Morgunblaðið - 13.07.1988, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
Reuter
Sest að samningaborðinu í Genf
Samninganefndir risaveldanna í
viðræðum um fækkun lang-
drægra kjamorkuvopna tóku til
starfa á ný í Genf í gær en hlé
var gert á viðræðunum eftir fund
leiðtoga risaveldanna í Moskvu í
lok maímánaðar. Á blaðamanna-
fundi sem boðað var til af þessu
tilefni sagði Max Kampelman,
formaður bandarísku samninga-
nefndarinnar, að allt kapp yrði
lagt á að ná fram samkomulagi
um fækkun langdrægra kjam-
orkuvopna og bætti hann við að
úrslit forsetakosninganna í
Bandaríkjunum í haust myndu
engu þar um breyta. Kampelman
sagði á mánudag að enn væn
hugsanlegt að samkomulag um
fækkun þessara vígtóla, ógn-
vænlegustu gerðeyðingarvopn-
anna, yrði undirritað í valdatíð
Ronalds Reagans Bandaríkjafor-
seta, sem lætur af embætti í jan-
úar á næsta ári. Kampelman var-
aði þó við of mikilli bjartsýni og
sagði að enn væri mikið starf
óunnið. Myndin var tekin er fyrsti
fundur þessarar samningalotu
hófst í gær og sýnir hún Kampel-
man (t.v) heilsa Alexei Obukhov,
helsta samningamanni Sovét-
stjómarinnar.
Thornburgh
valinn eftir-
maðurMeese
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, útnefndi í gær Richard
Thornburgh næsta dómsmála-
ráðherra landsins. Hann tekur
við embætti af Edwin Meese
sem hefur tilkynnt að hann
muni segja af sér innan mánað-
ar. Thornburgh var fylkisstjóri
Pennsylvaníu en þá var tekið
til baráttu hans gegn glæpum.
Hann hefur einnig gegnt starfi
innan dómsmálaráðuneytisins
þar sem hann hafði umsjón með
rannsóknum sakamála og
ákærum. Reagan sagðist hafa
getað treyst á hann þá, og því
sneri hann sér til hans núna.
Öldungadeildin þarf svo að
samþykkja útnefninguna.
Pílagrímar væntanlegir til Mekku:
Þúsund egypskir lögreglu-
menn sendu* til Saudi-Arabíu
Thornburgh var einn af þeim
sem George Bush fannst koma
til greina sem varaforsetaefni,
en hann hefur verið virkur í
starfi Repúblikanaflokksins.
Bahrain, Reuter.
FREGNIR bárust í gær frá sljóm-
arerindrekum arabarikja, stað-
settum við Persaflóa, að um það
bil þúsund egypskir herlögreglu-
menn væm komnir til Saudi-
Arabíu vegna pílagrímastraums
sem væntanlegur er til Mekku. í
fyrra við sama tækifæri kom til
blóðugra átaka milli lögreglu og
pQagrima frá íran sem notuðu
trúarhátíðina til að mótmæla
stefnu Bandaríkjastjórnar.
Stjómarerindrekar erlendra ríkja
í Saudi-Arabíu segja að halda eigi
komu egypsku lögregluþjónanna
leyndri vegna viðkvæmni málsins.
í fyrra létust 400 manns í átökum
í Mekku. Stjómvöld í Saudi-Arabíu
hafa í ljósi þess takmarkað flölda
pílagríma sem koma í ár til hátíða-
halda í Mekku og Medínu. íranir
fengu leyfi til að senda 45 þúsund
menn í stað 150 þúsunda í fyrra og
hóta þeir að hunsa hátíðahöldin í ár.
Ungverjaland:
Sex ára bið eftir Skoda-bifreið
Trabant fæst strax afhentur
Búdapest. Reuter.
HYGGIST menn festa kaup á
sovéskri Lada-bifreið í Ungveija-
landi eða tékkneskum Skóda
verða þeir hinir sömu að auðsýna
þolinmæði. Fimm til sex ár geta
liðið frá því bifreiðirnar fást af-
hentar, ef marka má fréttir hinn-
ar opinberu ungversku frétta-
stofu MTI.
Trabant-bifreiðar, sem frétta-
stofan segir hina „mestu mengun-
arvalda" em hins vegar fáanlegar
og rúmenskar bifreiðar af gerðinni
Daica em afhentar fáeinum mánuð-
um eftir að pöntun hefur borist.
Um síðasnefndu bifreið’amar segir
fréttastofan að „gæði þeirra séu
umdeilanleg".
I fréttinni segir að árlega bætist
um 120.000 bifreiðar í flota Ung-
veija og nægi sá fjöldi hvergi nærri
til að anna eftirspurn, sem sé
180.000 til 200.000 bílar á ári. „Af
þessum sökum er meðal biðtíminn
eftir bifreið fjögur ár, að Trabant-
bifreiðum þó undanskildum sem
kaupendur fá afhentar nánast sam-
stundis," segir þar einnig. Hyggist
menn festa kaup á Trabant-bifreið
þurfa þeir að reiða fram um 73.000
kr. ísl. og er ódýrari bifreið ekki
fáanleg í Ungveijalandi.
Fullyrt er í fréttinni að allar þær
bifreiðar sem framleiddir em í
ríkjunum austan járntjaldsins séu
úreltar og að útblástur þeirra ógni
lífríkinu. Ungveijar framleiða sjálf-
ir ekki bifreiðar en samningavið-
ræður standa nú yfir við japanska
fyrirtækið Suzuki, sem lýst hefur
yfir áhuga á að reisa samsetningar-
verksmiðju í Ungveijalandi.
