum á undirmálsverði, en íslenskur
almenningur er látinn borga mis-
muninn með margföldu rafmagns-
verði.
Skynsamlegasta leiðin væri vita-
skuld sú, að útlendingarnir kostuðu
sjálfir sínar rafvirkjanir; keyptu til
dæmis virkjanir, svo sem Blöndu-
virkjun, og lykju við hana á sinn
kostnað, leggðu línu á sinn kostnað
til Straumsvíkur (eða Eyjafjarðar)
og reistu sína verksmiðju á sinn
kostnað.
íslendingar eignuðust síðan virkj-
un, línu og verksmiðju að vissum
árafjölda liðnum, samkvæmt samn-
ingi.
En útlendingarnir greiddu frá
upphafi vissan skatt ásamt fram-
leiðslugjaldi af hveiju útfluttu tonni,
samkvæmt samningi, — en annað
ekki.
mótsblað, kakó og kex o.fi.
Þau skátafélög sem enn hafa
ekki tilkynnt þátttöku sína eru beð-
in að gera það sem allra fyrst til
Bandalags íslenskra skáta í síma
23190. (Fréttatilkynninu)
Skátamót Vífils
Varatengingu gætu þeir fengið, á
sinn kostnað, við almenna kerfið og
greiddu þeir fyrir vararafmagnið það
sama verð og við verðum að borga.
Og spyija má: hvar í heiminum
eru ráðherrarnir og þingmennirnir
niðurkomnir; eru þeir allir farnir af
landi brott? Hví gera þeir ekki eitt-
hvað í þessum málum öllum?
Er það furða þótt kröfurnar um
að stjórnin segi af sér séu orðnar
ansi háværar, en maður einn sagði
svo hnyttilega um daginn, að stjórn-
in gæti hvorki lifað né dáið.
Það er kannski eitthvað til í því,
sem gárungarnir segja, að ráðherr-
arnir geti ekki hugsað sér að stjórn-
in deyi strax, — laxveiðitíminn sé
rétt að byija, og svo liggi fyrir
„svoddan hellingur" af utanlands-
ferðum og heimboðum, að hinni þeg-
ar sjálfdauðu ríkisstjórn verði haldið
lifandi í pólitískri öndunarvél, út lax-
veiðitímabilið.
Gömul kona fór í dýrabúð og keypti lítinn
kjölturakka. Þegar hún hafði borgað spurði
hún afgreiðslumanninn til frekara öryggis
hvort hann væri nú ekki tryggur greyið.
„Hvort hann er“ sagði hann og glotti, „ég er
búinn að selja hann sex sinnum og alltaf
kemur hann aftur til mín“!
KÓKÓmJÓLX F-klKiK 6LATT FÓLK /
MJÓLKURSAMSALAN I REYK|AVÍK T~
EINS OG ALLIR VITA
þá höfum við í Hótel Holti haft það að leiðarljósi í 20 ár að bjóða aðeins
Ijúffenga rétti úr besta hráefni dagsins fyrir lágt verð.
Auk hins hefðbundna matseðils, sem inni-
heldur 7-10 rétti daglega, þá minnum við jafnframt
á aðalmatseðilinn, sem hefur að geyma 50 rétti.
Dæmi:
Ljúffengir fiskréttir
verð frá
kr. 560,-
Úrvals kjötréttir
verð f rá
kr. 995,- Bergstaðastræti 37 - Sími 257Ö0
Það borgar sig
að borða i Holti.
Hjá okkur er,
og hefur verið,
opið allan daginn,
alla daga,
allt árið um kring.
L