Hryðjuverk undan Grikklandsströndum
<S^TYRK
Eyjahaf
Leiö
iferjunnar.
GRIKK-
LAND
Bifreið
springur
við höfnina
Saronikos
MiðjarÓarhaf
Ottast að hryðjuverka-
mennirnir hafi sloppið
Ellefu létust og 98 sárir eftir árásina
Aþenu, Daily Telegraph.
GRÍSK yfirvöld skýrðu frá því
í gær að leitað væri fimm araba,
sem grunaðir væru um aðild að
hryðjuverkaárásinni á feijuna
Poros-borg á mánudag. Sam-
kvæmt siðustu fregnum hafa
létust 11 ferðamenn af völdum
árásarinnar og 98 menn eru
taldir alvarlega sárir. Talsmað-
ur stjórnarinnar sagði að gífur-
leg leit væri nú gerð að hryðju-
verkamönnunum, en enn sem
komið væri hefði hún engan
árangur borið. íhaldsflokkur-
inn, sem er í stjórnarandstöðu,
sakaði stjórnina um „aðgerða-
leysi“ og sagði hryðjuverka-
mennina vafalaust komna úr
landi. Ónafngreindir heimildar-
menn innan grísku leyniþjón-
ustunnar staðfestu að það væri
ekki ólíklegt.
annan og mér kæmi ekki á óvart
þó það væri tengt skotárásihni á
Airbus-vélina," sagði ónafngreind-
ódæðinu loknu. Hafi þeim því ver- ur heimildarmaður innan grísku
ið bjargað úr sjónum sem hveijum lögreglunnar.
Hryöjuverkamenn
hefja skothrtð um
borð í ferjunni
Aþena
★
Paleo
aliron
KRGN / Morgunblaöiö/ AM
# Reuter
Áhöfn björgnnarskips reynir að slökkva eldana um
borð í ferjunni Poros-borg eftir hryðjuverkaárásina.
Eins og sjá má á efri myndinni voru skemmdirnar á
skipinu talsverðar.
Á blaðamannafundi sagði An-
astassios Sehiotis, ráðherra al-
mannareglu, að tvö lík til viðbótar
hefðu fundist í sjónum og um borð,
svo að alls eru fórnarlömbin 11,
en ekki níu eins og áður var talið.
Hann sagði það rétt að meðal
hinna látnu væru tvær fimmtán
ára stúlkur, en ekki hefur enn
verið gefið upp hveijar þær eru.
Meðal annarra fómarlamba eru
25 ára gamall Dani og 55 ára
gamall Svíi.
Samkvæmt fréttum BBC í gær-
kvöldi er nú talið að hryðjuverka-
mennimir hafi ekki komist undan
á hraðbát eins og fyrst var talið,
heldur hafí þeir kastað vopnunum
frá sér og hent sér í sjóinn að
öðrum ferðamönnum og tekist að
týnast í mannþrönginni. 471 mað-
ur voru um borð í feijunni þegar
árásin var gerð og beittu hryðju-
verkamennimir vélbyssum og
handsprengjum óspart við verkn-
aðinn.
Enginn hefur enn sem komið
er lýst ábyrgðinni á hendur sér,
en lögreglan sagði að ekki væri
ósennilegt að hér ræddi um hefnd
vegna írönsku farþegaþotunnar,
sem bandarískt herskip skaut nið-
ur yfír Persaflóa hinn 3. júlí síðast-
liðinn.
„Þetta atvik beinist á engan
hátt gegn Grikklandi. Arabar
tengjast þessu á einn hátt eða
íransstjórn hét á sínum tíma
hefndum fyrir vélina, en 290
manns létust þegar bandaríska
herskipið Vincennes skaut þotuna
í misgripum fyrir íranska herþotu.
Ber Hizbollah ábyrgðina?
Sem fram kom að ofan eru
uppi getgátur um að Iranir tengist
hryðjuverki þessu og hafði
aþenska blaðið Eleftþerotypia það
eftir ónafngreindum heimildar-
mönnum innan lögreglunnar að
hér hafi hryðjuverkamenn Hiz-
bollah-hreyfíngarinnar í Líbanon
verið á ferðinni, en sú hreyfing
fylgir íransstjóm ákaft að málum.
Aðrir hafa þó orðið til þess að
reifa kenningar um að hryðjuverk-
ið standi í sambandi við framsals-
beiðni Bandaríkjanna á Palestínu-
arabanum Mohammed Rashid,
sem grunaður er um aðild að
hryðjuverki árið 1982, en þá
sprakk sprengja um borð í þotu
flugfélagsins Pan Am.
Iransstjórn hefur þó aðrar skoð-
anir á þessu og sagði Bandaríkja-
menn standa að baki árásinni í
því skyni að beina athyglinni frá
árás Bandaríkjaflota á írönsku
farþegaþotuna. Sagði Ríkisútvarp-
ið í Iran að CIA hefði skipulagt
hryðjuverkið til þess að koma illu
af stað í heiminum og kenna írön-
um_ um.
Árásin hefur hvarvetna verið
fordæmd og hafa fjölmargar ríkis-
stjómir heims lýst viðbjóði sínum
á hryðjuverkinu. Frelsissamtök
Palestínu (PLO) hafa einnig for-
dæmt verkið og sagði að PLO
hefði hvergi komið þar nærri.